Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 35

Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND JÓLAMYNDIN 2020 Soul er enn eitt stórvirkið úrsmiðju teiknimyndafyrir-tækisins Pixar sem heyrirundir risann Disney. Listinn yfir þá sem tóku þátt í gerð hennar rúllar svo lengi undir lokin að þrjú lög eru leikin á meðan. Og þar af tvö frekar löng, slíkur er fjöldinn. Vegna Covid-19, lokaðra bíóhúsa og fjöldatakmarkana, tók fyrirtækið þá ákvörðun að frumsýna myndina á streymisveitu sinni Disney+ og er hún því aðgengileg Íslendingum. Það sætir auðvitað tíðindum að kvikmynd á borð við þessa sé ekki sýnd í kvik- myndahúsum þar sem hún myndi sóma sér mun betur á hvíta tjaldinu en á sjónvarpsskjá. Vonandi verður hægt að sjá hana í bíó á næsta ári með öflugu hljóðkerfi því myndin er veisla fyrir bæði augu og eyru. Í Sál segir af Joe Gardner, tón- listarkennara í grunnskóla í New York sem á sér þann draum að slá í gegn sem djasspíanóleikari. Djassinn er köllun hans í lífinu að hann telur og hann er afar fær píanóleikari. Dag einn býðst Joe að leysa af píanóleik- ara í virtri djasshljómsveit saxófón- leikarans Dorotheu Williams sem kemur fram í einni af aðaldjassbúll- um borgarinnar, Half Note Club. Joe mætir í prufu, stendur sig vel og á að mæta aftur um kvöldið og spila á tón- leikum. Fer ekki betur en svo að hann slasast alvarlega, rankar við sér í handanheimum og hefur þá tekið á sig form sálar sinnar. Hundruð sálna á færibandi þokast nær alhvítri óvissu, dauðanum þá væntanlega sem bíður allra sálna að lokinni jarðvist. Joe tekst að forða sér af þessu færi- bandi og dvelur um stund í heimi sálna sem er einhvers konar millistigi lífs og dauða, heimi sálna sem eiga eftir að finna sér líkama (af því mætti halda að við fæðumst sálarlaus). Hon- um tekst með klækjum að komast aftur til jarðar en svo óheppilega vill til að önnur sál er með í för, sál sem ber heitið 22. Sú hefur flakkað milli líkama margra sögufrægra manna, m.a. Abrahams Lincolns, móður Ter- esu og Múhameðs Alís, en hefur aldr- ei fundið tilgang með jarðvist sinni, „neistann“ eins og sá tilgangur er nefndur í myndinni. 22 hefur verið hinn óstýriláti og illviðráðanlegi hluti vitundar þeirra sem hún hefur dvalið í hverju sinni, eins og sjá má í ansi spaugilegu atriði. Í stað þess að lenda aftur í eigin líkama lendir Joe óvart í sjúkarhúsketti og 22 í líkama Joes. Upphefst þá mikið fjör og vandræða- gangur en þegar öllu er á botninn hvolft snýst sagan um tilgang lífsins og eilífa leit okkar mannanna að þeim meinta tilgangi. Já, stórt er spurt og ákveðinni niðurstöðu er náð undir lokin og það heldur fyrirsjáanlegri og sykursætri. Línudansinn stiginn Sál er skipt milli tveggja heima, heims sálnanna og þess sem við þekkjum og dveljum í þar til sálir okkar yfirgefa líkamann. Í Sál er ekki spurt hvort sálin sem fyrirbæri sé yfirleitt til eða einhvers konar handanheimur, heldur gefa höfundar sér það einfaldlega, sem er svo sem gott og blessað enda margir þeirrar trúar. Myndin er ætluð börnum jafnt sem fullorðnum og handritshöfundar dansa á línunni sem skilur að ólíka sýn barna og fullorðinna á lífið og til- veruna. Það sama má segja um grín og alvöru, gleði og sorg, hamingju og óhamingju. Þessum boltum er haldið nokkuð vel á lofti. Kvikun Pixar er sem fyrr frábær, persónurnar litríkar og hugmynda- flugið mikið. Fyrir áhugamenn um teiknimyndir er gaman að því hversu ólíkir heimarnir tveir eru og má til að mynda nefna persónur í sálnaheimi sem eru flatar, aðeins með glóandi út- línum (greinileg vísun í teikningar Pablos Picassos þar) og frumlega notkun á sandi og kornóttri áferð þar sem glataðar sálir rísa og hníga upp úr sandauðn mikilli og er sumum feykt burt af sterkum vindi. Handan- heimurinn er í neonlitum en hluti hans er svarthvítur og sá heimur sem við þekkjum, þ.e. hér á plánetunni jörð, er í hlýjum jarðlitum, ef undan eru skilin tónlistaratriði þar sem Joe kemst í hugarflæðisástand. Í þessum atriðum verður Joe einn með píanó- inu eða flyglinum og svífur um á neonbleiku skýi á neonbláum himni. Tónlistaratriðin eru mjög vel kvikuð og útfærð, djasstónlistin vönduð og ekki annað að sjá en líkt hafi verið eftir hljóðfæraleik eins nákvæmlega og kostur er. Þess má geta að sjálfur Herbie Hancock er á lista yfir list- ræna ráðgjafa við gerð myndarinnar. Nú er íslensk talsetning ekki í boði, aðeins sú upprunalega bandaríska og leikarar í henni standa sig með mikilli prýði. Jamie Foxx smellpassar í hlut- verk Joes og Tina Fey er eldhress í hlutverki 22. Senuþjófarnir eru hins vegar enskir, leikarinn Richard Ayoade og þáttastjórnandinn Gra- ham Norton. Spaugileg rödd Ayoad- es er sem gerð fyrir teiknimyndir og Norton er litlu síðri. Líkt og í Up og Inside Out er kafað í sálarlíf mannsins og tilfinningar í Sál. Vangaveltur handritshöfunda gætu mögulega ruglað yngstu áhorf- endur í ríminu og sagan er helst til flókin á köflum og jafnvel órökrétt (af hverju þarf t.d. að þjálfa sálir áður en þær finna sér líkama?), spurning- arnar ívið þungar og svarið við þeim heldur einfalt. „Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi? Hver er ég? Hvar endar alheimurinn? Skyld’ann enda inn’í mér?“ söng Valgeir Guðjónsson af innlifun í Með allt á hreinu og nógu erfitt fyrir fullorðna að svara þeim spurningum, hvað þá börn. Á heildina litið er Sál fínasta teikni- mynd fyrir börn jafnt sem fullorðna með hrífandi tónlist og líflegum persónum. Að lokum ber að nefna að þetta er fyrsta teiknimynd Pixar með þeldökkri aðalpersónu og margar persónur aðrar eru af öðrum kyn- þætti en hvítum. Er það vel og tími til kominn þar sem 25 ár eru nú liðin frá því fyrsta teiknimynd fyrirtækisins, Leikfangasaga, var frumsýnd. Milli tveggja heima Disney + Sál/Soul bbbbn Leikstjórn: Pete Docter og Kemp Pow- ers. Handrit og saga: Pete Docter, Mike Jones og Kemp Powers. Aðalleikarar: Jamie Foxx, Tina Fey, Graham Norton, Rachel House, Alice Braga og Richard Ayoade. Bandaríkin, 2020. 100 mínútur. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Sálnaheimur Sál Joes og 22 með tveimur fulltrúum sálnaheimsins í Sál. Djassari Joe leikur af fingrum fram á flygil í einu af frábærum tónlistaratriðum Sálar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.