Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Side 26

Skessuhorn - 10.02.2021, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202126 Pennagrein Í síðustu pennagrein fjallaði ég um frávik í starfsemi Norður- áls, sem hafði alvarlegar afleiðingar og sýnir hversu erfið eftir- fylgni er, ef mengun sést ekki með berum augum og mælingar eru ekki nægjanlegar. Í landbúnaðarhéraði þar sem sífellt er til staðar loftborinn iðnaðarúrgangur er algjört skilyrði: Að vöktun umhverfisins sé rétt gerð og upplýsingagjöf • snurðulaus. Að virkt eftirlit sé með viðkomandi fyrirtækjum. • Að aðili á vegum hins opinbera sjái um alla þætti vöktun-• ar, en ekki sá sem veldur mengun. Vegna lofsverðrar staðfestu sauðfjárbænda í Hvalfirði hefur sauðfé verið vaktað fyrir flúor nánast frá því starfsemi Norð- uráls hófst. Þannig hafa safnast mikilvægar upplýsingar sem varða þennan þátt. bændum á vöktunarbæjum hefur verið gert að skila hvert haust fjórum hausum af sláturlömbum og fjórum hausum af fullorðnu fé til flúorgreiningar. Skil á þess- um sýnum hafa yfirleitt gengið vel og til eru samfelldar grein- ingar síðan 2001 sem gefa talsverðar upplýsingar um dreif- ingu flúors við Hvalfjörð. Mismunandi flúorálag eftir svæðum Lítum aðeins á niðurstöður flúormælinga í lömbum eftir mengunarslysið 2006. Línuritin eru úr vöktunarskýrslu ársins 2009. berum saman myndir 6.3. og 6.4 Svæðið vestan við iðjuverin, sem kallað er hér Vestursvæðið, varð lang verst úti í mengunarslysinu 2006 eins og sést á línu- ritunum. Meðaltal flúors í lömbum mældist allt að 1600 ppm (milljónustu hlutar) sunnan við Akrafjall. Við eðlilegt ástand ætti þessi tala að vera talsvert innan við 100 ppm í lömbum sem ekki hafa aðgang að fjörubeit. flúorálagið var ekki aðeins lang mest á Vestursvæðið árið 2006, heldur er það viðvarandi ástand. Á töflunni sést að mun- urinn hefur orðið allt að sexfaldur. Álagið er mest á þurrkatím- um en þá eru austanáttir ríkjandi. Taflan er unnin upp úr vöktunarskýrslum áranna 2010 - 2019. Norðanverðum Hvalfirði er skipt upp í þrjú svæði: Vestur-, Norður- og Austursvæðið. Tekin eru meðaltöl af hverju svæði. Í skýrslunum má sjá hvaða bæir eru í vöktun á hverju svæði. Töl- urnar eru ppm (milljónasti hluti). Auðvitað hljóta viðvörunarbjöllur að hafa hringt hjá Um- hverfisstofnun, faxaflóahöfnum, sveitarstjórnum, Þróunar- félagi Grundartanga og þingmönnum Norðvesturkjördæmis, því þessar upplýsingar eru aðgengilegar öllum. fróðlegt væri að heyra skoðanir þessa fólks á framtíð Vestursvæðisins. Vonandi ríkir ekki það viðhorf að því megi fórna fyrir Grundartanga. Ragnheiður Þorgrímsdóttir Grundartangi og Vestursvæðið Mynd 6.3. sýnir áhrif mengunarslyss í Norðuráli 2006 á flúor í lömbum vestan við Grundartanga. Mynd 6.4. sýnir áhrif mengunarslyss í Norðuráli 2006 á flúor í lömbum norður og austur af Grundartanga. Á árinu 2021 eru 70 ár frá því að Skagamenn urðu fyrst Íslands- meistarar í knattspyrnu. Það afrek vakti athygli um allt land og mark- aði upphafið að einstakri sigur- göngu á knattspyrnunnar á Akra- nesi og þeirrar menningar og ímyndar Akraness sem henni hef- ur fylgt. Þessi merkilega saga tek- ur bæði til kvenna og karlaliðanna, sem eiga sínar goðsagnir, afreks- fólk, eftirminnilegar sigurstundir og viðburði. Þá eru á árinu einnig 35 ár liðin frá því að Knattspyrnu- félag ÍA var stofnað, en stofnun félagsins var nauðsynleg skipulags- breyting frá því fyrirkomulagi sem áður hafði verið um áratugi með knattspyrnuráði á vegum Íþrótta- bandalags Akraness þar sem KA og Kári tefldu fram sameiginlegu liði. Auk knattspyrnunnar hefur Akra- nes á að skipa áhugaverðri sögu af- reka í öðrum íþróttagreinum m.a. sundi og golfi en innan íþrótta- bandalagsins eru nú alls 19 félög og ætla má að minnsta kosti 30% bæjarbúa séu iðkendur og félagar í þessum félögum og hlutfallið mun hærra ef með er tekið allt það fólk sem leggur íþróttahreyfingunni lið með sjálfboðastarfi. Það eru því mikil verðmæti fólgin í íþróttastarf- inu á Akranesi. Þó svo að áhugi okkar undirrit- aðra beinist einna helst að knatt- spyrnunni er verðugt að íhuga hver hlutur íþróttamála er í samfélaginu á Akranesi og hvernig hlúð er að íþróttafólki. Í því sambandi skiptir máli að skoða hvernig staðið er að afreksstarfinu, sem í dag er í raun stærsta forsenda fjármögnunar fé- lags eins og knattspyrnufélagsins og þar með fjölbreyttrar starfsemi. Akraneskaupstaður hefur í gegn- um árin staðið að uppbyggingu íþróttamannvirkja, en síðustu árin hefur áherslan verið á golf, hesta- mennsku og fimleika en lengi hafa verið í bígerð framkvæmdir á Jað- arsbakkasvæðinu, sem löngu eru tímabærar þó svo að þær bæti ekki aðstöðu knattspyrnunnar nema að takmörkuðu leyti. Í samantekt sem Jón Þór Þórð- arsonar tók saman fyrir nokkru um framlög bæjarfélaga til íþróttafé- laga kemur í ljós að Akranes er tals- vert á eftir sveitarfélögunum víða á landinu þrátt fyrir viðbót á síðasta ári. Í skipuriti Akraneskaupstað- ar tilheyra íþróttamálin skóla- og frístundasviði, sem er býsna víð- tækt svið og fer með liðlega helm- ing útgjalda bæjarfélagsins. Ekki hefur orðið vart við mikla um- fjöllun um stefnumál íþrótta inn- an sviðsins í fundargerðum annað en hefðbundin rekstrarmál. Hins vegar má benda á að í allflestum sveitarfélögum sem eru sambæri- leg við Akranes eru skipaðar sér- stakar íþróttanefndir sem er rökrétt ef bæjarfélög vilja leggja sérstaka áherslu á þann málaflokk. Þetta er til umhugsunar fyrir samfélag sem vill kenna sig við íþróttabæ í fremstu röð. Það er skoðun okkar að vægi íþrótta og tengsl íþróttahreyfing- arinnar við bæjarfélagið ættu vera markvissari og traustari ef Akranes á að halda stöðu sinni í breyttum heimi íþróttahreyfingarinnar. Sam- tal bæjar og íþróttahreyfingarinnar er slitrótt og ÍA á í raun enga for- mælendur innan nefnda bæjarins. Þessu þarf að breyta. Þá má nefna að í nýlegri könnun um skipulagshugmyndir á svæðinu við Jaðarsbakka og Langasand er m.a. spurt hvort byggja eigi íbúð- ir á æfingasvæðinu og hvort jafnvel eigi að flytja íþróttasvæðið „eitt- hvað annað“. Þær spurningar vekja ekki gleði í brjóstum okkar m.a. þegar horft er til einstakrar stað- setningar íþróttasvæðisins, bæjar- og íþróttasögulegra viðburða, sér- stöðu svæðisins og möguleika þess til frekari þróunar í þágu íþrótta- og æskulýðsstarfs. Í þessari könnun hefði því farið betur á því að spyrja hvað þyrfti til að styrkja enn frekar innviði Akraneskaupstaðar á sviði íþrótta á Jaðarsbökkum. Eitt er víst að það verður ekki gert með íbúða- byggð á svæðinu. Í heimi knattspyrnunnar hefur margt breyst m.a. aðgengi að fjár- munum til að reka það starf sem þar er unnið. Rekstrargrundvöllur félaganna verður því sífellt þyngri sem á endanum bitnar á gæðum starfsins – sem þó eru gerðar sí- auknar kröfur til. Íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum, sem vissulega er umfangsmikið nýtur þeirrar breyt- ingar þegar Akraneshöllin var reist. En aðrir þættir hafa síðustu árin orðið útundan svo sem búningsklef- ar og aðstaða starfsfólks og þjálfara félagsins, sem hefur nánast verið á hrakhólum. Þá hefur sífellt verið þrengt að nauðsynlegri félagsað- stöðu á svæðinu með bráðabirgða- reddingum. KfÍA hefur á síðustu árum lagt metnað í að ráða til starfa vel menntaða þjálfar og lagt áherslu á faglegt starf enda sífellt gerðar ríkari kröfur um að félagið standist bestu mælikvarða þegar kemur að æskulýðs- og íþróttastarfi. Það sama á eflaust við um önnur félög á Akra- nesi – en minna hefur farið fyrir því hvernig standa skuli að málum og styðja afreksstarfið, sem er gríðar- lega mikilvægur þáttur til þess að viðhalda stöðu knattspyrnunnar á meðal bestu félaga á Íslandi. Því miður gera sér of fáir grein fyrir því hversu íþróttir á Akranesi eru mikilvægur þáttur í æskulýðs- starfi, afreksstarfi og bæjarsálinni. Við megum ekki með nokkru móti glata stöðu okkar, sögu, hefð og sérstöðu, sem hefur áunnist frá því að sigursælt Íslandsmeistaralið árið 1951 markaði sporin í magnaðri íþróttasögu bæjarins. Því hvetjum við til þess að hafinn verði ný sókn til frekari afreka, sem verði ung- um sem eldri, konum og körlum til sóma um lengri framtíð. Gísli Gíslason Gunnar Sigurðsson Jón Gunnlaugsson Pennagrein Íþróttabærinn Akranes

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.