Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 2

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Hafnarfjarðarbær og Icelandair undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu félags- ins í bænum. Fyrirhugað er að Ice- landair færi höfuðstöðvar sínar að Flugvöllum 1 í Hafnarfirði, en fé- lagið er nú með hluta starfsemi sinnar þar. Ráðgert er að starfsemi Icelandair flytjist því úr Reykjavík til Hafnarfjarðar í síðasta lagi í lok árs 2023. Á næstu tveimur árum er ráðgert að Icelandair ráðist í vist- væna uppbyggingu á svæðinu. „Það að eitt stærsta fyrirtæki landsins ákveði nú að byggja höf- uðstöðvar sínar í bænum eru frá- bærar fréttir fyrir Hafnfirðinga og Hafnarfjörð,“ segir Rósa Guð- bjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnar- fjarðar, í fréttatilkynningu. „Hönn- un og skipulag nýrra höfuðstöðva mun taka mið af þörfum starfsemi félagsins nú og til framtíðar og mun reynsla okkar af sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi undanfarna mánuði án efa nýtast okkur vel í þeirri vinnu sem starfsfólk alls staðar að úr fyrirtækinu mun taka þátt í,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Viljayfir- lýsing undirrituð Morgunblaðið/Eggert Icelandair flytur höfuðstöðvar flugfélagsins frá Reykjavík í Hafnarfjörð Sigurgeir Sigmundsson, yfirlög- regluþjónn hjá flugstöðvardeild lög- reglustjórans á Suðurnesjum, segir það óviðunandi að tillögur sóttvarna- læknis um aðgerðir á landamær- unum hafi ekki náð fram að ganga. Á upplýsingafundi almannavarna og Embættis landlæknis í gær kallaði hann eftir því að lög yrðu sett í bráð sem veittu sóttvarnalækni heimild til að grípa til þeirra aðgerða sem hann teldi þarfar. Vísaði Sigurgeir til tillagna sem Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði fram um hertar aðgerðir á landamærum Íslands. Þær tillögur kváðu á um að komufarþegar hér á landi gætu valið um að fara í skimun við kórónuveirunni við komuna til landsins, ellegar fara í 14 daga sóttkví í farsóttarhúsi. Fyrir þessu taldi heilbrigð- isráðuneytið ekki liggja lagalegan grundvöll. Þór- ólfur þurfti því til þrautavara að leggja til að reglum yrði breytt á þann veg að komufarþegar þyrftu að sýna fram á neikvætt kórónuveirupróf við komu til landsins. Þetta yrði gert til að þétta enn frekar þær varnir sem fyrir eru á landamærum, en sífellt fleiri smit greinast þar nú dag hvern, sem ógn- að geta góðum árangri innanlands. Tvö virk smit greindust á landa- mærum Íslands í fyrradag, sem er mun minna en síðustu daga. Fjögur smit greindust innanlands. „Áfram gakk!“ Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í samtali við mbl.is í gær að ástæða væri til að hrósa landsmönnum fyrir að hafa staðið sig vel um síðastliðin jól og áramót þegar kemur að sóttvörnum. „Það er ekki hægt að túlka þetta öðruvísi en að fólk hafi passað sig og farið eftir settum reglum jafnvel þótt fólk hafi verið mikið á ferðinni. Margir voru smeykir við að eitthvað gæti gerst en svo varð ekki og ég vona að nú þegar verið er að rýmka reglur haldi fólk áfram að passa sig og fari ekki að túlka þessar tilslak- anir sem tækifæri til þess að halda partí.“ Óviðunandi að lagaheimild skorti  Yfirlögregluþjónn vill að heimildir sóttvarnalæknis verði rýmkaðar  Ekki lagaleg stoð fyrir fyrri tillögum Þórólfs  Jól og áramót gengu vel og landsmenn eigi hrós skilið  Fjögur smit í fyrradag Innanlandssmit: 66 ný smit greindust sl. 14 daga Nýgengi er: 18,0 Fjöldi í sóttkví: 228 Smit á landamærum: 120 virk smit greindust sl. 14 daga Nýgengi er: 28,1 Fjöldi í skimunarsóttkví: 1.853 169 eru með virkt smit og í einangrun Fjöldi smita frá 30.6. 2020 Heimild: covid.is júlí ágúst september október nóvember desember jan. Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum Sigurgeir Sigmundsson Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - meira fyrir áskrifendur - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins. MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Guðmundur Felix Grétarsson raf- virki, sem missti báða handleggi eftir slys árið 1998, liggur nú á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Lyon í Frakklandi eftir að hafa í fyrradag gengist undir ígræðslu tveggja handleggja. Aðgerð- in er söguleg en aldrei áður hafa handleggir verið græddir á mann að öxlum meðtöldum. Aðgerðin tók fjór- tán tíma og var gríðarlega flókin, en sitt hvort teymi lækna sá annars veg- ar um ígræðsluna sjálfa og að fjar- lægja handleggi af gjafanum hins veg- ar. Ástand Guðmundar er sagt stöðugt að því er fram kemur í frönsk- um miðlum og munu læknar nú skoða hvernig líkami hans bregst við ígræðslunni. Guðmundur settist að í Lyon árið 2013 þegar ljóst varð að þar gæti hann mögulega fengið grædda á sig nýja handleggi. Hann hafði áður kom- ið sér í samband við franska lækninn Jean-Michel Dubernard, sem fyrstur græddi handleggi á mann árið 1998. Guðmundur hefur beðið í mörg ár eftir að komast í aðgerð og má í því sambandi rifja upp orð Diljár Natalíu, dóttur Guðmundar, sem sagði í viðtali við Morgunblaðið í nóvember árið 2013: „Ef hann fer í aðgerðina núna í desember getur vel verið að við höld- um jólin bara á spítalanum. Kannski verður pabbi kominn með hendur um jólin og það yrði sko heimsins besta jólagjöf.“ Diljá var þriggja mánaða ár- ið 1998 þegar Guðmundur lenti í slys- inu. Guðmundur fær nýja hand- leggi eftir sögulega aðgerð  Áralöng biða á enda  Aðgerðin sú fyrsta sinnar tegundar Morgunblaðið/Golli Sögulegt Áralöng bið er á enda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.