Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 29

Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 29
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Allir íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátaki Mosfells- bæjar og hjálpast að við að gera bæinn fallegan og snyrtilegan fyrir sumarið. Íþróttastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar, Davíð Gunnlaugsson, var á dögunum val- inn PGA golfkennari ársins. Það eru PGA samtökin á Íslandi sem standa árlega fyrir þessu kjöri og varð Davíð hlutskarpastur. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Davíð sem er vel að þessu kominn. Þetta er í fyrsta sinn sem PGA kennari ársins kemur úr röðum GM. Á myndinni má sjá Davíð Gunnlaugsson og Ólaf Björn Loftsson framkvæmdastjóra PGA en afhendingin fór fram á aðalfundi PGA á Íslandi. Félagsmenn tilnefna kennara ársins og í efstu sætunum lentu: (í stafrófs- röð) Arnar Már Ólafsson, Davíð Gunnlaugs- son, David Barnwell, Heiðar Davíð Braga- son, Hlynur Geir Hjartarson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Snorri Páll Ólafsson. Davíð Gunnlaugsson úr GM hlýtur viðurkenningu PGA Davíð valinn PGA golfkennari ársins Davíð og ólafur björn við afhenDinguna Íþróttir - 29 VORIÐ ER Á NÆSTA LEITI Dagana 15. apríl – 6. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ enda vorið á næsta leiti. Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að huga að umhverfinu og hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi. Hreinsun gróðurs og lóða Meðan á hreinsunarátakinu stendur er gott tækifæri fyrir íbúa að taka til hendinni í garðinum og snyrta runna og beð og eru þeir sérstaklega hvattir til að klippa hekk og tré sem ná yfir gang- stéttir og stíga. Gámar fyrir garðaúrgang verða aðgengilegir á þessu tímabili í hverfum bæjarins á eftirtöldum stöðum: • Holta- og Tangahverfi – Neðan Þverholts (milli Akurholts og Arnartanga) • Höfða og Hlíðahverfi – Vörubílastæði við Bogatanga • Teiga- og Reykjahverfi – Skarhólabraut ofan Reykjavegar og við Sunnukrika • Hlíðartúnshverfi – Við Aðaltún • Helgafellshverfi – Efst í Brekkulandi og við Snæfríðargötu • Leirvogstunga – Á stæði við stoppistöð á Tunguvegi • Mosfellsdalur – Á bílastæði við Þingvallaveg Gatna- og stígahreinsun Á þessu tímabili mun einnig fara fram þvottur og sópun gang- stétta og gatna bæjarins. Í fyrstu verða stofngötur og stígar ásamt stofnanaplönum sópuð og í framhaldi verður farið inn í hverfi bæjarins og verða merkingar settar á áberandi staði áður en sú vinna hefst. Til að þetta verði sem best gert þurfum við á aðstoð íbúa að halda með því að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götum eða gangstéttum meðan á hreins- un stendur. Enn fremur eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa í kringum híbýli sín og fá aðstoð starfsmanna þjónustumiðstöðvar í síma 525-6700 til að fjarlægja bílhræ og stærri hluti. Eftirtalda daga verða gatnahreinsunarmenn að störfum í hverfunum. Gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar. 12. apríl - Reykja og Krikahverfi 13. apríl - Teiga og Helgafellshverfi 14. apríl - Holtahverfi 15. apríl - Tangahverfi 16. apríl - Hlíða og Hlíðartúnshverfi 19. apríl - Höfðahverfi 20. apríl - Leirvogstunguhverfi HREINSuNARdAGAR Á OpNuM SVÆÐuM 16. – 18. ApRíL Helgina 16. – 18. apríl verður ráðist í hreinsunarátak á opnum svæðum bæjarins og meðfram nýbyggingarsvæðum. Afturelding og skátafélagið Mosverjar munu að venju aðstoða við hreinsunina og taka vel til hendinni. Umhverfissvið Mosfellsbæjar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.