Víkurfréttir - 05.05.2021, Blaðsíða 6
Að fara út í næturmyrkrið í góðu
veðri til að mynda hvort heldur
norðurljós eða hreinlega bara lands-
lagið með tunglið sem eina ljós-
gjafann er virkilega gaman.
Í einni slíkri ferð var ég staddur
á bakka speglsléttrar flæðitjarnar, í
dauðalogni og tunglið eins fullt og
það getur orðið þannig að aðstæður
gátu ekki verið betri.
Þar sem ég stend þarna á bakk-
anum algjörlega í mínum eigin heimi
upptekinn af því að stilla mynda-
vélina á milli þess sem ég smelli af,
þá læðist að mér sú tilfinning að
verið sé að fylgjast með mér. Ég ýti
þessari tilfinningu jafnharðan frá
mér og hugsa með mér hverslags vit-
leysa þetta sé, staddur einn hér úti í
rassgati og enginn annar á svæðinu.
Þessari ónota tilfinningu skaut upp
nokkrum sinnum uns ég ákvað að
snúa mér við á meðan myndavélin
var að hlaða í eina myndina.
Viti menn! Þegar að ég sný mér
við horfi ég beint í augun á þessum
líka samanrekna og fagurhyrnda hrút
sem stóð uppi á barði í seilingar-
fjarlæg að baki mér. Ekki veit ég
hvorum brá meira ljósmyndaranum
eða hrútnum.
Eftir að hafa henst afturábak og
næstum því hent myndavélinni
um koll, jafnað mig á hjarsláttart-
ruflunum og ýmiskonar öðrum
truflunum á líkamsstarfsemi náðist
mynd!
Það getur tekið á taugarnar að
taka myndir.
RITSTJÓRARPISTILL - PÁLL KETILSSON
FIMMTUDAGUR KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Jón Steinar
Sæmundsson Einn í heiminum - Samt ekki.
Raunir ljósmyndarans eru margar.
Unga fólkið okkar fékk hrós hjá Ragnheiði Elínu Árna-
dóttur í Lokaorð-pistli hennar á baksíðu Víkurfrétta í
síðustu viku. Sannarlega orð að sönnu og auðvelt að
taka undir þau. Við hjá Víkurfréttum hittum reglulega
unga fólkið í störfum okkar en næstu vikurnar verða
ungmenni úr Reykjanesbæ í sviðljósinu í sjónvarpsþætti
okkar, Suðurnesjamagasíni. Hópur á vegum Fjörheima
og 88 hússins hefur að undanförnu unnið fréttainnslög
um margvíslegt efni og við munum sýna þau í þáttunum
í þessari og næstu viku. Verkefnið er til komið vegna
Barna- og ungmennahátíðar Reykjanesbæjar 6. til 24.
maí.
Krakkarnir fóru víða í leit sinni að áhugaverðu efni
og unnu innslögin sín af miklum metnaði og áhuga. Þau
komu á ritstjórnarskrifstofu Víkurfrétta í síðustu viku
þar sem teknar voru upp sjónvarpskynningar sem verða
sýndar í þáttunum. Krakkarnir leystu það af hendi eins
og ekkert væri. Það er ástæða til að hvetja fólk til að sjá
ungmennin okkar fara á kostum í sjónvarpi.
Í Suðurnesjamagasíni í síðustu viku sýndum við frá
bólusetningum á Suðurnesjum. Góður gangur er í þeim
og von er á frekari Covid tilslökunum í næstu viku.
Það segir okkur að hlutirnir séu að ganga vel í kófinu
og þá styttist í „venjulegt“ líf, alla vega hér á landi, á
næstunni. Í samtali við nokkra aðila í ferðaþjónustunni
má heyra betra hljóð því ferðamenn eru þegar farnir
að streyma til landsins, ekki með sama hraða og fyrir
kófið en tvö bandarísk flugfélög fljúga nú daglega með
hundruð ferðalanga, bólusetta Bandaríkjamenn. Þá er
PLAY á leið í loftið og fleiri ferðir hjá Icelandair. Þetta
eru góðar fréttir fyrir hótelin, bílaleigurnar og marga
aðra, til dæmis fólkið sem missti vinnuna vegna Covid.
Störfin munu flest koma til baka hægt
og bítandi. Verkfræðistofa Suðurnesja
fékk stórt verkefni við flugstöðina eftir
að hafa verið lægst í útboði og það eitt mun skapa fjögur,
fimm störf í tvö ár fyrir stofuna. VF smellti af brosandi
forstjóra Isavia og Verkfræðistofunnar í upphafi vik-
unnar. Það var gaman að sjá það. Landið er að rísa.
Mörg fyrirtæki hafa þrátt fyrir kófið haldið haus, til
dæmis mörg verktakafyrirtæki í iðnaði og byggingum
á Suðurnesjum. Nokkur eru með rammasamning við
Isavia og eru með nokkuð stöðugt verkefni í og við
flugstöðina, bæði við nýsmíði hvers konar og viðhald.
Í viðtali við forstjóra Isavia fyrir skömmu kom fram að
mikil meirihluti fyrirtækja sem er með rammasamning
við Isavia er með aðsetur á Suðurnesjum. En talandi
um góð fyrirtæki sem hafa haldið haus er verktaka-
fyrirtækið Sparri í Reykjanesbæ. Það er eitt öflugasta
verktakafyrirtæki á Suðurnesjum og hefur byggst upp
og stækkað jafnt og þétt í aldarfjórðung. Eigendur eru
niðri á jörðinni en með seiglu og metnað gert góða hluti
en starfsmenn þess eru að jafnaði á milli 20 og 30. Það
munar um minna. Við vorum líka viðstaddir fyrstu
skóflustungu að nýju íbúðahverfi í Sandgerði í Suður-
nesjabæ. Þar voru stór tæki frá Ellert Skúlasyni en það
er eitt af elstu fyrirtækjunum á Suðurnesjum og annað
dæmi um seiglu eigenda og stjórnenda. Leiðarahöfundur
samdi nýlega við fyrirtæki sem starfar í margvíslegri
garðvinnu og tengdum verkefnum. Það er ungt fyrirtæki
sem hefur plumað sig vel og er komið með nærri tuttugu
starfsmenn. Fleiri dæmi mætti nefna um góð fyrirtæki á
svæðinu en við munum segja meira frá þeim á næstunni
en reynum alla jafna að segja frá þeim reglulega.
UNGA FÓLKIÐ OKKAR OG
FYRIRTÆKIN Á SUÐURNESJUM
nýr tími!
6 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár