Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.2021, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 05.05.2021, Blaðsíða 23
Agnar Olsen Íslandsmeistari í 8-Ball Fyrir mörgum árum, þegar rekin var knattborðsstofa í Grófinni í Keflavík og víðar, voru margir snjall ir spilarar á Suðurnesjum – en þó að stofa hafi ekki verið rekin hér í háa herrans tíð leynast enn góðir leikmenn á Suðurnesjum. Um miðjan apríl varð Vogamaðurinn Jón Ingi Ægisson Íslandsmeistari í snóker 40 ára og eldri og um þarsíðustu helgi landaði Njarðvíkingur- inn Agnar Olsen Íslandsmeistaratitl i í 8-Ball . Agnar er enginn aukvisi í poolinu en hann varð einnig Íslandsmeistari í 9-Ball árið 2018 og árið 2019 vann hann tvöfalt, varð Íslandsmeistari í 8-Ball og 9-Ball. Agnar tók ekki þátt í mótum árið 2020 vegna veikinda. Agnar stundar pool á fullu og er virkur í starfsemi íþróttarinnar en hann situr í stjórn Billiardsambands Íslands. Víkurfréttir óskuðu Agnari til hamingju með titilinn og spjöll- uðum við hann um pool og fleira. „Þetta var ansi skemmtilegt mót, útsláttarmót. Oft hefur verið spilað í riðlum en núna var bara beinn útsláttur. Ef maður tapaði þá fór maður bara heim. Í fyrstu umferð fór sá sem var fyrstur til að vinna sjö ramma áfram, þannig að allir fengu þó eitthvað út úr mótinu. Þátttakan í mótinu var ágæt, tuttugu manns, en þetta var fyrsta Íslandsmótið af þremur í pool. Núna var keppt í 8-Ball en það eru í raun þrjú Íslandsmót eftir hjá Billiardsam- bandinu; Íslandsmótið í 9-Ball og Íslandsmótið 10-Ball, en þau verða núna seinnipartinn í maí, og svo er Íslandsmótið í snóker í gangi núna. Það er það mót sem er alltaf litið á sem stóra mótið.“ – Keppir þú í bæði pool og snóker? „Já, ég geri það núna, aðallega til að fá meiri keppnisreynslu – en ég hef lagt meiri áherslu á poolið. Á næsta ári ætla ég að vera í báðum greinum, það er svo gaman að þessu og þótt maður sé ekki að verða neinn heims- meistari úr því sem komið er þá er bara svo gaman að vera með. Þetta er meira upp á gamanið.“ Saknaði keppninnar – Agnar er fæddur og uppalinn Njarðvíkingur og lék með Njarð­ víkingum í úrvalsdeildinni í körfu á árunum 1988 til 1993 – en hvar kynntist hann poolinu? „Ég var aðeins í þessu í gamla daga, þegar það var stofa hérna í Grófinni, en svo byrjaði ég á þessu þegar ég flutti hingað aftur fyrir um tólf árum. Ég er endurskoðandi og bjó á Eskifirði í nokkur ár þar sem ég vann og lék mér aðeins í körfubolta með Hetti. Síðan bjó ég í Kópavogi til ársins 2008 þegar ég flutti aftur hingað. Þá setti ég upp pool-borð heima hjá mér og fór svo af krafti í þetta fyrir svona þremur árum, byrjaði að taka þátt í mótum seinni partinn 2017. Ég hef alltaf haft rosa- lega gaman að þessu. Það er svo gaman að keppa, ég er keppnismaður í eðli mínu og hafði hætt í körfunni mörgum árum áður – ég bara saknaði þess að keppa. Það er öðruvísi and- rúmsloft og spennustig þegar maður er í móti, það er bara „do or die“. Það er svo fyndið þegar maður fer af stað með það fyrir augum „að bara vera með“ en það endist bara í svona fimm mínútur, svo kviknar á keppnisskapinu í manni. Þetta er eins og þegar maður fer í körfu- bolta með gömlu félögunum, á bara að vera létt og skemmtilegt en um leið og menn eru búnir að reima á sig skóna byrjar metingurinn og harkan. Þess vegna er svo mikið um meiðsli í þessum eldri bolta, hugurinn er langt á undan líkamanum,“ segir Agnar. Vantar meiri nýliðun Agnar segir að Billiardsambandið hafi verið að vinna í að gera greinarnar aðgengilegri fyrir fólk til að fylgjast með. Nú er farið að streyma beint frá keppni og BSÍ hefur tekið í notkun tölvukerfi þar sem úrslit leikja eru birt jafnóðum. „Nú er mjög auðvelt að fylgjast með mótum á netinu, sjá hvernig leikir ganga. Við höfum verið að gera þetta áhorfendavænna en svo höfum við sett okkur annað markmið. Það þarf að verða meiri nýliðun í sportinu, við þurfum að ná til krakk- anna og við höfum verið að horfa á að ganga í Íþróttasamband Íslands en Billiard sambandið hefur ekki verið innan þess.“ Vinsældir að aukast Það er nokkuð ljóst að vinsældir snóker og pool eru á uppleið í ís- lensku íþróttalífi. Núna er Íslands- mótið í snóker í gangi en það hófst um síðustu helgi og því lýkur um næstu helgi. Agnar segir að vegna Covid hafi Íslandsmótið verið opið í ár. „Vanalega eru það sextán efstu á stigalista Billiardsambandsins sem hafa þátttökurétt í meistaraflokki á Íslandsmótinu og svo er keppt í fyrsta flokki. Í ár höfum við ekki getað haldið nema tvö stigamót, þess vegna var sú leið farin að sleppa fyrsta flokknum og hafa opið mót í staðinn. Þeir átta efstu frá síðasta ári komast beint inn í sextán manna úrslit en það voru 34 sem kepptu um síðustu helgi um hin átta sætin.“ Sextán og átta manna úrslit voru leikin á sunnudaginn og mótinu verður áfram haldið um næstu helgi. Þess má geta að Agnar féll úr leik í sextán manna úrslitum en Suður- nesjamaðurinn Jón Ingi Ægisson, Íslandsmeistari í snóker 40 ára og eldri, kom beint inn í átta manna úrslitin þar sem hann vann Ásgeir Guðbjartsson 5:4. Undanúrslit Ís- landsmótsins verða leikin á laug- ardag og úrslitaleikurinn fer fram á sunnudag. Íslandsmeistarinn mundar kjuðann á Íslandsmótinu í 8-Ball. Ljósmynd: Gala Trigg Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is MEiðSli SvEiNdíSar Ekki EiNS alvarlEg Og ÓttaSt var Síðasta föstudag var framherjinn Sveindís Jane Jónsdóttir borin meidd af velli eftir um fjörutíu mínútna leik í viðureign Kristi­ anstad og Växjö DFF í sænsku úrvalsdeildinni. Þegar Sveindís meiddist festist annar fóturinn á henni í gervi- grasinu og snerist illa upp á hnéið á henni. Mjög var óttast að um krossbandameiðsli væri að ræða en eftir að hafa undirgengist rannsóknir og farið í segulómun á mánudag kom í ljós að meiðslin eru ekki eins alvarlega og útlit var fyrir. Sveindís Jane, sem er samnings- bundin Wolfsburg í Þýskalandi og á lánssamningi hjá Kristianstad, hefur farið ljómandi vel af stað í sænsku úrvalsdeildinni. Sveindís skoraði strax í sínum fyrsta leik með félaginu, sá leikur var gegn Alingsås FC og fór 1:1. Í annarri umferð sigraði Kristianstad lið Djurgården 2:1 en þá átti Sveindís stoðsendinguna í fyrra markinu og skoraði sjálf sigurmarkið. Ljóst er að skarð er hoggið í hóp Kristianstad sem nú situr í öðru til þriðja sæti sænsku úrvalsdeildar- innar en Kristianstad vann leikinn gegn Växjö DFF. Í frétt á vefsíðu Kristianstad er haft eftir Marie Ramlund, lækni félagsins, að meiðsli Sveindísar séu sem betur fer ekki eins al- varleg og óttast var. Líklegt er þó að Sveindís Jane Jónsdóttir geti verið frá keppni í um sex vikur. 6.000,- kr. Námskeiðið kostar aðeins og eru boltar og áhöld i ifalin. Fyrir þá sem síðan ganga í golfklúbbi fæst gjaldið e ndurgrei. Þann 3. maí heast nýliðakynningar hjá Gollúbbi Suðurnesja. Sigurpáll Geir Sveinsson PGA golennari og íþróttastjóri Gollúbbs Suðurnesja, ásamt leiðbeinanda, mun kynna golfíþróttina fyrir áhugasömum ásamt því að fara yfir grunnatriði golfsveiflunnar ásamt púttum og vippum. Námskeiðin miða að þeim sem langar að prófa golf eða eru að skríða sín fyrstu skref í íþróttinni. Miðað er við nýliða og þá sem hafa ekki náð 35 í forg jöf. Námskeið 3. 10. og 11. maí kl. 19–20 Námskeið 4. 10. og 11. maí kl. 20–21 Námskeið 5. 17. og 18. maí kl. 19–20 Námskeið 6. 17. og 18. maí kl. 20–21 Nýliðaky ing hjá Golfklúbbi Suðurnesja Viltu ky a þér golf og fá að prófa? SKRÁNING ER HAFIN Á GS.FELOG.IS TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ Sigurmarki Sveindísar í leik Kristianstad gegn Djurgården fagnað. Mynd af vef Kristianstad (kdff.nu) GOLFSKÓDAGAR SÉRFRÆÐINGUR VERÐUR Á STAÐNUM FIMMTUDAGINN 6. MAÍ Í SKÓBÚÐINNI HAFNARGÖTU 29 % AFSLÁTTUR AF ÖLLUM GOLFSKÓM20 6.-7. MAÍ víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 23

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.