Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 25

Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 25
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BETA GUÐRÚN HANNESDÓTTIR, áður til heimilis í Hamrabergi 7, Reykjavík, lést mánudaginn 28. desember á Hrafnistu í Reykjavík. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 8. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks á Vitatorgi Hrafnistu í Reykjavík. Útförinni verður streymt á slóðinni: http://nn.is/x3P2Y Börn, tengdabörn barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Faðir minn, sonur, bróðir og mágur, KRISTINN ÓLAFUR KRISTINSSON líffræðingur, Fellabrekku 19, Grundarfirði, varð bráðkvaddur að morgni miðvikudagsins 30. desember. Skúli Jón Árdís Sveinsdóttir Kjartan Gunnarsson Sigrún Kristinsdóttir Bjarki Sveinbjörnsson Valdís Kjartansdóttir Bragi Karlsson Gunnhildur Kjartansdóttir Ólafur Erlendsson Okkar ástkæra INGIGERÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, Borgarnesi, áður Kolsstöðum, lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð fimmtudaginn 24. desember. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 6. janúar klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir útförina en athöfninni verður streymt á kvikborg.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar, Borgarnesi. Sigurður Guðmundsson Margrét Gyða Jóhannsdóttir Jakob Guðmundsson Dóra S. Gísladóttir og fjölskyldur Elsku hjartans dóttir mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, MARÍA J. VALGARÐSDÓTTIR frá Sauðárkróki, lést á annan dag jóla, 26. desember, á lungnadeild Landspítalans. Jakobína R. Valdimarsdóttir Finna Guðrún Ragnarsdóttir Garðar Smárason Valgarður I. Ragnarsson Jórunn Sigurðardóttir Ragna María Ragnarsdóttir Guðmundur Hreinsson ömmu- og langömmubörn Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS BJÖRNSSON veitingamaður, Sólvangi, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi hinn 23. desember 2020. Útför Magnúsar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 5. janúar 2021 klukkan 13. Vegna aðstæðna verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir. Unnur Birna Magnúsdóttir Gísli G. Gunnarsson Unnur Louisa Thøgersen barnabörn og barnabarnabörn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HANNES LÁRUSSON bóndi, Óspaksstöðum, Hrútafirði, lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð 25. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 6. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymi frá athöfn verður á www.akraneskirkja.is. Sólveig Sigurbjörnsdóttir Jón Ingi Hannesson Anja Arai Sigrún Lára Hannesdóttir Hjörleifur Þór Hannesson Guðrún Jóhanna Halldórsd. Rúna Björg Hannesdóttir Aron Ingi Agnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍS JÓN SÆMUNDSSON, Austurvegi 5, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 20. desember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 5. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/KJIcscDzhQM Sólveig Árnadóttir Ólafur Ragnar Elísson Hrafnhildur Bjarnadóttir Sæmundur Bjarni Elísson Kristinn Sigurður Jónsson Karen Mjöll Elísdóttir Rúnar Þór Björgvinsson Vilborg Elísdóttir Ómar Björn Jensson Árni Sigurðsson Guðrún Stefánsdóttir Sigurlaug Sigurðardóttir Halldór Einarsson Gunnar Sigurðsson Anna Guðmundsdóttir Kristján Sigurðsson Rannveig Böðvarsdóttir Viðar Smári Sigurðsson Sigurbjörg Erlingsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Við kveðjum glæsilega unga frænda okkar, yngri drenginn hennar Helgu litlu systur, með djúpri sorg. Hann kom í heiminn – í hendur Styrmis bróður síns – fyrir 27 árum á bjartasta tíma ársins, langþráður af foreldrum sínum og fagnað af öllu sínu skyldfólki. Við áttum öll hlut í þessum broshýra, tilfinningaríka og tónelska dreng og hann átti hlut í okkur öllum. Í fórum okk- ar eigum við skráðar minningar um skemmtileg atvik í bernsk- unni. Á barnsárunum var hann oft með mér (MM) í för, kom í sumarbústaðinn og bjó til stund- arkorn sem settust í hjartastað. Hann var svo næmur og fróð- leiksfús lítill krakki, spurull og langaði að prófa allt: „Viltu koma með mér að róa? Viltu koma með mér í fjallgöngu? Viltu kenna mér að veiða?“ spurði hann einn máginn og sagði svo vonsvikinn við und- irtektunum: „Kanntu bara ekk- ert nema borða vöfflur?“ Og undrunin og uppnámið þegar hann, fjögurra eða fimm ára, frammi fyrir litsterku kröftugu abstraktmálverki, snerist á hæli og hrópaði: „Hvað kom fyrir?“ Meira en hálf skamma ævin hans Úlfars okkar var bernskan, tími væntinga og fyrirheita. „Það var svo gaman að heim- sækja þau, Úlli var alltaf svo glaður og Helga og Stjáni voru svo góð við mann,“ segir Magn- ús Skúlason, frændi og vinur. Þessi litla fjölskylda varð fyr- ir miklu áfalli sem breytti hög- um hennar til frambúðar þegar Kristján, faðir hans, slasaðist óbætanlega. Á unglingsárunum, tíma Úlfar Örn Kristjánsson ✝ Úlfar Örnfæddist 22. júní 1993. Hann lést 17. nóvember 2020. Foreldrar hans voru Helga Magn- úsdóttir, prófarka- lesari á Morgun- blaðinu, látin, og Kristján Þorvalds- son sjómaður. Bróðir Úlfars er Styrmir Bolli Krist- jánsson. Eftir skólaskyldu stundaði hann nám í myndlistardeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti og síðar við Kvikmyndaskóla Ís- lands. Útförin fór fram í kyrrþey. drauma og nýrra slóða, las Úlfar mikið af öllu tagi, samdi ljóð og texta og fékk brennandi áhuga á kvikmynd- um, leiklist og kvik- myndasögu og byrj- aði þá í Kvikmyndaskólan- um þótt ekki lyki hann námi. Vel inn- an við tvítugt skrif- aði hann leikþátt sem var marg- ræður og svo fjarri unglingslegri einfeldni að mér (ÞM) hefur oft orðið hugsað til þess sem hann vildi segja. Við hittumst stund- um – allt of sjaldan – og rifj- uðum upp gamlar merkilegar kvikmyndir, man sérstaklega eftir spjalli um Orðið eftir Dreyer – deildum meiningum þótt á milli okkar sé meira en hálf öld; gamalt fólk getur lært svo margt af tilfinningum ungs gáfaðs fólks. Og svo misstu þeir feðgar Helgu. Við vonum að hann hafi skilið hve sárt við fundum til með hon- um, fólkið hans, ekki síst nán- ustu frænkurnar, sem sannar- lega létu sér annt um hann, en ekkert getur bætt viðkvæmum ungum dreng slíkt tjón að missa mömmu sína óvænt fyrir aldur fram. Margir honum óskyldir, t.d. samstarfsfólk mömmu hans, minnast hans og nefna hvernig stafaði af honum einlæg gleði og hvað hann hafði ljúfa framkomu. Sorgin og söknuðurinn eftir unga frændann okkar, sem missti of mikið, getur samt ekki bugað þakklætið fyrir gjafirnar sem hann gaf okkur. Kristjáni og Styrmi vottum við innilega samúð og óskum þeim huggunar. Matthildur og Þuríður Magnúsdætur. Þann 9.12. sl. lést kær Sinawiksystir og vinkona, Val- gerður Einarsdótt- ir. Sú fjórða af hópnum okkar á skömmum tíma. Náði hún níutíu ára aldri um mánuði fyrir andlát- ið. Vegna heilsubrests gat hún ekki verið með okkur þessa síð- ustu fundi okkar, sem við héldum áður en Covid-19 stoppaði allt fundarhald hjá öllum. Þessi hressa, káta og duglega fé- lagskona var ætíð til í að taka þátt í hverju sem var í starfinu okkar. Valgerður Einarsdóttir ✝ Valgerður Ein-arsdóttir fædd- ist 4. nóvember 1930. Hún lést 9. desember 2020. Útför Valgerðar fór fram 18. desem- ber 2020. Alltaf var glatt á hjalla bæði í leik og starfi. Gott að hafa hana með í alls kon- ar nefndum í félag- inu – aldrei leiðin- legt. Stutt í bros. Nú söknum við mætrar vinkonu. Trúi ég því að þær sem komnar eru til Sumarlands- ins hafi haldið sinn jólafund í sátt og samlyndi, með gleði eins og þeim var lagið. Þökkum við samfylgdina til margra ára, allar sem ein. Sendum innilegar samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar. Guð blessi minningu Valgerð- ar Einarsdóttur. Fyrir hönd Sinawik Reykja- vík, Dagný Heiða Vilhjálms- dóttir formaður. Mig langar að minnast Ómars stóra frænda míns en hann var föður- bróðir minn og var sex árum eldri en ég. Hann var mér mjög góður og gerði margt fyrir mig. Einn sunnudag, ég hef verið um það bil átta ára, tók hann mig með sér í bíó að sjá bítlamynd, við ætluðum með strætó en þegar við komum á strætóstoppistöðina sagði Ómar að við skyldum taka leigubíl en ég mætti ekki segja afa frá því. Þegar hann hætti að nota reiðhjólið sitt fékk ég það en þannig var, Ómar gjafmildur og góður. Þegar ég var orðinn unglingur var Ómar farinn að vinna hjá matvöruverslun við útkeyrslu á vörum til viðskipta- vina. Hann kom oft á föstudögum heim til mín og bauð mér að koma með sér að keyra út, það fannst mér spennandi og skemmtilegt og þá var mikið spjallað. Dagurinn Ómar Magnússon Waage ✝ Ómar Magn-ússon Waage fæddist 25. október 1952. Hann lést 12. desember 2020. Útför Ómars fór fram 22. desember 2020. endaði svo heima hjá Ómari sem var far- inn að búa með Birnu á Fálkagöt- unni og eldaði hún handa okkur veislu- mat, það var góður endir á góðum degi. Ómari þótti gaman að tónlist og hann kynnti fyrir mér m.a. Creedence Clear- water Revival sem var þrusugrúppa. Hann var líka mikill aðdáandi Bítlanna og kynnti mér þá líka. Árin liðu og þegar ég hafði aldur til fórum við saman út að skemmta okkur, það var gaman og naut ég samverunnar með hon- um og þá margt brallað. Þegar ég fór að búa með Fríðu og eignaðist börn þá fækkaði samverustundun- um. Ómar var í heimsókn hjá for- eldrum mínum hinn 6. desember 1986 og fóru pabbi og hann út í sjoppu en þar hné pabbi niður, hann hafði fengið hjartaáfall og þar með var hann allur. Þessi stund var Ómari mjög erfið. Ég vil þakka Ómari fyrir samfylgdina og allar góðu stundirnar en hann var góður drengur. Ég vil votta þér Steinunn samúð mína. Magnús Waage.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.