Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202122 Ný könnun landshlutasamtaka sveit- arfélaga hefur nú verið birt. Könn- unin var gerð meðal íbúa landsins og spurt út í búsetuskilyrði, hamingju og viðhorfi til síns sveitarfélags. Að könnuninni stóðu landshlutasamtök sveitarfélaga ásamt byggðastofnun og var hún gerð á íslensku, ensku og pólsku og framkvæmd í septem- ber og október síðastliðnum. Nið- urstöðurnar byggja á svörum frá 10.253 þátttakendum, þar af 1.635 á Vesturlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem svo víðtæk könnun um þessi efni nær til allra svæða landsins og er markmiðið að hún verði eftirleið- is gerð á 2-3 ára fresti og geti ver- ið sveitarfélögum og stjórnvöldum mikilvægt tæki í búsetu- og byggða- þróun. Höfundar skýrslunnar eru hagfræðingarnir Vífill Karlsson hjá SSV og Helga María Pétursdóttir hjá SSNE. Könnunin byggir á hlið- stæðri íbúakönnun sem gerð var árið 2017 en nú er hún mun viðameiri, auk þess sem fyrri könnun náði ekki til allra svæða landsins. Á þeim svæð- um sem báðar kannanirnar náðu til má í sumum tilfellum sjá viðhorfs- breytingar hjá íbúum á þessu tíma- bili. Vesturland býr svo vel að hlið- stæð könnun hefur áður verið unnin af SSV fyrir svæðið. Spurt var um 40 atriði sem snerta búsetuskilyrði. Sem dæmi um fjöl- breytileika í efnisatriðum má nefna friðsæld, loftgæði, skólamál, atvinnu- öryggi, launatekjur, húsnæðismál, nettengingar, vegakerfi, vöruverð, þjónustu við fatlaða og aldraða, raf- magn, ásýnd bæja og sveita, almenn- ingssamgöngur og margt fleira. Efn- isatriðin snúa því að samfélagsinn- viðum sem og þjónustuþáttum á for- ræði ríkis og/eða sveitarfélaga. Vest- mannaeyjar, Akureyri og Eyjafjörð- ur eru þau svæði sem best koma út í heildarstigagjöf. Heildareinkunn var hins vegar lægst í Dölum og á sunn- anverðum Vestfjörðum. Í saman- burði við önnur búsetusvæði lands- ins fá íþróttir (tækifæri til íþrótta/ tómstundaiðkunar), umferðaröryggi og vöruverð lægsta einkunn í Döl- um. Þessi tvö svæði gefa einnig al- menningssamgöngum lága einkunn í samanburði við önnur svæði, sem og farsímasambandi, þjónustu við fatlaða og vegakerfinu. Dalamenn reyndust einnig óánægðastir þeirra sem könnunin náði til með vöruverð, umferðaröryggi, mannlíf og laun. Þó íbúar í Vestmannaeyjum, á Ak- ureyri og við Eyjafjörð mælist með hæsta heildarstigagjöf í könnuninni þá er mismunandi hvaða þætti þeir eru ánægðir með. Í samanburði við önnur svæði gefa Vestmannaeyingar mannlífi, skipulagsmálum, umferð, umferðaröryggi, íbúðaframboði, framfærslu og viðhorfi til sveitarfé- lags góða umsögn. Akureyringar eru jákvæðastir gagnvart háskóla, fram- haldsskóla, almenningssamgöngum, íbúðaframboði, vegakerfi, menn- ingu, umhverfismálum og sorpmál- um. Samantekt fyrir Vesturland Íbúasvæði Vesturlands eru fjögur í könnuninni, þ.e. Dalir, Snæfells- nes, borgarfjarðarsvæði, Akranes og Hvalfjörður (saman). Heildar- fjöldi svara á Vesturlandi var 1.635. Íbúar á þessum svæðum voru einn- ig spurðir í hliðstæðri könnun árið 2017. Í heildarstigagjöf fyrir land- svæðin 24 og þau 40 búsetuskilyrði sem spurt var um var Snæfellsnes í 5. sæti, Akranes og Hvalfjörður í 6. sæti, borgarfjarðarsvæði í 21. sæti og Dalir í 23. sæti. Jákvæðastir íbúa Vesturlands í af- stöðu til síns sveitarfélags voru íbú- ar á Snæfellsnesi. Neikvæðastir í af- stöðu til síns sveitarfélags voru íbú- ar í Dölum. Íbúar Akraness og við Hvalfjörð voru meðal þeirra jákvæð- ustu í könnuninni á landinu hvað varðar almenningssamgöngur, þjón- ustu dvalarheimila, farsímakerfi, þjónustu við fatlaða, aðstoð við fólk í fjárhagsvanda, þjónustu framhalds- skóla, grunnskóla og tónlistarskóla, heilsugæslu, framboð íbúða, íþróttir, unglingastarf, nettengingar og raf- magn. Þeir voru jákvæðastir allra á landinu hvað leikskólaþjónustu og vöruverð snertir. Íbúar Akraness og við Hvalfjörð voru einna helst óánægðir með skipulagsmál, nátt- úru, menningu, mannlíf og friðsæld. Íbúar borgarfjarðarsvæðis gáfu í samanburði við aðra dvalarheimila- þjónustu háa einkunn, sem og þjón- ustu framhaldsskóla, háskóla og leik- skóla, auk þess að vera meðal þeirra ánægðustu með vöruverð. borgfirð- ingar reyndust hins vegar óánægð- astir allra í könnuninni með skipu- lagsmál. Dalamenn komu verst af öllum þátttakendum á landinu út úr þáttum á borð við afþreyingu, al- menningssamgöngur, farsímaþjón- ustu, framhaldsskóla, framfærslu sína almennt, háskóla, íþróttir, laun, mannlíf, umferðaröryggi, þjónustu við útlendinga og vöruverð. Þeir voru hins vegar ánægðastir allra með loftgæði og gáfu heilbrigðisþjón- ustu og friðsæld einnig háa einkunn í samanburði við aðra. Íbúar á Snæ- fellsnesi gáfu ásýnd hæsta einkunn allra og voru einnig ánægðir með loftgæði, sorpmál, umferðaröryggi og umhverfismál. Snæfellingar voru meðal þeirra sem verst komu út hvað nettengingar varðar. Breytingar frá könnun árið 2017 Þegar svör úr könnuninni nú voru borin saman við hliðstæða könnun árið 2017 sjást breytingar á viðhorfi íbúa á Vesturlandi í ýmsum mála- flokkum. Íbúar á Akranesi og við Hvalfjörð telja að framboð á íbúð- um til sölu, þjónusta við aldraða og fatlaða og framboð leiguíbúða hafi batnað mest frá árinu 2017 en staða atvinnumála og atvinnuöryggi hafi versnað mest á sama tíma. Íbú- ar töldu nú möguleika til framhalds- skólanáms mikilvægara málefni en áður en áhersla á almenningssam- göngur er ekki eins mikil og áður. flestir þættir jukust þó að mikilvægi frá 2017. borgfirðingar telja heilsu- gæslu og skipulagsmál hafa versn- að mest frá 2017 en að nettenging hafi batnað mest. Möguleika til há- skóla- og framhaldsskólanáms telja þeir mikilvægari en áður en áhersla á atvinnuúrval og almenningssam- göngur dróst mest saman. Í Döl- um hefur nettenging batnað mest að gæðum frá 2017, að mati íbúa. Þeir töldu mannlíf hafa versnað. Áhersla þeirra á vöruverð jókst mest að mik- ilvægi frá fyrri könnun en áhersla á almenningssamgöngur minnk- aði mest á tímabilinu. Snæfellingar telja framboð leiguíbúa vera þann þátt sem hafi batnað mest frá 2017 en almenningssamgöngur og net- tengingar hafi á sama tíma versnað mest. Mesta aukning mikilvægis var að þeirra mati á þjónustu við útlend- inga en íbúar á Snæfellsnesi leggja nú minni áherslu á almenningssam- göngur og laun. mm Í desember síðastliðnum mælti Guðmundur Ingi Guðbrands- son, umhverfis- og auðlindaráð- herra, fyrir frumvarpi á Alþingi um Miðhálendisþjóðgarð. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að þjóðlendur í sameign þjóðarinnar innan miðhálendislínu verði gerð- ar að þjóðgarði, en á miðhálendi landsins eru ein stærstu óbyggðu víðerni Evrópu auk náttúru- og menningarminja. Kveðið er á um stofnun miðhálendisþjóðgarðs í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinn- ar en mætir engu að síður and- stöðu nokkurra stjórnarþing- manna. Sömuleiðis gætir mikillar andstöðu við málið víða af lands- byggðinni. Í kjölfar þess að mælt var fyrir frumvarpinu var í desember ósk- að eftir umsögnum um það heim- an úr héraði. Áberandi andstaða sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og sömuleiðis á vestanverðu Suð- urlandi. Þá mætir stofnun Miðhá- lendisþjóðgarðs afgerandi and- stöðu á Vesturlandi ef marka má umsögn sem stjórn Samtaka sveit- arfélaga á Vesturlandi sendi inn 1. febrúar sl. Þar segir m.a: „Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi leggja þunga áherslu á að um stofnun þjóðgarðs ríki almenn sátt við þau sveitarfélög og íbúa sem hagsmuna hafa að gæta við stofnun þjóðgarða. Af þeim umsögnum og ályktun- um sem fram hafa komið, m.a. frá sveitarfélögum, er ljóst að nægjan- leg sátt hafi ekki myndast um mál- ið. Meðan svo er telur stjórn SSV ótímabært að stofna til Hálendis- þjóðgarðs og hvetur því Alþingi til þess að gefa málinu lengri tíma þannig að sátt geti náðst um fram- tíðarskipulag verndunar hálend- isins.“ Í svipaðan streng taka til dæmis Stykkishólmsbær og Dala- byggð sem segja í umsögnum sín- um að ekki sé tímabært að leggja fram frumvarpið að svo komnu máli. Í borgarbyggð er meirihluti sveitarstjórnar hlutlaus gagnvart hálendisþjóðgarði en minnihlut- inn andvígur stofnun hans. mm Sveitarfélög á Vesturlandi andvíg stofnun Miðhá- lendisþjóðgarðs Mæla búsetuskilyrði og hamingju í nýrri íbúakönnun á landsvísu Snæfellsnes og Akranes koma vel út en Dalir reka lestina Í skýrslunni er landinu skipt upp í 24 svæði eins og hér má sjá. Snæfellsnes er í fimmta sæti á landsvísu samkvæmt könnuninni, en Akranes/ Hvalfjarðarsveit í sjötta sæti. Borgarfjörður og Dalir skora hins vegar umtalsvert lægra. Ljósm. úr safni/ tfk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.