Morgunblaðið - 15.01.2021, Síða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heilsa& útivist
–– Meira fyrir lesendur
Nú er tíminn til að huga að betri
heilsu og bættum lífstíl.
Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem
stefn
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir þriðjudaginn 26. janúar.
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. janúar
SÉRBLAÐ
60 ára Sigrún er frá
Reyðarfirði en býr í
Hafnarfirði. Hún er
upplýsingafræðingur
og MA í hagnýtri
menningarmiðlun frá
HÍ og er forstöðu-
maður Bókasafns
Hafnarfjarðar.
Maki: Ívar Andrason, f. 1962, flugvirki.
Börn: Anna María, f. 1980, og Saga Ýr, f.
1994. Stjúpsonur er Andri Valur, f. 1980.
Barnabörn eru Ylfa Vár og Stormur
Bragi, börn Önnu Maríu.
Foreldrar: Guðni Arthúrsson, f. 1937,
húsasmiður, bús. á Reyðarfirði, og Hall-
gerður Pálsdóttir, f. 1943, d. 1993, hús-
móðir.
Sigrún Guðnadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur legið í dvala svo nú er kom-
ið að því að láta hendur standa fram úr erm-
um. Varastu að taka allt trúanlegt sem þér er
sagt um aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Eigirðu við fjárhagserfiðleika að etja
leysirðu þá aðeins með því að setja þér
markmið og fylgja þeim eftir. Notaðu pen-
ingana skynsamlega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur þörf fyrir að ræða áhyggj-
ur þínar við einhvern. Ekki treysta loforðum
sem vinir þínir hafa gefið þér í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Stundum er betra að láta það vera
að segja öðrum hug sinn og leyfa þeim að
komast að niðurstöðu sjálfir. Þú þarft að
breyta því hvernig þú hugsar um tiltekið mál.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt sjálfsagt sé að taka hlutina alvar-
lega er óþarfi að vera svo stífur að geta ekki
brosað út í annað, þegar svo ber undir. Haltu
þínu striki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að hafa stjórn á skaps-
munum þínum, sérstaklega verður þú að
forðast að láta þín mál bitna á öðrum. Vertu
staðfastur og forðastu að falla í freistni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er algjörlega undir sjálfum þér kom-
ið hvort hamingjan er þér hliðholl eða ekki.
Búðu þig undir að hlutirnir fari öðruvísi en
áætlað er.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eitt og annað drífur á dagana
og það svo, að þér kann að finnast nóg um.
Hafðu andvara á þér því alltaf getur eitthvað
komið upp á og þá er gott að vera við öllu bú-
inn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér hættir til að vera óskipu-
lagður og gleyminn. Þér væri fyrir bestu að
gera lista yfir þau verk sem þú hefur
trassað.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugsanir eru til alls fyrstar og því
verðum við að gæta vel að hugsunum okkar.
Þú mátt ekki láta deigan síga, heldur sækja
fram af fullri djörfung til þess sem þú vilt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt leggja þig verulega fram
við það að fá vilja þínum framgengt í dag og
finnur fyrir miklum áhuga og eldmóði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Búðu þig undir miklar breytingar sem
dynja yfir innan skamms. Gættu þess að slá
ekki aðra út af laginu.
verið í nokkrum kórum, er enn í
Karlakórnum Stefni og geri stundum
texta fyrir hann. Æfingar í þeim kór
hafa farið fram í gegnum fjarfunda-
búnað (Zoom) undanfarnar vikur. Það
gengur misjafnlega, en lagaðist tals-
vert þegar söngstjórinn benti okkur á
að stilla tölvurnar okkar á „mute“.
Það var mikill léttir fyrir hana.
Ég stundaði frjálsar íþróttir á sín-
um tíma, aðallega hlaup. Mér gekk
úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmunds-
dóttur Wright.
Höskuldur hefur alltaf haft áhuga á
tónlist. „Ýmsir ágætir kennarar
reyndu að kenna mér að spila á píanó,
m.a. í Tónlistarskóla FÍH og Tón-
heimum. Takmarkaður árangur er
ekki þeim að kenna. Ég fékk nokkra
útrás fyrir þennan tónlistaráhuga í
ýmsum hljómsveitum á sínum tíma,
aðallega sem söngvari. Ég hef líka
H
öskuldur Þráinsson er
fæddur 15. janúar
1946 í Reykjavík en
uppalinn í Mývatns-
sveit. „Grunnskóla-
gangan var þægileg í upphafi af því að
við áttum alltaf heima í skólanum,
hvar sem hann var, og foreldrar mínir
kenndu þar.“
„Höskuldur fór í Héraðsskólann á
Laugum, tók landspróf þar og stúd-
entspróf frá MA 1966. Eftir BA-próf í
íslensku og sagnfræði frá HÍ 1969
kenndi hann í einn vetur við Kennara-
skólann en fór síðan til Kiel í Þýska-
landi, kenndi íslensku við háskólann
þar í tvö ár, stundaði nám í málvís-
indum og lauk fyrrihlutaprófi. Hann
lauk cand.mag.-prófi í íslenskri mál-
fræði frá HÍ 1974, en kenndi um tíma
við MH með námi. Síðan fór hann til
náms við Harvardháskóla í Banda-
ríkjunum og lauk doktorsprófi í mál-
vísindum 1979. Hann byrjaði þá að
kenna við HÍ, varð prófessor í ís-
lensku nútímamáli og gegndi því
starfi til 2016, að undanskildum fjór-
um árum (1991–1995) þegar hann var
í launalausu leyfi frá HÍ og var gisti-
prófessor við málvísindadeild Har-
vardháskóla.
„Ég hlýt að vera gefinn fyrir að
trana mér fram því að ég virðist alltaf
hafa þurft að vera að stjórna ein-
hverju,“ segir Höskuldur um fé-
lagsmálin. Hann var t.d. formaður
skólafélagsins á Laugum, formaður
skólafélags MA, formaður stúdenta-
ráðs HÍ, deildarforseti heimspeki-
deildar HÍ, stjórnarformaður Málvís-
indastofnunar HÍ, stjórnarformaður
Hugvísindastofnunar HÍ, formaður
Öldungaráðs Frjálsíþróttasambands-
ins og formaður Karlakórsins Stefnis.
„Nú er auðvitað orðin minni eftir-
spurn eftir svona framagosa.“
Höskuldur hefur aðallega fengist
við rannsóknir á íslensku, vestur-
íslensku og færeysku og hefur birt
greinar á íslensku og erlendum mál-
um, skrifað bækur, ritstýrt fræðibók-
um og tímaritum. Tvær málfræði-
bækur sem Höskuldur skrifaði voru
tilnefndar til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna á sínum tíma, hann hef-
ur fengið viðurkenningu háskólarekt-
ors fyrir rannsóknastörf og verðlaun
yfirleitt því betur sem hlaupin voru
styttri, en nú skokka ég lengra og
hægar. Á tímabili náði ég að tengja
íþróttaáhugann og tónlistaráhugann
saman. Það var í hljómsveitinni 4x100,
sem var líka boðhlaupssveit, eins og
nafnið bendir til.
Önnur tómstundastörf eru m.a.
fólgin í því að sinna æðarvarpi norður
á Skaga. Þar eigum við jörð í félagi við
frændfólk konunnar minnar og þang-
Höskuldur Þráinsson, prófessor emeritus – 75 ára
Í æðarvarpinu Höskuldur og Sigga með dætrum sínum, Guðrúnu Þuríði og Margrét Láru, og börnum þeirra.
Gefinn fyrir að trana sér fram
Hjónin Höskuldur og Sigga í skíðaferð í Seefeld í Austurríki 2017.
Afmælisbarnið Höskuldur merkir
æðarkollu í Ásbúðum á Skaga.
40 ára Benedetto ólst
upp í 101 og105
Reykjavík en býr á
Seltjarnarnesi. Hann
er lögmenntaður frá
Háskóla Íslands og er
lögmaður hjá fjárfest-
ingarfélaginu E3 ehf.
Maki: Elísabet Ingunn Einarsdóttir, f.
1979, framkvæmdastjóri hjá BBA //
Fjeldco.
Börn: Ester Brák, f. 2009, og Benedikt
Tino, f. 2014.
Foreldrar: Valur Tino Nardini, f. 1953,
veitingamaður á Veitingahúsinu Ítalíu, og
Ragnhildur Valsdóttir, f. 1955, vinnur á
frístundaheimili fyrir aldraða. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Benedetto Valur Nardini
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is