Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
„LÖGFRÆÐITEYMIÐ MITT GETUR SKÝRT
ÞETTA ALLT SAMAN ÚT.”
„ÉG HEF ALDREI HEYRT UM NEINN SEM
LÆRIR FYRIR SJÓNPRÓF.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að geta loksins
stundað hámhorf
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
ENN
EITT ANDLEGA
ÖRVANDI
SAMTALIÐ UM
TENNIS BOLTANN
MÁ ÉG SKREPPA FRÁ?
ÉG ÞARF AÐ FARA TIL
TANNLÆKNIS!
NEI, ÉG
MÁ EKKI
VIÐ ÞVÍ
AÐ NEINN
ANNAR
FARI
SNEMMA!
HVER ANNAR
FÓR SNEMMA? HANN LARS!
að förum við á hverju vori til að sinna
æðarvarpinu. Það er skemmtilegt
starf. Við erum líka byrjuð að merkja
kollurnar til að fylgjast betur með
þeim. Svo eigum við afdrep norður í
Mývatnssveit í félagi við systkini mín.
Það er ekki síðra en allt öðruvísi.“
Fjölskylda
Eiginkona Höskuldar er Sigríður
Magnúsdóttir, f. 11.8. 1946, dósent
emeritus og talmeinafræðingur. Þau
er búsett í Hjarðarlandi í Mosfellsbæ.
Foreldrar Sigríðar voru hjónin Magn-
ús Ásmundsson, f. 21.4. 1907, d. 26.4.
1970, verkstjóri og bifreiðarstjóri á
Siglufirði, og Guðrún Sigurhjartar-
dóttir, f. 28.10. 1915, d. 27.11. 1979,
húsmóðir og veitingakona á Siglufirði.
Börn Höskuldar og Sigríðar eru 1)
Steinar Höskuldsson, f. 28.6. 1969,
tónlistarupptökumaður í Los Angeles.
Maki: Georgiana Höskulds kvik-
myndagerðarkona. Fyrri maki: Leslie
Carole Ginsberg hjúkrunarfræð-
ingur. 2) Guðrún Þuríður Höskulds-
dóttir, f. 5.5. 1981, læknir í Gautaborg.
Maki: Einar Haukur Óskarsson,
golfvallarstjóri og verkstjóri. 3) Mar-
grét Lára Höskuldsdóttir, f. 14.4.
1985, kennari og umbrotshönnuður í
Mosfellsbæ. Sambýlismaður: Finnur
Freyr Stefánsson körfuboltaþjálfari.
Barnabörn eru Sidney Kier Hösk-
ulds, f. 1999, Sigríður Sóllilja Ein-
arsdóttir, f. 2010, Helga Margrét Ein-
arsdóttir, f. 2015, Elísa Guðrún
Finnsdóttir, f. 2016, og Höskuldur
Hrafn Finnsson, f. 2019.
Systkini Höskuldar: Stúlka Þráins-
dóttir, f. 26.5. 1950, d. 10.6. 1950;
Brynhildur Þráinsdóttir, f. 26.7. 1951,
d. 10.4. 2011, kennari í Torfunesi í
Kinn; Sólveig Þráinsdóttir, f. 5.3.
1953, sjúkraþjálfari í Reykjavík;
Steinþór Þráinsson, f. 4.10. 1954,
kennari og söngstjóri í Klettholti í
Mývatnssveit; Hjörtur Þráinsson, f.
26.6. 1963, jarðskjálftaverkfræðingur
í München.
Foreldrar Höskuldar voru hjónin
Þráinn Þórisson, f. 2.3. 1922, d. 23.7.
2005, skólastjóri á Skútustöðum í Mý-
vatnssveit, og Margrét Lárusdóttir, f.
20.7. 1924, d. 3.12. 2011, kennari og
húsmóðir á Skútustöðum.
Höskuldur
Þráinsson
Valgerður Gísladóttir
húsmóðir á Mosfelli
Magnús Þorsteinsson
prestur á Mosfelli í
Mosfellssveit
Kristín Magnúsdóttir
húsmóðir í Tröllagili í Mosfellssveit
Lárus Halldórsson
skólastjóri Brúarlandsskóla, bjó í Tröllagili
Margrét Lárusdóttir
húsmóðir og kennari á Skútustöðum
Vilborg Pálsdóttir
húsmóðir á Króksstöðum
Halldór Ólafsson
bóndi á Króksstöðum í Miðfirði
Sólveig Guðrún Pétursdóttir
húsmóðir í Baldursheimi
Sigurður Jónsson
bóndi í Baldursheimi
Þuríður Sigurðardóttir
húsmóðir í Baldursheimi
Þórir Torfason
bóndi í Baldursheimi í Mývatnssveit
Guðrún Snorradóttir
húsmóðir á Birningsstöðum
Torfi Sæmundsson
bóndi á Birningsstöðum í Laxárdal
Úr frændgarði Höskuldar Þráinssonar
Þráinn Þórisson
skólastjóri á Skútustöðum í Mývatnssveit
Á feisbók rifjar Indriði á Skjald-fönn upp gamla mannlýsingu
eftir Ríkarð Jónsson myndhöggv-
ara og segir að hún eigi enn við:
Refs er auga, refs er tönn,
refs er nef og glottið.
Þessi líking þykir sönn
þó hann vanti skottið.
Þetta kallar fram í hugann frá-
sögn af því, að í Blönduhlíð hafi bú-
ið karl nokkur afar ómannblendinn.
Í Blöndu segir frá því að Gísli Kon-
ráðsson var beðinn að yrkja til
minningar eftir hann en Gísli afsak-
aði sig með því að hann gæti ekkert
um karlinn sagt því að hann hefði
hvorki gert gott né illt af sér. Var
þá leitað til Hallgríms læknis Jóns-
sonar um eftirmælagerð. Hann
hafði frétt orð Gísla og kastaði þeg-
ar fram þessari eftirmælastöku:
Satt um manninn segja ber,
sjálfs af efnum bjó hann.
Engum gerði illt af sér
eða gott; svo dó hann.
Helgi R. Einarsson yrkir og kall-
ar „Bjartsýni“:
Allir nú brosa breitt
því brátt verður sólríkt og heitt.
Sælan mun ríkja
og raunirnar víkja
2021.
Hér eru „Áheit á nýju ári“ eftir
Helga:
Verndum orð og æði,
einnig ró og næði,
sálarfrið,
fiskimið,
fjöll og sendin svæði.
Á Boðnarmiði kallar Guðmundur
Arnfinnsson þetta „Óskhyggju“:
Ef sjá vil ég gjósa Geysi
og grænsápu hann ég eys í,
uns vex honum kraftur,
þá vonandi aftur
verður hann alveg kreisí.
Um „Dauðyfli“ yrkir Guð-
mundur:
Kvonbæna seinn var til svifa
hann Sveinn og því einn mátti lifa,
en hélt sínu striki
og hlóð á sig spiki,
svo honum ei neinn mátti bifa.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir:
Oft sé ég ungnaut og kálfa
dagana heilu og hálfa
á netinu naga
hinn nauðbitna haga
sem breytir þeim sumum í bjálfa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gömul mannlýsing og á
enn við