Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 33

Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021  Arnór Atlason, fyrrverandi lands- liðsmaður í handknattleik, hefur fram- lengt samning sinn við danska meist- araliðið Aalborg og verður því áfram aðstoðarþjálfari þar til sumarsins 2023. Arnór hefur starfað hjá félaginu við hlið aðalþjálfarans Stefans Mad- sens frá því hann lagði skóna á hilluna árið 2018 en frá þeim tíma hefur liðið tvisvar orðið danskur meistari og einu sinni bikarmeistari. Þá er Arnór þjálfari danska U19 ára landsliðsins í karla- flokki.  Hætt hefur verið við að leggja niður meistaralið Gautaborg í knattspyrnu kvenna. Tilkynnt var að liðið yrði lagt niður síðasta þriðjudag en á undan- förnum dögum hefur fjöldi fjárfesta stigið inn og það nægir til þess að snúa við ákvörðuninni um að leggja lið- ið niður. Í gær tilkynntu forsvarsmenn Gautaborgarliðsins að viðbrögð fjár- festa hefðu verið „yfirþyrmandi“ eftir að liðið lagði upp laupana og því hefðu þessi umskipti verið möguleg. Í til- kynningunni ítrekuðu forsvarsmenn þess að félagið hefði þó enn áhyggjur af því að það tengdist ekki félagi sem er með meistaraflokk hjá körlum. Við- ræður við IFK Gautaborg þar að lút- andi hafa ekki borið ávöxt til þessa.  Gunnar Örvar Stefánsson, sókn- armaður úr KA, hefur verið lánaður til knattspyrnuliðsins St. Andrews á Möltu. Hann staðfesti þetta við fot- bolta.net og verður hjá félaginu út tímabilið sem á að ljúka í apríl. St. Andrews er í 13. sæti af 15 liðum í maltversku B-deildinni. Gunnar er 26 ára og lék sex leiki með KA í úrvals- deildinni á síðasta ári en hefur skorað 45 mörk fyrir Magna og Þór í B- deildinni.  Omar Elabdellaoui, leikmaður Gala- tasaray í Tyrklandi og norska lands- liðsins í knattspyrnu, slasaðist í andliti í Istanbúl á gamlárskvöld þegar flug- eldur sprakk í höndum hans. Elabdella- oui skaddaðist á auga og fékk bruna- sár í andliti en ekki er ljóst hve alvarlegur augnskaðinn er fyrr en eftir nánari skoðun, samkvæmt tilkynningu frá Galatasaray.  Kamerúnski miðvörðurinn Joel Mat- ip missir af næstu leikjum Liverpool en knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp staðfesti þetta eftir jafnteflið við New- castle á miðvikudagskvöldið. Hann meiddist í nára gegn WBA um jólin og nær væntanlega ekki stórleiknum gegn Manchester United 17. janúar.  Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að fimm leik- menn liðsins séu smitaðir af kór- ónuveirunni og verði ekki með í stór- leik liðsins gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á Stamford Bridge á morgun. Kyle Walker og Gabriel Jesus eru tveir þeirra en þeir greindust smit- aðir um jólin og eru í einangrun en Gu- ardiola gaf ekki upp á fréttamanna- fundi í gær hverjir hinir þrír væru. Æfingasvæði City var lokað um skeið vegna smita hjá félag- inu en var opnað á ný á mið- vikudag eftir að engin ný smit greind- ust. Eitt ogannað Emil Pálsson knattspyrnumaður frá Ísafirði hefur yfirgefið norska úrvalsdeildarfélagið Sandefjord eftir að hafa leikið með því í þrjú ár. Emil staðfesti þetta við fótbolta.net um áramótin og kvaðst vera að skoða næsta skref með um- boðsmanni sínum. Emil er 27 ára miðjumaður og lék með FH í sjö ár áður en hann fór til Noregs. Hann lék 24 leiki með Sandefjord í úr- valsdeildinni á síðasta ári og hefur samtals spilað 217 deildaleiki á ferl- inum á Íslandi og í Noregi auk þess að eiga einn A-landsleik að baki. Emil er farinn frá Sandefjord Ljósmynd/Sandefjord Skiptir Emil Pálsson kvaddi lið Sandefjord um áramótin. Körfuknattleiksstjarnan LeBron James hélt upp á 36 ára afmælið sitt aðfaranótt gamlársdags með því að skora 26 stig, taka fimm fráköst og gefa átta stoðsendingar fyrir LA Lakers í 121:107-sigri á San Anton- io Spurs í NBA-deildinni. Um leið náði James þeim ótrúlega árangri að hafa skorað 10 stig eða meira í þúsund leikjum í röð. Er hann fyrsti og eini leikmaðurinn í sögu deild- arinnar sem hefur afrekað slíkt. Síðast gerðist það í janúar 2007 að James skoraði aðeins átta stig í leik í deildinni. Þúsund sinnum í röð náð tíu AFP Þúsund LeBron James skorar í leiknum gegn San Antonio. KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Jón Axel Guðmundsson landsliðs- maður í körfubolta hefur leikið vel á sínu fyrsta tímabili í atvinnu- mennsku en hann gerði eins árs samning við Fraport Skyliners frá Frankfurt í efstu deild Þýskalands í júlí á síðasta ári. Jón hafði úr mörgum tilboðum að velja eftir fjögur góð ár í bandaríska háskólaboltanum með Davidson í Norður-Karólínu, en kaus að lokum að fara til Þýskalands. Leikstjórn- andinn hefur skorað rétt tæp 14 stig, gefið fjórar stoðsendingar og tekið þrjú fráköst að meðaltali í leik með Fraport í deildinni á leiktíðinni. „Ég er mjög sáttur. Maður gæti alveg verið stöðugri en ég er enn að venjast því að spila á móti þessum liðum sem eru mörg með miklar og strangar varnarfærslur. Það tekur smá tíma að venjast því að spila á móti þessum varnarleik í Evrópu. Það eru mismunandi áherslur hjá hverju liði og mismunandi hvað hentar fyrir mig að spila á móti. Maður þarf að aðlagast hverjum leik fyrir sig og hverri vörn fyrir sig,“ sagði Jón Axel í samtali við Morg- unblaðið. Vill að ég geri nánast allt Hann segir körfuboltann í Þýska- landi ekki ósvipaðan bandaríska há- skólaboltanum. „Þetta er svipað og í háskólanum nema þar var ég orðinn vanur því að spila í mínu kerfi. Maður var fyrir löngu farinn að lesa allar varnir og vissi hvað maður átti að gera þegar eitthvað kom upp á. Nú er ég að venjast nýju umhverfi,“ sagði Grind- víkingurinn. Jón Axel getur spilað báðar bak- varðarstöðurnar, en til þess þarf bæði hæfileika til að skora sjálfur og finna liðsfélagana í góðum stöðum. Hann spilar því til skiptis sem svo- kallaður ás, eða leikstjórnandi, og sem tvistur, eða skotbakvörður. „Þjálfarinn vill að ég geri nánast allt. Ég á að vera leikstjórnandi sem spilar ás og tvist. Þegar ég spila ás- inn á ég meira að vera í því að skapa fyrir liðsfélagana. Um miðjan fyrsta leikhluta skiptir þjálfarinn mér yfir í tvistinn og þá vill hann að ég skjóti meira og reyni meira sjálfur í sókn- inni. Mér líkar vel við báðar stöður, leikstíllinn minn er þannig að ég get skotið boltanum og líka gefið á liðs- félaga mína. Ég get gert allt það sem þjálfarinn minn biður um og mér er sama hvort mér er sagt að gefa boltann eða skjóta.“ Jón Axel var ekki lengi að láta að sér kveða hjá nýju liði og í nýrri deild og skoraði hann m.a. 25 stig á móti Bayreuth í sínum fimmta leik með liðinu. Landsliðsmaðurinn er með sjálfstraustið í lagi og hefur lít- ið fyrir því að taka mikilvæg skot. „Upp alla yngri flokka, í meistara- flokki og í háskólaboltanum, þá var ég alltaf í lykilhlutverki þannig að maður er orðinn vanur þessu,“ sagði Jón Axel. En ef hann hittir ekki úr mikilvægu skoti? „Þá fer maður á æfingu daginn eftir og æfir meira og reynir sama skot þangað til ég hitti nokkrum sinnum í röð. Það er alltaf hægt að klikka og maður verður bú- inn að gleyma þessu strax næsta dag.“ Ekki ósáttir við fyrstu leikina Fraport tapaði þremur fyrstu deildarleikjum tímabilsins en liðið mætti tveimur af bestu liðum Þýska- lands síðustu ár í fyrstu tveimur um- ferðunum; Alba Berlín og Bayern München. Síðan þá hefur Fraport leikið sex leiki og unnið og tapað til skiptis og er liðið í 13. sæti af 18 lið- um með sex stig úr níu leikjum. „Við byrjuðum á móti bestu liðum deildarinnar undanfarin ár. Við sögðum við sjálfa okkur að við myndum ekki verða pirraðir þótt fyrstu leikirnir töpuðust. Við vissum að það gæti gerst. Við hefðum samt auðvitað þegið sigur úr þeim leikj- um. Við vorum ekki ósáttir við þessa fyrstu leiki þar sem mér fannst við bæta okkur með hverjum leiknum. Við höfum sýnt það á móti liðunum sem eru neðar í deildinni, þar sem við höfum gert mjög vel á móti þeim.“ Lítið hægt að gera í Frankfurt Líkt og nánast alls staðar í Evr- ópu er lítið hægt að gera í Frankfurt um þessar mundir vegna kórónu- veirunnar. Nánast allur frítími Jóns Axels fer því í að hanga heima hjá sér. Hann viðurkennir að það taki á. „Það var aðeins hægt að skoða í byrjun þegar veiran var rólegri, þá fékk ég að sjá borgina, fara í golf og skoða búðir en núna er allt saman lokað. Ég rétt svo fer út að ná mér í mat og svo er ég kominn aftur heim. Maður er að rotna hérna en ég held mér gangandi með því að spila tölvu- leiki með landsliðsfélögum og fé- lögum í Grindavík og Bandaríkj- unum. Annars er ég bara einn hérna, fyrir utan að pabbi kom um jólin. Það var mjög fínt,“ sagði Jón Axel. Hann fylgist enn betur með körfubolta en áður, enda lítið annað hægt að gera um þessar mundir. „Ég reyni að horfa á eins mikinn körfubolta og ég get, annars verð ég orðinn gráhærður fljótt og sennilega klikkaður á sjálfum mér á því að vera alltaf einn. Ég horfi alltaf á Martin í Euroleague og svo horfi ég á Íslendingana á Spáni líka,“ sagði Jón. NBA er áfram möguleiki Jón Axel fór í nýliðaval NBA- deildarinnar fyrir þessa leiktíð en var ekki boðinn samningur að þessu sinni í sterkustu deild heims. Hann er hins vegar langt frá því að vera búinn að gefa NBA-drauminn upp á bátinn. „Ég er klárlega enn þá með augun á NBA. Ég var að tala við umboðs- manninn í vikunni og hann var að ræða við fjögur til fimm NBA-lið. Þau eru tilbúin að bjóða mér í æf- ingabúðir á þessu ári. Það er enn áhugi fyrir mér í NBA og þess vegna er það enn meira pirrandi að vera ekki stöðugri í mínum leik. Þeir vita hins vegar að ég er nýliði og sjá að ég er að gera vel miðað við nýliða í svona góðri deild í Evrópu. Maður lærir með leiknum og vonandi verð ég orðinn stöðugri seinni hluta tíma- bilsins,“ sagði Jón. NBA-félög hafa leitað til Evrópu í auknum mæli síðustu ár og því gott tækifæri fyrir Jón Axel að spila í efstu deild Þýskalands strax á fyrsta ári í atvinnumennsku. „Þau eru byrjuð að horfa meira til Evrópu og það er fullt af virkilega góðum leikmönnum að spila í Evr- ópu. Það hentar liðunum vel að vera með nokkra Evrópubúa í sínum lið- um. Það er öðruvísi stíll í Evrópu og hann hentar mjög vel í NBA- deildinni. Þjálfarinn minn í háskóla- boltanum leitaði alltaf til Evrópu og var með 6-7 Evrópubúa í sínu liði. Evrópskir leikmenn lesa leikinn mjög vel og það er oft sagt að þeir lesi leikinn betur en þeir banda- rísku,“ sagði Jón Axel. Þá æfir maður meira og reynir sama skot  Jón Axel Guðmundsson hefur farið vel af stað í Frankfurt  Stefnir áfram á að komast að í NBA-deildinni Ljósmynd/FIBA Þýskaland Jón Axel Guðmundsson hefur skorað allt að 25 stigum í leik fyr- ir sitt nýja lið, Fraport Skyliners, og verið í stóru hlutverki sem bakvörður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.