Morgunblaðið - 02.01.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur hafið vinnu við
færslu hringvegarins við Vík í Mýr-
dal. Árið 2013 var aðalskipulag
Mýrdalshrepps 2012-2028 sam-
þykkt með nýrri veglínu hring-
vegar um Mýrdal. Í stað þess að
vegurinn liggi um Gatnabrún og í
gegnum þéttbýlið í Vík er stefnt að
því að færa veginn þannig að hann
liggi suður fyrir Geitafjall, með-
fram Dyrhólaós og í gegnum Reyn-
isfjall í jarðgöngum sunnarlega í
fjallinu. Vegurinn myndi svo liggja
sunnan við Vík og tengjast núver-
andi vegi austan við byggðina. Ráð-
gert er að framkvæmdir geti hafist
síðla árs 2022 og tekið um þrjú ár.
Frekari áfangaskipting liggur ekki
fyrir á þessu stigi.
Í samgönguáætlun 2020-2024 er
gert ráð fyrir fjármagni í undirbún-
ing vegna 13,3 kílómetra vegagerð-
ar um Mýrdal og Víkurþorp ásamt
jarðgöngum í gegnum Reynisfjall.
Jarðgöngin verða 1,3 til 1,5 kíló-
metra löng, ein akrein í hvora átt.
Einnig er tekið fram í samgöngu-
áætlun að leitað verði leiða til að
fjármagna hringveg um Mýrdal og
jarðgöng í Reynisfjalli í samstarfi
við einkaaðila.
Upplýsingar veittar í vefsjá
Vegagerðin vinnur því að for-
hönnun og undirbúningi á mati á
umhverfisáhrifum vegna færslu
hringvegarins, segir í frétt á
heimasíðu Vegagerðarinnar. Í því
felst m.a. að ákveða endanlega veg-
línu en nokkrir kostir koma til
greina.
Á heimasíðunni er að finna drög
að tillögu að matsáætlun sem VSÓ
Ráðgjöf hefur unnið. Opnuð hefur
verið vefsjá (vik-hringvegur.net-
lify.app) þar sem hægt er að nálg-
ast ýmsar upplýsingar sem tengj-
ast matinu og koma á framfæri
ábendingum og athugasemdum.
Frestur til að senda inn ábendingar
er til og með 1. febrúar nk.
Aðdragandi verkefnisins er lang-
ur og hafa jarðgöng um Reynisfjall
verið til umræðu í áratugi. Í grein-
argerð samstarfsnefndar um sam-
einingu Dyrhóla- og Hvamms-
hrepps, sem sameinuðust í
Mýrdalshrepps hinn 1. janúar 1984,
segir meðal annars að í svæðis-
skipulagi fyrir byggðarlagið eigi að
stefna að gerð nýs vegar nær
ströndinni með jarðgöngum um
Reynisfjall. Í mars árið 1999 sam-
þykkti Alþingi þingsályktun um
mótun langtímaáætlunar um gerð
jarðganga á Íslandi. Í jarðganga-
áætlun segir um þessa tilteknu
framkvæmd að á „hringveginum á
Suðurlandsundirlendi er Reynisfjall
eina verulega misfellan. Snjór er
þar stundum til trafala, og leiðin
upp á fjallið að vestanverðu, um
svonefnda Gatnabrún, er brött. Oft
hefur komið til tals að einfaldast sé
að fara í gegnum fjallið í tiltölulega
stuttum gögnum. Eðlilegast væri þá
að færa veginn í Mýrdalnum tölu-
vert sunnar og fara í gegnum fjallið
til móts við Vík og svo áfram með
veginn sjávarmegin byggðarinnar.“
Í mati á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdarinnar er miðað við sömu
markmið og koma fram í aðal-
skipulagi Mýrdalshrepps. Þar kem-
ur fram að „meginforsenda sveitar-
félagsins fyrir færslu og staðsetn-
ingu hringvegarins er að með því
verði hann greiðfær láglendisvegur
í stað vegar um hættulegar brekkur
og misvindasamt svæði. Auk þess
sem vegurinn er færður út úr þétt-
býlinu í Vík og styttist við það um
þrjá kílómetra.
Markmið framkvæmdar felast
þannig í eftirfarandi þáttum:
Greiðfærni á veturna fyrir alla
umferð og vöruflutninga.
Umferðaröryggi (lega veg-
arins) með bættum vegtæknilegum
eiginleikum (sjónlengdir, beygjur,
halli, fækkun vegtenginga).
Þjóðvegur út úr þéttbýli sem
eykur öryggi og bætir hljóðvist í
þéttbýli.
Stytting hringvegar.
Samkvæmt skýrslu Vegagerð-
arinnar frá 2002 um hættulegar
beygjur á þjóðvegi 1 var beygjan í
Gatnabrún, þar sem núverandi
hringvegur liggur upp á Reynisfjall,
ein af sex hættulegustu beygjum á
hringveginum á þeim tíma og var
þar flokkuð sem stórhættuleg.
Nýr vegur og jarðgöng við Vík
Vegagerðin hefur hafið vinnu við færslu hringvegarins Hætt að aka um hættulegar brekkur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vík í Mýrdal Nýi vegurinn verður í jarðgöngum í gegnum Reynisfjall. Hann mun svo liggja sunnan við Vík og tengjast núverandi vegi austan við byggðina.
Tillaga að færslu hringvegar um Mýrdal
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Heimild: Vegagerðin
Dyrhólaós
Dyrhólaey Reynisfjara
Gei
tafj
all
Reynisfjall
Vík
1 Núverandi
vegur
Tillaga að
færslu vegar
Jarðgöng
sunnan við
byggðina í Vík
Skömmu fyrir áramót tók Guðni Th.
Jóhannesson forseti á móti nýjum
sendiherra Rússlands á Íslandi,
Mikhaíl V. Noskov, sem afhenti
trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum.
Rætt var um tengsl Íslands við
Rússland í áranna rás, og þar á und-
an við Sovétríkin, meðal annars mik-
ilvægi skipalesta í seinni heimsstyrj-
öld og viðskipti á tímum kalda
stríðsins, eins og segir á vef forseta.
Þá var rætt um íslenska hátækni í
sjávarútvegi sem rússnesk fyrirtæki
nýta sér í æ ríkari mæli. Rætt var
um stöðu samkynhneigðra í Rúss-
landi og rakti sendiherra sjónarmið
rússneskra stjórnvalda í þeim efn-
um. Þá var rætt um málefni norður-
slóða og formennsku Íslands í norð-
urskautsráðinu frá 2019. Í maí á
næsta ári tekur Rússland við for-
mennsku í ráðinu.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Bessastaðir Mikhaíl V. Noskov, nýr sendiherra Rússa, ásamt Guðna.
Nýr sendiherra
Rússa á Íslandi
Afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is Opið í dag frá 11-16
Útsalan
hefst
4. janúar
Gleðilegt nýtt ár
kæru landsmenn
Þökkum viðskiptin
á liðnu ári