Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 6

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 6
Öryggismál í skólum6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Guðni Einarsson Freyr Bjarnason Gerð áætlunar um viðbrögð við mögu- legri vá í framhaldsskólum er langt komin hjá Skólameistarafélagi Ís- lands (SMÍ). „SMÍ hafði frumkvæði að gerð við- bragðsáætlunar vegna vár eða hættu í framhaldsskólum, meðal annars vegna hryðjuverka, skotárása og jarð- skjálfta,“ segir Kristinn Þorsteinsson, formaður SMÍ. Hann segir að við- bragðsáætlunin sé nú til yfirlestrar hjá ríkislögreglustjóra, verði svo send mennta- og menningarmálaráðuneyt- inu til undirritunar og fari þaðan til skólanna. Reiknað er með að gerð hennar ljúki á þessu skólaári. Kristinn segir að undirbúnings- vinna hafi staðið síðasta ár undir for- ystu Láru Stefánsdóttur, skólameist- ara Menntaskólans á Tröllaskaga, í samvinnu við ýmsa aðila. Hann telur að náttúruhamfarir eins og jarð- skjálftar hafi einkum knúið á um gerð áætlunarinnar. Árásir erlendis höfðu áhrif „Þarna eru samt sérkaflar um skot- árásir, hryðjuverkaárásir og annað slíkt,“ segir Kristinn og bætir við að fregnir af ofbeldisverkum í skólum er- lendis hafi haft sín áhrif hér eins og annars staðar. „Við lifum í þessu samfélagi og það sem gerist erlendis getur gerst hér. Það hefur vissulega áður komið til einhverra átaka í íslenskum skólum, þótt þetta atvik í Borgarholtsskóla sé með því versta sem ég man eftir,“ segir Kristinn. Hann segir að við- bragðsáætlun komi ekki í veg fyrir atburði eins og urðu í Borgarholts- skóla. Þeir verði fyrirvaralaust og ekkert í íslensku skólakerfi, eins og það er í dag, geti komið í veg fyrir svona atburði. Þar er ekki öryggis- gæsla og skólarnir eru opnir eins og flestar stofnanir. Kristinn bendir á að í faraldrinum hafi þurft að opna allar dyr skólanna til að lofti betur um þá. Eins er sum- um skólum skipt upp í sóttvarnahólf og þá þarf að nota innganga sem alla jafna eru ekki notaðir. Skólahúsin eru því opnari en venjulega. Ekki hefur verið rætt sérstaklega um þörf á öryggisvörðum í framhalds- skólum, að sögn Kristins. „En svona viðbragðsáætlun gerir ekki gagn nema starfsmenn skólanna viti til hvaða ráðstafana á að grípa komi eitt- hvað upp á. Skólar hafa haft bruna- æfingar og annað slíkt og svo þarf að vinna frekar eftir áætluninni þegar hún tekur gildi,“ sagði Kristinn. „Það fyrsta sem við gerum í öllum tilfellum þegar um ofbeldi er að ræða er að kalla til lögreglu. Þegar hún kemur þá tekur hún stjórn á vettvangi og okkur ber að hlýða lögreglunni í slík- um tilfellum.“ Hann segir að sam- starf skólanna við lögreglu sé al- mennt gott. Kristinn kveðst vona að atvikið í Borgarholtsskóla hafi verið einstakt tilfelli. Engu að síður hafi það gefið tilefni til að fara yfir öryggismálin og skoða stöðuna. „Á sama tíma má ekki alhæfa um að við lifum í breyttu sam- félagi. Ég ætla að vona ekki,“ sagði Kristinn. „Þetta vakti mikinn óhug og mínir nemendur eru mjög slegnir yfir þessu. Svona kemur á samfélags- miðlum um leið og hér eru allir með undir höndum upptökur frá atvikinu í Borgarholtsskóla.“ Lögðu líf sitt í hættu Skólastarf hófst á ný í Borgar- holtsskóla í gær. Ársæll Guðmunds- son skólameistari sagði að starfsfólk skólans hefði gengið örugglega til verks þegar átökin brutust út. Eng- inn kennari meiddist. „Ég held að þeir hafi bjargað gríð- arlega miklu. Þeir lögðu líf sitt í hættu og komu þessum ofbeldis- seggjum og slagsmálum út úr húsi þar sem þeir héldu áfram. Að mínu viti gerðu þeir algjörlega kraftaverk til að verja hér nemendur skólans og skólann sinn. Það eru marblettir víða en það eru allir mættir í vinnu, en all- ir í spennufalli,“ sagði Ársæll. Hann taldi það mildi að þessi hópur kenn- ara og starfsfólks hefði verið nálægt þar sem átökin brutust út. Þau hefðu gripið hratt inn í atburðarásina. Ársæll sagði að atburðirnir hefðu verið ræddir hispurslaust í skólanum og að bæði nemendur og starfsfólk hefðu getað leitað til teymis sérfræð- inga í áfallahjálp sem var í skólanum í gær. Einungis aðalinngangur skólans var opinn í gær en á skólanum eru 19 inngangar. Viðbragðsáætlun gegn vá í skólum  Gerð viðbragðsáætlunar fyrir framhaldsskóla langt komin  Atvikið í Borgarholtsskóla vakti mik- inn óhug  Starfsmenn skólans lögðu líf sitt í hættu við að koma ofbeldismönnunum út úr skólanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarholtsskóli Lögreglan var kölluð til þegar utanaðkomandi menn réðust inn í skólann vopnaðir hnífum og bareflum. Talið er að árásin hafi ekki beinst gegn skólanum heldur verið um uppgjör á milli einstaklinga að ræða. Móðir nemanda í Borgarholtsskóla segir að árásin sem var gerð þar á miðvikudag hafi beinst að syni sín- um. Hún segir að fyrir nokkrum mánuðum hafi hann komið í veg fyrir að annar nemandi gengi í skrokk á stúlku. Það hafi svo leitt til þess að syni hennar var hótað of- beldi og degi fyrir árásina á mið- vikudag frétti hann að einhverjir ætluðu sér að ráðast gegn honum með hnífi og stinga hann, eins og hún segir í færslu á Facebook. Móðirin, Inda Björk Eyrbekk Al- exandersdóttir, sagði í samtali við mbl.is í gær að báðir synir hennar hefðu fengið skurði á höfuð eftir árásina í fyrradag, en sex voru fluttir á slysadeild. Yngri sonur hennar var illa laminn að hennar sögn, bæði með skralli og ítrekað með hafnaboltakylfu. Inda árétti við blaðamann að árásin tengdist ekki fíkniefnum enda hefði sonur hennar aldrei komið nálægt slíku. Hún segir best að trúa ekki öllu sem sagt sé á samfélagsmiðlum og í athugasemdakerfum. Segir árásina ekki tengda fíkniefnum „Ég fordæmi allt ofbeldi. Það er ljóst að aðstæðurnar í Borgarholtsskóla voru grafalvarlegar,“ sagði Lilja Al- freðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Hún hafði strax samband við Ársæl Guðmundsson skóla- meistara þegar hún frétti af því sem gerðist og fékk góð- ar upplýsingar um atburðarásina. „Ég bauð alla þá að- stoð sem við gátum veitt og fylgdist svo grannt með þróun mála yfir allan daginn í gegnum skólastjórn- endur,“ sagði Lilja. Hún kvaðst telja að Borgarholtsskóli, jafnt kennarar og nemendur, hefðu brugðist hárrétt við. „Ég vil koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrir viðbrögð þeirra og eftirfylgni. Eins vil ég þakka lögreglunni fyrir hennar hlut,“ sagði Lilja. Hún sagði að skólastjórnendur hefðu lagt ríka áherslu á að skólinn yrði opinn í gær. Fulltrúar skólans tóku þátt í Gettu betur í fyrrakvöld. „Skólastjórnendur héldu mjög þétt utan um nem- endurna. Ég fann það strax og var ánægð með það,“ sagði Lilja. Hún mun funda með skólameisturum á reglubundnum fundi sem hald- inn verður í dag. Þar verða öryggismál rædd sérstaklega og farið yfir það sem gerðist í Borgarholtsskóla. „Ég legg áherslu á að við búum í frjálsu og mjög góðu samfélagi og við viljum halda í þá samfélagsgerð,“ sagði Lilja. „Við leggjum höfuðáherslu á að umhverfi skólasamfélagsins sé öruggt og viljum tryggja öryggi allra.“ Hún sagði að ofbeldi eins og í Borgarholts- skóla í fyrradag hefði ekki áður sést í framhaldsskóla í hennar tíð sem mennta- og menningarmálaráðherra. „Ég fordæmi allt ofbeldi“ LILJA ALFREÐSDÓTTIR MENNTAMÁLARÁÐHERRA Lilja Alfreðsdóttir Piltur var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. janúar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það var gert á grundvelli rannsókn- arhagsmuna vegna líkams- árásar í Borgarholtsskóla í fyrradag. Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu óskaði eftir gæsluvarðahaldinu. Þrír voru í haldi lögreglunnar í gær eftir árásina og voru tekn- ar skýrslur og reynt að afla frekari upplýsinga um það sem gerðist og allir þættir málsins skoðaðir. Enginn af þeim sem voru fluttir á slysadeild eftir árásina slasaðist lífshættulega og var búið að útskrifa alla af sjúkra- húsi í gær, að sögn Margeirs Sveinssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns. Hann kvaðst ekki vita nánar um meiðslin sem fólkið varð fyrir. freyr@mbl.is Einn í gæslu- varðhaldi LÖGREGLURANNSÓKN Kristinn Þorsteinsson Ársæll Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.