Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 1

Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 1
L A U G A R D A G U R 2. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  1. tölublað  109. árgangur  Tveir á toppnum frá Škoda Škoda Kodiaq 4x4 2.0 / Dísil / Sjálfskiptur Afmælisverð 6.690.000 kr. Verðlistaverð 7.290.000 kr. Škoda Karoq 1.5 / Bensín / Sjálfskiptur Afmælisverð 4.890.000 kr. Verðlistaverð 5.550.000 kr. HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/skodasalur Ágúst Ásgeirsson Sigurður Bogi Sævarsson Björgunarmenn í norska bænum Ask ætluðu nú í birtingu að hefja aftur leit á svæðinu þar sem stórt jarðhlaup varð daginn fyrir gamlársdag. Níu manns, þar af tveggja barna, var enn saknað og áherslan í björgunarstarf- inu snýst um að finna fólkið. Einn fannst látinn á svæðinu í gær, en ald- ur eða kyn viðkomandi er ekki gefið upp. Nöfn og myndir allra þeirra sem leitað er hafa verið birt á vef norska ríkisútvarpsins nrk.no. Fara hefur þurft með fyllstu gát á svæðinu og því hafa björgunarhundar og drónar verið mikið notaðir við björgunarstörf. Sömuleiðis hefur lög- regla reynt að vinna leitina út frá merkjum sem símar gætu gefið. „Hugur minn er hjá þeim sem hafa misst ástvini sína eða lifa nú í óvissu,“ sagði Erna Solberg forsætisráðherra Noregs við vefútgáfu Verdens Gang. Alls níu byggingar með 31 íbúð tók út með jarðhlaupinu í Ask, sem er skammt norðan við Osló. Þar háttar svo til að byggðin stendur á gömlum kvikum sjávarleir, sem bindingin fer úr í vatnsflóðum. Slík atburðarás er talin hafa valdið þessum hamförum. Ágúst Guðmundsson jarðfræðing- ur segir þessum aðstæðum svipa til þess er gerðist í jarðvinnu við álverið á Reyðarfirði fyrir tæpum 20 árum. Þá sprakk út stór slakki fylltur leir, svo jarðefni flutu fram, og átti fólk fótum sínum fjör að launa. Sambæri- legar aðstæður og í norska bænum, svo vitað sé hér á landi, séu á Fá- skrúðsfirði og Tjörnesi, þó ekki þar sem er byggð. Ágúst segir engar hliðstæður við Seyðisfjörð það sem gerðist í Ask, en hann hefur miklar áhyggjur af að- stæðum þar eystra. Byggðin sé í hættu og hann telur jarðgangagerð til Seyðisfjarðar einnig varhugaverða. Leitað að nýju í birtingu  Óvissa í norska bænum Ask  Níu manns er nú leitað  Leitarhundar og drón- ar nýtast vel  Sambærilegar aðstæður á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Tjörnesi MNáttúruhamfarir »15-16 AFP Noregur Aðstæður í bænum Ask eru hrikalegar eftir jarðhlaupið.  Páll Pálsson fasteignasali segir mjög hátt verð á lóðum og takmarkað framboð af nýj- um íbúðum valda því að íbúðaverð á höf- uðborgarsvæð- inu er mun hærra en það þyrfti að vera. Þá tefji seina- gangur í stjórnsýslunni fyrir framkvæmdum sem auki kostnað húsbyggjenda og hægi á komu nýrra eigna á markað. Breyta þarf um stefnu eða í það minnsta gera langtímaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið allt sem tryggi að framboð á nýju hús- næði verði í samræmi við mann- fjöldaspár. » 14 Vandi sem sveitar- félögin sköpuðu Páll Pálsson Margir voru að venju við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti á nýársnótt, en þangað mætti fólk til þess að skjóta upp litrík- um flugeldum og fagna því að árið 2021 er gengið í garð. Svif- ryksmengun var töluverð á höfuðborgarsvæðinu eins og mynd- in ber með sér. Lögreglan gerði athugasemdir við hópa- myndun á staðnum, en mikill erill var hjá lögreglu. »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Hallgrímskirkja í fjólubláum ljósum og svifryksmengun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.