Bændablaðið - 11.02.2021, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202138
Í nóvember síðastliðnum prófaði
ég rafmagns/bensínbílinn Jeep
Compass Trailhawk, bíl sem mér
fannst koma frábærlega vel út
við prófun, en nú prófaði ég „litla
bróður hans“, Jeep Renegade
Trailhawk PHEV, svipað útbúinn
bíl með rafmagns- og bensínvél.
Kraftmikill miðað við stærð
og þyngd
Vélarnar eru tvær, rafmagns og
bensín. Rafmagnsvélin drífur aftur
öxulinn og bensínvélin er 1300 cc
og tengist framöxli, samanlagt eru
vélarnar 240 hestöfl.
Sjálfskiptingin er sexþrepa,
lægsti punktur undir bíl er 20,1 cm.
Miðað við kraft og þyngd er
bíllinn skemmtilega sprækur, sér
staklega ef maður setur gírskipt
inguna í sportstillingu. Ef maður
er með bílinn í autostillingunni
og hann fullhlaðinn er hann bara
að keyra á rafmagnsmótornum (í
aftur hjóladrifinu) og á að komast allt
að 50 km við bestu aðstæður. Hins
vegar ef maður setur á sportstill
inguna (sem mér fannst skemmtileg
ast að keyra bílinn í), þá fer bensín
mótorinn í gang og bíllinn keyrir á
báðum mótorunum í fjórhjóladrifi.
Prufuaksturinn var rúmir 100
km
Ég var með bílinn í tvo daga, fyrri
daginn voru götur auðar og engin
hálka. Þann dag keyrði ég mest
innan bæjar og mest á rafmagn
inu. Ég varð fyrir svolitlum von
brigðum með hávaðamælinguna
inni í bílnum á rafmagnsmótornum,
en á 90 km hraða mældist hann
71,1 db. (Compass bíllinn var með
mun betri mælingu, 67,4 db. á sama
vegi og hraða).
Seinni daginn var mikil hálka
(hafði gert frostrigningu um
nóttina) og þegar ég setti bílinn í
gang var hann ein klakabrynja. Það
kom mér á óvart hvað bíllinn var
fljótur að hitna að innan og bræða
klakann af framrúðunni. Þessi upp
hitun tók að vísu nokkra kílómetra
af rafhlöðunni.
Uppgefin eyðsla á bílnum miðað
við 100 km akstur er 2,0 lítrar á
hundraðið (hef aldrei skilið þessar
uppgefnu eyðslutölur á tvinnbíl
um). Ég keyrði bílinn alls rúma
108 km og fór á rafmagninu 21,9
km, á bensínvélinni 86,7 km og var
að eyða alls 7,9 lítrum af bensíni.
Nokkuð gott fannst mér miðað við
að ég var mest í sportstillingunni að
fullnýta öll 240 hestöflin.
Skemmtileg fjöðrun
Á holóttum vegslóða prófaði ég
allar stillingarnar í skiptingunni,
en sniðugust var snowstillingin.
Með stillt á hana tók bíllinn svo
mjúklega að þegar maður fór af
stað eða gaf snögglega í einfaldlega
spólaði bíllinn ekki. Til að hægt
sé að nota rock, mud og sand þarf
að setja bílinn í lága drifið, en þá
virðist hann taka tiltölulega jafnt
á öll hjól (einhvers konar tregðu
læsing á milli hjóla). Á holóttum
vegi vinnur fjöðrunin vel og þrátt
fyrir að bíllinn sé stuttur og frekar
léttur að aftan var hann ekkert að
„hrekkja“ með afturendanum (ekki
laus að aftan í holum eins og oft vill
vera á mjög stuttum bílum).
Mikið af aukahlutum og
öryggisbúnaði
Verðið á bílnum er 5.499.000,
sem einhverjum hefði fundist hátt
verð á svona litlum bíl, en miðað
við hvað mikið af aukabúnaði er í
bílnum er þetta að mínu mati mjög
gott verð.
Bíllinn er með hita í stýri og
sætum, ABS hemlalæsivörn,
stöðugleikastýringu, 6 loftpúða,
velti vörn, mjög góð ledljós, blind
horns vörn, bakkmyndavél, bíla
stæðaaðstoð (hjálparbúnaður til að
leggja í stæði), GPS leiðsögubúnað
og margt fleira. Bíllinn kemur með
fullbúnu varadekki.
Eftir þennan stutta akstur á bíln
um fann ég nánast ekkert sem ég
gat sett út á bílinn fyrir utan frekar
litla dráttargetu (1.150 kg), en
dekkin var ég ekki sáttur við sem
sögð eru ætluð fyrir drullu og snjó,
en hefði kosið betri vetrardekk fyrir
aksturinn. Svo var það hvað bíllinn
mældist með mikinn hávaða inni í
bílnum á 90 (sérstaklega miðað við
hvað stærri bíllinn var með góða
mælingu í nóvember).
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lengd 1.800 mm
Hæð 1.670 mm
Breidd 1.800 mm
Helstu mál og upplýsingar
Jeep Renegade PHEV, skemmtilegur
bíll á góðu verði
Mynd 1. Jeep Renegade Trailhawk. Myndir / HLJ
Dekkin sem bíllinn kemur á eru merkt M+S, en eru ekki snjó- og hálkudekk
fyrir íslenskar aðstæður.
Mikill munur er á drifstillingunum sem kom sér vel í aðstæðum prufuakstursins.
Það tók mig smá tíma að finna hvar
kveikt væri á hita í sætum og stýri.
21,9 km á rafmagni, 86,7 á bensíni og eyddi 7,9 lítrum af bensíni á 108 km
prufuakstri.
Fullbúið varadekk og ágætis pláss
fyrir farangur miðað við stærð bíls.
Fannst hávaðamælingin vera full há
miðað við rafmagnsbíl.
Mér varð á í síðasta blaði þegar
ég fjallaði um stærð vélarinnar
á bílnum, en ég gerði þau mistök
að afrita ranga vélarstærð þar
sem ég sagði að vélin væri 3000
cc og 188 hestöfl.
Hið rétta er að vélin í ISUZU
DMax bílunum, sem eru í
boði hér, er 4 strokka, 1898 cc,
160 hestöfl, og hámarks tog er
360Nm., og biðst ég velvirðingar
á þessum mistökum mínum. /HLJ
Isuzu D-Max leiðrétting á texta frá síðasta blaði