Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Side 4

Skessuhorn - 10.02.2021, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 20214 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Hafi vilja og burði til góðra verka Að óbreyttu fara kosningar til Alþingis Íslendinga fram laugardaginn 25. sept- ember næstkomandi. Óvissuþættirnir hvað það snertir eru einkum þeir hvort samstarf ríkisstjórnarflokkanna haldi út kjörtímabilið. fátt bendir reyndar til annars enda virkar fremur kært milli forsvarsmanna flokkanna, allavegana á yf- irborðinu. Þeir virðast hafa samið um hvaða mál fái brautargengi síðustu metra samstarfsins og má nefna bankasölu, hálendisþjóðgarð og barnafrumvarp til marks um það. Nú þegar innan við ein meðganga er til kosninga er þess að vænta að flokkar sem hyggjast bjóða fram fari að láta vita af sér. Norðvesturkjördæmi er fámennt og strjálbýlt í samanburði við önnur. Vegna reglna um jafnan atkvæðisrétt landsmanna grúfir sífellt sú ógn yfir að hér þurfi að fækka þingmönnum. Þeir eru nú sjö kjördæmakjörnir og eitt jöfnunar- þingsæti. Síðast fékk Miðflokkurinn jöfnunarsætið sem enginn veit hver hrepp- ir það fyrr en búið er að telja upp úr öllum kjörkössunum undir morgun á kosn- inganóttu. Þessir átta þingmenn þurfa síðan að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna hvarvetna, frá Akranesi í suðri, um Vestfirði og Norðurland vestra, allt norður í Skagafjörð. Hér er því um gríðarlega víðfeðmt kjördæmi að ræða og ólík svæði þegar kemur að ýmsum hagsmunum íbúa. Til að rækta tengsl sín við kjósendur eru sumir þingmenn duglegir að fara reglulega um og heyra hvaða mál brenna á fólki. Af því leiðir að mér er ómögulegt að skilja þann pirring sem reglulega hlýst af ferðakostnaði þingmanna. Meðan núverandi kjördæmaskipan er við lýði fagna ég því að þingmenn séu á ferðinni og held að margur sparn- aður í ríkisrekstri gæti verið nauðsynlegri. Góður þingmaður er nefnilega með puttann á púlsinum hverju sinni enda starfar hann í skjóli umbjóðenda hvar sem þá er að finna í kjördæminu. Á liðnum árum og kjörtímabilum geri ég mér vel grein fyrir því að þau tengsl eru misjafnlega vel ræktuð. Hér á landi búum við við flokksræði. Það eru stjórnmálaflokkar sem ákveða hvernig valið er á framboðslista. Það getur verið býsna flókið ef búa á til lista sem höfðar til sem flestra og dýrkeypt ef það mistekst. fæstir landsmenn eru í dag flokksbundnir og því eru mjög margir sem velja einstaklingana á framboðs- listunum jafnvel frekar en flokkana sem þeir tilheyra. Vissulega eru þó margir sem kjósa ætíð sama flokkinn, af gömlum vana og jafnvel af því foreldrarnir kusu þannig og þar áður foreldrar þeirra. Enn aðrir velja að setja atkvæði sitt á ákveðinn flokk til að tryggja honum betri möguleika þegar kemur að ríkis- stjórnarsamstarfi. Sjálfur hef ég verið utan flokka frá því áður en ég kom að stofnun Skessu- horns fyrir hartnær aldarfjórðungi síðan. finnst það bæði eðlilegt og rétt enda tel ég að fjölmiðill eins og okkar eigi að vera hafinn yfir tengsl við stjórnmála- flokka. Við eigum að gæta hagsmuna allra, kvenna jafnt sem karla, ungra sem aldinna. Enda er í mínum huga vafasöm afstaða að binda trúss sitt við ákveðinn stjórnmálaflokk því þeir breytast ekki síður en við sjálf. Í ljósi þess hversu kjördæmið er víðfeðmt bíður flokksfélaganna nú að setja saman framboðslista sem vænlegir eru til vinsælda. Þurfa að gæta að kynjaskipt- ingu, staðsetningu og fjölmargum öðrum þáttum. fyrstu prófkjörin fara fram í þessum mánuði en aðrir flokkar eru rólegri í tíðinni og taka jafnvel ekki ákvörð- un fyrr en með vorinu. Undir yfirborðinu er hins vegar löngu byrjað að takast á um skipan fulltrúa. Dæmi eru um að menn hafi fyrir löngu undirbúið framboð sín, flutt jafnvel milli byggðarlaga til að kynnast sem flestum. Það er gott og blessað, enda er bara jákvætt að metnaður liggi á bakvið ákvörðun um framboð til Alþingis. Verra er hins vegar ef slagur milli byggðarlaga um frambjóðendur í bitastæð sæti verður of harður. Umfram allt er mikilvægt að þeir sem veljast í forystusæti hafi bæði burði og vilja til að gegna svo þýðingarmiklu starfi sem þingmennska er. Það skiptir nefnilega raunverulegu máli að til forystu veljist öflugt fólk sem tilbúið er að berjast fyrir hagsmunum landsbyggðarinnar því við erum nú þegar orðinn minnihlutahópur sem þarf að láta vel í okkur heyra. Magnús Magnússon Verktakar hafa nú hafist handa við að grafa grunn við Ölkelduveg í Grund- arfirði en það er nú eitt- hvað sem ekki er sér- lega algengt. Þarna mun rísa glæsilegt einbýlishús við Ölkelduveg 23. Þetta verður kærkomin viðbót við húsnæðiskost bæjar- ins en þónokkur hreyf- ing hefur verið á fasteign- um í Grundarfirði upp á síðkastið. Það er alltaf ánægjulegt fyrir íbúa að sjá slíkar framkvæmdir innan bæjarmarkanna. tfk Á fundi stjórnar Veiði- félags Arnarvatnsheið- ar í síðustu viku var samþykkt að bjóða upp á leyfi til dorgveiða í úlfsvatni. Stöngin mun kosta fimm þúsund krónur og eru menn beðnir um að setja sig í samband við Snorra Jó- hannesson veiðivörð (s. 892-5052) til að fá upplýsingar um færð og annað sem nauðsyn- legt er að vita ef menn ætla í vetr- arferð inn á heiðina. Þar sem ekki eru all- ir búnir farartækjum til vetrarferða upp á há- lendið bendir veiði- félagið á að Kristján Kristjánsson sem rek- ur Mountain taxa ætl- ar að bjóða upp á ferð- ir í dorgveiði á heiðina núna í vetur en Kristján er vel kunnugur á svæð- inu og með góða bíla í slík vetrar- ferðalög. mm Peningastefnunefnd Seðlabankans gaf það út 3. febrúar síðastliðinn að stýrivextir verði áfram óbreytt- ir. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 0,75%. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá kemur fram að svo virðist sem innlend eftirspurn hafi verið þróttmeiri í fyrra en áður var áætlað og efnahagssamdrátt- urinn því minni en bankinn spáði í nóvember. Á þessu ári eru einnig horfur á að innlend eftirspurn vaxi meira en áður var spáð en á móti vega lakari útflutningshorfur. Þró- un efnahagsmála mun þó markast af framvindu farsóttarinnar. Verðbólga jókst í janúar þegar hún mældist 4,3%. Þar vega enn þungt áhrif gengislækkunar krón- unnar á verð innfluttrar vöru. Á sama tíma hefur verð innlendr- ar vöru einnig hækkað sem end- urspeglar að einhverju leyti þrótt innlendrar eftirspurnar. Þá hef- ur alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hækkað og við bætast óhagstæð grunnáhrif frá janúar í fyrra. Sam- kvæmt spá Seðlabankans eru horf- ur á að verðbólga verði um 3,9% á fyrsta fjórðungi ársins en að hún hjaðni tiltölulega hratt er líður á árið enda töluverður slaki til staðar í þjóðarbúinu og gengi krónunnar hefur hækkað undanfarna mánuði. „Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðar- búskapinn og tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásætt- anlegs tíma,“ segir í yfirlýsingu frá stofnuninni. mm Ábúendur á Glitstöðum í Norð- urárdal hrukku upp um miðja nótt aðfararnótt þriðjudags í síðustu viku þegar þyrla Landhelgisgæsl- unnar flaug þar yfir í lágflugi, lægra en venja er til, svo drundi í húsum. Þarna var Tf-EIR á ferð en þyrl- an hafði verið kölluð út til að sækja veikan einstakling. Þyrlan fór til móts við sjúkrabíl og lenti nærri fornahvammi, að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Eftir flugtak var flugið hækkað en vegna ókyrrð- ar í lofti varð að lækka flugið aftur niður í þúsund fet og fljúga þann- ig út Norðurárdalinn. Þyrlan flutti sjúklinginn á Landspítalann í foss- vogi og lenti þar með hann klukkan 4:38 um nóttina. arg Stýrivextir verða áfram óbreyttir Byrjað að grafa fyrir húsi í Grundarfirði Þyrla í lágflugi yfir Norðurárdalnum Nú er hægt að kaupa dorgveiðileyfi í Úlfsvatni

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.