Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021
Tímamót Ríkisráðsfundur var að venju á Bessastöðum á gamlársdag, þar sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fundaði með forseta Íslands. Öll voru með grímu og lengra var á milli fólks.
Árni Sæberg
Árið 2020 mun ganga inn í
sögubækur sem ár kórónuveir-
unnar, bráðsmitandi sjúkdóms
sem lagði að velli hundruð þús-
unda um allan heim og eru þau
kurl þó langt í frá öll til grafar
komin. Kórónupestin deilir í
hugum okkar margra sessi með
spænsku veikinni 1918, stóru-
bólu 1707 og svartadauða 1402,
sem við höfum lesið um í sögu-
bókum. Til samanburðar munu
áhrif hennar sem betur fer ekki
birtast í fjölda látinna, heldur af hraðri út-
breiðslu á heimsvísu, áhrifum á flókið al-
þjóðlegt efnahagskerfi og hversdagslega
lífshætti fólks. Aðflutt úr dýraríkinu skall
hún óvænt á þegar þjóðir heims voru að búa
sig til atlögu við loftslagsvána sem er af-
drifaríkasta glíma sem mannkynið hefur
sameiginlega þurft að horfast í augu við.
Þegar nú bóluefni eru talin hafa fundist
gegn vágestinum á mettíma er eftir að sjá
hversu þau duga til að kveða hann niður.
Svo mikið er víst að áhrifanna mun gæta
lengi og setja svip sinn á eftirleikinn. Við
skulum prófa að spá í þau spil með því að
líta á stöðu mála í heimstaflinu og umsagnir
úr mismunandi áttum.
Uppgjörið eftir Covid tekur mörg ár
Flestir sem rýna í heimsbúskapinn virðast
sammála um að veiran og viðbrögðin við
henni hafi vængstýft hnattvæðinguna, að
minnsta kosti í bili. Tímabundinn ríkisstuðn-
ingur við fyrirtæki smá og stór hefur gjör-
breytt samkeppnisforsendum og gjaldþrot
blasir við fjölda fyrirtækja, m.a. í alþjóða-
flugi og ferðaiðnaði. Stafræn þróun hefur
tekið stökk fram á við og mun að líkindum
gjörbreyta vinnumarkaði og alþjóðasam-
skiptum. Tæknirisar og mörg fjölþjóðafyrir-
tæki munu fleyta rjómann við þessar að-
stæður. Hætt er við að ójöfnuður í lífs-
kjörum fari vaxandi innan þróaðra ríkja, að
ekki sé talað um fátækasta hluta heimsins.
Slík öfugþróun mun óhjákvæmi-
lega skerpa á stéttaandstæðum
og endurspeglast í alþjóðasam-
skiptum. Þar verða pólarnir ef-
laust áfram Bandaríkin og
Kína, þótt Trump sé fallinn fyr-
ir borð. Átökin á viðskipta- og
tæknisviði milli þessara risa
hverfa ekki og gætu átt eftir að
skerpast þrátt fyrir nýja hús-
bændur vestanhafs. Áfram er
Kína í sterkri stöðu eftir að
hafa tekist ótrúlega vel í glím-
unni við veiruna sem þar átti
upptök sín. Landinu er spáð allt
að 7% hagvexti á komandi ári, 2021. Sam-
hliða þessu hefur Kína undanfarið verið að
styrkja stöðu sína í SA-Asíu á kostnað
bandarískra og ástralskra áhrifa. Í Japan
hefur hins vegar hægt á efnahagsþróun
undanfarið og svipaða sögu er að segja um
Rússland, þar sem misskipting auðs er nú
með því mesta sem gerist.
Óvissan innan Evrópusambandsins
Í Evrópu hefur útganga Breta úr Evrópu-
sambandinu sett mark sitt á umræðu um
framtíðarsamskipti. Þeirri óvissu er nú að
nokkru eytt með samningi aðila um sam-
skipti eftir Brexit. Langvarandi efnahags-
erfiðleikar suðurríkja ESB halda áfram með
miklu atvinnuleysi, en lánapakkinn stóri upp
á 750 milljarða evra sem samþykktur var
með semingi á árinu á að bæta þar úr. Í
raun snerist hann um framtíð ESB sem
greinilega var í hættu vegna viðvarandi
kreppu í stórum aðildarríkjum eins og Spáni
og Ítalíu. Vandinn er hins vegar ekki úr sög-
unni og mun m.a. tengjast ráðstöfun á lán-
um og styrkjum úr sjóðnum stóra. Það voru
minni ríki sambandsins á borð við Holland,
Danmörku og Austurríki sem höfðu efa-
semdir um lánapakkann, og þau munu áfram
minna á sig um framhaldið. Hlutverk fram-
kvæmdastjórnar ESB hefur vaxið með
auknum hlut í útdeilingu þessara fjármuna
og ímynd hennar hefur skánað út á við með
formennsku Ursula von der Leyen. Burðar-
ásar í ESB eru eftir sem áður Frakkland og
Þýskaland og í þeim báðum ríkir pólitísk
óvissa um forystu í kjölfar kosninga innan
tíðar. – Macron Frakklandsforseti styðst við
losaralegan stjórnmálaflokk (LRME) og
sjálfur sætir hann gagnrýni úr ýmsum átt-
um. Forsetakosningar verða í Frakklandi
vorið 2022 og þá munu tvær konur að lík-
indum sækja að Macron hvor úr sinni átt-
inni: Marine le Pen frá hægri og Anne Hid-
algo borgarstjóri í París frá vinstri. – Í
Þýskalandi er styttra í pólitískt uppgjör í
þingkosningum næsta haust. Þá mun Angela
Merkel hverfa úr kanslaraembætti eftir rösk
16 ár á þeim valdastóli og allt að 30 ár í
stjórnmálum í kjölfar sameiningar Þýska-
lands. Bakgrunnur hennar sem doktors í
eðlis- og efnafræði hefur komið að góðu
gagni í flókinni stöðu þarlendis að undan-
förnu. Um það bera vitni jákvæð viðbrögð
hennar við gagnmerkum rannsóknaniður-
stöðum eðlisfræðingsins Viola Priesemann
um hegðun veirunnar. (Die Zeit nr. 53, 17.
des. 2020). Mikil óvissa ríkir um framhaldið í
þýskum stjórnmálum, en nú eru taldar meiri
líkur á samstjórn Kristilegra og Græningja
en samsteypustjórn til vinstri.
Vanþekking margra
á náttúru og umhverfi
Baráttan á heimsvísu og í einstökum ríkj-
um við kórónuveiruna leiddi margt fróðlegt í
ljós. Samstaða sem tókst meðal vísinda- og
rannsóknastofnana ásamt með Alþjóðaheil-
brigðismálastofnuninni (WHO) skipti sköp-
um um viðbrögð á alþjóðavísu og skjóta þró-
un bóluefna gegn þessum vágesti. Jafn
hörmulegt var að horfa upp á Bandaríkin
rjúfa þá samstöðu með ákvörðun Trumps
forseta. Viðbrögð við veirunni innan ein-
stakra ríkja heims hafa verið afar misjöfn og
m.a. leitt í ljós ótrúlega fávisku margra for-
ystumanna í stjórnmálum og ráðgjafa
þeirra. Þegar svo háttar til er ekki að undra
að almenningur ruglist í ríminu. Frá þessu
eru góðar undantekningar, m.a. hérlendis,
þar sem sóttvarnalæknir og hans teymi hef-
ur veitt staðfasta forystu og heilbrigðis-
ráðherra og aðrir ábyrgðaraðilar borið gæfu
til að fylgja hans ráðum. Þessu til viðbótar
hefur komið þekking og góður stuðningur
frá forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. –
Allt önnur sjónarmið hafa heyrst hér, m.a.
frá einstökum þingmönnum, sem endur-
spegla ótrúlega vanþekkingu og fordóma í
garð vísinda. Þegar nú þrengir að umhverfi
okkar á mörgum sviðum skiptir miklu að
hlúð verði markvisst að kennslu og miðlun í
náttúrufræðum jafnt í grunnnámi og fram-
haldsskólum.
Staða Íslands og framtíð
Náttúrufarslega hefur Ísland mikla sér-
stöðu sem eyja og eldfjallaland við heim-
skautsbaug. Loftslagsbreytingarnar eru lík-
legar til að verða meiri hér á norðurslóðum
en sunnar í álfu og við horfum á jöklana
minnka fyrir augum okkar. Góð umgengni
um landið og verndun okkar viðkvæmu nátt-
úru er undirstöðuatriði, og skipulag atvinnu-
hátta og umferðar þarf að taka mið af því.
Reynslan af baráttunni við veiruna undan-
farið segir okkur hversu mikilvægt það er að
geta haft stjórn og yfirsýn um ferðir til og
frá landinu. Ferðaiðnaður sem atvinnugrein
þarf að taka mið af þessum aðstæðum og
hafa ber í huga þá miklu mengun sem fylgir
flugferðum um fyrirsjáanlega framtíð. Skoða
ber alþjóðatengsl okkar í þessu samhengi,
þar á meðal aðild okkar að Schengen, sem
líklegt er að taki breytingum í kjölfar veir-
unnar. Meginatriði er að varðveita sjálfstæði
okkar sem þjóðríkis samhliða virkri alþjóða-
samvinnu. – Gleðilegt ár.
Eftir Hjörleif Guttormsson »Reynslan af baráttunni við
veiruna undanfarið segir
okkur hversu mikilvægt það er
að geta haft stjórn og yfirsýn
um ferðir til og frá landinu.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Mannkynið er óaðskiljanlegur hluti
af náttúru jarðar