Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Dagur er að rísa, með birtu og yl.
Senn fær þjóðarskútan vind í seglin,
um það er ég handviss. Bóluefnið er
lent, bjargræði sem við þurfum að
koma áfram hingað til lands með öll-
um tiltækum ráðum. Þessi lausn á
ærnum vanda er öflugur vitnis-
burður um gildi alþjóðasamvinnu,
um gildi vísinda og þekkingar þegar
rétt er á málum haldið,“ sagði Guðni
Th. Jóhannesson forseti Íslands í
nýársávarpi sínu í gær.
Þakka mikilsverð þörf
„Saman mættum við mótbyr. Oft
gafst því ástæða til að þakka mikils-
verð störf fólks í þjóðarþágu,“ sagði
Guðni. Sagði enn fremur að sem bet-
ur fer vægi gæfa og farsæld þó
gjarnan þyngra á æviskeiði hvers og
eins en það sem miður væri. Í fyrra
hefðu mörg okkar glaðst yfir stóru
eða smáu í dagsins önn. Börn fædd-
ust og fólk varð ástfangið, áföngum í
námi eða starfi var náð, sambúð
staðfest, stofnað til heimilis. Saman
hefðum við getað fagnað afrekum
þeirra landa okkar sem sköruðu
fram úr á alþjóðavettvangi. Nú að
bóluefni við veirunni fengnu þyrft-
um við hvarvetna orku frekar en iðn-
að; hugvit og nýsköpun í okkar
gamalgrónu greinum eins og ferða-
þjónustu. Einnig á sviðum sem við
þekktum ekki endilega nú, en ung-
menni samtímans gerðu að sínum.
Kirkjan fer eftir því sem Jesús
Kristur bauð og hennar er að láta í
sér heyra heyra þegar lífshættir
jarðarbúa stefna jörðinni í átt að
eyðileggingu. Þetta sagði sr. Agnes
M. Sigurðardóttir biskup Íslands í
nýárspredikun sinni í Dómkirkjunni
í Reykjavík þar sem hún velti upp
þeirri spurningu hvort kirkjan hefði
hlutverk í nútímasamfélagi. Hún
sagði svo vera og allt starfið væri í
samræmi við skírnarskipunina svo-
nefndu; að gera allar þjóðir að læri-
sveinum og láta til sín taka.
Kirkjan hafi
áhrif á samtíma sinn
Kristin kirkja á að hafa áhrif á fé-
lög, samfélög og samtíma sinn, sagði
biskup. Minnti á að Jesús hefði brot-
ið viðteknar venjur og læknað á
hvíldardegi þegar honum mislíkaði
framganga yfirvalda eða horfði upp
á óréttlæti eða skort á kærleika.
Sagst vera vegurinn, sannleikurinn
og lífið. Öllu þessu og miklu meira
bæri kirkjunni að koma áfram til
komandi kynslóða, sagði Agnes bisk-
up. Hún tiltók að þjóðkirkjan hefði
skyldur umfram önnur trú- og lífs-
skoðunarfélög. Bæri til dæmis að
þjóna öllum, svo sem varðandi sál-
gæslu og sáttamiðlun, helgihald og
fyrirbæn. Allt starf þjóðkirkjunnar
miðaði að auknum félagsauði, miðlun
ljóss og friðar.
„Samstaða hefur fleytt þessari
þjóð í gegnum erfiða tíma. Sam-
hugur hefur veitt þeim styrk sem
orðið hafa fyrir áfalli, missi og sorg.
Við höfum öll eitthvað gott fram að
færa. Þekkingu, þjálfun, færni, trú,
von og kærleika. Við höfum staðið
saman á tímum heimsfaraldurs. Við
skulum standa saman áfram,“ sagði
biskup í nýársávarpi sínu.
Lausn er vitni
um gildi vísinda
Vindur í segl Samhugur styrkir
Jón Sigurðsson Nordal
jonn@mbl.is
Þar sem aðlögunartímabili Breta
fyrir útgöngu sína úr Evrópusam-
bandinu lauk á gamlárskvöld er
landið nú formlega gengið úr sam-
bandinu og hætt að lúta reglum þess.
Þeirra í stað tekur samkomulag
Breta við Evrópusambandið gildi er
varðar ferðalög, viðskipti, útlend-
ingamál og varnarsamstarf.
„Fyrir Breta sem búa nú þegar á
Íslandi breytist nánast ekkert, þar
sem við gerðum samning við Ísland
um að Bretar gætu áfram búið, unn-
ið og stundað nám hér,“ segir Mich-
ael Nevin, sendiherra Bretlands á
Íslandi, í samtali við Morgunblaðið.
Það gildir einnig fyrir Íslendinga í
Bretlandi, þar sem samningurinn er
gagnkvæmur. Nevin segir um 1.100
Breta, sem ekki eru með íslenskt rík-
isfang, búsetta hér á landi og að um
1.700 Íslendingar sem búsettir eru í
Bretlandi hafi sótt um áframhald-
andi dvalarleyfi þar. Um 4,5 millj-
ónir manna frá ESB- og EES-lönd-
um sóttu um áframhaldandi búsetu-
leyfi í Bretlandi eftir útgöngu þeirra,
og var hver einasta umsókn sam-
þykkt að sögn Nevins.
„Þau geta haldið áfram að lifa líf-
inu eins og ekkert hafi ískorist,“ seg-
ir hann. Þeir sem hafa hug á að flytja
á milli Íslands og Bretlands núna eft-
ir að Bretar eru gengnir úr sam-
bandinu, en eru ekki búsettir þar nú
þegar, þurfa hins vegar að sækja um
sérstakt dvalarleyfi.
Nevin segir Breta vera í sérstök-
um viðræðum við íslensk yfirvöld um
fyrirkomulag sem myndi auðvelda
íslenskum ungmennum að flytja til
Bretlands. Áætlunin myndi gera Ís-
lendingum á aldrinum 18-30 ára
kleift að búa í Bretlandi í tvö ár, án
þess að vera skylt að stunda nám þar
eða vera í vinnu.
„Við höfum náð samkomulagi í
meginatriðum um að við viljum gera
þetta, en við erum enn að ræða smá-
atriðin,“ segir Nevin.
Skiptinemasamstarfi hætt
Með útgöngu sinni úr Evrópu-
sambandinu tóku Bretar þá ákvörð-
un að hætta líka í evrópska skipti-
nemasamstarfinu Erasmus-plús.
„Við hættum í samstarfinu vegna
þess að við greiddum tvöfalt meira í
það en við fengum út úr því sjálf,“
segir Nevin.
Áætlun breskra stjórnvalda er að
stofna nýtt skiptinemasamstarf, sem
á að heita í höfuðið á stærðfræð-
ingnum fræga, Alan Turing. Bretar
munu þó halda sér inni í Horizon-
áætluninni, en það er rannsóknar-
samstarf á milli háskóla í Evrópu og
er stærsta rannsóknar- og nýsköp-
unarverkefni sem Evrópusambandið
hefur nokkurn tíma ráðist í.
Bretar fullir sjálfstrausts
Nevin segir mátt Breta vera mik-
inn í samningaviðræðum við Evr-
ópusambandið og önnur lönd, og því
setjist þeir við samningaborðið af
miklu öryggi. „Nú höfum við tæki-
færi til að móta hagkerfið okkar
sjálf, ekki eftir höfði 27 annarra
landa,“ segir hann. „Bretland ætlar
að nýta þennan styrk til að gera nýja
verslunarsamninga og fjárfesta
meira. Við erum viss um að við get-
um gert þetta árangursríkt.“ Þá
haldast tollkjör óbreytt á milli Ís-
lands og Bretlands eftir að bráða-
birgðafríverslunarsamningur var
undirritaður stuttu fyrir áramót.
Í grein sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. þriðjudag leggur Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkisráð-
herra áherslu á gildi áframhaldandi
samstarfs þjóðanna. „Það er mikil-
vægt að kjarnahagsmunir íslenskra
fyrirtækja í viðskiptum við Bretland
hafi verið tryggðir með þessum
samningi enda er Bretland einn mik-
ilvægasti útflutningsmarkaður ís-
lenskra fyrirtækja,“ sagði ráðherra.
Morgunblaðið/Eggert
Sendiherra Michael Nevin sendiherra segir Breta ætla að fjárfesta meira eftir útgöngu sína úr ESB.
Lifa áfram eins og
ekkert hafi ískorist
Bretar geti loks mótað eigið hagkerfi, segir sendiherra
Árið 2020 var
prófsteinn á
stjórnmálin,
sagði Katrín
Jakobsdóttir
forsætisráð-
herra í gaml-
ársávarpi sínu
og vísaði þar
til kórónuveir-
unnar, þreng-
inga í efnahagsmálum og nátt-
úruhamfara. Það vitnaði um
heilbrigði í íslenskum stjórn-
málum að þau sem væru í forystu
hefðu ákveðið að láta faraldurinn
ekki snúast um sig heldur nálgast
verkefnið sem björgunarstarf.
„Sú skylda hvílir á okkur öllum
sem nú sitjum á Alþingi og í rík-
isstjórn að gæta að því eftir
fremsta megni að sundra ekki
þjóðinni á þessum örlagatímum
og til að svo megi verða þurfum
við öll að muna að stjórnmál snú-
ast um gildi og hugsjónir en fyrst
og fremst snúast þau um að
vinna fyrir almenning í landinu og
vera trú því verkefni sem okkur er
falið að vinna,“ sagði forsætisráð-
herra meðal annars.
ÁRIÐ VAR PRÓFSTEINN
Katrín
Jakobsdóttir
Sundra ekki
Guðni Th.
Jóhannesson
Agnes M.
Sigurðardóttir