Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 ✝ Helgi StefnirKjærnested fæddist í Reykjavík 12. nóvember 1954. Hann andaðist 29. desember 2021. Foreldrar hans voru Guðmundur Kjærnested skip- herra, f. 29. júní 1923, d. 2. sept. 2005, og Margrét A. Símonardóttir Kjærnested húsmóðir, f. 3. sept. 1923, d. 18. sept. 2016. Helgi var þriðji í röð fjögurra barna þeirra hjóna en systkini hans eru: Símon, f. 1945, Örn, f. 1948 og Margrét f. 1960. Helgi kvæntist 1975 Höllu El- ínu Baldursdóttur, f. 1955. Son- ur þeirra er Baldur Már Helga- son verkfræðingur, f. 1976, kvæntur Svanhildi Sigurð- ardóttur stjórnmálafræðingi, f. 1976. Þau eiga þrjú börn, Höllu Margréti, Kára Björn og Jón Karl. Helgi og Halla skildu. Helgi kvæntist 1989 Soffíu Lár- usdóttur, f. 1960. Dóttir þeirra er Margrét Rán Kjærnested lögfræðingur, f. 1986, gift dr. Jan Prikryl, f. 1987. Þau eiga tvö börn, Kristian Mími og Jöklu Margréti. Helgi og Soffía háseti á Herjólfi og hjá Land- helgisgæslunni. Hann starfaði sem smiður fyrir Álftarós, Nils P. Lund í Malmö í Svíþjóð og við leikmyndagerð hjá Frost film. Eftir að Helgi flutti til Eg- ilsstaða 1986 starfaði hann sem sölustjóri hjá Brúnás innrétt- ingum, skrifstofustjóri á Heil- brigðisstofnun Austurlands og um 12 ára skeið sem útibús- stjóri hjá Sjóvá á Austurlandi. Samhliða starfaði hann sem sjúkraflutningamaður. Helgi var um nokkurra ára skeið for- maður barnaverndarnefndar Egilsstaða. Síðustu árin starfaði hann á Fasteignasölu Mosfells- bæjar. Helgi var mikill útivist- armaður. Hann var um tíma formaður Ferðafélags Fljóts- dalshéraðs og formaður björg- unarsveitarinnar Gró. Útför Helga verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, 15. jan- úar 2021, og hefst athöfnin kl. 15. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu að- standendur viðstaddir en at- höfninni verður streymt á https://www.sonik.is/helgi Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat skildu. Helgi bjó um tíma með Mar- gréti Birgisdóttur, f. 1954. Dætur Mar- grétar eru Lilja Jónsdóttir ljós- myndari, f. 1978, og Berglind Jónd- óttir markaðsstjóri, f. 1989. Berglind er í sambúð með Hall- dóri Arnarssyni sálfræðingi, f. 1989 og eiga þau eina dóttur, Ölmu Huld. Á síðustu árum bjó Helgi á Lindarflöt í Garðabæ ásamt hundinum sínum Stormi. Helgi ólst upp á Þorfinnsgötu í Reykjavík en var í sveit í nokkur sumur á Höll í Þver- árhlíð. Hann æfði ýmsar íþrótt- ir með Val á yngri árum, m.a. knattspyrnu og körfubolta, og var í körfuboltaliði félagsins sem varð Íslandsmeistari í ung- lingaflokki. Helgi útskrifaðist sem húsasmiður frá Iðnskól- anum 1977 og húsasmíðameist- ari 1981. Síðar aflaði Helgi sér margvíslegra réttinda, í trygg- ingaskólanum, sem sjúkraflutn- ingamaður og löggiltur fast- eignasali. Helgi stundaði ýmis störf samhliða námi, m.a. sem sendill hjá Eimskipafélaginu og Pabbi, elsku pabbi. Þá er næsta ferðalag þitt haf- ið, á Suðurskautið, eins og þú kaust að kalla það. Kveðjustundin hafði langan aðdraganda, þú hafðir mikinn lífsvilja og að berjast við mótlæti var einn af þínum styrkleikum. Að alast upp með foreldri sem var að takast á við krefjandi sjúkdóm markaði mína æsku. Þú sinntir samt föðurhlutverkinu af mikilli alúð þegar þér leið vel, en í baksýnisspeglinum sé ég að sjúkdómurinn var að trufla þig oftar en við áttuðum okkur á. Við það að taka saman minning- arorðin geri ég mér grein fyrir hversu góð fyrirmynd þú varst á mörgum sviðum og fyllist ég gleði yfir hversu mörg áhugamál þín eru nú mín; útivist og ferða- mennska. Þú varst duglegur að draga mig upp í fjall á skíði og varst ávallt reiðubúinn að keyra mig á skíðamót á unglingsárun- um. Í raun eru skíðaferðalögin mínar uppáhaldsminningar úr æsku, annars vegar Andrésar Andarleikarnir og síðar þegar við fórum á mót í nýtt bæjar- félag um nánast hverja helgi, keyptum okkur ís og skoðuðum bæinn. Fyrir sjö árum hófst nýr kafli í okkar lífi, kaflinn þar sem við hófum bæði okkar bataferli. Svo margar andstæður toguðust á í okkar lífi, draumasiglingin sem varð að erfiðustu viku lífs míns. Þar gerði ég mér grein fyrir að þú varst einungis að berjast á móti öðrum sjúkdómnum sem hrjáði þig. Mánuðirnir sem á eft- ir komu ristu djúpt en þú bjóst yfir mikilli seiglu og tókst ákvörðun um að taka alkóhól- ismann jafn hörðum tökum og krabbameinið. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þeim bataferli þín- um. Að kynnast afa Helga, þegar Kristian Mímir og Jökla Mar- grét fæddust, var skemmtilegur kafli. Þú hafðir mikið lag á börn- um og þið Kristian náðuð að byggja upp einstakt samband, þar sem þið fóruð saman til Æv- ars í „slipptöku“ eins og þú kall- aðir klippingu og í KKKK, þar sem afi og Kristian fóru á Kaffi- vagning og fengu sér Kleinu og Kakó - „kaffihúsið okkar afa“ eins og Krisitian segir. Ég mun halda minningu þinni á lofti með þeim. Ég er þakklát fyrir styrkleika þína og veikleika, fyrir allan tím- ann sem við eyddum saman í skíðabrekkunum, tónleikana sem við nutum saman og allar sam- verustundirnar á Hóli og undir lokin á Lindarflöt. Það eru for- réttindi að fá að kveðja pabba sinn vel og ég er þakklát fyrir að við gátum gert það almennilega, grátið saman og kvatt í sátt. Það var í raun ómetanlegt að þú skyldir búa þannig um hnútana að gera þínum nánustu kleift að annast um þig heima alveg þar til næsta ferðalag hófst. Það var dýrmætt fyrir okkur fjölskyld- una. Skapaði ný tengsl og styrkti gömul. Takk fyrir lífið pabbi og gangi þér vel á Suðurskautinu. Þín Margrét Rán. Helgi okkar kvaddi þann 29. desember eftir hetjulegustu bar- áttu sem ég gæti trúað að háð hafi verið við grimman sjúkdóm sem of mörg okkar þekkja. Sjúk- dómurinn kom í misstórum skömmtum yfir u.þ.b. 12 ára tímabil en alltaf var Helgi ákveð- inn í að sigra hann með jákvætt hugarfar og lífsvilja að vopni. Síðustu ár varð róðurinn þyngri á köflum en lífsvilji Helga og kraftur efldist við það og hann nýtti góðu stundirnar í allt sem hann langaði að gera, hvort sem það voru ferðalög, menningar- viðburðir, veitingahúsaferðir, kynni við nýtt fólk eða gæða- stundir með fjölskyldu og vinum. Þeir sem þekkja okkur Hall- dór vel þekkja Helga líka. Þann- ig var Helgi, hann sýndi öllum sem hann kynntist svo einlægan áhuga. Hann kom inn í líf mitt þegar ég var 17 ára og ætlaðist aldrei til að fá neitt sérstakt pláss eða setja sig í neitt ákveðið hlutverk. Ég fékk að ráða ferð- inni, unglingur sem var að venj- ast lífinu eftir skilnað foreldra sinna. Helgi gaf mér algjört svigrúm til að finna hvar ég vildi hafa hann í mínu lífi og það var líklega dýrmætasta stoðin í okk- ar sambandi. Svo var það Storm- ur okkar, sem við fengum á heimilið fyrir 11 árum sem styrkti sambandið enn frekar. Þrátt fyrir að leiðir skildi hjá mömmu og Helga var hann orð- inn órjúfanlegur partur af mínu lífi og gerði mér það ljóst í orð- um og hegðun að ég væri að sama skapi órjúfanlegur partur af hans lífi. Við litla fjölskyldan áttum alltaf samastað hjá Helga og bjuggum hjá honum þegar við heimsóttum Ísland á Hol- landsárunum okkar og eins fyrstu vikurnar eftir að við flutt- um heim. Sambúð okkar gekk auðveldlega fyrir sig og varð uppsprettan að nánu trúnaðar- sambandi. Helgi upplifði margt á lífsleiðinni og samtöl um lífið og tilveruna entust oft langt fram á kvöld og þær stundir erum við svo þakklát fyrir. Það var hægt að tala um allt án nokkurs vandræðaleika og kærleikurinn alltaf svo mikill. Helgi þakkaði mér nokkrum sinnum fyrir að samband okkar hefði gengið svo vandræðalaust fyrir sig en mér fannst líka full ástæða til að þakka fyrir mig. Það sem ég fékk var aukafor- eldri sem elskaði mig skilyrð- islaust, vildi styðja mig í einu og öllu og bauð mér inn í fjölskyldu sína. Það er ekki sjálfsagt og lík- lega utan hins hefðbundna mynsturs að manneskja sem er nánast komin á fullorðinsaldur sé tekin inn í fjölskyldu stjúpfor- eldris með eins miklum kærleik og börn og fjölskylda Helga tóku mér og hvað þá eftir að upp- haflega tengingin slitnaði. Í dag þekki ég suma fjölskyldumeðlimi Helga betur en ýmsa sem eru mér blóðskyldir og ég veit að samböndin sem hafa myndast munu endast út lífið þótt Helgi sé ekki lengur með okkur. Í lok nýliðins árs gætti Helgi þess að samverustundirnar yrðu enn fleiri enda sjúkdómurinn farinn að toga hann fastar til sín. Fyrir þessar síðustu samveru- stundir, hreinskilnu samtölin, hláturinn, tárin og minningarnar verð ég ævinlega þakklát. Helgi var stjúppabbi minn og afi Ölmu dóttur minnar en fyrst og fremst náinn vinur sem var partur af okkar fjölskyldu. Minning hans mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Berglind Jónsdóttir. Tengdafaðir minn, Helgi Stefnir Kjærnested, er fallinn frá, aðeins 66 ára gamall. Það var mín gæfa að kynnast einka- syni hans fyrir 20 árum og ég fékk Helga í kaupbæti, mann sem tók mér opnum örmum og við tók vinátta sem var mér dýr- mæt. Fyrir okkar stundir er ég þakklát. Helgi var rækinn á sitt fólk, heimsótti okkur reglulega þegar við bjuggum erlendis, hringdi og spjallaði og færði fréttir af okkar fólki heima á Íslandi. Fjölskyld- an skipti hann máli og það átti jafnt við um okkur eins og móð- ur hans, sem hann heimsótti nánast daglega á æskuheimilið að Þorfinnsgötu 8 meðan hún bjó þar. Þegar þriðja barnabarn- ið varð eins árs og pláss hjá dag- mæðrum var ekki á lausu hljóp Helgi í skarðið, hann sá það sem forréttindi að geta notið lífsins daglega með drengnum. Helgi var líka einstaklega ið- inn, hann elskaði að bardúsa á Hóli, bústaðnum sínum í Hest- vík, á meðan heilsan var góð. Hann fór jafnan með barnabörn- in með sér og leyfði þeim að leika frjálsum í kjarrinu, sá yngsti fékk að leggja sig undir berum himni vafinn inn í gamalt og þæft ullarteppi merkt Land- helgisgæslunni. Það var afar kómískt að taka til í bílskúrnum hans sl. haust. Tvö elstu barnabörnin fengu að vera með í verkefninu og kynnt- ust nýjum hliðum á afa sínum við það. Spurningar á borð við „afi, hvenær spilaðir þú á gít- ar?“, var afi í Landhelgisgæsl- unni?, hvenær keppti afi í Vasa- loppet? Það var ekki hans stíll að fara með hangandi hendi í verk- efni, hann tók þeim með festu í bland við þrjósku. Græjaði sig gjarnan vel upp í þeim áhuga- málum sem heilluðu hann, fór vel með dótið sitt og geymdi allt. Helgi glímdi við krabbamein um 13 ára skeið og meðan hann barðist við þann vágest kom glögglega í ljós hversu vinmarg- ur hann var og hversu vænt mörgum þótti um hann. Afar gestkvæmt var á Lindarflötinni eftir að sjúkdómurinn lagðist þyngra á Helga og fyrir hvert viðvik var uppskeran endalaust þakklæti og gleði. Síðasta vor áttum við Helgi góðan fund eftir að ljóst var að dagar hans væru takmarkaðir. Eftir erfitt samtal þar sem við grétum, hlógum, héldumst í hendur og horfðumst í augu við raunveruleikann ákváðum við að horfa á þetta verkefni með sér- stökum hætti. Við höfðum ný- lega hlustað á sögu Veru Illuga um kapphlaup þeirra Amund- sens og félaga á suðurskautið upp úr þar síðustu aldamótum og við bundumst fastmælum um að horfa á það sem svo að Helgi væri að fara á suðurskautið ei- lífa. Slík ferð þarfnaðist undir- búnings og skipulags, áður en lagt væri í hann. Helgi undirbjó sína ferð á suðurskautið vel. Hann skipulagði nokkur matar- boð á meðan heilsan leyfði, klár- aði framkvæmdir á húsinu og gekk frá öllum lausum endum ásamt óskum sínum um útförina. Við sem þekktum Helga erum fátækari eftir að hann kvaddi og lagði í sína hinstu för, en við get- um huggað okkur við að við vit- um að hann er laus við sjúkdóm- inn og nýtur sín á suðurskautinu. Svanhildur Sigurðardóttir. Elsku afi. Ég kem því ekki í orð hvað ég er þakklát fyrir þig. Þú varst þolinmóðasti maður sem ég hef nokkurn tímann kynnst og vildir öllum svo vel. Sást það góða í öllu og öllum. Útskýrðir allt sem ég skildi ekki fyrir mér á manna- máli. Allir bíltúrarnir sem fóru frá því að þú skutlaðir og sóttir mig út um allt í það að ég sótti og skutlaði þér. Þrátt fyrir að hafa vitað að þinn tími væri að koma vegna veikinda þinna er samt svo erfitt að kveðja, svo erfitt að sætta sig við það og í alvörunni trúa því að þú sért farinn frá okkur. Hvíldu í friði, elsku afi. Halla Margrét Baldursdóttir. Mig langar með nokkrum orð- um að minnast bróður míns og kærs vinar, Helga Kjærnested. Uppvaxtarár okkar á Þor- finnsgötunni voru viðburðarík og ævintýrin á hverju horni. Land- spítalalóðin var okkar leikvang- ur og þar var klifrað og hlaupið alla daga. Á sumrin dvöldum við í sumarbústað fjölskyldunnar á Rjúpnahæð á Vatnsenda, en þangað var farið á vorin og voru sumrin þar ógleymanleg. Helgi var alla tíð mikið fyrir hreyfingu og þegar hann stálpaðist gekk hann í Val og náði þeim merka áfanga að vera í hópi fyrstu Ís- landsmeistara Vals í körfubolta árið 1971. Helga lá á að verða fullorðinn og fór hann snemma til sjós og stofnaði ungur fjölskyldu. Eft- irminnileg er heimsókn okkar til Helga til Svíþjóðar þar sem hann bjó ásamt fjölskyldu sinni og starfaði sem smiður um tíma. Þrátt fyrir miklar fjarlægðir héldum við alltaf góðu sambandi enda var Helgi einstaklega þægilegur í allri umgengni og ljúfur. Helgi bjó á Egilsstöðum í 25 ár og rifjast upp margar góðar minningar af ferðum okkar aust- ur. Helgi var mikill útivistar- maður og naut þess að ganga á fjöll. Minnist ég þess þegar Helgi bauð mér að koma austur og aðstoða við að bera steypu- styrktarjárn sem nota átti í göngubrú á Lónsöræfum. Mér þótti það sjálfsagt en það runnu á mig tvær grímur þegar ég mætti austur og það kom á dag- inn að „hópurinn“ samanstóð af okkur tveimur ásamt Ásgrími Ásgrímssyni, bólstrara á Egils- stöðum. Byrðarnar reyndust mjög þungar og komum við á leiðarenda eftir 12 tíma göngu, þá að niðurlotum komnir. Á síðari árum efldust kynni okkar Helga enn frekar þegar við ferðuðumst meira saman, m.a. oft til skíðabæjanna Ma- donna og Selva á Ítalíu. Helgi sá um leiðsögn og naut þess að vera umkringdur hinum undurfögru Dólómítum á allar hliðar. Það var draumur hans að heimsækja fjöllin að sumri, meðan hann hefði enn heilsu til. Sá draumur varð að veruleika þegar við heimsóttum dalina fyrir rúmu ári og gengum þar saman um fjöll og firnindi. Sú ferð var ekki síður verðmæt fyrir mig, full af dýrmætum minningum og góðri samveru. Helgi var mikill mannvinur og var virkur í AA-samtökunum og Al-Anon til síðasta dags. Þar naut hann þess að gefa af sér og styðja við þá sem þurftu á aðstoð að halda, m.a. með heimsóknum í fangelsi. Helgi lifði lífinu sannarlega lifandi, kunni að njóta litlu hlut- anna og sýndi mikið æðruleysi í áralangri baráttu sinni við ill- vígan sjúkdóm. Við eigum eftir að sakna heimsókna þinna, sem voru margar síðustu árin, þar sem við sátum saman yfir kaffi- spjalli og pönnukökum. Þín verð- ur sátt saknað. Hvíl í friði. Þinn bróðir, Örn. Við viljum minnast bróður, mágs og frænda sem féll frá eft- ir hetjulega baráttu við krabba- mein í 13 ár. Margs er að minn- ast þegar farið er yfir tíma okkar saman. Hann lifði lífinu lifandi og var mikill fjölskyldu- maður. Helgi var æðrulaus mað- ur og mikill sáttasemjari. Hann munaði ekkert um að keyra frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með smá stoppi á Kirkjubæjarklaustri til að koma í jólaboð á Þorfinnsgötuna á jóladag. Hann hafði gaman af því að kynnast fólki, átti vini út um allan heim, til að mynda á Ítalíu og í Argentínu. Við áttum því láni að fagna að ferðast með honum innanlands, til Parísar, Kaupmannahafnar og Madonna á Ítalíu. Fjölskyldan fór í nokkr- ar skíðaferðir saman til Ma- donna, alltaf var spennandi að sjá í hvaða skíðagalla Helgi birt- ist, aldrei í sama gallanum tvo daga í röð. Þar þekkti hann nokkra hóteleigendur sem fögn- uðu honum í hvert sinn sem hann heimsótti þá. Það sama mátti segja um veitingahúsin, allir þekktu Helga og beið hans ávallt besta borðið. Hann var höfðingi heim að sækja hvort sem var á Egils- staði, á Hól við Þingvallavatn eða á Lindarflötina þar sem hann bjó í seinni tíð. Helgi elsk- aði að borða góðan mat og nut- um við þess eftir að hann flutti í Garðabæ að hann kom reglulega til okkar í mat á kvöldin og ávallt kom Stormur með. Storm- ur passaði vel upp á Helga sinn og fór í fýlu ef Helgi var ekki ná- lægur. Helgi var mikill fagurkeri, bjó sér fallegt heimili og fannst gaman að vera í fínum fötum, helst pínu áberandi. Hann naut sín best í faðmi fjölskyldu og vina. Núna síðustu mánuði var hann duglegur að bjóða ættingj- um og vinum í mat og passaði sérstaklega upp á að börnin gleymdust ekki enda alla tíð átt auðvelt með að ná til þeirra. Okkur finnst sárt að sjá á bak Helga sem kvaddi alltof snemma. Með aðstoð Heru og ættingja var hægt að uppfylla óskir hans um að fá að kveðja heima og þökkum við þeim fyrir aðstoðina. Elsku Baldur Már, Margrét Rán og fjölskyldur, mikill er missir ykkar en minningin um góðan föður sem elskaði ykkur mikið er góður fjársjóður. Minning þín er ljós í lífi okk- ar. Margrét, Pétur og Ásta. Helgi Stefnir Kjærnested var næstyngstur barna Guðmundar H. Kjærnested skipherra og móðursystur okkar Margrétar Símonardóttur. Við ólumst upp hvort á sinni hæðinni á Þorfinns- götu 8 í húsi afa og ömmu. Mæð- ur okkar Margrét og Kristín bjuggu hvor á sinni hæðinni nán- ast allt sitt líf. Auk þeirra bjuggu í kjallara, háalofti og stökum herbergjum ættingjar og vinir afa og ömmu. Þetta var fjölskrúðugt sambýli margra kynslóða þar sem Ingibjörg amma var sannkölluð ættmóðir. Í húsinu ríktu ákveðnar reglur sem við börnin urðum að beygja okkur undir. Mæður okkar heimavinnandi, heitur matur í hádeginu og kvöldin, öll föt heimasaumuð eða prjónuð, stór- þvottar þvegnir, garðurinn ræktaður og slátur tekið að hausti, mikil samvinna kvennanna í húsinu, ömmu og dætranna. Vegna starfa Guð- mundar var hann oft lengi að heiman en þegar hann var í landi urðum við krakkarnir að taka til- lit til þess. Helgi var fjörmikill strákur, skemmtilegur, uppátækjasamur og gat verið stríðinn. Það gat verið erfitt fyrir hann að stand- ast þær freistingar að fá sér rab- arbara eða gulrót úr garðinum, en amma hafði haukfrán augu og slíkt gat því endað illa. Öll geng- um við í Austurbæjarskólann og vorum við meira að segja hjá sama kennaranum allan barna- skólann, Valborgu Helgadóttur. Margt var brallað í kjallaranum á Þorfinnsgötunni og höfðum við frændurnir meðal annars heilt herbergi til umráða þar sem sett var upp bílabraut. Helgi stofnaði ungur heimili með Höllu Bald- ursdóttur og eignaðist með henni Baldur Má. Leiðir Helga og Höllu skildi og síðar stofnaði hann fjölskyldu með Soffíu Lár- usdóttur. Þau eignuðust sólar- geislann Margréti Rán. Helgi bjó víða og kom að mörgu. Hann réðst óhikað í ýmis verkefni á lífsleiðinni. Hann var mikill úti- vistarmaður eins og öll hans fjöl- skylda og var skíðaiðkun þar of- arlega á blaði. Síðustu árin var hann á ný kominn á höfuðborg- arsvæðið og bjó þá m.a. í Úthlíð 11, í nánu sambýli við mig, Sig- urð. Þá hafði hann greinst með illkynja sjúkdóm sem setti mark á líf hans. Það var honum mikið áfall en hann var staðráðinn í að takast á við veikindi sín af æðru- leysi. Gott var að eiga Helga að þegar skyndilega þurfti að skipta um vatnslagnir í kjallar- anum í Úthlíðinni. Helgi stýrði þeirri stóru framkvæmd af festu Helgi S. Kjærnested

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.