Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 10
- www.mosfellingur.is10
Vinkonurnar Anna Lilja Marteinsdóttir og
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir eiga margt
sameiginlegt. Þær heita báðar Anna, eru
þrítugar, búa í Mosó, og búa báðar yfir
þeirri reynslu að hafa misst maka sinn fyrir
þrítugt. Þar af leiðandi hafa þær báðar verið
nánasti aðstandandi þess sem missir.
Þær hafa verið vinkonur frá sextán ára
aldri og fylgst að síðan þá. Á dögunum
opnuðu þær vefsíðuna Tilstaðar.is þar sem
hægt er að kaupa eins konar samúðargjöf
eða box með litlum glaðningi fyrir þá sem
eiga um sárt að binda.
Ómetanlegur vinskapur
„Vinskapur okkar er ómetanlegur og eins
og við segjum oft, hefðum við ekki getað
ímyndað okkur þegar við kynntumst 16 ára
að við ættum eftir að vera í þessum sporum
um þrítugt.
Ég missi minn maka skyndilega 2013 þá
23 ára gömul sem var mikið áfall. Ég var
þarna að takast á við mikla sorg og í raun
vissu vinkonur mínar ekki hvernig þær ættu
að nálgast mig og margar af þeim að missa
góðan vin. Hvað þær ættu að segja og hvað
þær ættu að gera,“ segir Anna Sigga.
Fyrstu mánuðirnir í móðu
„Á þessum tíma voru ég og Jói maðurinn
minn að reka Hvíta Riddarann og Anna
Sigga og Þórhallur að vinna þar og við í
miklum samskiptum bæði innan sem utan
vinnustaðarins.
Þarna var ég í raun að upplifa mitt
stærsta áfall í lífinu að missa góðan vin og
reyna að vera til staðar fyrir Önnu Siggu.
Þegar ég svo missi minn maka þá var mín
fyrsta hugsun að leita til hennar. Ég fann
það strax að hennar reynsla, eins hræðileg
og hún var þá, hjálpaði mér að komast í
gegnum fyrstu dagana. Fyrstu mánuðirnir
eftir svona áfall eru í einhvers konar móðu
en þegar frá líður þá er það algengt að fólk
verði svolítið leitandi eftir einhvers konar
þekkingu á sorgarferlinu,“ segir Anna
Lilja.
Hún bætir við að hún hefði skilið betur
stöðu aðstandenda með að vita lítið um
það hvernig best væri að vera til staðar
fyrir hana þegar sem hún hafði verið í
þessum sporum þegar Anna Sigga missti
sinn maka.
Dagarnir misjafnir
Þær segja ótrúlega dýrmætt að eiga hvora
aðra að, þær leita til hvor annarrar um ráð
og ræða mikið saman um sorgina og það
að halda áfram með lífið. Þær segja sorgar-
ferlið vera ansi flókið og dagarnir misjafnir,
sumir ósköp venjulegir en aðrir svo erfiðir
að þeir virðast óyfirstíganlegir.
„Við erum kannski búnar að eiga langt
spjall og furðum okkur á því að vera tala
um hluti sem þrítugar vinkonur ættu ekki
að þurfa að ræða. En út frá öllum þessum
samtölum og pælingum okkar kviknaði
þessi hugmynd að boxunum því að við
skynjum að fólk vill vera til staðar fyrir
okkur en veit ekki hvernig.
Hugmyndin er að aðstandandi, vina-
hópur eða vinnufélagar geti keypt gjöf sem
við sendum beint á viðtakanda. Gjöfin
inniheldur fjögur lítil box með fallegum
skilaboðum og litlum gjöfum sem allar eiga
að stuðla að vellíðan,“ segja þær.
Að vera til staðar
„Þegar viðtakandi opnar boxið blasa við
falleg skilaboð og hugmyndin er að þegar
ástvinurinn á erfiða stund geti hann opnað
einn kassa. Við vorum lengi að semja skila-
boðin og vorum sammála um að syrgjandi
þarf ekki á óvelkominni jákvæðni eða
einhverju pirrandi peppi að halda heldur
meira svona að þér má líða svona og það
sé eðlilegt,“ segir Anna Sigga.
„Okkar saga er frávik, lífið á ekki að vera
svona og við erum engir sérfræðingar eða
með menntun á þessu sviði. Þetta er ein-
ungis framtak sem sprottið er af þessari
sameiginlegu reynslu okkar og við teljum
að vanti á markaðinn. Það er gott að geta
miðlað okkar reynslu öðrum til góða,“
segir Anna Lilja að lokum og bendir á að
auk heimasíðunnar Tilstaðar.is séu þær á
Facebook og Instagram þar sem þær eru
með bæði góð ráð og fræðslu.
Bestu vinkonur sem gengið hafa í gegnum sömu lífsreynslu • Anna Lilja og Anna Sigga hafa misst maka sína
„Okkar saga er frávik, lífið á ekki að vera
svona“ – Opna vefsíðuna Tilstaðar.is
Önnurnar standa saman
í gegnum súrt og sætt
M
yn
d/
Kr
is
tv
in
G
Reiðgöng undir Reykjaveg
Nú er að ljúka framkvæmdum við reiðgöng
undir Reykjaveg. Reiðgöngin eru mikil
samgöngubót fyrir hestafólk sem þarf ekki
að þvera Reykjaveginn lengur.
Göngin tengja saman, á öruggan hátt,
reiðleið frá hesthúsahverfi við Varmá að
suðursvæði Mosfellsbæjar.
Reiðgöngin eru undir Reykjaveg á móts
við Ísfugl og við enda Víðiteigs. Göngin
voru opnuð fyrir stuttu en gengið verður frá
næsta umhverfi með þökulögn og sáningu
þegar vorar.
gÖng sem nýtast
eiga eftir mÖrgum