Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202124 Vísnahorn Það er ógaman að eiga við vatnsföll sem ryðja sig svo jakaburðurinn gengur langt á land upp. fyrir margt löngu hljóp maður yfir blöndu á jakastíflu. Sá hafði við- urnefnið pissíbux og þótti vaskleikamaður en fljóthuga og mismælagjarn og sagði svo frá að hann hefði hlaupið á randajökum yfir. Varð úr þessu mikil uppspretta af randajakavísum og kemur sú fyrsta eftir Guðmund sem kallaður var Vídalín: Er sá dugs í æði gikks, - ekki grand nam saka, - Pissíbux var fljótur, fix, flaut á randajaka. Eitthvað voru þessar vísur misjafnar að gæðum eins og gengur enda margir kallað- ir en fáir útvaldir sem oftar skeður. flestar munu þær hafa gengið út á að lofa Guð fyrir að hjálpa manninum lifandi til lands og ein- hver ágæt húsfreyja í sýslunni orti: Mæta Drottins mildin há manninn lét ei saka. Fluttist Blöndu yfir á einum randajaka. Önnur höfundarlaus hljómaði svo: Fljótið Blanda fram í sjó fleygði bandi klaka, einn mannfjandi yfir þó á komst randajaka. Það var hinsvegar Guðmundur Ingiberg Guðmundsson, hálfbróðir Kristins bjarna- sonar frá Ásbrekku, sem orti þessa útgáfu: Illan vanda virðar fá, vill oft Blanda þjaka, stilla landa maður má milli á randajaka. Eins og áðan var getið hafði sá góði maður viðurnefnið Pissíbux en ekki er þó ljóst hvort hann fékk það eftir þennan atburð af þeim or- sökum sem tilgreindar eru í næstu vísu. Verð- ur víst ekki úr því skorið héðan af enda trúlega að nálgast tvöhundruð ár frá þessum atburði: Mæddi Blanda málmastaf millum andartaka hann mígandi hræðslu af hljóp á randajaka. Svo við snúum okkur nú að öðru þá gæti þessi vísa bjarna frá Gröf hafa orðið til á þess- um árstíma: Lengjast dagar, lækkar fönn ljómar sól á glugga guð er farinn að glotta við tönn gegnum vetrarskugga. Þó veturinn á þessu svæði hafi í heildina farið vel með okkur verður ekki það sama sagt um alla landshluta. Að vísu eru flestir hætt- ir að beita fé eða allavega treysta á beit með þeim hætti sem var lengi en einhvern veginn minnir mig að Ólafur í forsæludal eigi þessa: Mín er bænin mikið heit. Mokaðu snjó úr hlíðarkinn svo að hjörð mín hafi beit og hamastu nú Drottinn minn. Vetrarbeitin var í raun lífsnauðsyn á sín- um tíma og margir sem fylgdu fénu á beit og stóðu yfir. Á reyndar ekki von á að marg- ir stundi þá iðju lengur. Þorsteinn Jakobsson frá Hreðavatni eða „Steini Hreða“ orti þessa í hjástöðunni: Þá ég lá við gljáargjá gráa sá ég hjá mér á snjáinn frá sér flá með tá fá og smá í stráin ná. Guðrún benediktsdóttir í Heiðarseli mun hinsvegar vera höfundur að þessari: En hvað tíðin er nú hörð, ekki er þetta gaman, mér finnst helst sem himinn og jörð hangi á snjónum saman. Eins og gengur verða menn misánægðir með hlutskipti sitt í lífinu og Hjalti Jónsson í Víðiholti mun eiga þessa hugleiðingu: Misjafnt auði út er býtt ýmsa nauðir fanga. Yfir hauður, hart og grýtt hlýt ég snauður ganga. Húnvetningurinn Vilhjálmur benedikts- son í brandaskarði orðaði aftur á móti hlut- ina svona: Úti þó að eyði friði ærið kaldur frostavetur inni á þínu sálarsviði sólríkt vorið búið getur. Raunverulega á mannskepnan ekki nema um tvennt að velja. Að deyja eða halda áfram að lifa. Eggert Norðdal á Hólmi orti 94 ára gamall: Öll mín liðin ævistig eru í veður fokin, sá er hingað sendi mig sér um endalokin. Og ekki man ég betur en þessi vísa sé eftir sama mann: Oft ég hefi illa sofið, örlög hafa gert mig snauðan, mig hryllir við að heyra lofið sem heimur ber svo á mig dauðan. Einhverjum gæðamanni lýsti Sigfús Axfjörð svo og verður tæplega kallað oflof. Hvort sem maðurinn hefur nú átt það skilið eða ekki: Eftir nokkur áratog áttu að heljarvegum. Sóma rúinn, æru og öllu mögulegu. En það þýðir nú ekkert að vera að vesenast út af svoleiðis. Nær að hafa sama hugsunar- hátt og Jón Árnason á Víðimýri: Óðum líður stund af stund og styttir ævidaginn. Gott er að hafa glaða lund þó gangi ei allt í haginn. Eða Eiríkur björnsson frá Þverárdal: Ei ég þreyti langa leit lífs ánægju að finna. Hún mér veitist heima í sveit og heitir aðeins vinna. Það er nú svo með skrokkinn á okkur að hann endist misvel eins og gengur en vænt- anlega við mismikla ánægju ,,skrokkhaldara“. Eitthvað hefur Þorsteinn Guðmundsson á Skálpastöðum verið farinn að finna fyrir ell- inni þegar hann kvað: Drottinn skapti mig til manns úr mold og leir og ryki. Var það ekki á ábyrgð hans að ekki smíðin sviki? Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Gott er að hafa glaða lund - þó gangi ei allt í haginn Sýning á myndskreytingum hlað- varpsþáttanna Myrka Ísland verð- ur opnuð í Safnahúsi borgarfjarðar næsta mánudag, 15. febrúar. Það er Sigrún Elíasdóttir sem stendur fyr- ir sýninguni en hún er þáttastjórn- andi Myrka Íslands ásamt Önnu Dröfn Sigurjónsdóttur. Verkin eru unnin af tveimur ungum listamönn- um úr borgarfirði; Lúkasi Guðna- syni og Sigurjóni Líndal benedikts- syni, í daglegu tali kallaður Jónsi. Í Myrka Íslandi er farið yfir sögulega atburði af hörmundum, hamförum, ofbeldi, óréttlæti og dularfullum atburðum. Sigrún er sagnfræðing- ur og rithöfundur og sér hún um að skrifa handrit fyrir þættina en Anna Dröfn gegnir hlutverki prjónandi áheyranda sem fær ekki að vita fyr- irfram umfjöllunarefni þáttanna. Vantaði myndir fyrir kynningarefni „Þar sem þetta eru sögulegir at- burðir sem við fjöllum um er lít- ið til af myndefni. En það er mik- ilvægt að hafa myndir fyrir kynn- ingarefni á samfélagsmiðlum. Ég fékk þá þessa flottu ungu listamenn til að teikna myndir fyrir mig,“ út- skýrir Sigrún í samtali við Skessu- horn. Hana langaði að gera meira með þessar myndir og sótti um styrk hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi til að setja upp sýn- ingu og sögustund. „Sýningin verð- ur sett upp á fimm stöðum á Vest- urlandi og upphaflega var ætlunin að vera með sögustund í tengslum við sýninguna við opnun á hverj- um stað fyrir sig. En þar sem ég get ekki boðið í slíkt partý núna gerðum við myndband í samvinnu við Kvikmyndafélag borgarfjarðar. Myndbandið verður aðgengilegt á bæði facebook og Youtube,“ seg- ir Sigrún. Sýningin verður fyrst sett upp í Safnahúsi borgarfjarðar og fyrir- hugað að hún verði næst sett upp á bókasafni Akraness, Snorrastofu í Reykholti, í Vínlandssetrinu í búð- ardal og að lokum í frystiklefanum í Rifi. Röðin gæti þó breyst vegna opnunartíma þessara staða. „Strák- arnir verða líka með fleiri myndir en þær sem tengjast Myrka Íslandi, allavega í Safnahúsi borgarfjarðar, því rýmið þar er svo stórt,“ segir Sigrún. Listamennirnir Eins og fyrr segir eru listamennirn- ir báðir ungir borgfirðingar, fædd- ir árið 2004. Lúkas hefur búið alla sína ævi í borgarnesi og lauk námi við Grunnskólann í borgarnesi vorið 2020 og stundar nú nám við Menntaskóla borgarfjarðar. Hann stefnir á að fara í listnám en hann hefur verið að teikna alla tíð. Um tólf ára aldur fór hann að teikna mun meira og þykir honum best að nota blý í teikningar sínar og teikn- ar hann helst manneskjur. Jónsi lauk námi við Grunnskóla borgarfjarðar á Varmalandi vorið 2020 og stund- ar nú nám á listnámsbraut í Verk- menntaskólanum á Akureyri. Jónsi hefur einnig verið að teikna alla tíð og um tólf ára aldur fór hann að æfa sig markvisst. Hann hefur verið að teikna með tússlitum, akrýl máln- ingu, trélitum, olíulitum, pennum, bleki og kolum en kýs helst tússliti eða akrýl málningu. arg/ Ljósm. úr safni Sýning á vegum Myrka Íslands opnuð í Safnahúsinu Verður farandsýning sem fer á Akranes, í Borgarfjörð, Dali og Snæfellsbæ Sýning af listaverkum tengdum hlað- varpsþáttunum Myrka Ísland verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar á mánudaginn. Sigrún Elíasdóttir. Mynd eftir Lúkas Guðnason.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.