Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Í dag kveðjum við Ágúst Herbert Guð- mundsson bróður- son minn, eða Gústa frænda eins og ég kallaði hann venjulaga. Hann hafði háð hetju- lega baráttu við NMD-sjúkdóm- inn illvíga sem hann tókst á við með óvenjulegri jákvæðni og æðruleysi en varð að lokum að játa sig sigraðan. Margs er að minnast og reikar hugurinn norð- ur á Strandir í ágúst 1967 þar sem sveitasíminn hringir á bænum Kjörvogi. Þar var þá Ágúst afi Gústa að tilkynna bróður mínum um að honum væri fæddur sonur. Kynni okkar frændanna hófust ekki að marki fyrr en ég flutti til Akureyrar 1995. Hann var þá þeg- ar önnum kafinn og vinamargur en við áttum þó margar ánægju- legar stundir saman. Við fórum í veiðiferðir bæði í gæs og rjúpur en Gústi hafði gaman af skotveiði. Þá koma í hugann ferðir í sumarbú- staðinn á Ströndum þar sem við reyndum fyrir okkur í skotveiði með misjöfnum árangri. Jeppa- ferð ásamt föður hans yfir Helj- ardalsheiði er í fersku minni þótt tuttugu ár séu síðan og er þá fátt eitt talið. Gústi sagði mér margar sögur frá uppvaxtarárum sínum og varð mér af þeim ljóst að afi hans og amma á Patreksfirði áttu mikinn þátt í mótun hans og þroska. Þar lærði hann að til þess að ná árangri þyrftu menn að standa sig. þegar hann hefði verið 14 ára hefði Ágúst afi hans frétt að laust væri pláss á togaranum á staðnum og hefði hann ráðið hann umyrðalaust í plássið. Þannig fengi hann góðar tekjur fyrir næsta vetur. Þetta hafi svo sem verið hið besta mál nema hvað togarinn átti að sigla daginn eftir og hann átti að verða kokkur. Þarna sagðist hann hafa verið næst því á lífsleiðinni að gefast upp. Hann hefði farið til ömmu sinnar og hún kennt honum að baka brauð og búa til hvíta sósu. Með þessa menntun í farteskinu hefði hann farið og keypt kost og síðan hafi verið siglt. Það er ljóst af lífshlaupi Gústa að hann hafði orð afa síns að leið- arljósi. Hann stóð sig vel á öllum þeim fjölmörgu sviðum þar sem hann lagði hönd á plóginn og náði árangri. Hann varð athafnamaður í viðskiptum á mörgum sviðum og gekk vel. Hann stundaði körfubol- taíþróttina með íþróttafélaginu Þór á sínum yngri árum og varð síðan körfuboltaþjálfari eins lengi og heilsan leyfði. Starf hans með íþróttafélaginu Þór í körfubolta mun halda nafni hans á lofti um ókomin ár. Hann stofnaði ásamt konu sinni líkamsræktarstöðina Átak heilsurækt. Þá hafði hann mikinn áhuga á smávirkjunum og var gleði hans mikil að geta upp- lifað gangsetningu á Tjarnarvirkj- un í Eyjafirði sl. sumar sem hann var einn aðaleigandi að. Ekki verða hér upp talin öll þau fjöl- mörgu verkefni sem Gústi kom að með einum eða öðrum hætti á sinni stuttu ævi. Í einkalífinu var Gústi gæfu- maður. Hann eignaðist yndislega konu hana Guðrúnu Gísladóttur og með henni þrjú mannvænleg börn. Fjölskyldan átti hug hans allan og fylgdi hann börnum sín- um eftir eins lengi og hann gat í íþróttum þeirra, leik og starfi. Missir þeirra er mikill. Elsku Gugga og börn. Við María sendum okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Daníel Guðjónsson. Ágúst H. Guðmundsson ✝ Ágúst H. Guð-mundsson fæddist 26. ágúst 1967. Hann lést 1. janúar 2021. Útför hans fór fram 13. janúar 2021. „Baráttuglaðir leikmenn tapa aldr- ei, þeir falla einungis á tíma.“ (John Woo- den) Kæri Gústi, við bræðurnir kveðjum þig með miklum söknuði og vottum fjölskyldu þinni okk- ar dýpstu samúð. Við erum afar þakk- látir fyrir að hafa kynnst þér, samverustundirnar innan sem utan vallar og vega- nestið til framtíðar. Eftir feril þinn sem leikmaður með Haukum, Þór og UFA komst þú sem stormsveipur inn í starf körfuknattleiksdeildar Þórs í byrjun 10. áratugarins þegar þú hófst að þjálfa drengi sem fæddir eru um 1980. Strákarnir þóttu ekki líklegir til afreka en þú sást góðan efnivið. Með mikilli vinnu innrættir þú mönnum aga, metn- að og trú á sjálfan sig og liðsheild- ina. Innan fárra ára mótuðust meistaralið, unglingalandsliðs- menn og vinir fyrir lífstíð. Dreng- irnir urðu seinna uppistaðan í meistaraflokki Þórs í körfuknatt- leik, sem þú þjálfaðir með góðum árangri árin 1998 til 2001. Seinna endurtókstu leikinn með strákum fæddum 1986 og 1987 og gott bet- ur með drengjum sem fæddir eru um 2001. Þú varst máttarstólpi körfuknattleiksdeildarinnar og við fullyrðum að enginn hefur markað dýpri spor í sögu körfu- boltans á Akureyri og fáir hafa gert meira fyrir íslenskan körfu- knattleik. Þú varst leikmönnum þínum miklu meira en þjálfari. Þú varst lærifaðir sem fleyttir mönnum út í lífið með því að rækta með okkur vinnusiðferði og seiglu sem erfitt er að kenna. Þetta veganesti hefur hjálpað okkur á lífsins braut og fáum við það þér aldrei fullþakk- að. Þú varst fyrirmynd okkar og við gátum ávallt leitað til þín. Þér þótti vænt um leikmenn þína og þeim um þig. Ekki síst fyrir þitt tilstilli mynduðust sterk tengsl í okkar hópi, ævarandi vinskapur og virðing. Þú varst ætíð heill í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur og fyrir vikið nýturðu ómældrar virðingar leikmanna þinna og ann- arra. Sjálfur fékkst þú ekkert upp í hendurnar en lagðir þeim mun meira á þig. Það var gaman fyrir okkur leikmenn að fylgjast með afrekum þínum þínum utan vallar. Allt sem þú framkvæmdir leystir þú svo vel af hendi að eftir því var tekið. Þú og Guðrún eiginkona þín eruð sannkallað afreksfólk og haf- ið komið fjölmörgu góðu til leiðar og börnunum ykkar frábæru kippir svo sannarlega í kynið. Þú varst svo sannarlega í ess- inu þínu á körfuboltavellinum. Ef maður lokar augunum sér maður þig fyrir sér á hliðarlínunni í íþróttahúsi Glerárskóla að brýna Þórsliðið þitt til dáða og að sjálf- sögðu íklæddur Nike-peysunni góðu. Þannig munum við minnast þín. Það er sárt að hugsa til þess að þú féllst á tíma langt fyrir aldur fram en arfleifð þín og minning um einstakan mann lifa áfram. Kæra Guðrún, Jana, Júlíus og Berglind, hugur okkar er hjá ykk- ur. Ásmundur Hreinn Oddsson, Bjarki Ármann Oddsson, Guðmundur Ævar Oddsson. Að tapa var ekki markmið fyrir mig eða hann. Var ekki til í okkar orðaforða. Svo mætti þessi fjandi sem við hvorugur nenntum. „Gaui, ég nenni ekki þessu MND,“ sagði hann við mig fyrir tveimur árum. En núna hefur hann verið leystur frá þessari hörmung sem rænir okkur allri getu til að lifa og njóta. Við höfum öll misst mikið með þessum höfðingja og eins gott að minningarnar séu margar og góð- ar til að fylla tómið sem eftir er. Virkjunin átti hug hans allan síðustu mánuði og maður gat ekki annað en hrifist með áhuganum, dugnaði og þori hjá honum og fjöl- skyldunni. Takk fyrir videoin og frásagnirnar af gangi mála. 18. ágúst 2018 var dagur kraftaverkamaraþons. Þá hlupum við fyrir Ágúst og fjölskylda og vinir söfnuðu metfjárhæðum fyrir MND á Íslandi. Þetta var gert af dugnaði, harðfylgi og ástríðu eins og annað sem þau tóku sér fyrir hendur. Með þeim gátum við bætt aðstöðu sjúklinga af öllum gerðum og fagfólks til að aðstoða okkur. Slagurinn um lyf sameinaði okkur í baráttu við kerfið og lækna sem hafa sér helst til frægðar unnið undanfarin 20 ár að horfa á okkur veslast upp og deyja eða komið með öllum ráðum í veg fyrir að við fengjum að prófa lyf sem þó lofa góðu í baráttunni við MND. Körfuboltinn var mér fjarlæg- ur í alla staði, þar til ég kynntist Ágústi og fjölskyldu. Við hjónin fórum meira að segja á körfu- boltaleik í Boston þar sem við sáum Celtics vinna glæsilega. Ég hef jafnvel staðið mig að því að horfa á íslenskan körfubolta og vakað yfir leikjum Celtics sem er og verður mitt lið. Húmorinn hjá okkur var held ég svipaður. Glettinn og kolsvart- ur á köflum. Eins og alþjóð veit gátu stjórnlaus hlátursköst tekið yfir okkur og allt að því drepið okkur. Það kom ekki í veg fyrir að Ágúst gerði margar tilraunir til að drepa mig með sendingu alls kon- ar gríns á Facebook. Það seinasta kom 22. desember sem mér þykir vænt um. Stundum ofbauð mér svartleikinn og skammaðist í hon- um. „Hefur Guðrún séð þetta?“ spurði ég en hann svaraði alltaf um hæl „Svona vini á ég bara og áframsendi á þig.“ Ráðagóður, traustur, ljúfmenni og leiðtogi eru orð sem koma í huga manns þegar traustur vinur er nú kvaddur. Guðrún, Jana, Júlíus og Berg- lind, megi allir góðir vættir vaka með ykkur og andrúmið fyllast af góðum minningum. Guðjón, Halla og stelpurnar. Það voru sorglegar fréttir sem mér bárust í upphafi þessa árs þess efnis að hann Gústi hefði lát- ist á nýársdag eftir hetjulega bar- áttu við erfiðan sjúkdóm. Það voru mikil forréttindi að kynnast Gústa þegar við unnum saman hjá Akureyrarhöfn sem stráklingar. Annað eins toppein- tak af manni er erfitt að finna en Gústi var nokkrum árum eldri en ég, glæsilegur á velli og því leit ég mikið upp til hans. Ef ég ætti að lýsa Gústa í nokkrum orðum þá koma orð upp í hugann eins og myndarlegur, áreiðanlegur, skemmtilegur, jákvæður og góð fyrirmynd. Smitandi hlátur hans og kímnigáfa situr sterk í minn- ingunni. Þegar ég hitti Gústa sumarið 2018 rifjuðum við upp nokkrar skemmtilegar sögur af því þegar við unnum saman hjá Akureyrar- höfn á okkar unglingsárum og hlógum mikið. Við störfuðum saman nokkur sumur sem hafnarverkamenn ásamt mörgum snillingum á borð við Jóa, Silla, Stebba, Kidda, Manna, Tana, Jónas og að ógleymdum Luca. Þessi tími var ógleymanlegur þar sem margt skemmtilegt var brallað. Ég man sérstaklega eftir því þegar við Gústi vorum eitt sinn sendir út í slipp til að mála hafnarkantinn í fagurgulum lit. Það var kalt í veðri og við vorum eitthvað illa upplagð- ir þennan dag. Við vorum fljótir að reikna það út að við gætum klárað þessa einu fötu af málningu á 50 mínútum og næðum þá góðri pásu þar til verkstjórinn kæmi aftur til að sækja okkur í mat. Ef við sett- um vel í rúllurnar og dreifðum ekkert allt of mikið úr málning- unni þá myndi planið virka. Við vorum örugglega ekki nema 40 mínútur að klára málninguna, máluðum kannski 5 metra af hafn- arkanti og þá gátum við slakað á. Norðanáttin var köld þennan dag- inn þannig að við fórum ofan í vatnsbrunn til að hlýja okkur og sátum þar og spjölluðum í myrkr- inu um heima og geima. Þar sem ég var yngri þá kom það í minn hlut að gægjast annað slagið upp úr brunninum þegar við töldum að það væri farið að styttast í verk- stjórann. Svo þegar ég sá glitta í þann rauða (verkstjórabíllinn), þá stukkum við upp og tókum rúllur í hönd. Ég man hvað verkstjórinn var hæstánægður með hvað við höfðum afkastað miklu og við Gústi vorum vel hvíldir og sælir. Það var mikið áfall þegar fréttir bárust af erfiðum veikindum Gústa. Það var ljóst að verkefnið var stórt en það var aðdáunarvert að fylgjast með þeim Gústa og Guggu í þessu erfiða ferðalagi. Ég hitti Gústa nokkrum sinnum í veikindunum, aðallega á körfu- boltaleikjum hjá Þór og alltaf sá ég gamla góða Gústa, þó að það sæist að sjúkdómurinn var farinn að taka sinn toll. Ég sendi Guggu og börnum mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Minning um góðan mann mun lifa með okkur um ókomin ár. Einar Már Guðmundsson. Fallin er frá einn af mínum traustu vinum, hetja sem alltaf gaf góð ráð og var til staðar fyrir vini sína. Hann var hetja í augum fjöl- skyldu og vina. Ágúst var ákveð- inn, sanngjarn, frábær fjölskyldu- maður og vinur sem hugsaði vel um sína. Mín fyrstu kynni af Ágústi voru í gegnum körfubolt- ann þegar við lékum saman með liðunum okkar KR og Þór Akur- eyri á síðustu öld og var það klárt í byrjun að þarna var magnaður einstaklingur á ferð. Lið Ágústs spegluðu persónuna hans jafnt innan sem utan vallar. Smullum við vel saman um leið og við kynntumst og þannig trúi ég að margir hafi kynnst þessum öðlingi sem fallinn er nú frá langt um ald- ur fram. Árið 2000 fórum við á þjálfara- námskeið, þar sem kóngurinn sló tvær flugur í einu höggi og flaug með prinsessurnar sínar þær Guðrúnu og Ásgerði Jönu í sólina á Benidorm meðan við brugðum okkur á námskeið í Valencia. Ég kynntist þeim hjónum vel í þessari ferð og þykir mér afar vænt um þá vináttu sem á milli okkar ríkir. Þau eru höfðingjar heim að sækja og iðulega þegar ég átti ferð norð- ur vegna vinnu eða með fjölskyld- unni leit ég við hjá þeim hjónum. Ég var oft það heppinn að frú Guðrún hafði þá einmitt keypt fiskiklatta sem eru algjört sæl- gæti sem við Doktorinn (Júlíus Orri) snæddum, alltaf var vel tek- ið á móti manni í mat og drykk og farið vel yfir stöðu mála. Þetta er gott dæmi um hvers konar per- sónur þetta sómafólk er og þess vegna eru þau rík af vinum og vel tengd stórfjölskyldu sinni. Ég kynntist Júlíusi Orra vel í verkefni 18 ára landsliðsins þar sem hann stóð sig mjög vel sem fyrirliði liðs- ins, en stuðningur Ágústs við börnin sín þrjú í þeirra íþróttum var magnaður og komu þau alls ekki að tómum kofunum í ráðlegg- ingum, sama hvort það voru frjálsar, karfa eða fimleikar. Ágúst var klókur í viðskiptum líkt og í íþróttunum og skildi maður stundum ekkert hvað hann var að braska en þetta var allt partur af planinu hjá okkar manni, flest gekk upp og velgengni var hans mottó. Fyrirtæki þeirra hjóna var rekið frá hjartanu og verkefni sem Ágúst tók að sér voru vel unnin. Ágúst sýndi styrk sinn í bar- áttu við MND-sjúkdóminn á margan hátt, hann tókst á við veikindin af jákvæðni og æðru- leysi. Hann sýndi allar sínar bestu hliðar þegar hann keyrði áfram Tjarnarvirkjun í Eyjafirði sem í raun fáir átta sig á hverslags þrekvirki er nema hans nánustu. Ágúst var vel kvæntur henni Guðrúnu og eiga þau saman þrjá demanta í þeim Ásgerði Jönu, Júl- íusi Orra og Berglindi Evu. Ég bið guð að gefa ykkur styrk í þeim söknuði sem fráfall meistara Ágústs er og taka vel utan um ykkur á þessum erfiðu tímum. Ég kveð einn af okkar allra bestu mönnum með þessum orðum Þor- steins Einarssonar úr Hjálmum: Vertu sæll kæri vinur ég kveð þig nú Með sorg í hjarta og tár á kinn Þótt fenni í sporin þín þá lifir lag þitt enn Þú löngum spannst þín draumaljóð Á hverjum morgni rís sólin Og stafar geislum inn til mín Hún lýsir upp daginn Og þerrar öll mín tár Breiðir úr sér um bæinn og heilar öll mín sár Ykkar vinur Ingi Þór Steinþórsson Elsku besti vinur, þú ert farinn og þín er sárt saknað. Ég minnist allra þeirra góðu stunda sem við áttum saman. Minningarnar eru margar og ljúfar, ekki síst frá uppvaxtarárunum okkar á Pat- reksfirði. Þú varst maður orða þinna og það var alltaf hægt að treysta öllu sem þú sagðir. Ótak- mörkuð jákvæðni, víðsýni og um- urðarlyndi gagnvart mönnum og málefnum voru þér í blóð borin. Ágúst, þakka þér fyrir brosið, hláturinn og vinsakapinn. Ég votta Guðrúnu og börnun- um ásamt öðrum aðstandendum samúð mína og bið Guð að veita ykkur styrk í sorg ykkar. Minning um góðan dreng gleymist ei. Hallgrímur Hallgrímsson. Haustið 1993 kom inn í líf mitt ungur myndarlegur maður sem mig óraði ekki fyrir á þeim tíma að ætti eftir að hafa jafn mikil áhrif á líf mitt eins og raun bar vitni. Á þessum tíma var ég óharðnaður unglingur sem æfði körfubolta með vinum mínum. Við vorum þá undir meðallagi gott körfuboltalið. Án þess að ég muni hvernig fyrsta æfing undir stjórn Gústa var þá er líklegt að hann hafi mætt ákveð- inn til leiks, blásið þéttingsfast í flautuna og sagt okkur að koma saman á endalínu vallarins. Þar hefur hann lagt línurnar og þaðan höfum við hafist handa á skipu- lagðri, erfiðri og skemmtilegri æf- ingunni. Gústi var agaður og skipulagð- ur þjálfari með skýra sýn, krefj- andi æfingar og með miklar en raunhæfar kröfur. Okkur fannst örugglega nóg um á fyrstu æfing- unum hjá Gústa. Fljótt áttuðum við okkur þó á því að hann vildi gera okkur að betri leikmönnum og ná árangri. Með mikilli vinnu undir einstakri forystu Gústa náð- um við þeim árangri sem hann stefndi að. Við urðum Íslands- meistarar, tvöfaldir bikarmeistar- ar og unnum sterkt mót í Noregi sem lið frá norðurlöndunum tóku þátt í. Gústi var ekki einungis þessi strangi kröfuharði þjálfari sem ég hef nú þegar lýst. Með tímanum varð hann náinn vinur okkar allra. Í samtölum við liðsfélagana nú í kjölfar andláts Gústa eru það nefnilega ekki afrekin á körfu- boltavellinum sem koma fyrst upp í huga okkar, heldur er það mann- eskjan sem Gústi hafði að geyma. Það sem Gústi kenndi okkur mun nýtast okkur öllum út lífið, en hann kenndi okkur vinnusemi, aga, fórnfýsi, samvinnu, þraut- seigju og virðingu. Gústi bar ávallt virðingu fyrir mótherjanum, dóm- urum og öðrum. Það er erfitt að hugsa til þess að Gústi er ekki lengur á meðal okkar. Það verður skrítið fyrir okkur sem Gústi þjálfaði að hittast aftur og fá ekki að njóta einstakr- ar nærveru hans og hlæja með honum. Gústi hafði frábæran húmor, alltaf stutt í gleðina og nú í seinni tíð þegar við höfum hist hef- ur aldeilis verið hlegið, rifjaðar upp gamlar minningar af mörgum glæstum sigrum, bæði innan og utan vallar. Minningar um ein- stakan mann munu lifa með okkur út lífið og munum við heiðra minn- ingu elsku Gústa með virðingu og þakklæti. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til Guðrúnar, Jönu, Júlíusar, Berglindar, fjöl- skyldu og vina Gústa. Hvíl í friði elsku vinur. Magnús Helgason. Ágúst vinur minn er fallinn frá eftir yfir þriggja ára baráttu við hinn illvíga MND-sjúkdóm. Ég hitti Gústa í fyrsta sinn þegar við vorum 16 ára á fyrsta ári í VMA á Akureyri. Það leið ekki langur tími þangað til vinátta tókst með okkur og hefur hún vaxið og dafn- að síðan. Gústi var dags daglega rólyndur en enginn var glaðlynd- ari en hann þegar skemmtun var annars vegar. Ég og vinir hans eigum ótal minningar um skemmtilegar stundir með Gústa og af og til rötuðum við í ævintýri saman. Gústi fæddist á Patreksfirði og ólst upp hjá Ásgerði móður sinni og Guðmundi stjúpföður sínum en hann var einnig mikið hjá afa sín- um og ömmu á Patreksfirði. Gústi byrjaði snemma að vinna í fiski á Patreksfirði og fór ungur að stunda sjóinn með skólanum. Gústi þurfti snemma að bera ábyrgð og mótaði það hans per- sónuleika, það styrkti hann. Gott fólk stóð að Gústa og skynjaði ég vel hversu vænt honum þótti um foreldra sína, afa sinn og ömmu og Patreksfjörð. Gústi flutti til Akureyrar þegar við vorum 15 ára. Gústi var fljótur að eignast vini á Akureyri og þekki ég fáa sem eiga jafnmarga vini og hann. Þegar ég hugsa til baka held ég að aðalástæðan fyrir því hve vinamargur hann var hafi verið áhugi hans á fólki og örlög- um þess. Gústi var jafnaðarmaður í hjarta og vildi ávallt aðstoða ef hann mögulega gat það. Ég og margir fleiri áttum eftir að njóta liðstyrks frá Gústa þegar erfið- leikar steðjuðu að. Gústi náði miklum árangri í því sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það var í viðskiptum, íþróttum, félagsstarfi eða þjálfun. Það lék allt í höndunum á honum og er nýjasta afrekið að byggja Tjarnavirkjun frammi í firði. Þeg- ar ég horfi til baka sé ég vel hversu þjálfun átti vel við hann. Hann vildi helst taka að sér þjálf- un ungra krakka og fylgja þeim eftir. Liðin hans Gústa voru auð- þekkjanleg; leikmenn hans voru grjótharðir inni á vellinum en á sama tíma mestu ljúflingar utan vallar. Gústi var vinnusamur og það féll nánast aldrei niður æfing, ef það gerðist var alltaf tekin aukaæfing og engar afsakanir. Liðin hans unnu öll verðlaun sem hægt var að vinna. Áhrif hans voru þó mun meiri en verður talið í titlum og bikurum. Hann vildi hafa jákvæð áhrif á strákana sína og ég veit að strákarnir hans fengu gott veganesti út í lífið frá Gústa. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með Gústa og fjöl- skyldu hans síðustu árin. Þau hafa staðið þétt saman og það veitti Gústa styrk til að takast á við hinn illvíga sjúkdóm. Eins hefur verið gaman að sjá hversu mikið vinátta Gústa við vini hans hefur styrkst og vil ég þar sérstaklega nefna vináttu Heimis Guðlaugssonar og Gústa. Ásamt því að vera hægri hönd Gústa í byggingu Tjarna- virkjunar hefur hann staðið eins og klettur með Gústa í allri hans baráttu. Í dag er ég þakklátur fyr- ir vináttuna og allar yndislegu stundirnar sem ég átti með Gústa. Gústi var ávallt mikill fjölskyldu- maður, trúr og hugsaði vel um sitt fólk. Ég votta Guðrúnu, krökkun- um þeirra og foreldrum dýpstu samúð. Einar Pálmi Sigmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.