Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021
Ármúli 7, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Það eru alltaf
tækifæri til staðar
Investis ehf hefur á undanförnum árum komið að
og leitt um 180 verkefni sem varða kaup og sölu,
fjármögnun og sameiningu fyrirtækja.
Við búum yfir mikilli reynslu við gerð verðmats og
fjárfestakynninga, útfærslu samninga og leiðum til
að ná sem bestum árangri fyrir viðskiptavini okkar.
Áhugasamir geta skráð sig á heimasíðu okkar investis.is
og fengið forgangspóst þegar ný tækifæri koma upp.
Hefur þú hug á að selja fyrirtæki?
Hafðu samband við höfum áhuga á að heyra frá þér.
Í-MAT ehf.JG ehf.
Hér eru dæmi um verkefni þar sem Investis hefur annast ráðgjöf við
sölu, sameiningar eða aðkomu fjárfesta á undanförnum árum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þykkt ský af völdum flugeldameng-
unar lá yfir höfuðborgarsvæðinu á
nýársnótt og víða var skyggni aðeins
örfáir metrar. Sú var til dæmis raun-
in við kirkjuna á Bessastöðum á
Álftanesi, en myndin hér að ofan var
tekin þar klukkan 02:47. Enn var
óljóst hvort svifryksmengun nýárs-
næturinnar hefði verið yfir heilsu-
verndarmörkum sólarhrings, sem
eru 50 míkrógrömm. Gróf svifryks-
mengun mældist mest við Grens-
ásveg í Reykjavík, 653 míkrógrömm
á rúmmetra, skömmu eftir að nýja ár-
ið gekk í garð.
Fíngerðar agnir
eru áhyggjuefni
Í samtali við mbl.is sagði veð-
urfræðingur Veðurstofu Íslands að
engin svifryksmet hefðu verið slegin
á nýársnótt. Þar réði að nú hefði verið
lágskýjað og talsvert minna raka-
magn í loftinu en þegar mest hefur
verið. Þar má nefna að um áramót
2017-2018 mældist svifryk í Kópavogi
á nýársnótt 4.500 míkrógrömm á
rúmmetra, samkvæmt frétt Morg-
unblaðsins frá þeim tíma.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Gunnar Guðmundsson, lungna-
læknir á Landspítalanum, að svif-
ryksmengun á höfuðborgarsvæðinu
nú hefði ekki orðið jafn mikil og óttast
hefði mátt. Ástæða væri þó alltaf til
að hafa áhyggjur af fíngerðustu svif-
ryksögnum sem liggja í loftinu en þau
geta gert fólki með öndunarfæra-
sjúkdóma erfitt fyrir.
Á hinn bóginn mætti minna á að
fólk sem útsett er fyrir að lenda í
vanda vegna svifryks væri með mark-
vissri upplýsingagjöf almennt orðið
meðvitað um þá hættu sem mengun
þessi gæti haft á heilsu þess. Fólk
héldi sig því heima í eins konar
sóttkví og færi tæpast út á nýársnótt
fyrr en menguninni hefði skolað út.
Aukinheldur gengju margir að góð-
um lyfjum þótt alltaf gæti þurft að
leita læknisaðstoðar af þessum sök-
um og færi þá fyrst á heilsugæslu.
Skolar út um helgina
Gera má ráð fyrir því að sú svif-
ryksmengun af völdum flugelda sem
enn kann að liggja í loftinu skolist út
nú um helgina. Í dag, laugardag, er
spáð suðlægum áttum, 8-13 metrum á
sekúndu, og rigningu með köflum
sunnan- og vestanlands, en hægari
vindi og bjartviðri um landið norðan-
og austanvert. Hiti frá frostmarki að
sjö stigum. Sunnudagurinn verður
svipaður, samkvæmt veðurpsá, nema
hvað búast má við slyddu víða um
landið vestanvert.
Svifryksmengunin
minni en óttast var
Ský á nýársnótt Raki og lágskýjað Fólkið er meðvitað
Ljósmynd/Einar Sveinbjörnsson
Móða Skyggni var aðeins fáir metrar þegar litið var af hlaðinu við forseta-
setrið á Bessastöðum að kirkjunni þar, slík var mengunin frá flugeldunum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ríkiskaup eru að gera markaðs-
könnun á snjallmenni eða spjall-
menni til að útvega ríkisstofn-
unum sem óska eftir að fá aðstoð
þannig tæknilausna til að svara
fyrirspurnum almennings. Getur
könnunin leitt til samninga við
framleiðendur hugbúnaðar en það
ræðst þó af þörfum ríkisstofnana.
Allmörg fyrirtæki erlendis nota
snjallmenni við fyrsta stig svör-
unar í netspjalli. Einnig eru ís-
lensk fyrirtæki byrjuð að nota
hugbúnaðinn, meðal annars Þjóð-
skrá, en notendurnir átta sig ekki
alltaf á því enda tekur starfs-
maður af holdi og blóði við þegar
snjallmennið ræður ekki við fyr-
irspurnina.
Snjallmennið svarar strax
Björgvin Víkingsson, forstjóri
Ríkiskaupa, segir að nokkrar
stofnanir hafi verið að spyrjast
fyrir um þessa tækni. Ákveðið hafi
verið að Ríkiskaup myndu afla sér
grunnupplýsinga til að geta veitt
þeim ráðgjöf. Til þess þurfi að fá
yfirsýn yfir markaðinn, athuga
hverjir eru að bjóða þessar lausn-
ir.
Segir Björgvin að þarfir stofn-
ana séu mismunandi. Sumar kunni
að vilja beina fyrirspurnum inn á
vefsíðu þar sem hægt er að leita
að svörum við spurningum á með-
an aðrar eigi svörin tilbúin og geti
snjallmennið þá svarað helstu fyr-
irspurnum strax.
Tilgangurinn sé að nýta tíma
starfsfólks betur og auka þjónustu
við almenning. Bendir Björgvin á
að stofnanirnar þurfi að tryggja
að öll gögn séu til staðar, áður en
þau innleiða þessa tækni, og einn-
ig þurfi að tryggja að starfsfólk
taki við þegar snjallmennið finni
ekki svörin.
Ríkið hyggst
ráða snjallmenni
Stofnanir huga að
sjálfvirkri svörun
Ljósmynd/Pixabay
Tækni Spjall- og snjallmenni.
Fyrsta barn árs-
ins fæddist á
fæðingardeild
Landspítalans
klukkan 00:24 á
nýársnótt og var
það stúlka sem
hlotið hefur nafn-
ið Lena, að því er
fram kom á
fréttavef Vísis í
gær. Lena vó
3.700 grömm, eða um 15 merkur, og
var 52 sentímetra löng. Fjölskylda
Lenu er pólsk og býr á Hvamms-
tanga. Heilsast bæði móður og
stúlkunni vel samkvæmt upplýs-
ingum frá fæðingardeildinni. For-
eldrarnir vildu ekki veita viðtal þeg-
ar eftir því var leitað í gær.
Alls fæddust þrjú börn á Land-
spítalanum á nýársnótt og von var á
fleiri börnum á nýársdag og því
mikill erill á fæðingardeildinni.
Um miðjan dag í gær höfðu engin
börn fæðst á sjúkrahúsunum á
Akranesi og Selfossi en gamlárs-
dagur var einnig rólegur á þessum
stöðum.
Á sjúkrahúsinu á Akureyri fædd-
ist drengur klukkan 6:05 að morgni
nýársdags. Fyrsta barn ársins 2020
fæddist einnig á fæðingardeild
Landspítalans klukkan 2:19 á ný-
ársnótt í fyrra og var það drengur.
Fyrsta barn
kom rétt eft-
ir miðnætti
Erill var á fæðing-
ardeild LSH.
Freyr Bjarnason
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Ugur Sahin, forstjóri þýska lyfja-
fyrirtækisins BioNTech, segir að
Evrópusambandið hafi verið hikandi
við að útvega bóluefni við kórónu-
veirunni. „Ferlið í Evrópu var ekki
eins hraðvirkt og í öðrum löndum,“
sagði Sahin við þýska blaðið Spiegel.
„Að hluta til vegna þess að Evrópu-
sambandið getur ekki veitt leyfið eitt
og sér og aðildarríki geta haft eitt-
hvað til málanna að leggja,“ sagði
Sahin. Hann bætti við að ESB hefði
einnig veðjað á framleiðendur sem
gátu ekki útvegað bóluefnið eins
fljótt og BioNTech og Pfizer gerðu.
Samningar í höfn
„Þorri þjóðarinnar verði bólusett-
ur fyrir sumarið,“ sagði Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í
samtali við mbl.is um framvindu
bólusetninga gegn kórónuveirunni.
Spurð hvers vegna ekki liggi frek-
ari áætlanir fyrir um afhendingu
bóluefnis segir Svandís að fram-
leiðsla á bóluefnum standi enn yfir. Í
framhaldi af þeim komi áætlanir um
dagsetningar afhendinga. Megin-
málið sé að samningar um kaup á
bóluefni séu í höfn.
Á vef stjórnarráðsins er birt árétt-
ing þar sem segir að frá Pfizer fái Ís-
land um 250 þúsund skammta sem
dugi fyrir um 125.000 manns og er
afhending þess bóluefnis hafin. Þá
fær Ísland um 128.000 skammta frá
Moderna sem dugi fyrir um 64.000
manns og byrjað verður að sprauta
með því á fyrstu mánuðum ársins.
Ísland fái einnig um 230.000
skammta, sem duga fyrir um 115.000
einstaklinga, af bóluefni frá Astra
Zeneca og fyrirtækið stefnir að því
að byrja að afhenda skammta í Evr-
ópu innan tíðar. Sama megi segja um
skammta frá Janssen fyrir 235 þús-
und manns. Upplýsingar um
skammta frá fyrirtækjunum Sanofi
og Curavac liggja ekki fyrir.
Breitt og öfugt samstarf
„Það er styrkur Íslands að hafa átt
þess kost að vera með í breiðu og öfl-
ugu samstarfi Evrópuþjóða um
samninga og kaup á bóluefni. Við
höfum þegar tryggt okkur með þeim
samningum bóluefni sem er mun
meira en við þurfum á að halda. Ís-
land er samferða Evrópusamband-
inu og hinum Norðurlandaþjóðunum
og reiknað er með því að stór hluti
Íslendinga verði bólusettur fyrir
sumarið,“ segir á vef heilbrigðis-
ráðuneytis.
Seinvirkt ferli við
kaup á bóluefni
skapar vandamál
ESB hikar Óvissa með dagsetn-
ingar á Íslandi Saman með innkaup
AFP
Bóluefni Ríki heims keppast nú við
að afla sér bóluefna með hraði.
Svandís
Svavarsdóttir
Ugur
Sahin