Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Síða 18

Skessuhorn - 10.02.2021, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202118 uðu stundum að okkur toffíkara- mellum. Þá var hátíð.“ Skáru á sandpokana Á þessum árum áttu margir dreng- ir hnífa, svokallaða sjálfskeiðunga. Voru hnífar þessir mismunandi að gerð, sumir með margskonar tækj- um og aðrir með tveimur blöðum, sannkölluð fjölnotatæki. „Við not- uðum þessa hnífa mikið til að tálga litla trébáta sem við lékum okkur með niður í fjöru, tálguðum örv- ar í bogana okkar og annað sem við dunduðum okkur við. Einhverju sinni þegar við komum upp úr fjör- unni við Krókalónið sáum við að bretarnir voru búnir að grafa skot- gröf nyrst á bakkatúninu með útsýni yfir lónið og inn allan borgarfjörð. Þessi skotgröf var ekki stór, kannski 4-5 metrar að lengd og röskur metri á dýpt og breidd. Þar sem jarðveg- urinn þarna var mjög sandborinn urðu bretarnir að setja sand í poka og hlaða þeim upp til að ná einhverri dýpt á skotgröfina. Þessir strigapok- ar voru ekki stórir, kannski 40 cm langir og 20 cm á breidd og mjög þéttir, fullir af sandi. Við strákarnir höfðum gaman af því að fela okkur niður í skotgröfinni þegar við vor- um að skjóta úr bogum á krumma eða bjöllur sem flugu yfir. Einhverju sinni eftir sólríkan dag hafði ég verið að ydda örina mína og stakk hnífn- um í einn sandpokann sem rifn- aði við það og sandurinn bunaði út. Þetta fannst okkur gaman og í hugs- unarleysi skárum við á marga poka þannig að skotgröfin hálffylltist af sandi. Þegar hermennirnir komu síðar og sáu þetta varð heljarmikið mál gert úr þessu. Þeir hafa senni- lega haldið að þarna hefðu verið að verki fullorðnir menn, sem hlynnt- ir væru Þjóðverjum, sem var ekki óalgengt í byrjun stríðs hér á landi. Æðsti maður herafla breta kom að máli við Þórhall fógeta og krafðist þess að haft yrði upp á spellvirkjun- um og þeir látnir svara til saka. fóg- eti skipaði Sigurði Guðmundssyni að hafa upp á sökudólgunum. Siggi var ekki lengi að komast að hinu sanna, því hann vissi sem var að bakkast- rákarnir og ég værum alltaf að leika okkur á þessu svæði. Kom hann því vestureftir og fann okkur úlla niðri í fjöru. Við viðurkenndum strax að hafa skorið á sandpokana enda var ekki annað hægt, sandur í sjálfskeið- ungum okkar var til vitnis um það. Siggi sagðist verða að fara með okk- ur á fógetaskrifstofuna því þar væru menn sem vildu tala við okkur. Þeg- ar þangað var komið voru þrír menn staddir á skrifstofunni; Þórhallur fógeti, Egill Gíslason frá Hliði, sem var túlkur, og bretinn sem var lág- vaxinn karl með montprik. Þórhall- ur var mjög brúnaþungur og öskraði að það þyrfti að áminna strákana um sannsögli. Við vorum orðnir drullu- hræddir og vissum ekkert hvað var að gerast. Ég kaus að segja skilmerki- lega frá og bar við að við hefðum leitað skjóls í norðan þræsingi, og Egill túlkaði. Þegar ég var að stama þessu út úr mér sá ég að brosviprur voru farnar að færast á varir bretans og létti okkur mikið. Niðurstaðan úr þessari yfirheyrslu var sú að bretinn sagði nokkur vel valin orð þess efn- is að við hættum svona stráksskap og málið var látið niður falla.“ Fóru inn á bannsvæði Loks rifjar Hafsteinn upp sögu af því þegar varðmaður úr röðum breta hræddi nánast líftóruna úr þeim strákunum. „Það var einu sinni sem við pollarnir á bakka túninu vorum næstum skotnir. Þarna um sumarið reistu bretarnir tvo palla fyrir loft- varnabyssur. Annan niður á breið en hinn á Grenjum. Þessir pallar voru kringlóttir úr járni og um þrír metrar í þvermál og stóðu á staur- um fet frá jörðu. Alltaf voru her- menn á pallinum á Grenjum, senni- lega vegna þess að enginn braggi var þar sem hermennirnir gætu dvalið í. Algengur leikur í þá daga var fallin spíta og var þannig að einn af okk- ur átti að passa upp á spítu sem var reist upp við vegg og við hinir að ná að fella hana án þess að hann sæi okkur og kallaði nafn okkar. Hann grúfði sig upp við vegg, taldi upp á 100 á meðan hinir földu sig. Ég man að Grétar bróðir úlla átti að passa spítuna í þetta skiptið og finna okkur. Hann var glúrinn og erfitt að fela sig fyrir honum og ákváðum við úlli að fara niður í Krókalón vest- ur að flösinni. bretar höfðu ósk- að eftir að íbúar ákveðinna svæði á Skaganum, sem ég man ekki hvað voru mörg, veldu sér fulltrúa sem koma áttu á framfæri upplýsingum frá herliðinu. Til dæmis um yfirvof- andi loftárás óvinaherjanna. Í okkar tilfelli var það Sigurður Vigfússon, Siggi Vikk. Sjálfsagt hefur hann lát- ið foreldra allra krakka á svæðinu vita um ósk bretanna. Við fréttum ekki af því og vissum því ekki að við mættum ekki koma nærri þess- um loftvarnabyssum og útbúnaði þarna á Grenjunum. Þetta var áliðið kvölds, sennilega eftir kvöldmat og orðið skuggsýnt. Við læddumst því með bakkanum of langt og vorum komnir inn á bannsvæði. Varðmað- urinn á pallinum hefur orðið var við okkur, séð eða heyrt eitthvað, því hann tekur snögglega byssuna á öxl sér og miðar henni í átt til okk- ar. Við hentum okkur flötum og hreyfðum okkur ekki. Kallaði hann þá eitthvað sem við skildum ekki. Við vorum þegar þarna var komið sögu orðnir alveg drulluhræddir en ákváðum að reyna að skríða í burtu. Hermaðurinn hafði þá séð að þetta voru krakkar, en til að hræða okk- ur þannig að við gleymdum okkur ekki aftur, skaut hann tveimur skot- um út í loftið, því allavega komu engar byssukúlur nálægt okkur. Þetta fannst mér sýna að hermenn- irnir voru mjög vinveittir okkur þorpsbúunum og gerðu allt til að forðast átök við þá.“ Hafsteinn segir að eftir að bret- arnir fóru hafi Kaninn tekið við gæslu hér á landi, en þeir komu aldrei til hersetu á Akranesi. bragg- arnir sem reistir höfðu verið á Akra- nesi voru því teknir niður og farið með þá í borgarnes, Hvalfjörð eða eitthvað annað. „Í júlí fór lækninga- sveitin og tjöldin á Deildartúninu stóðu eftir,“ segir Hafsteinn. Í lok ársins sama ár segir Hafsteinn að engir bretar hafi verið eftir á Akra- nesi. Hersetan hafi því einungis staðið í ríflega hálft ár. mm „Tvisvar sáum við krakkarnir þýska herflugvél fljúga í njósnaleiðangur inn á Hvalfjörð og vafalítið hefur blóðið í æðum Bret- anna farið á mikla ferð við það.“ Aftan við Hafstein markar Vesturflösin mörk Krókalónsins, en á flösinni standa Bræðurnir, tveir háir steinar. Ljósm. mm. Brim við Vesturflösina. Ljósmyndasafn Akraness/ Árni Böðvarsson. Breskir hermenn sinntu gæslustörfum við Elínarhöfða í Kalmansvík. Vistin var stundum köld enda menn kappklæddir eins og sjá má. Hafsteinn segir að húsmæður hafi séð aumur á hermönnunum þar sem þeir þóttu illa klæddir. Prjónuðu þær handa þeim lopavettl inga og gaukuðu að þeim. Ljósmyndsafn Akraness/ Árni Böðvarsson.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.