Morgunblaðið - 15.01.2021, Side 21

Morgunblaðið - 15.01.2021, Side 21
og vandvirkni. Þarna nýttist þekking og reynsla Helga á sviði smíða og hústjóna. Þegar móðir okkar féll frá keypti Helgi mið- hæðina á Þorfinnsgötunni ásamt Margréti Rán dóttur sinni og tengslin við Þorfinnsgötuna héldust. Síðustu árin ferðaðist Helgi mikið þrátt fyrir veikindin og hélt úti öflugri heimasíðu. Þar voru börnin hans og fjölskyldur þeirra í forgrunni og styrktu hann á þessum erfiðu tímum. Þetta er fríður og föngulegur hópur, sem Helgi var stoltur af. Helgi hafði undirbúið brottför sína úr þessum heimi í þaula. Hvert atriði vandlega frágengið. Vinirnir kvaddir, skilaboðin send út, jólakveðja á Facebook. And- látsfréttin kom ekki á óvart. Við kveðjum elskulegan frænda og vottum fjölskyldu hans samúð. Sigurður Júlíusson Lára V. Júlíusdóttir. Það var árið 1995 að við Helgi kynntumst í gegnum konur okk- ar, systurnar Höllu og Soffíu. Við Helgi náðum strax mjög vel saman og upp frá því voru samverustundirnar margar m.a. á Kirkjubæjarklaustri. Þar höfðu tengdaforeldrar okkar Helga sett upp tjaldsvæði og vann hann þar löngum stundum og margar helgar ásamt konunni sinni Soffíu, við uppbyggingu og síðar gæslu á sumrin. Þar var oft margt um manninn og naut Helgi sín vel við tjaldvörsluna og hafði sterkar skoðanir á um- gengnisreglum eins og tengda- móðir hans Ólöf Benediktsdóttir, sem hafði metnað fyrir því að allir hlutir væru til fyrirmyndar hvert sem litið var. Þar voru þau sammála og náði hann mjög góðu sambandi við hana og má segja að Helga væri á sama hátt umhugað um að standa sína plikt, ávallt. Helgi var afar barn- góður og átti auðvelt með að ná til þeirra og fá börnin með sér í leiki og störf. Þar gerði hann engan greinarmun á börnunum, heldur kom fram af hreinskilni og einlægni og vann sér trúnað og traust þeirra. Á sama hátt kom hann fram í lífinu, sem afl- aði honum trausts hvarvetna. Elsku Margrét Rán, Baldur Már og fjölskyldur. Við kveðjum góðan dreng. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Guðmundur Gíslason. Ég kynntist Helga Kjærne- sted í gegnum sameiginlegt áhugamál okkar fyrir ekkert svo löngu, en þrátt fyrir stutt kynni náðum við að bralla ótrúlega margt skemmtilegt saman. Tíminn var nýttur vel, vegna þess að tíminn var kannski það eina sem Helga virkilega skorti. Hann hafði greinst með krabba- mein nokkru áður en við kynnt- umst og því lagði hann mikla áherslu á nýta tíma sinn vel og hafa gaman af lífinu. Að umgangast Helga vakti mann oft til umhugsunar um hvernig maður nýtir tíma sinn og var það sannarlega dýrmætur skóli. Þrátt fyrir að Helgi hafi ekki haft mikinn tíma til stefnu þá hafði hann alltaf tíma til þess að hjálpa öðrum og þannig var það alveg til síðasta dags. Þótt mikið hafi verið af honum dregið síðustu vikurnar þá hringdi hann oft í mig og bað mig um að aðstoða sig aðeins, oftar en ekki var erindið að hjálpa öðrum. Að nýta sína síðustu krafta í svona óeigingjarnt starf er sann- arlega aðdáunarvert. Helgi talaði opinskátt um það sem var í vændum og síðastliðið sumar þegar við vorum úti að borða saman þá segir hann við mig að það sé einn staður sem hann langi til að heimsækja á meðan hann hafi orku til. Það séu Strandir. Daginn eftir vorum við lagðir í hann norður á Strandir og átt- um frábæra daga í dásamlegu veðri í þessu stórbrotna um- hverfi. Bílferðin var svo nýtt í að velja lög í útförina, það var dæmigert fyrir Helga, hann tók því sem í vændum var af full- komnu æðruleysi. Þannig gekk hann svo fallega frá öllum laus- um endum áður en hann kvaddi. Það er ekki sjálfgefið að eign- ast svona góðan vin eins og Helga og hans verður sárt sakn- að. Ég votta fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Óskar Páll Sveinsson. Í nokkrum orðum viljum við minnast góðs drengs, mikils vin- ar og félaga sem fallinn er frá allt of snemma. Það var mikill fengur fyrir samfélagið á Egils- stöðum að fá svo atorkumikinn mann í sveitarfélagið. Alls staðar þar sem Helgi kom að málum var hann oftast kominn fremst og lagði fram sína krafta af mik- illi óeigingirni. Má þar nefna störf fyrir barnaverndarnefnd þar sem hann veitti skjólstæð- ingum sínum svo miklu meira af sinni persónu heldur en hægt var að ætlast til. Hann var for- maður Ferðafélags Fljótsdals- héraðs og Borgarfjarðar eystri og betri en enginn við að afla fé- laginu tekna/styrkja við upp- byggingu skála á Víknaslóðum. Björgunarveitir á Héraði nutu góðs af Helga og um tíma var hann formaður Slysavarna- félagsins á Egilsstöðum ásamt því að vera í aðgerðastjórn. Skíðadeildin naut góðs af veru Helga og þegar dóttir hans fór að æfa skíði var Helgi aldrei langt undan. Á Egilsstöðum var Helgi stór fiskur í lítilli tjörn og naut sín vel þau 20 ár sem hann bjó hér og var sárt saknað þegar hann flutti suður. Þær eru orðnar margar úti- vistarferðirnar sem við hjónin höfum átt með Helga og var auð- velt að fá hann til þátttöku, sama hverju stungið var upp á, vildi hann helst leggja af stað eigi síð- ar en núna ef eitthvað var orðið ákveðið, hvort sem það voru gönguferðir um firði og fjalla- skörð eða gönguskíðaferðir um hálendi Austurlands. Í mörg ár stunduðum við Helgi hreindýra- veiðar saman og hélt hann því áfram eins lengi og heilsan leyfði. Eftirminnileg er ferð sem við fórum saman til Kúbu og þar eins og venjulega var Helgi allt- af kominn í fremstu röð að njóta þess sem lífið bauð upp á. Helgi var mikill foringi í gönguferðum og fór þá oftast fremstur, beint af augum, og varð ósjaldan við- skila við leiðsögumanninn ásamt hluta hópsins sem fylgdi honum eftir. Kæri Helgi, þín er sárt saknað. Viljum við votta Baldri Má, Margréti Rán og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Guðbjörg og Karl. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þessi orð Káins koma upp í hugann þegar ég nú kveð kæran vin minn, Helga Stefni Kjærne- sted, sem lést 29. desember síð- astliðinn. Hugurinn leitar aftur til ung- lingsáranna á Leifsgötunni í Reykjavík þegar ég kynntist Helga, sem þá bjó í húsi stórfjöl- skyldunnar við Þorfinnsgötuna. Unglingarnir í hverfinu héldu vel saman og margir ennþá minnisstæðir. Hópurinn hittist þá gjarnan í sjoppunni við Leifs- götuna, Hallgrímskirkja var í byggingu og gamla skátaheimilið við Snorrabrautina ennþá uppi- standandi. En unglingsárin vara ekki að eilífu. Leiðir skildi og hver fetaði sína lífsins braut og sumir hurfu sjónum en vinátta okkar Helga hélst þó órofin alla tíð þótt við byggjum stundum sitt á hvoru landshorninu eða sitt í hvoru landinu. Ýmis tækifæri voru not- uð til að hittast og gleðjast sam- an með fjölskyldum og vinum. Minningarnar eru margar um skemmtilega samveru, til dæmis árlegar heimsóknir Helga fyrir jólin þegar smákökubaksturinn var tekinn út og gefnar einkunn- ir fyrir hinar ýmsu sortir. Á lífsleiðinni hittir maður ein- staka sinnum fólk sem maður laðast ósjálfrátt að sökum mann- kosta þess. Helgi var einmitt þannig manneskja. Hann hafði góða nærveru og jákvæðni hans var einstök og aldrei fékk ég fullþakkað honum fyrir stuðning hans við mig í gleði og sorg. Síðustu árin hagaði svo til að Helgi bjó hér í hverfinu nærri okkur Sigurði Rúnari og alltaf var tilhlökkunarefni að fá hann í heimsókn til að ræða málin og fara yfir stöðuna. Ferfætti vin- urinn Stormur var ávallt með í för og lagði sitt til málanna. Helgi var sannur vinur vina sinna, hreinn og beinn og maður vissi alltaf hvar maður hafði hann og treysti honum og hann sagði manni hlutina á hreinskil- inn og umbúðalausan hátt. Umfram allt bar þó Helgi hag fjölskyldu sinnar fyrir brjósti, barnanna sinna og afabarna sem hann elskaði út af lífinu. Í sam- skiptum við þau birtust allir bestu mannkostir Helga. Já, þannig endar lífsins sólskinssaga. Vort sumar stendur aðeins fáa daga. En kannske á upprisunnar mikla morgni við mætumst öll á nýju götuhorni. (Tómas Guðmundsson) Við Sigurður Rúnar sendum Baldri Má og Margréti Rán, mökum þeirra, börnum og fjöl- skyldunni allri einlægar samúð- arkveðjur. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Jóna Rún Gunnarsdóttir. Góður félagi er farinn frá okk- ur. Helgi Kjærnested var léttur í spori og glaður í lund. Hann tal- aði alltaf einfalt og skýrt mál og var ekki að flækja hlutina. Ef það var eitthvert vandamál, þá var ávalt stutt í lausnina. Helgi var góður að hlusta og talaði ekki að óþörfu. Hann var vinur vina sinna og var til staðar ef einhver var í erfiðleikum og þurfti hjálp. Helgi var vel gefinn, fljótur að hugsa, úrræðagóður, ábyrgur og áreiðanlegur. En það var þegar Helgi fór að veikjast alvarlega sem persónu- leiki hans og styrkur komu best í ljós. Það er eins og það hafi gert hann enn sterkari og enn betri útgáfu af sjálfum sér. Það heyrð- ist aldrei í Helga kvarta yfir ör- lögum sínum eða sársauka. Sjálfsvorkunn var ekki í boði hjá Helga. Hann þurfti að fara til læknis reglulega og Baldur son- ur hans sá um að fara með hon- um og skrifa læknisskýrslu fyrir aðra í fjölskyldunni þannig að Helgi þyrfti ekki að vera að ræða svoleiðis leiðindi! Ég lærði mikið af Helga og persónuleika hans, sem var fyrst og fremst að sjá alltaf björtu hliðarnar, að gera það besta úr öllu, jafnvel endalokum lífsins. Helgi lifði í deginum, einn dag í einu. Helgi sætti sig við það sem hann gat ekki fengið breytt. Helgi lifði í kærleika og umburð- arlyndi. Helgi hjálpaði öðrum. Helgi var góður maður. Ég mun sakna þín, félagi. En það sem þú stóðst fyrir lifir að eilífu. Pétur Einarsson MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 ✝ Hilmar Pét-ursson Njarð- arvöllum 6 í Njarð- vík fæddist í Keflavík 12. sept- ember 1931. Hann lést 31. desember 2020 á Heilbrigð- isstofnun Suður- nesja í Reykja- nesbæ. Hann var sonur hjónanna El- ínbjargar Geirsdóttur, f. 22. apríl 1908, dó 17. apríl 1984, og Péturs Frið- riks Jóramssonar, f. 18. október 1906, dó 25. desember 2003. Systkini Hilmars voru: Kristján Geir, f. 27. maí 1933, d. 14. des- ember 2016, og Dagmar, f. 23. janúar 1940. Hilmar kvæntist 5. febrúar 1955 Guðrúnu Kristinsdóttur, f. 17. maí 1932, dó 12. nóvember 2019. Foreldrar hennar voru Þóra Lilja Jónsdóttir, f. 8. apríl f. 3. október 1964, maki Guðrún Finnsdóttir, f. 9. október 1965. Börn þeirra eru: a) Þór, sam- býliskona Hekla Jónsdóttir, b) Hrund, sambýlismaður Þór- oddur Björn Þorkelsson og sam- an eiga þau þrjár dætur. Hilmar var fæddur í Keflavík og bjó nær alla tíð að Mávabraut 10 b. Á yngri árum vann hann ýmis almenn störf, var skip- stjórnarmenntaður og var til sjós þar til hann slasaðist þegar brot reið yfir togara úti fyrir Vestfjörðum. Eftir að sjó- mennsku lauk vann hann á vinnuvélum en lengst af var hann rafvirki og síðar raf- magnseftirlitsmaður hjá Raf- veitu Keflavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Útför Hilmars fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag 15. jan- úar 2020 klukkan 13. Streymt verður frá útför: https://www.facebook.com/ groups/hilmarpetursson Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat 1905, og Eyjólfur Kristinn Eyjólfsson, f. 28. júlí 1888. Börn Hilmars og Guð- rúnar eru: 1) Krist- inn, f. 24. október 1955, maki Sara Bertha Þorsteins- dóttir, f. 31. desem- ber 1955. Börn þeirra eru: a) Hilm- ar, sambýliskona Erla Rut Káradótt- ir, saman eiga þau tvö börn, b) Hildigunnur, maki Rafn Markús Vilbergsson, saman eiga þau þrjár dætur. 2) Eiríkur, f. 11. janúar 1958, d. 8. ágúst 2018, maki Aðalheiður Héðinsdóttir, f. 23. apríl 1958. Börn þeirra eru: a) Andrea, maki Hafþór Ægir Sigurjónsson og saman eiga þau tvær dætur, b) Héðinn, maki Kristrún Aradóttir og saman eiga þau eina dóttur, c) Berg- þóra sem á einn son. 3) Hörður, Það er komið að því að kveðja Hilla afa. Hilli afi og Gunna amma voru mjög stór hluti af minni barnæsku. Barnabörnin voru tíðir gestir á heimilinu þeirra á Mávabraut og þar var alltaf tekið vel á móti þeim með kökum og mjólk. Afi var með góða nærveru, hann var ekki mikið að trana sér fram en var alltaf til staðar. Afi var mikill fjöl- skyldumaður og hann var stoltur af sínu fólki. Eftir að ég varð fullorðin kynntist ég afa betur og við fjöl- skyldan áttum gott og náið sam- band við hann. Helena elsta dótt- ir mín var svo heppin að kynnast langafa sínum vel. Henni fannst gaman að spjalla við hann og hann kom henni alltaf í gott skap. Eins átti afi gott vinasamband við Rabba eiginmann minn. Þegar við komum í heimsókn þurfti afi oft að fá Rabba til að kíkja á tölv- una með sér enda notaði afi tölv- una mikið, m.a. til að eiga sam- skipti við ættingja erlendis. Afi var rafvirki og hafði mikinn áhuga á öllum framkvæmdum á heimilinu okkar. Hann fylgdist vel með þeim, vildi sjá myndir og átti það til að kíkja í heimsókn til að sjá hvað væri nýtt. Afi átti 89 ára afmæli í sept- ember síðastliðnum. Pabbi bað mig að kíkja til afa og athuga hvort ég gæti aðstoðað hann með undirbúninginn fyrir afmælið. Þegar ég mætti til hans kom í ljós að hann var búinn að redda ýmsu. Hann hafði farið í hverfisbúðina og beðið afgreiðslustúlkuna um aðstoð því hann vantaði veitingar fyrir börn. Hún hafði fylgt hon- um um búðina og tínt til ýmislegt spennandi. Þaðan hafði hann far- ið í bakaríið og keypt tertur þannig að þegar ég kom var ekki margt sem þurfti að gera. Svona var afi ótrúlega hress, skýr í hugsun og úrræðagóður allt til síðasta dags. Hilli afi var góður maður og það var mjög fallegt að fylgjast með hvað afi hugsaði vel um ömmu síðustu árin hennar. Ég mun sakna afa mjög mikið en er á sama tíma þakklát fyrir öll árin sem við fengum með honum. Hvíl í friði Hilli afi og takk fyrir allt. Hildigunnur Kristinsdóttir. Í dag kveðjum við Hilmar Pét- ursson sem andaðist á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja 30. desem- ber sl. Leiðir okkar Héðins og heið- urshjónanna Hilmars og Guðrún- ar lágu fyrst saman þegar sonur þeirra Eiríkur og Aðalheiður dóttir okkar urðu par á unglings- aldri. Við skynjuðum fljótt að Hilmar og Guðrún voru fólk sem gott var að tengjast. Við tóku námsár unga parsins og eftir að Eyi útskrifaðist frá Háskóla Íslands héldu þau ásamt Andreu dóttur sinni til Banda- ríkjanna þar sem Eyi fór í fram- haldsnám og lauk þar doktors- prófi fimm árum síðar. Á árunum sem Addý og Eyi voru búsett í Madison í Wiscons- in voru á milli okkar Gunnu og Hilla mikil og góð tengsl. Gæða- stundirnar í eldhúsinu á Máva- brautinni eru eftirminnilegar; þar voru nýjustu sendibréfin sem okkur höfðu borist yfir hafið frá ungu fjölskyldunni lesin og skeggrætt um líf og nám barnanna okkar í nýjum heim- kynnum. Internetið með öllum sínum miðlum hafði á þessum tíma ekki haldið innreið sína inn í líf okkar líkt og er í dag. Því ákváðum við foreldrarnir snemma að við myndum hringja til ungu fjöl- skyldunnar einu sinni í mánuði hvort okkar. Fyrir utan símtölin góðu voru það sendibréfin sem við deildum gjarnan sem gáfu okkur mikið. Við deildum gleði þegar tvö ný barnabörn okkar fæddust í Ma- dison og fréttir og myndir sem þaðan bárust urðu okkur enn dýrmætari. Hilli var glaðlyndur maður með góða nærveru og það var gott og gaman að njóta gestrisni þeirra hjóna. Hann reyndist alla tíð Addý minni sem besti faðir og kærleikar þeirra á milli voru miklir. Barnabörnin voru mjög stór þáttur í líf þeirra Gunnu og Hilla, hjá þeim áttu þau sitt athvarf, en amma og afi nutu þess að dekra við fólkið sitt og fylgdust vel með sorgum þess og sigrum. Hilmar var var mikill Keflvík- ingur í bestu merkingu þess orðs, minnugur mjög á samferðar- menn og lífið í Keflavík fyrri daga og naut þess að rifja upp og segja sögur alveg fram til síðasta dags. Hilmar Pétursson er kært kvaddur. Sonum og tengdadætr- um Hilmars og fjölskyldum þeirra votta ég mína samúð. Megi algóður guð þína sálu geyma Gæta að sorgmæddum, græða djúp sár Þó kominn sért yfir í aðra heima Mun þín minning lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Bergþóra G. Bergsteinsdóttir. Ég fer í skúffuna að sækja vasaklút, Kiddi hringdi og sagði að við mættum heimsækja Hilla því hann væri kominn á líknar- stofuna á sjúkrahúsinu og þá veit ég að vasaklútur þarf að vera með í för. Minningarnar um jarðarfar- irnar sem við Hilli fórum saman í og vasaklútana alla sem hann rétti mér þegar tárin fóru að streyma. Við sátum hlið við hlið og syrgðum saman, bæði þann sem við vorum að kveðja og einn- ig Eyja minn, son hans. Örlögin höguðu því svo að eftir að Eyi dó í ágúst 2018 fórum við Hilli í 7 jarðarfarir saman næstu mánuði á eftir. Í sameiningu kvöddum við samferðafólk hans, foreldra vina minna, mág hans, mágkonu og báða tengdaforeldra Kidda, eldri bróður Eyja. Við Hilli saman að upplifa söknuð og deila sorginni. Ég studdi hann því hann var stund- um aðeins valtur á fótunum og hann studdi mig því ég var svo ógurlega sorgmædd og hristist af ekka. Þessar stundir í kirkjum landsins færðu okkur Hilla sam- an á nýjan hátt. Og þegar Gunna tengdamamma dó fyrir rétt rúmu ári vorum við bæði búin að missa maka okkar. Við gátum talað um sorgina og missinn. Ástina í lífi okkar sem við minntumst á í hvert skipti sem við töluðum saman. Þessi samtöl sem heiluðu okkur og við áttum það sameig- inlegt að finna fyrir nálægð þeirra. Hann var sannfærður um það síðustu vikurnar þegar hann var mikið veikur að Gunna og Eyi hefðu komið og vitjað hans og að þau biðu eftir honum. Eftir að Eyi dó tók ég upp þann sið hans að hringja í Hilla þegar ég var á Reykjanesbraut- inni á leið í eða úr vinnu. Símtölin byrjuðu alltaf eins hjá honum: „Hvar ertu núna?“ Svo var tekið fyrir hvað á daga okkar hefði drifið síðan síðast og svo hvernig okkur leið. „Hvernig líður þér núna?“ spurði hann og ég á móti. Svo „Hvert ertu komin?“ þegar við kvöddumst. Hilli tengdapabbi var mikill sögumaður og sagði skemmtilega frá körlunum á sjónum og vinnu- félögum ásamt frændfólki. Hann las mikið og hafði ánægju af öll- um fróðleik. Hann fylgdist með öllu sínu fólki og vissi hvað var að frétta af börnum og barnabörn- um. Þegar dagarnir voru tilbreyt- ingarlitlir og lítið um heimsóknir voru fréttir af fólkinu okkar skemmtilegastar. Nokkrum dögum fyrir jól heimsótti ég Hilla. Hann var í rúminu orkulítill en hress í anda að vanda. Hann sagði mér frá því þegar hann sem ungur maður í Stýrimannaskólanum slasaðist á sjónum. Honum hafði boðist pláss á bát um jólin og pening- arnir kæmu sér vel. Þau Gunna leigðu herbergi í Reykjavík á meðan hann var í skólanum. Í þessum túr fékk báturinn á sig brot. Hilli var á dekki, kast- aðist til og slasaðist illa og brotn- aði mikið í andliti. Þessa sögu hafði ég aldrei heyrt. Ég spurði hvernig honum hefði liðið eftir að hann kom heim svona slasaður og hélt hann áfram í skólanum, fór hann aftur á sjóinn? „Hún Gunna var svo góð við mig,“ svaraði hann. Hann mundi bara eftir væntumþykj- unni og elskunni, þessu sem skiptir mestu máli. Farðu sæll elsku Hilli. Aðalheiður Héðinsdóttir. Hilmar Pétursson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.