Morgunblaðið - 02.01.2021, Qupperneq 36
Dalalæða er sveitin,
Dysjar er platan og
verkefnið einstakt sam-
krull tónlistar, ljóðlistar
og samfélagssögu Ís-
lands hvar aftökur fyrri
alda spila burðarrullu.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Tónlist plötunnar er samin afHannesi Helgasyni en umljóðagerð sér Jóhannes
Birgir Pálmason. Dalalæða er svo
skipuð: Hannes Helgason (píanó),
Jóel Pálsson (bassaklarínett,
kontrabassaklarínett, sópran-
saxófónn), Jóhannes Birgir Pálma-
son (ljóðagerð og
ljóðalestur,
hljóðsmölun),
Magnús Trygva-
son Eliassen
(trommur) og
Valdimar Kol-
beinn Sigurjóns-
son (kontrabassi).
Í tónlistinni má finna samslátt
ólíkra þátta. Tónlistin er drunga-
leg, myrkradjass nánast. Blástur
Jóels tónar draugalega yfir naum-
hyggjulegum bassa og trommum,
klingjandi píanó lúrir á bak við og
ókennileg rafhljóð brjóta upp.
Ljóða- og kvæðahefð Íslendinga
fær einnig sess en Jóhannes les upp
hrollvekjandi rímur sem tengjast
inn í miður skemmtilega atburði úr
Íslandssögunni. Ljóð Jóhannesar
koma inn á atburði sem gerð er
grein fyrir í verkefninu Dysjar
hinna dæmdu sem segir frá aftök-
um sem áttu sér stað á Íslandi frá
16. öld fram á 19. öld. Það er Stein-
unn Kristjánsdóttir, prófessor í
fornleifafræði við Háskóla Íslands,
sem stýrir því verkefni og eru hún
og tónlistarmennirnir í virku sam-
tali. Dysjar er því í raun beint sam-
starf lista- og fræðaheims.
Í samtali við albumm.is lýsir
Hannes því hvernig hann og
Jóhannes vinur hans byrjuðu að
skissa upp hugmyndir um mitt ár
2019. Um haustið var svo hóað í
restina af hópnum og verkið frum-
flutt á Jazzhátíð í ágúst á þessu ári.
Upptökur sjálfrar plötunnar fóru
fram í Sundlauginni í febrúar og
var það hinn mæti Albert Finn-
bogason sem upptökustýrði og
hljóðblandaði. Finnur Hákonarson
hljómjafnaði en Þórir Georg sá um
umslagshönnun.
Ekki er loku fyrir það skotið
að Dalalæða og Steinunn muni út-
víkka þetta verkefni enn frekar og
það verði flutt á áhugaverðum
stöðum í nágrenni Reykjavíkur,
stöðum sem myndu henta vel undir
rétta stemningu, og er Albert þeim
innan handar um þá hljóðhönnun.
Heimsfaraldurinn mun þá stýra
þeim málum líka. Ný plata eður
verkefni er þá einnig í burðar-
liðnum og yrði það gefið út fyrir
jólin 2021. Það er hið nýstofnaða
VAX sem gefur út og er þetta
fyrsta útgáfa þess. Vínillinn kemur
bara út í 150 eintökum en þar er
m.a. að finna forláta upplýsinga-
blað hvar þema hvers lags er lýst
af nákvæmni. Hannes er einn af
stofnendum VAX og segir hann í
samtali við albumm.is að VAX eigi
að vera „regnhlíf utan um hljóm-
sveitir og verkefni tengd þeim sem
standa að félaginu. Megintilgang-
urinn er að skapa umgjörð utan um
verkefnin, bæði hvað varðar tón-
listarútgáfu en einnig til þess að
standa að öflugu kynningar- og
markaðsstarfi á Íslandi og erlend-
is.“ Stefnt er að nokkuð blómlegri
útgáfu á þessu ári, 2021.
Dysjar er að sönnu einstakt
verkefni. Það er ekki oft sem unnið
er beint með texta og í raun hrein
fræði úr háskólamenningu lands-
ins. Hér er í raun verið að byggja
brú. Háskólafólk á nú færi á að sjá
að hægt er að matreiða þá vinnu
sem þar fer fram með smekklegum
hætti ofan í almenning. Að sama
skapi fá unnendur jaðarbundins
spunadjass og tilraunatónlistar
óvænta innsýn í hörmungarhliðar
Íslandssögunnar. Vakna hressilega
til vitundar um ósanngirni og rang-
indi sem þar þrifust af krafti – allt
saman við hrynbundinn og þéttan
undirleik Dalalæðu! Tvær flugur
slegnar í einu kraftmiklu og glæsi-
legu höggi.
Ómur hinna fordæmdu
»Dysjar er að sönnueinstakt verkefni. Það
er ekki oft sem unnið er
beint með texta og í raun
hrein fræði úr háskóla-
menningu landsins.
Dularfullir Hljómsveitin
Dalalæða stillir sér upp,
mögulega við gamla dys.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
Vefsíðan Meta-
critic hefur nú
tekið saman lista
hinna ýmsu
gagnrýnenda og
miðla yfir bestu
hljómplötur árs-
ins og er plata
Fionu Apple,
Fetch the Bolt
Cutters, í efsta
sæti. Alls voru 173 listar teknir
saman og stig gefin eftir því í hvaða
sæti plötur voru settar. Hlaut plata
Apple 157,5 stig í heildina en platan
í öðru sæti, Punisher með Phoebe
Bridgers, 104 stig. Meðaleinkunn
Metacritic er líka hæst fyrir plötu
Apple, eða 98 af 100 mögulegum
stigum.
Í þriðja sæti á gagnrýnendalist-
anum er Folklore, plata Taylor
Swift, og í því fjórða RTJ4 með Run
the Jewels. Future Nostalgia með
Dua Lipa kemur þar á eftir og svo
Untitled (Black Is) með Sault í 6.
sæti. Bob gamli Dylan er í sjöunda
sæti með Rough and Rowdy Ways.
Plata Apple á toppi
gagnrýnendalista
Fiona Apple
Vegna sívaxandi fjölgunar Covid-
smita í Kaliforníu hafa heilbrigðis-
yfirvöld í Los Angeles hvatt fram-
leiðendur afþreyingarefnis í Holly-
wood til að íhuga alvarlega að
stöðva framleiðslu á tónlistar-,
kvikmynda- og sjónvarpsefni í
nokkrar vikur, að því er fram kem-
ur á Variety-vefmiðlinum.
Bent er á að þótt leyft sé að halda
áfram að kvikmynda og hljóðrita
séu þeir sem stjórna framleiðslunni
beðnir að íhuga alvarlega að gera á
henni hlé vegna skelfilegs ástands
mála hvað fjölg-
un smita í borg-
inni varðar, og
reyna að minnsta
kosti að leggja
áherslu á þá
þætti vinnunnar
þar sem mögu-
leikar á smiti séu
minnstir. Fyrir
viku varð Kali-
fornía fyrst ríkja vestanhafs þar
sem yfir tvær milljónir manna hafa
smitast.
Framleiðendur hvattir til að gera hlé
Í Hollywood.
Kvikmyndarýnir The Guardian, Cath-
erine Shoard, veltir því fyrir sér, í
grein um það sem fram undan er á
menningarárinu 2021, hvort söng-
leikjamyndir komi til með að bjarga
bíóhúsunum og lyfta fólki upp úr lægð
ársins 2020. Bendir hún á vinsældir
slíkra mynda í kreppunni miklu þegar
fólk þurfti að flýja dapurlegan veru-
leikann. Árið 2020 hafi kvikmyndahús
lokað dyrum sínum og nær öllum
frumsýningum verið frestað nema á
einni mynd, söngleikjamyndinni Ha-
milton, sem var flýtt um heila 17 mán-
uði. Hana átti að frumsýna í október
2021 en myndin var þess í stað frum-
sýnd í júlí í fyrra á Disney+. Var hún
ein vinsælasta kvikmynd ársins í
streymisveitum og á árinu 2021 verða
söngleikjamyndir áberandi. Má nefna
Öskubusku, Everybody’s Talking Abo-
ut Jamie, Wicked, West Side Story, In
the Heights og rokkóperuna Annette.
Kvikmyndasagnfræðingurinn Neil
Brand bendir á að á tímum kreppu
þurfi fólk léttmeti á borð við söngleiki
og þá háværa, fjölmenna og jákvæða
en ekki dapurlega.
Bjarga söngleikir kvikmyndahúsum?
Smellur Hamilton sló í gegn árið 2020.