Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 5. J A N Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 12. tölublað 109. árgangur
REYNSLAN
NÝTIST TIL AÐ
HJÁLPA ÖÐRUM
ROSALEGA
LANGT
FERÐALAG
SPÁÐ Í SPILIN
FYRIR KOMANDI
ÞINGKOSNINGAR
GEIM-MÉR-EI 36 FRAMBOÐ FLOKKANNA 16SKÓLAR 24 SÍÐUR
Of lítið samráð er haft við marga
hagsmunaaðila innan lífeyriskerf-
isins þegar veigamiklar ákvarðanir
eru teknar. Þetta er mat Ólafs Páls
Gunnarssonar, framkvæmdastjóra
Íslenska lífeyrissjóðsins. Bendir
hann á að stefnumarkandi ákvarð-
anir um kerfið séu gjarnan teknar
við samningaborðið milli Samtaka
atvinnulífsins og Alþýðusambands
Íslands. Sá hópur hafi þó ekki að-
komu að nema 7 lífeyrissjóðum af
þeim 21 sem starfandi er í landinu.
Þeir sjóðir hafi með höndum innan
við helming þeirra verðmæta sem
kerfið byggir grundvöll sinn á.
Í samtali við Morgunblaðið bend-
ir Ólafur Páll á mikilvægi þess að
fleiri sjónarmið f́ái að komast að.
„Það þarf að hleypa fleirum að
borðinu, bæði sjóðum opinberra
starfsmanna og öðrum hags-
munaaðilum. Það
er eina leiðin til
þess að ná víð-
tækri sátt um
kerfið.“
Segir hann
einnig gagn-
rýnivert að ráð-
ast eigi í veiga-
miklar
breytingar á líf-
eyriskerfinu áður
en endurskoðun á því eigi sér stað.
„Það á að ráðast í þessar breyt-
ingar og í kjölfarið er ráðist í gerð
grænbókar um kerfið. Þarna er farið
í hlutina í öfugri röð miðað við það
sem eðlilegt mætti teljast. Það birt-
ist enda í umsögnum um frumvarpið
þegar það var lagt fram til kynn-
ingar í lok árs 2019. Þar er mjög
kvartað undan samráðsleysi.“ »12
Minnihluti með
mestu áhrifin
Segir lítið samráð um lífeyriskerfið
Ólafur Páll
Gunnarsson
Illa gekk að eiga við Portúgala í fyrsta leiknum á
HM í handknattleik í Egyptalandi í gær. Portú-
gal vann Ísland 25:23 og íslenska liðið fær því
enga óskabyrjun í mótinu. Ísland mætir Alsír á
morgun og Marokkó á mánudaginn í F-riðli
keppninnar. Tvö efstu liðin munu komast áfram
í milliriðil og íslenska liðið þarf því að vinna
næstu tvo leiki. Á myndinni er skyttan snögga,
Andre Gomes, kominn í gegnum íslensku vörn-
ina. Arnór Þór Gunnarsson fyrirliði, Ómar Ingi
Magnússon (14) og Elliði Snær Viðarsson ná ekki
að koma í veg fyrir það. »35
AFP
Engin óskabyrjun á HM í Egyptalandi
Guðni Einarsson
Freyr Bjarnason
„Ég fordæmi allt ofbeldi. Það er ljóst
að aðstæðurnar í Borgarholtsskóla
voru grafalvarlegar,“ sagði Lilja Al-
freðsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, um atvikið sem varð í
skólanum í fyrradag. Hún kveðst
telja að Borgarholtsskóli, jafnt kenn-
arar og nemendur, hafi brugðist hár-
rétt við.
Lilja mun funda með skólameist-
urum í dag. Þar verða öryggismál
rædd sérstaklega og farið yfir það
sem gerðist í Borgarholtsskóla. „Ég
legg áherslu á að við búum í frjálsu
og mjög góðu samfélagi og við viljum
halda í þá samfélagsgerð,“ sagði
Lilja. „Við leggjum höfuðáherslu á
að umhverfi skólasamfélagsins sé
öruggt og viljum tryggja öryggi
allra,“ sagði Lilja við Morgunblaðið.
Gerð áætlunar um viðbrögð við
mögulegri vá í framhaldsskólum er
langt komin hjá Skólameistarafélagi
Íslands (SMÍ). „SMÍ hafði frum-
kvæði að gerð viðbragðsáætlunar
vegna vár eða hættu í framhalds-
skólum,“ sagði Kristinn Þorsteins-
son, formaður SMÍ. Reiknað er með
að gerð áætlunarinnar ljúki á þessu
skólaári.
Kristinn telur að náttúruhamfarir
eins og jarðskjálftar hafi einkum
knúið á um gerð áætlunarinnar.
„Þarna eru samt sérkaflar um skot-
árásir, hryðjuverkaárásir og annað
slíkt,“ segir Kristinn. „Það hefur
vissulega áður komið til einhverra
átaka í íslenskum skólum, þótt þetta
atvik í Borgarholtsskóla sé með því
versta sem ég man eftir.“
Piltur var í gær úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 21. janúar í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. Það var gert
að ósk lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu á grundvelli rannsóknar-
hagsmuna vegna líkamsárásar í
Borgarholtsskóla í fyrradag.
Aðstæður í Borgarholts-
skóla voru grafalvarlegar
Menntamálaráðherra ræðir öryggismál við skólameistara
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borgarholtsskóli Árásin sem þar
var gerð skaut fólki skelk í bringu.
MÖryggismál í skólum »6
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir ferðamálaráðherra segir ólík-
legt að spár um 900 þúsund erlenda
ferðamenn í ár
muni rætast.
Ríkisstjórnin sé
meðvituð um
erfiðleika í ferða-
þjónustunni og
opin fyrir því að
skapa hvata fyrir
Íslendinga til að
ferðast innan-
lands í sumar.
Fram kemur í
Morgunblaðinu í dag að 193 þúsund
manns hafi notað ferðagjöf fyrir 743
milljónir króna.
Takmarkanir reyndust meiri
„Við breyttum lögunum fyrir jól
til þess að framlengja gildistímann.
Þegar við smíðuðum lögin gerðum
við ekki ráð fyrir að vera með svona
miklar takmarkanir í lok árs. Þannig
að það var eðlilegt að lengja gildis-
tímann til að fólk sem hefði ekki nýtt
gjöfina hefði tækifæri til að nýta
hana fram á vorið,“ segir Þórdís.
Mörg veitingahús eiga í miklum
rekstrarvanda. Þórdís Kolbrún segir
til mikils að vinna að stjórnkerfið
hrindi tillögum OECD um úrbætur í
framkvæmd varðandi íþyngjandi
regluverk og skatta. »12
Frekari
ívilnanir
í skoðun
Ráðherra boðar
skoðun á regluverki
Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir