Morgunblaðið - 15.01.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 15.01.2021, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 ✝ Páll Árnasonfæddist 21. júlí 1945 í Vestmanna- eyjum. Hann lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 1. janúar 2021. Foreldrar hans voru Guðmunda Hermannía Jó- hannsdóttir, f. 14. júlí 1907, d. 18. mars 1973, og Árni Pálsson, f. 16. apríl 1903, d. 17. mars 1961. Páll var eina barn foreldra sinna. Eiginkona Páls var Guðný Harpa Kristinsdóttir, f. 21. jan- úar 1947, d. 29. mars 2018, dótt- ir hjónanna Huldu Ingibjargar Pétursdóttur, f. 7. júní 1917, d. 15. maí 1994, og Kristins Karls- sonar, f. 22. október 1919, d. 22. nóvember 1992. Sonur Páls og Guðnýjar er Guðmundur Árni, f. 29. júlí 1973, kona hans María Höbbý Sæmundsdóttir, f. 30. mars 1977. Börn þeirra eru Andri Páll, f. 23. mars 2001, Arnar Ási, f. 7. júní 2007, og Guðni Sigurður, f. 14. desember 2011. Fóstursonur Páls er Kristinn Karl Bjarnason, f. 9. mars 1966. Páll og Guðný Harpa bjuggu á Auðsstöðum við Brekastíg 15b í Vestmannaeyjum. Páll var bæði neta- gerðar- og múrarameistari og vann á fyrri tíð við netagerð en seinni tíð í múrverki. Páll greindist með parkinson- sjúkdóminn árið 1998 og með tímanum hætti hann að vinna. Eftir andlát Guðnýjar flutti Páll á Hraunbúðir. Útför Páls fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 15. janúar 2021, klukkan 13. Streymi á útför: https://www.landakirkja.is Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Palli Árna múrari var innan- girðingarmaður frá Vesturhús- um en lengst af bjó hann á Auðs- stöðum við Brekastíg. Palli var 15 ára þegar faðir hans lést og móðir hans þá sjúklingur og hann sendur í fóstur hjá móð- ursystur sinni á Vesturhúsum. Þar voru fyrir 16 börn og einn munnur í viðbót ekki málið frek- ar en að sex frændur deildu litlu herbergi og öllu varð að deila jafnt. Palli var vel af Guði gerð- ur, glæsimenni, hár á velli og dökkur á brún og brá. Hann var gæddur góðum hæfileikum sem hann ræktaði með sér af dugnaði sem hann var þekktur af til allra verka. Tónlistina fékk hann í vöggugjöf og spilaði eins og eng- ill á píanó og fáir Eyjamenn höfðu roð við honum við skák- borðið. Hann var glaðsinna prúðmenni og sögumaður góður. Sögustundirnar af Ása í bæ, samferðamönnum hans og snill- ingum sem voru vinir hans voru kostulegar stundir, mikið hlegið og vísum slegið fram á bæði borð eins og enginn væri morg- undagurinn og þar runnu stund- um saman dagur og nótt. Í slík- um veltingi naut skemmtileg röddin, hávær hláturinn og list- ræn líkamstjáning sín vel og hann hnippti hvað eftir annað fast í öxlina á mér og sagði, hef- ur þú heyrt þetta, hefur þú heyrt þetta? Palli var handlag- inn til allra verka, meistari í múr- og netagerð og sjómaður á trillunni sinni Árna Páls VE svo sjaldan féll honum verk úr hendi. Palli var líka snöggur til þegar einhver þurfti aðstoðar við og ef hann hefði metið lífsgæðin eingöngu eftir veraldlegum gæð- um hefðu fleiri fengið reikninga fyrir verkin sem hann vann en raun varð á. Hann var ríkari af hjálpsemi en peningum og nú á kveðjustund stendur góð- mennskan upp úr. Palli múrari var samt alltaf að. Sinnti neta- gerð hjá Ingólfi á vetrarvertíð- um, gerði út Árna Páls á sumrin og múraði inn á milli og það sem eftir var ársins. Það var samt alltaf tími til að taka eitt lag á pí- anóið, eina bröndótta skák við Stebba í Höfðanum og svo var hann svo andskoti skemmtilegur í góðra vina hópi. Það var áfall þegar hann greindist með park- inson 52 ára gamall sem reynd- ist honum erfiður förunautur. Það var mögnuð saga hvernig hann tókst á við veikindin. Ég og afastrákarnir okkar löbbuðum með honum á Hraunbúðir og þá kom sér vel reynslan að stíga ölduna á trillunni í kröppum sjó. Þegar verst lét var varla stætt. Og þótt ég héldi að hann væri að falla fyrir borð náði hann alltaf að stíga ölduna og við náðum inn í herbergið hans í kröppum dansi. Þar settist hann við píanó- ið og náði með erfiðismunum að fletta nótnabókinni. Þarna náðu hugur og hönd aftur sambandi og Palli sló hinn sanna hljóm og spilað eins og engill hvert lagið á fætur öðru. Ógleymanleg stund fyrir okkur peyjana. Magnað hvað tónlistin sló parkinson al- veg út meðan fingurnir snertu nótnaborðið. En lífstónninn þagnaði eftir 23 ára strögl við sjúkdóminn og Palli Árna hélt í sinn síðasta róður. Ég og afa- strákarnir okkar eigum góðar minningar um afa Palla á Auðs- stöðum. Hann var Eyjamaður af bestu gerð. Við Sigga vottum tengdasyni okkar Guðmundi Árna, Maríu Höbbý og strákunum, Kristni og fjölskyldunni samúð. Sigríður og Ásmundur Friðriksson. Við Palli vorum skólabræður í Vestmannaeyjum frá unga aldri. Það leiddi til þess að hann kom sem nemi í Netagerð Ingólfs á sjöunda áratugnum. Hann var að vinna í netagerð á þeim árum er mest var að gera, unnið daga og nætur þegar á þurfti að halda. Hann var einn af vöskum starfsmönnum Netagerðar Ing- ólfs árið 1973, þegar eldgos hófst á Heimaey. Í Hafnarfirði var þá sett upp útibú ásamt starfs- stöðvum í Grindavík og Þorláks- höfn, og fluttu Palli og Guðný, eiginkona hans, tímabundið til Hafnarfjarðar. Hann var dugn- aðarforkur og mikið hraust- menni. Palli hafði skemmtilegan húmor og var það gott þegar menn unnu langan vinnudag. Á áttunda áratugnum breytti Palli um starfsvettvang og lærði til múrara, og var afkastamikill eins og annars staðar til vinnu. Palli fór í trilluútgerð, hann var góður skákmaður og var fé- lagi í taflfélagi Vestmannaeyja. Hann spilaði á píanó og við vinnufélagar hans, sem unnum með honum á gostímabilinu í Eyjum 1973, nutum góðs af því, en þá bauð hann okkur heim til sín og spilaði ásamt vini sínum, Alfreð heitnum Washington, lagahöfundi og píanóleikara, og var þetta ígildi góðra tónleika þessa kvöldstund. Palli glímdi lengi við parkin- sonsjúkdóminn, sem háði honum mjög. Með þessum fáu orðum vil ég minnast látins félaga og vottum við Jóna aðstandendum innilega samúð. Sigurður Ingi Ingólfsson. Látinn er í Vestmannaeyjum góður drengur, Páll Árnason eða Palli múr eins og hann var jafn- an kallaður í Eyjum. Páll var múrari og á þeim vettvangi var hann bæði fram- sýnn og öflugur. Rétt fyrir síð- ustu aldamót greindist hann með parkinson-veiki og barðist hetju- legri baráttu við sjúkdóminn í yfir tuttugu ár. Páll byrjaði sem unglingur í kringum 1960 að sækja æfingar í Taflfélaginu og kom á æfingar í upphafi með föður sínum, Árna Pálssyni. Næstu áratugina var Palli einn af traustustu fé- lagsmönnum og tók þátt í flest- um mótum og viðburðum í félag- inu. Á meðan ég sinnti for- mennsku í Taflfélagi Vest- mannaeyja fyrir rúmum áratug kom Páll jafnan á alla meiri háttar viðburði til þess að fylgj- ast með. Hann hafði óbilandi áhuga á skák og félaginu sínu, enda verið þar félagsmaður um áratugaskeið. Á þeim tíma var hann nánast hættur að taka þátt í mótum vegna sjúkdóms síns, en gaman var að sjá og frétta af því að á síðustu þremur skák- þingum, 2018 til 2020, tók hann þátt og stóð sig mjög vel þrátt fyrir erfið veikindi. Fyrir rúmu ári hitti ég Pál á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þar sem hann dvaldi síðustu ár- in. Páll vildi strax taka skák og auðvitað varð úr heljarinnar rimma við skákborðið. Í þeirri skák sýndi Palli sínar bestu hlið- ar sem skákmaður, sókndjarfur og fylginn sér. Páll hafði þennan skákstíl að leita nýrra leiða og lék þá stundum óvenjulega leiki, sem komu mótherjanum á óvart. Þessi skákstíll setti þá stöðuna í slíkt uppnám að engin leið var að sjá úrslitin fyrir og það gat Páll oft og tíðum nýtt sér. Fyrir hönd Taflfélags Vest- mannaeyja vil ég þakka Páli samfylgdina og tryggðina sem hann ætíð sýndi félaginu og sendi fjölskyldu hans, ættingjum og öðrum ástvinum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Karl Gauti Hjaltason. Páll Árnason ✝ Magnús Þor-geirsson fædd- ist að Víðidalsá í Steingrímsfirði 27. ágúst 1932. Hann lést 8. janúar 2021. Hann var fyrsta barna foreldra sinna þeirra Þor- geirs Sigurðssonar og Kristbjargar Pálsdóttur. Systkini Magnúsar eru þau Ingimar Þorgeirsson, búsettur í Oregon í Bandaríkjunum, Erla Þorgeirsdóttir (lést árið 2017), Páll Þorgeirsson og Ágúst Þor- geirsson. Sex ára gamall flutti hann með foreldrum og systkinum til sinni hús í Espilundi 7 í Garðabæ og bjuggu þar alla tíð síðan. Börn þeirra eru Emma Björg Magnúsdóttir sem er gift Gunn- laugi Gunnarssyni, Páll Þór Magnússon sem er giftur Gabrí- elu Kristjánsdóttur og Brynjar Már Magnússon. Börn Emmu og Gunnlaugs eru Magnús Gunnar Gunnlaugsson og Bergþóra Mar- got Gunnarsdóttir. Börn Páls og Gabríelu eru Jóakim Páll Páls- son, Margét Helga Pálsdóttir, El- ísabet Emma Pálsdóttir og Krist- jana Ósk Pálsdóttir. Sonur Jóakims Páls og Láru Maríu Karlsdóttur er Kristján Ernest Jóakimsson. Magnús var alla tíð mikill fjöl- skyldumaður. Þrátt fyrir að hafa flutt frá Hólmavík á þrítugsaldri var Magnús alla tíð mikill Strandamaður í hjarta sínu. Því meir sem árin liðu. Magnús dvaldi á hjúkr- unarheimilinu Ísafold síðustu þrjú árin. Hólmavíkur. Hann lærði hús- gagnasmíði við Iðn- skólann á Akureyri. Að námi loknu starfaði hann á smíðaverkstæði föð- ur síns á Hólmavík þar til hann fluttist til Reykjavíkur og starfaði um árabil hjá Nývirki. Síðar settu þeir feðgar á fót smíðaverkstæði í Goðatúni í Garðabæ. Síðustu árin starfaði hann hjá Olíufélaginu. Magnús giftist Margot Häus- ler árið 1964. Hún er dóttir Paul og Emmu Häusler. Magnús og Margot byggðu sér og fjölskyldu Maggi bróðir fæddist á Víði- dalsá og var níu árum eldri en ég. Pabbi byggði húsið Snæfell á Hólmavík og þangað flutti svo fjölskyldan. Ég man ekki eftir þeim ólánsviðburði þegar Maggi fékk lömunarveikina og lamaðist það mikið að hann gat ekki gengið. Fljótlega var Maggi sendur til Reykjavíkur á Farsóttarsjúkrahúsið sem rekið var undir stjórn Maríu Maack, sem reyndist Magga mjög vel og talaði hann af miklum hlý- hug og virðingu um hana. Ég man fyrst eftir Magga þegar hann kom heim eftir langa dvöl á Farsótt og þá með tvær hækj- ur. Þrátt fyrir allt var Maggi alltaf í góðu skapi, sem ég er viss um að hefur hjálpað honum allt lífið. Maggi fór svo í Iðn- skólann á Akureyri til að læra bóklega þáttinn við trésmíða- námið. Eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur lauk hann því námi með miklum sóma. Mestan hluta dvalarinnar var hann hjá systur mömmu, Þor- björgu, alltaf kölluð Obba, og Skúla eiginmanni hennar. Oft talaði Maggi um það hve vel þau reyndust honum, sannir vinir og velgjörðarfólk. Að námi loknu kom Maggi svo til Hólmavíkur og fór að vinna með pabba. Maggi var barngóð- ur og komu krakkar oft á verk- stæðið til að fá spýtur o.fl. Maggi hafði gaman af þessum heimsóknum og krakkarnir kölluðu hann góða manninn á verkstæðinu. Þrátt fyrir veru- legan bata gat Maggi ekki eins og við hin hlaupið út um víðan völl, þá hjálpaði góða skapið. Árið 1955 urðu góð þáttaskil en þá eignast Maggi sinn fyrsta bíl. Nýjan Opel Caravan. Þetta breytti lífi hans mikið. Síðan flutti Maggi til Reykjavíkur og fór að vinna á Trésmíðaverk- stæðinu Nývirki. Þar áttuðu menn sig fljótt á því hve góður smiður hann var. Á þessum tíma fluttu pabbi og mamma suður, pabbi byggði hús og verkstæði í Garðabæ og þar fóru þeir feðgar seinna að vinna saman aftur. Maggi gerði fleira á þessum tíma og það var okk- ur öllum mikið gleðiefni þegar hann og Margot ákváðu að rugla saman reytum. Þar mætt- ust úrvalsmaður og úrvalskona sem eignuðust úrvalsfjölskyldu í húsi sem þau byggðu sér í Espilundi í Garðabæ. Emma, móðir Margotar, var með þeim alla tíð, einstök úrvalskona, sem gerði allt gott enn betra. Við Stína nutum oft góðrar aðstoð- ar Magga við okkar húsnæði. Hann vildi alltaf allt fyrir alla gera. Hér í lokin er smá gam- ansaga af Magga. Hann hafði gaman af vísum og gerði nokkr- ar sjálfur þar sem hann sneiddi fagmannlega fram hjá stuðlum og höfuðstöfum og og kallaði það B stíl. Án þess að hann hefði hugmynd um þá voru sum þessara B stíls kvæða býsna góð. Eitt kvæðið lærði ég og fór með fyrir þekktan bókmennta- fræðing. Ég spurði hvort hann vissi hver hefði ort og svarið var: Ef ég þekkti ekki Stein Steinarr út í hörgul myndi ég segja að þetta væri hann. Nei, ég þekki ekki höfundinn, sagði hann. Mér er til efs að nokkrum öðrum af allmörgum hagyrðing- um í minni ætti hafi nokkru sinni hlotnast sá heiður að vera líkt við Stein Steinarr. Með mikilli þökk og virðingu kveðj- um við kæran bróður minn. Elsku Margot, börn og fjöl- skyldur, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Páll Þorgeirsson og fjölskylda. Mig langar að minnast föð- urbróður míns, Magnúsar Þor- geirssonar, í nokkrum orðum. Hann var í mínum huga alltaf Maggi frændi en hann var ekki bara frændi minn heldur varð ég þess heiðurs aðnjótandi að kynnast honum einnig sem vinnufélaga og vini á mínum unglingsárum á bensínstöð Esso í Lækjargötu í Hafnar- firði. Maggi frændi var bros- mildur maður, hann vildi alltaf hafa gaman og grínast, átti það til að bulla og hlæja hátt. Hann var hrókur alls fagnaðar í vinnunni og smitaði svo sann- arlega gleðinni út frá sér. Á bensínstöðinni í Lækjargötu kynntist ég líka ástinni, eigin- manni mínum Hafsteini, en þeir Maggi unnu saman á bensín- stöðinni og voru miklir vinir þrátt fyrir mikinn aldursmun. Þeir höfðu komið sér upp bull- máli um orð og athafnir sem enginn skildi nema þeir, því sumt var ekki rætt fyrir framan viðskiptavininn. Eitt orð skildu þó allir starfsmennirnir, ef Maggi frændi þurfti að skreppa á salernið sagði hann „Disede- labe“ og þá vissum við að ein- hver þurfti að leysa af á kass- anum. Þetta var miklu virðulegra og smekklegra svona innan um fólk. Sem barn minnist ég Magga frænda á trésmíðaverkstæðinu hjá afa í Garðabænum. Góður og hjartahlýr frændi sem vildi alltaf koss á kinnina. Við Haf- steinn minnumst Magga með miklum hlýhug og þakklæti sem kærs vinar og frænda. Við sendum Margot, Emmu, Palla og Brynjari og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðj- ur. Kristbjörg Ágústsdóttir. Elsku Maggi minn, eða afi eins og ég kallaði þig svo oft því þú ert afi barnanna minna. Minningarnar streyma um góðan og yndislegan mann. Það var alltaf hægt að leita til þín þar sem þú gafst manni alltaf góð ráð um lífið, tilveruna eða jafnvel veðrið. Við vorum alltaf miklir vinir og ég minnist stundanna í bílskúrnum í Espil- undi. Við áttum það sameig- inlegt að vera berdreymin og áttum við margar góðar sam- ræður um drauma okkar. Þú varst alltaf sannspár um fæð- ingardaga og kyn barna okkar Palla og barnabarna en mér hefur alltaf þótt það magnað. Við áttum einstakt samband og þú kenndir mér svo margt. Þú kenndir mér að gefast aldrei upp, halda áfram veginn og gera mitt besta. Mér þótti gam- an að fylgjast með ykkur hjón- um, hvað þið voruð hamingju- söm og góð við hvort annað. Þú elskaðir fjölskylduna þína og þér þótti fátt betra en að vera heima í faðmi hennar. Við ferðuðumst saman til Þýska- lands í einu ferð þína utan og er sú ferð mér svo minnisstæð. Við skoðuðum heimaslóðir eig- inkonu þinnar og talaðir þú mikið um hvað þú naust þess að sjá erlenda grundu. Fleiri voru utanlandsferðirnar ekki, því eins og þú sagðir - nei takk, heima er best. Hólmavík var þinn bær og elskaðir þú að segja sögur frá uppvexti þínum og þínu fólki, enda sannur Strandamaður. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér fyrir rúmum 30 ár- um og hlýja ég mér við allar þær dýrmætu minningar sem við áttum saman. Guð geymi þig elsku Maggi minn, við hitt- umst í draumalandinu. Hvíl í friði Þín, Gabríela. Elsku afi Maggi okkar. Okk- ur langar að þakka þér fyrir allar stundirnar sem við feng- um með þér. Við erum svo þakklátar fyrir allar samræð- urnar sem við áttum og nú hlýj- um við okkur við þær minn- ingar. Það var alltaf stutt í grínið og þegar við hugsum um minningarnar er fátt annað hægt en að brosa. Okkur þótti alltaf gaman að sjá hvað þú tal- aðir fallega til ömmu og sást það svo greinilega hvað þú elsk- aðir hana mikið. Þú kenndir okkur að taka lífið ekki of al- varlega og höfum við alla tíð dáðst að jákvæðni þinni. Þú varst svo stoltur af afa- hlutverkinu og minntir okkur á það í hvert skipti sem við hitt- umst. Við vorum stjörnurnar þínar eins og þú sagðir alltaf, og munum alltaf vera. Við erum þakklátar fyrir að hafa getað kvatt þig og sagt þér hvað okk- ur þykir vænt um þig. Guð geymi þig elsku besti afi, þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar. Takk fyrir allt, sjáumst seinna. Trítlurnar þínar þrjár, Margrét Helga, Elísabet Emma og Kristjana Ósk. Magnús Þorgeirsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, HLYNUR HRAFN ÞORKELSSON verkfræðingur, lést 10. janúar á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Jarðarför verður auglýst síðar. Inga Rós Júlíusdóttir Katrín Edda Andrea Rán Freyja Seselía Helga Hauksdóttir Þorkell Jónsson Snæfríður Íris Kjartansdóttir Júlíus Helgi Jónsson Haraldur Haukur Þorkelsson Sigrún Jenný Barðadóttir Egill Gauti Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.