Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 31

Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Tunguhálsi 10 Sími 415 4000 www.kemi.is kemi@kemi.is „HANN MÁLAÐI ÞESSA EFTIR SAMBANDSSLITIN.” „OPNAÐU MUNNINN! ÉG ÆTLA AÐ LÍTA Á HÁLSINN Á ÞÉR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá knús hjá mömmu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MIKIÐ RÉTT! MIKIÐ RÉTT! HVER ER BESTUR?! HVER ER BESTUR?! ÉG ER BESTUR! LOKSINS KLÁRAÐI HANN AÐ MÁLA EFTIR NÚMERUNUM Á SÍÐUNNI MÉR ÞYKIR ÞAÐ AFAR LEITT EN VIÐ ERUM MEÐ STRANGAR REGLUR UM KLÆÐABURÐ! ÉG GET EKKI LÁTIÐ YKKUR FÁ BORÐ! ákvað að vera með á listanum. Ég er nú ekkert virkur í þessu núna, en hef frekar fylgst með úr fjarlægð skulum við segja.“ Eiður Fannar hefur brennandi áhuga á flugi og lauk einkaflug- mannsnámi frá Flugskóla Íslands ár- ið 2011 og reynir að komast í flug eins oft og tækifæri gefast. „Pabbi er einkaflugmaður og þar kynntist ég fluginu fyrst og þaðan kemur áhug- inn á flugi. Ég var mikið með honum í flugvélinni í gamla daga, en hann fékk sitt einkaflugmannsskírteini um 1985 og þá strax byrja ég að fara með honum. Pabbi átti líka og rak fyrir- tækið Suðurflug í Keflavík um tíma.“ Eiður hefur líka gaman af því að setja saman flugmódel og á nokkur feikna stór módel sem hann hefur sett saman og flogið með fjarstýr- ingu. Núna eru synir Eiðs Fannars farnir að fara í flug með honum svo heita má öruggt að flugáhuginn mun erfast til þriðju kynslóðarinnar í framtíðinni. „Það er svo gaman að skoða landið frá öðru sjónarhorni og fljúga frjáls eins og fuglinn.“ Fjölskylda Eiginkona Eiðs Fannars er María Vestergaard Guðmundsdóttir, f. 8.4. 1977, sérfræðingur í hjúkrun hjarta- sjúklinga. Foreldrar hennar eru Guð- mundur Gunnar Haraldsson, prófess- or við Háskóla Íslands, f. 24.2. 1953, og Maj-Britt Vestergaard, f. 5.1. 1957, sjúkraliði á Landspítalanum. Börn Eiðs Fannars og Maríu eru Guðmundur Gunnar, f. 20.7. 2005; Erlendur Fannar, f. 30.7. 2011, og Kristján Jens, f. 25.6. 2014. Síðan á fjölskyldan hundinn Draum sem fæddist 7.5. 2020 og er mikill gleði- gjafi. Foreldrar Eiðs Fannars eru Unnur H. Kristjánsdóttir, f. 17.8. 1954, vann hjá Flugleiðum og leiðbeinandi á leik- skóla í Mosfellsbæ, og Erlendur Frið- riksson, f. 17.4. 1953, fv. verkstjóri í Keflavík og fyrirtækjaeigandi og nú- verandi leigubílstjóri í Reykjavík. Eiður Fannar Erlendsson Kristín Jónsdóttir húsfreyja í Vattarnesi í Gufudalssókn,A-Barð. Finnbogi Jónsson bóndi í Vattarnesi í Gufudalssókn, A-Barð. Guðbjörg Jónína Finnbogadóttir var í Vattarnesi í Gufudalssókn,A-Barð. Kristján Árnason frá Kollsá í Grunnavíkurhreppi Unnur H. Kristjánsdóttir vann hjá Flugleiðum og leiðbeinandi á leikskóla í Rvk. Jasína Elísabet Guðlaugsdóttir húsfreyja á Látrum í Hesteyrarsókn,N-Ís. Árni Arnfinnsson sjó- og daglaunamaður á Látrum í Hesteyrarsókn,N-Ís. Guðlaug Runólfsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Guðmundur Jónsson vélstjóri á Ísafirði, síðar sjómaður í Rvk. Jóhanna Rósa Guðmundsdóttir húsfreyja í Sandgerði, síðar Rvk. Friðrik Sigurðsson vélgæslumaður í Sandgerði Ólína Jónsdóttir húsfreyja og aðventisti í Fagurhlíð, Hvalsnessókn, síðar í Sandgerði Marinó Jónasson sjómaður í Reykjavík Úr frændgarði Eiðs Fannars Erlendssonar Erlendur Friðriksson verkstjóri í Keflavík, núna leigubílstjóri í Rvk. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Myrkur nú hef ég í huga. Höfuð á kappanum skreytir. Þjófunum þessi má duga. Þjóðsagnapersóna heitir. Hér er lausnin frá Hörpu á Hjarðarfelli: Myrkur grátt mun gríma vera. Grímubúning karlinn bar. Þjófar gjarna grímu bera. Gríma skessa í sögum var. Helgi R. Einarsson svarar: Gríma er myrkur góurinn, gríma er líka hjálmurinn, grímu notar þjófurinn, Grímu í þjóðsögunum finn. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Gríma hylur mold og mar. Margur kappi grímu ber. Þjófum gagnast grímurnar. Gríma ferleg skessa er. Þá er limra eftir Guðmund: Er Grímur fékk sér einn gráan og Grímhildur vildi ekki sjá’ann, en rauk út í hasti í reiðikasti þá runnu tvær Grímur á’ ann. Og síðan kemur ný gáta eftir Guðmund: Daginn lengir smátt og smátt, smýgur ljósið inn um gátt, einnig gátan á sinn hátt inn sér laumar til þín brátt: Sokknum þínum er hún á. Út sig teygir landi frá. Stígur eða stétt er þá. Stafur grískur vera má. Í Vísnasafni sínu segir Jóhann frá Flögu frá því, að Vigfús Jóns- son, sem oftast gengur undir nafn- inu Leirulækjar-Fúsi, mælti svo við barn: Varastu, þegar vits fær gætt, til vonds að brúka hendur. Það er gjörvallt þjófaætt það sem að þér stendur. Faðir og móðir furðu hvinn, frændur allir bófar, ömmur báðar og afi þinn, allt voru þetta þjófar. Eyjólfur ljóstollur orti: Reykjavíkur breiður bær bestum kostum hlaðinn. Heilagsanda blíður blær breiðist yfir staðinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það renna á tvílráðan tvær grímur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.