Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 27

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 ✝ Guðrún Ólafs-dóttir var fædd á Helganesi í Strandasýslu 27. október 1941. Hún lést á Heilbrigð- istofnun Vest- urlands á Akranesi 5. janúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Jó- hannsson, sjómaður og verkamaður í Reykjavík, f. 15.10. 1908, d. 10.10. 1964, og fyrri kona hans, Kristjana Halldórsdóttir, f. 24.10. 1905, d. 9.2. 1982. Þau slitu samvistir. Alsystkini: Halldór Tryggvi, f. 20.1. 1932, látinn. Benjamín, f. 13.1. 1934, látinn. Lúðvík, f. 31.10. 1937. Magndís, f. 7.5. 1939, látin. Jóhann Karl, f. 2.9. 1940. Guðlaug, f. 9.10. 1943. Seinni kona Ólafs var Oddlaug Valdimarsdóttir. Börn þeirra: Halldóra, f. 20.4. 1948. Alda Jóna Ósk, f. 29.8. 1952. Ragnheiður, f. 15.2. 1955. Hálfsystkini Guðrúnar, sam- mæðra: Halldór Sveinsson, f. 19.8. 1929. Hann dó á 1. ári. Matt- hildur Sveinsdóttir, f. 19.8. 1929. Rún, f. 9.12. 1993, maki Stefán Arnórsson, f. 20.7. 1987. Þeirra sonur er Alex Mikael, f. 21.12. 2018. 2. Ólafur Skúli, f. 25.7. 1969. Ókvæntur. 3. Svanur Þór, f. 6.1. 1977. Eiginkona hans er Svava Ólafs- dóttir, f. 6.12. 1978. Þeirra börn: Stefán Máni, f. 27.5. 2008, og Guðrún Halla, f. 4.3. 2013. Dóttir Svans er Emilía Sól, f. 21.8. 2005. Sonur Svövu er Ólafur Tryggvi Egilsson, f. 20.1. 2002. 4. Lýður Óskar, f. 31.1. 1980. Sonur hans er Hólmar Ingi, f. 8.5. 2004. Skólaganga Guðrúnar var að þeirrar tíðar hætti í Bjarnarfirði. Hún fór síðar í Kvennaskólann á Blönduósi. Þar eignaðist hún tryggar vinkonur og átti góðar minningar um dvölina. Útför Guðrúnar verður gerð frá Akraneskirkju 15. janúar 2021, kl. 13. Jarðsett verður í Prestbakkakirkjugarði í Hrúta- firði sama dag. Í ljósi aðstæðna geta aðeins fjölskylda og boðsgestir verið viðstödd athöfnina, en henni verður streymt á https://akraneskirkja.is Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Látin. Hálfbróðir, samfeðra: Snjólfur Fanndal, f. 4.5. 1940. Uppeldisfor- eldrar hennar voru hjónin Ingimundur Ingimundarson, f. 30.3. 1911, d. 22.7. 2000, og Ingibjörg Sigvaldadóttir, f. 20.10. 1912, d. 15.5. 2011, bændur á Svanshóli í Bjarnarfirði, þar sem hún ólst upp með sonum þeirra, en þeir eru: Sigvaldi, f. 29.1. 1944. Látinn. Ingimundur, f. 29.1. 1944. Pétur, f. 2.5. 1946, Svanur, f. 7.7. 1948. Ólafur, f. 3.12. 1951. Eftirlifandi eiginmaður Guð- rúnar er Björgvin Skúlason bóndi, f. 11. nóvember 1940. Þau gengu í hjónaband 21. ágúst 1966 og bjuggu alla tíð að Ljót- unnarstöðum í Hrútafirði. Börn þeirra eru: 1. Þuríður Ósk, f. 11.4. 1966. Hennar maður er Ólafur Magn- ússon, f. 17.8. 1969. Börn þeirra: Björgvin Freyr, f. 19.10. 1991, maki Magdalena Bogadóttir, f. 7.8. 1993. Þeirra sonur er Benja- mín Leó, f. 30.7. 2017. Sigríður Leiðir okkar Guðrúnar tengdamömmu lágu saman fyrir 30 árum, þegar ég kom á Ljót- unnarstaði með dóttur hennar, henni Þurý eins og hún vildi láta kalla hana. Það átti aldeilis að hreyfa við borgarbarninu úr Reykjavík þegar tilvonandi tengdamóðir mín slengdi soðnum sviðahausum á eldhúsborðið fyrir framan mig og sagði gjörðu svo vel. Hún vissi ekki að þetta væri einn af mínum uppáhaldsmat, og drengurinn borðaði meira að segja augun. Þetta kom henni virkilega á óvart. Guðrún var beinskeytt og ákveðin kona og lá ekki á skoð- unum sínum, ef henni líkaði ekki eitthvað, þá fékk maður að heyra það vöflulaust. Guðrún kenndi mér að gera kjötsúpu, en hún var fræg um allar sveitir fyrir góða kjötsúpu. Hún kenndi mér líka að gera rjómatertu en það var þá alvöru- hnallþóra með miklum rjóma á tveimur hæðum. Guðrún hafði alltaf áhyggjur af því að ég væri of grannur og hafði oft orð á því. Guðrún var alltaf dugleg að hafa samband við fólkið sitt og notaði símann óspart til þess. Guðrún kom líka oft til Reykjavíkur að heimsækja okkur og gisti þá alltaf hjá okkur hjónum, Þá var ég allt- af sjálfkjörinn einkabílstjóri fyrir hana og fór með hana og Björgvin tengdapabba um allan bæ að heimsækja fólkið sitt, en hún átti mörg skyldmenni og góða vini sem varð að kíkja á. Guðrún var mikill dýravinur og hafði sérstak- legan áhuga á golsóttum kindum. Hún sagði oft að við Þurý yrðum góðir bændur og vildi alltaf að við flyttum í sveitina. Með klökkum huga þig ég kveð, ég þakka allt sem liðið er, Guð okkur verndi og blessi. Það er sárt að kveðjast við dauðans dyr. En svona er lífið og dauðinn ei spyr, hvort finnist oss rétti tíminn til, dauðinn hann engum sleppir. (Ingimar Guðmundsson) Minningin lifir um góða konu og minnir okkur á að lífið er núna. Þinn tengdasonur, Ólafur Magnússon. Hún amma mín var með mjög sterkan persónuleika, hún átti auðvelt með að vingast hinum og þessum úr sveitinni. Það þótti mjög vandræðalegt þegar ég var yngri þegar hún tók utan um mann og annan og kyssti. Hún var full af lífsorku sem hún deildi með öðrum en hún var snögg til að hvæsa á fólk ef henni líkað ekki vel við það! Hún amma átti alltaf til pönnukökur þegar ég kom í heimsókn og hún var snögg í að búa þær til ef ég bað um þær. Hún kallaði mig alltaf prinsinn sinn og ömmu verður sárt sakn- að. Ömmubarnið (prinsinn), Björgvin Freyr Ólafsson. Í minni æsku byrjaði sumarið ekki almennilega fyrr en ég var kominn upp í sveit til ömmu og afa. Þar fékk borgarbarnið að kynnast töfrum náttúrunnar og að læra hvernig maður og dýr lifa saman í þeirri náttúruperlu sem Hrútafjörður er. Amma var ótæmandi visku- brunnur fullur af lífsleikni og fékk maður kennslustund hvort sem maður vildi það eða ekki. Því amma var ákveðnasta kona sem ég hef hitt á minni lífsleið, en á sama tíma svo blíð og góð. Hún kenndi mér að standa á mínu, faðma fast og lengi og sagði mér ótal sögur úr sinni æsku sem hreyfðu mikið við mér. Næsta afmæli eða stórvið- burður í mínu lífi verður þung- bær því að símtalið frá henni ömmu mun ekki koma í þetta skiptið. Hún gleymdi manni nefnilega aldrei. Ég var fyrsta stúlkubarnabarnið hennar og kallaði hún mig alltaf prinsessuna sína. Amma mín var engum lík enda kallar þessi tilvera okkar á fólk sem sker sig úr svo að við getum horft á lífið í allri sinni litadýrð, annars er bara allt svarthvítt. Þegar ég átti erfitt með svefn í sveitinni hjá ömmu söng hún allt- af fyrir mig sömu vísuna og geri ég það ennþá fyrir mitt barn. Sofðu, unga ástin mín, – úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. (Jóhann Sigurjónsson) Ég elska þig, amma mín, hvíldu í friði. PS. Ég verð alltaf prinsessan þín. Þín Sigríður Rún Ólafsdóttir. Í dag er til moldar borin Guð- munda Guðrún Ólafsdóttir, upp- eldissystir okkar Svanshóls- bræðra. Hún var næstyngst sjö barna Kristjönu Halldórsdóttur og Ólafs Jóhannssonar frá Bakka. En Kristjana og faðir minn voru bræðrabörn. Foreldr- ar Gunnu, eins og hún var alltaf kölluð, slitu samvistir. Móður- amma hennar Þorbjörg Krist- jánsdóttir og Svanfríður Þórunn, Dóda, móðursystir hennar bú- settar á Svanshóli tóku hana í fóstur. Eftir að Þorbjörg dó árið 1953 tóku foreldar mínir við hlutverki hennar. Þegar hún var tveggja ára veiktist hún af heilahimnu- bólgu og bar hún þess merki alla tíð. Gunna var glaðvær og frænd- rækin og hringdi í eða heimsótti ættingja sína vítt um land. Hún hafði gaman af tónlist sem ung- lingur. Hún kynntist tilvonandi eigin- manni sínum Björgvin Skúlasyni á dansleikjum í Strandasýslu. Þau giftu sig 21. ágúst 1966 og hófu búskap á Ljótunnarstöðum í Bæjarhreppi. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn. Fyrir hönd okkar bræðra vil ég þakka kynningu í æsku og frændsemi við okkur og afkomendur okkar. Björgvin og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveður og bið góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Valdimar Briem) Ingimundur Ingimundarson Í dag er borin til hinstu hvílu skólasystir okkar Guðrún Ólafs- dóttir. Það var fallegan haustdag í byrjun október árið 1963 að stór hópur af föngulegum stúlkum mætti í Kvennaskólann á Blöndu- ósi til vetursetu. Þær komu úr flestum sýslum landsins, en hóp- urinn úr Húnavatnssýslu var með mesta móti í þetta sinn. Guðrún kom úr Strandasýslu og eftir 8 mán- aða samvistir í heimavistarskóla voru allar orðnar vel kunnugar. Guðrún eða Gunna eins og hún var alltaf kölluð eignaðist þarna nokkrar góðar vinkonur og hélst sú vinátta alla tíð. Gunna elskaði fjölskyldu sína og börnin og barnabörnin áttu stóran sess í hennar hjarta. Hún var tryggur vinur vina sinna og hafði gaman af að glettast og gat stundum ver- ið svolítið stríðin. Gunna hafði gaman af að sauma út í púða og eins var hún lagin við að mála myndir eftir númerum. Heilsu hennar hafði hrakað undanfarið ár og kvaddi hún þennan heim að kvöldi 5. janúar. Við kveðjum hana með þessum fallegu erind- um og sendum Björgvini og fjöl- skyldu okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Minning um vináttu Á vængjum hugans virði fyrir mér þá vináttu sem áttum við með þér, og árin þutu framhjá eitt og eitt þá aldrei fannst mér breytast myndi neitt. Að ylja sér við yndislega stund er endurminning kær um okkar fund, nú hlýjar kveðjur allt um heimsins torg frá hjartanu við sendum þér í sorg. Við minnumst þín og munum alla tíð og minningin er trygglynd, heil og blíð. Á vængjum hugans virði fyrir mér þá vináttu sem áttum við með þér. (Jóhanna Helga Halldórsdóttir) Fyrir hönd Kvennaskóla- systra, Sigurlaug. Guðrún Ólafsdóttir HINSTA KVEÐJA Ég sendi öllum nákomn- um Guðrúnu Ólafsdóttur mínar dýpstu samúðar- kveðjur á þessum erfiðu tímum. Þakka ég þó fyrir að hafa fengið að kynnast henni og að hún hafi hitt og kynnst langaömmubarninu sínu, honum Alex Mikael. Samúðarkveðjur frá okkur feðgum. Stefán Arnórsson, Alex Mikael Stefánsson. ✝ Haukur Ár-sælsson fædd- ist í Vestmanna- eyjum 1. október 1930. Hann lést á Droplaugarstöðum 7. janúar 2021. Foreldrar hans voru hjónin Ársæll Halldórsson, sjó- maður og bóndi, f. 1884 og Sigrún Runólfsdóttir, hús- móðir og verkakona, f. 1891. Haukur var einbirni. Eiginkona Hauks var Ólöf Þorleifsdóttir, f. 15. nóvember 1930, d. 11. febrúar 1994. Þau giftust 19. maí 1951. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Val- entínusdóttir, f. 1908, og Þor- leifur Gíslason, f. 1904. Synir Hauks og Ólafar eru: 1) Gísli Kristinn, f. 1951, maki vinnuleit. Hann lærði rafvirkjun í Iðnskólanum á samningi hjá Ólafi Jensen rafvirkjameistara. Eftir nokkur ár við rafvirkjun hóf Haukur störf sem sölumað- ur og sölustjóri húsgagna, fyrst hjá húsgagnaversluninni Skeif- unni og síðar BÁ húsgögnum. Á þeim árum hóf hann jafnframt að byggja yfir ört stækkandi fjölskyldu í Hrauntungu 81 í Kópavogi. Seint á sjötta ára- tugnum sneri Haukur aftur í rafiðnina og réðst til starfa sem rafmagnseftirlitsmaður hjá Raf- magnseftirliti ríkisins, sem síðar rann inn í Löggildingarstofu. Þar starfaði hann til 74 ára ald- urs. Síðustu árin bjó Haukur í Furugrund 76 í Kópavogi. Útför Hauks verður gerð frá Kópavogskirkju 15. janúar kl. 13 og verður henni streymt á vefslóðinni: https://beint.is/streymi/haukura Virkan hlekk á slóð má finna á: https://www.mbl.is/andlat Hrafnhildur Snorradóttir. Börn þeirra eru Kristín Berglind, Þorleifur og Snorri. Barna- börn eru átta tals- ins. 2) Ólafur Val- týr, f. 1953, maki Sigurlaug Þ. Braga- dóttir. Dætur þeirra eru Tinna og Hild- ur. 3) Ársæll, f. 1954, maki Helga Haraldsdóttir. Synir þeirra eru Haraldur og Haukur. Barna- börn eru átta talsins. 4) Þorleif- ur, f. 1957. 5) Jóhann Grímur, f. 1959, maki Björk Ásgeirsdóttir. Synir þeirra eru Ásgeir og Jó- hann Ari, barnabarn eitt. Haukur var með foreldrum sínum á Heiðarbrún og Árbæj- arhjáleigu í Holtum og fór til Reykjavíkur 17 ára gamall í at- Haukur Ársælsson er fallinn frá eftir að hafa verið aufúsugest- ur á hótel jörð í rúma níu áratugi. Haukur var giftur Ólöfu Þorleifs- dóttur, sem féll frá langt fyrir aldur fram. Móðir hennar Kristín og móðir okkar bræðra, Krist- björg, voru systur. Dagsdaglega gengu þær yfirleitt undir nöfn- unum Bía og Budda frænka. Þau Haukur og Ólöf eignuðust fimm myndarlega stráka, þá Gísla Kristin, Ólaf Valtý, Ársæl, Þorleif og Jóhann Grím. Við bræðurnir fjórir úr Grundargerði tókum þeim fagnandi og urðu samverustundir fjölskyldnanna margar á heimilunum. Tilhlökk- unin var ávallt mikil þegar heim- sækja átti þau Hauk og Ólöfu og hitta bræðurna fimm. Oftast voru Bía frænka og hennar maður, Þorleifur Gíslason, nálæg við þær heimsóknir. Haukur lærði rafvirkjun og fór á samning hjá föður okkar, Ólafi Pétri Jensen rafvirkjameistara, í október 1954 og vann hjá honum í nokkur ár. Áratugum seinna lærði Jó- hann Grímur rafvirkjun og bætt- ist þá við föngulegan hóp raf- virkja, því áður höfðu Edvard Pétur Jensen, afi okkar, og bræð- urnir Eddi og Halldór numið raf- virkjun. Innan þessarar tiltölu- legu litlu ættar var nú hægt að telja saman hóp sex rafvirkja frá upphafi, þar af fimm samtíma. Það skal því ekki undra, þegar Haukur sá í hvað stefndi, að hann ákvað að verja drýgstum hluta starfsævinnar í að starfa sem eft- irlitsmaður með rafmagnsöryggi. Fyrst hjá Rafmagnseftirliti rík- isins og seinna hjá Löggildingar- stofu. Hann var enda góður fag- maður og veitti öflugt og verðugt aðhald með rafmagnsöryggi í okkar landi á sínum langa og far- sæla starfstíma. Við minnumst Hauks ekki síst fyrir hans einstaka jafnaðargeð og hversu sáttur hann var við lífið og tilveruna. Eftirfarandi heil- ræði úr kínverskri speki lýsir því vel hvernig hann var: „Þeir, sem sækjast eftir frægð, hafna því, sem meira er um vert. Mikil ágirnd veldur miklu tjóni. Sá, sem er ánægður, hefur ekk- ert, sem hann getur glatað. Sá þarf ekki að óttast vanvirðu, sem kann að stilla í hóf. Hann er ekki í neinni hættu og lifir lengi.“ (Úr Bókinni um veginn, Lao- Tse) Við bræður vottum sonum Hauks, tengdadætrum, barna- börnum og börnum þeirra inni- lega samúð. Um leið þökkum við Hauki fyrir samveru, vinskap, léttleika og leiðsögn allan þann tíma sem hann var til staðar. Edvard Pétur, Ólafur Valur, Halldór og Sveinn Valdimar Ólafssynir. Haukur Ársælsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, HEIÐAR ÁRNASON, Southport, Englandi, lést þriðjudaginn 12. janúar á sjúkrahúsinu í Southport, Englandi. Minningarathöfn auglýst síðar. Ouza Kwanashie Helena Rún Heiðarsdóttir Lucas Árni Heiðarsson Árni Ragnarsson Ásrún Guðmundsdóttir Laufey Árnadóttir Kristinn Harðarson Ingvar Árnason Sigríður Anna Ólafsdóttir Gauti Árnason Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, ÞÓRÐUR HAUKUR ÁSGEIRSSON, Árbraut 10, Blönduósi, lést á krabbameinsdeild Landspítalans 10. janúar. Útför auglýst síðar. Þorbjörg Kristín Jónsdóttir Ásgeir Hauksson Þorbjörg Sveinsdóttir Þórdís Hauksdóttir Gunnar Tryggvi Halldórsson Guðrún E. Hartmannsdóttir Alexander Freyr Tamimi Stefán Haukur Ásgeirsson Halldór Smári Gunnarsson Torfi Sveinn Ásgeirsson Elísabet Kristín Gunnarsdóttir Skírnir Eldjárn Gunnarsson Haukur Eldjárn Gunnarsson Hulda Ásgeirsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og fyrrverandi eiginmaður, JAKOB KRISTÓFER HELGASON frá Patreksfirði, lést á Landspítalanum í Reykjavík 27. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helgi Kr. Jakobsson Guðrún Jóna Guðbjartsdóttir María Jakobsdóttir Vilhjálmur G. Vilhjálmsson Lára Jakobsdóttir Kristján H. Kristjánsson Íris Jakobsdóttir Sigurður Gröndal Fjóla Guðbjartsdóttir barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.