Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 15

Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur: • skoðað álagningarseðil fasteignagjalda (eftir 24. janúar 2021) og alla breytingarseðla þar á eftir • skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda • gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur • óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir út til greiðenda, 18-78 ára • sent inn erindi vegna fasteignagjalda Fasteignagjöld ársins 2021, yfir 25.000 kr., greiðast með ellefu jöfnum greiðslum á eftirfarandi gjalddögum: 1. febrúar, 7. mars, 3. apríl, 2. maí, 1. júní, 4. júlí, 2. ágúst, 1. september, 2. október, 1. nóvember og 4. desember. Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 1. febrúar. Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum og boðgreiðslur af greiðslukortum. Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2021 verða aðeins birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavik á árinu 2021. Álagningar- og breytingarseðlarnir verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Ferjusamgöngur um Ermarsund, daginn eftir fullnaðarútgöngu Breta úr Evrópusambandinu (Brexit), gengu snurðulaust og lið- lega fyrir sig í gær. Spádómar um flækjur og óreiðu frá fyrsta degi í hafnarborgunum Dover og Calais reyndust innistæðulausir. Hundruð breskra flutningabíla til og frá Bretlandi fóru um Erm- arsundsgöngin auk tuga vörubíla sem fóru yfir sundið með ferjum. Engar fregnir fóru af töfum sem orð er gerandi á, að sögn ferju- fyrirtækisins Getlink. Fyrsta ferjan yfir sundið, The Pride of Kent í eigu P&O Ferries, lagði að bryggju í Calais um miðja nótt. „Umferðin var öflug á sögulegri nóttu og allt gekk vel fyrir sig,“ sagði talsmaður Getlink við AFP- fréttastofuna. „Allir flutningabíl- arnir kláruðu formlegheitin,“ sem krafist er þar sem Bretar eru ekki lengur aðili að tollabandlagi ESB. „Engan flutningabíl þurti að senda til baka.“ Franskir embættismenn hafa sagt að tafir á landamærunum hafi verið fyrirbyggðar með svonefnd- um „snjalllandamærum“. Í þeim felst að skrá á netinu upplýsingar um hið flutta innihald fyrir ferð þannig að örstutt skönnun er hið eina sem gera þarf við komuna til landamæranna. Embættismenn segja að bresk fyrirtæki hafi hamstrað vörur fyrir janúarmánuð sem er yfirleitt hlut- fallslega annasmár svo skömmu eftir jól. Fyrsti flutningabíllinn á leið til Bretlands eftir að nýársdagur var genginn í garð var rúmenskur. Flutti hann póst og pinkla sem þótti táknrænt er Natacha Bouch- art, bæjarstjóri í Calais, gaf honum grænt ljós á að halda ferðinni áfram. „Þetta voru forréttindi fyrir mig, ég er mjög ánægður,“ sagði bílstjórinn Toma Moise. Bouchart sagði um „sögulegt augnablik“ hafa verið að ræða er hún kveikti græna ljósið. Langar biðraðir flutningabíla mynduðust í Bretlandi í jóla- mánuðinum er Frakkar lokuðu landamærum sínum eftir að nýtt afbrigði kórónuveirunnar fannst þar. Leystist hnúturinn rétt fyrir áramótin og taka nú allir bílstjórar smitpróf við komuna til Frakk- lands. Úkraínskur flutningabílstjóri fór fyrstur í próf í gærmorgun. Af 36 flutningabílum sem fóru yfir sundið með Pride of Kent töfðust þrír sem teknir voru til skoðunar við komuna til Frakklands. Mikilvægi snurðulausra flutninga yfir Ermarsundið lýsir sér í því að um 70 prósent allra vöruviðskipta Breta og ESB fara um hafnirnar Calais og Dunkirk í Frakklandi. Um þær hafa að jafnaði farið 60.000 farþegar og 12.000 flutn- ingabílar á degi hverjum. Bretar hófu nýja árið með lífi utan ESB sem eftir á að koma í ljós hvernig rætist úr. Þrátt fyrir óvissu var Boris Johnson bjartsýnn í grein sem hann skrifaði í Daily Telegraph í gær. Þar sagði hann brexit bjóða upp á tækifæri sem ættu enga sína líka í mannaminn- um. „Veröldin hefur stórlega breyst eins og við þekkjum hana og það sama er að segja um konungs- ríkið frá því það gekk í ESB árið 1973.“ Djúpstæður klofningur, bæði pólitískur sem félagslegur, ríkir í afstöðu Breta til brexit og mun svo verða um mörg ókomin ár. AFP- fréttastofan segir kórónuveiru- kreppuna skyggja á allt annað og því verði tæplega hart deilt um brexit í bráð. AFP Bretland Toll- og landamæraverðir kanna pappíra skosks vöruflutningabíls sem var á leið um borð í ferju í Larne á Norður-Írlandi um áramótin. Snurðulaust start á fyrsta degi  Spádómar um flækjur og óreiðu frá fyrsta degi reyndust innistæðulausir  Johnson segir brexit bjóða upp á tækifæri sem engu líkist í mannaminnum Um miðjan dag í gær fannst maður látinn í jarðskriðunni í þorpinu Ask skammt norður af Osló en lögreglan hefur ekki gefið upp von um að enn megi finna á lífi þá níu sem enn er saknað eftir jarðskriðu sem féll í bæn- um aðfaranótt miðvikudagsins 30. desember. Leitar- og björgunarmenn voru sendir inn á hamfarasvæðið um miðj- an dag í gær og fannst líkið fljótlega, en ekki var skýrt frekar frá málavöxt- um þar sem eftir var að tilkynna að- standendum. Síðdegis birti lögreglan svo nöfn allra sem saknað er, en þau eru á aldrinum tveggja til fimmtugs. Það hefur gert björgunarmönnum erfitt fyrir að jaðrar skurðanna sem skriðan gróf í fallinu voru enn óstöð- ugir í gær. Þeir sem fóru inn á svæðið í gær fleyttu sér um aurinn á þykkum einangrunarplastsplötum. Flóðið tók með sér níu byggingar með samtals 31 íbúð. Engin lík höfðu fundist um miðjan dag í gær en 10 manns er saknað, kvenna, karla og barna. Tíu slösuðum var bjargað úr skriðunni að morgni miðvikudagsins, þar af einum alvarlega meiddum. Alls hafa um eitt þúsund íbúar á hamfara- svæðinu verið fluttir burt. Bæjar- stjórnin í Gjerdrum, sem Ask er hluti af, sagði í gær að um 1.500 manns gætu þurft að reisa sér heimili annars staðar vegna skriðuhættu. „Vandinn hér er að aðstæður geta verið hættulegar. Við verðum að hafa öryggið í fyrirrúmi,“ segir Philip Mil- ford, sem stjórnað hefur leitarhund- um við björgunarstörfin. Þeim var ætlað að merkja bletti þar sem hugs- anlega lægju einhverjir undir. Þeir voru bundnir línu í umsjónarmenn sína en sleppt lausum inni í húsum í skriðunni. Vefmyndavélar voru festar á hundana svo sjá mætti hvað við þeim blasti í byggingunum. „Það er ennþá von okkar að finna fólk á lífi. Hundarnir eru þjálfaðir í að finna lifandi sem látna,“ sagði Mil- ford. Hann hafði ekki heimild til að segja hvað fundist hefði en sagði að sveitin héldi áfram leit meðan von væri um að finna fólk á lífi. Norska lögreglan sagði að leitar- störf myndu halda áfram allan gær- daginn. Hafa norskar björgunarsveit- ir fengið liðsauka frá Svíþjóð, en auk leitar- og björgunarmanna eru til að- stoðar á vettvangi hjúkrunarfræðing- ar, jarðfræðingar og lögreglumenn. „Við lifum í trúnni á að finna megi fólk á lífi,“ sagði aðgerðastjóri á vettvangi, lögreglumaðurinn Bjørn Nuland, í til- kynningu. Jarðvegurinn á hamfarasvæðinu er svonefndur kvikleir sem breyst getur úr föstu formi í fljótandi við spennu í jarðveginum. Byggðin í Ask mun hafa verið reist á leirsvæði og hafði vatns- og orkustofnun Noregs ráðgert skömmu fyrir jól að kortleggja á nýju ári 37 svæði í Raumaríki með tilliti til skriðuhættu, þar á meðal var Ask. Stofnunin sagði í gær að hættan á frekari skriðuföllum kvikleirsins væri hverfandi.“ agas@mbl.is Leita lifandi í skriðunni  Björgunarmenn leita í braki húsa sem jarðhlaupið í Ask tók með sér AFP Ask Björgunarmenn leita í braki húsa eftir jarðhlaupið í bænum. Franska stjórnin hefur ákveðið að lengja útgöngubann í 15 sýslum af 101 í baráttunni við kórónuveiruna sem enn breiðir sér út af krafti í Frakklandi. Verður bannið lengt um tvær stundir og gildir frá sex á kvöldin til sex að morgni. Meðal sýslnanna er Les Alpes-Maritimes þar sem borgina Nice er að finna. Sýslurnar 15 eru í austurhluta landsins. „Veiran er í sókn í Frakklandi en misjafnlega kröftuglega eftir svæð- um,“ sagði Gabriel Attal, talsmaður ríkisstjórnarinnar. „Haldi hún inn- reið sinni áfram verður gripið til frekari aðgerða.“ FRAKKLAND AFP Frakkland Bólusetning vegna kórónu- veirufaraldursins hefur gengið hægt. Frakkar lengja útgöngubann Ólympíuleikunum 2020 sem frestað var á nýliðnu ári vegna veirufarald- ursins verða háðir í júlí nk., að sögn Yoshihides Suga, forsætisráðherra Japans. „Leikarnir verða í sumar, óhultir og tryggir,“ sagði Suga í gær þrátt fyrir vaxandi áhyggjur um að ekki verði búið að bæla kór- ónuveiruna niður. Leikarnir eiga að hefjast 23. júlí nk. agas@mbl.is JAPAN Leikarnir í Tókýó fara fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.