Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 2

Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN Landshús - Sími 553 1550 - landshus.is EFLA verkfræðistofa sér um tæknilega hönnun á öllum húsunum okkar. - Öll hönnun á burðarvirki, festingumog efnisval er skv. íslenskri byggingarlöggjöf. KLETTAR SUMARHÚS Viltu lækkabyggingar- kostnað? Klettar sumarhús eru útfærð í einingakerfi Landshúsa. Einingakerfið okkar hefur undanfarin ár fengið afar góðar viðtökur og hafa húsin okkar risið um allt landmeð góðum árangri. Markmið okkar er að bjóða upp á lausn sem gerir fólki kleift að byggja traust hús á einfaldan og hagkvæman hátt. Verð frá kr. 8.373.120. - 65 fmgrunnhús + 35 fm svefnloft. Val á gluggum: Timbur Ál/timbur PVC Sólskinið var vel nýtt í miðborg Reykjavíkur í gær, meðal annars til að smella af einni sjálfu á ísilagðri Tjörninni. Nú þegar nýtt ár er gengið í garð og dagarnir farnir að lengjast eru landsmenn eflaust bjartsýnni á framtíðina en áður, sér- staklega þegar kórónuveirubóluefni er við sjóndeildarhring- inn. Það bendir allt til þess að það sé gott ár fram undan. Nýárssjálfa á ísilagðri Tjörninni Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinningshafi 104 milljóna króna í Lottói, sem dreg- inn var út annan í jólum, hefur ekki gefið sig fram enn. Vinningurinn kom á tíu raða lottómiða sem keyptur var í sölu- kassa í Krambúð- inni á Selfossi, og biðlar Stefán S. Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar getspár, til miðahafa á Suðurlandi að skoða miða sína vel. „Það væri gaman ef hann kæmi að ná í peninginn sinn,“ segir Stefán í samtali við Morgunblaðið. Hann segir það sjaldgæft í dag að vinningar sitji eftir ósóttir, hvað þá svona stórar fjárhæðir. Arður um tveir milljarðar Stefán segir nýliðið ár hafa reynst Íslenskri getspá afar vel. „Arðurinn til eignaraðila er um tveir milljarðar, sem kemur sér afskaplega vel á þess- um tímum, þar sem tekjur hafa dreg- ist gríðarlega saman. Við erum mjög ánægð með það,“ segir hann. Velta hafi verið rétt rúmir sex milljarðar og 2,8 milljarðar króna verið greiddir til vinningshafa árið 2020. „Við erum mjög þakklát fyrir söluna á síðasta ári,“ segir Stefán ennfremur. jonn@mbl.is 104 milljóna króna vinningur ósóttur  Lottó lýsir eftir jólavinningshafa Stefán S. Konráðsson Enginn Sunnudagsmoggi fylgir Morgunblaðinu í dag en í stað hans er veglegt 72 síðna sérblað, Tíma- mót, sem líkt og undanfarin ár er gefið út um áramót í samvinnu við bandaríska stórblaðið New York Times. Krossgátuunnendur þurfa þó ekki að örvænta því verðlauna- krossgátan úr Sunnudagsblaðinu er birt aftarlega í blaðinu í dag, sem og sunnudagskrossgátan og aðrir orðaleikir. »22-23 Krossgátur Sunnu- dagsmoggans í dag Fjórtán Íslendingar voru sæmdir íslensku fálkaorðunni á Bessastöðum í gær, sjö konur og sjö karlar. Einn orðuhafi, Björn Þór Ólafsson, fv. íþróttakennari og skíðakappi á Ólafsfirði, átti ekki heimangengt. Athöfn- in var fordæmalaus, eins og annað á veirutímum, en forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid tóku á móti einum orðuhafa í einu, frá klukkan tvö til að verða hálfsex. Þeir orðuhafar sem komust á Bessastaði í gær voru Bernd Ogrodnik brúðumeistari, Bryndís Guðmunds- dóttir talmeinafræðingur, Halldór B. Nellett, skipherra hjá Landhelgisgæslunni, Helga Sif Friðjónsdóttir geð- hjúkrunarfræðingur, Helgi Ólafsson, rafvirkjameistari á Raufarhöfn, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, fv. prófess- or, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Pét- ur H. Ármannsson arkitekt, Pétur Guðfinnsson, fv. útvarpsstjóri, Sigrún Árnadóttir þýðandi, Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona, Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Háskóla Íslands og fv. knattspyrnukona og þjálfari, og Vilborg Ingólfsdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræð- ingur. Engin hópmynd var því tekin að þessu sinni en allar myndir Gunnars G. Vigfússonar ljósmyndara af orðu- höfum, ásamt forsetahjónunum, eru birtar á mbl.is, þær fylgja hér til hliðar í smærri útgáfum. bjb@mbl.is  Forseti sæmdi 14 Íslendinga fálkaorðunni á Bessastöðum  Sjö konur og sjö karlar  Forseta- hjónin tóku á móti einum orðuhafa í einu  Afhendingin tók þrjá tíma  Einn átti ekki heimangengt Halldór Benóný Nellett Helga Sif Friðjónsdóttir Helgi Ólafsson Hrafnhildur Ragn- arsdóttir Bryndís Guðmundsdóttir Vanda Sigurgeirsdóttir Björn Þór Ólafsson Sigrún Edda Björnsdóttir Sigrún Árnadóttir Pétur Guðfinnsson Vilborg Ingólfsdóttir Pétur H. Ármannsson Fordæmalaus afhending fálkaorðunnar Bernd Ogrodnik Jón Atli Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.