Morgunblaðið - 15.01.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.01.2021, Qupperneq 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 England Arsenal – Crystal Palace ........................ 0:0  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal í leiknum. Staða efstu liða: Manch. Utd 17 11 3 3 34:24 36 Liverpool 17 9 6 2 37:21 33 Manch. City 16 9 5 2 25:13 32 Leicester 17 10 2 5 31:21 32 Everton 17 10 2 5 28:21 32 Tottenham 17 8 6 3 30:16 30 Southampton 17 8 5 4 26:19 29 Aston Villa 15 8 2 5 29:16 26 Chelsea 17 7 5 5 32:21 26 West Ham 17 7 5 5 24:21 26 Arsenal 18 7 3 8 20:19 24 Grikkland Atromitos – Lamia................................... 2:1  Theódór Elmar Bjarnason var ekki í leikmannahópi Lamia. Spánn Meistarabikarinn, undanúrslit: Real Madrid – Athletic Bilbao ................ 1:2  HM karla í Egyptalandi E-RIÐILL: Austurríki – Sviss................................. 25:28 Noregur – Frakkland........................... 24:28 Staðan: Frakkland 1 1 0 0 28:24 2 Sviss 1 1 0 0 28:25 2 Austurríki 1 0 0 1 25:28 0 Noregur 1 0 0 1 24:28 0 F-RIÐILL: Alsír – Marokkó.................................... 24:23 Portúgal – Ísland.................................. 25:23 Staðan: Portúgal 1 1 0 0 25:23 2 Alsír 1 1 0 0 24:23 2 Marokkó 1 0 0 1 23:24 0 Ísland 1 0 0 1 23:25 0 G-RIÐILL: Svíþjóð – Norður-Makedónía.............. 32:20 Staðan: Svíþjóð 1 1 0 0 32:20 2 Egyptaland 1 1 0 0 35:29 2 Síle 1 0 0 1 29:35 0 N-Makedónía 1 0 0 1 20:32 0 H-RIÐILL: Slóvenía – Suður-Kórea....................... 51:29 Hvíta-Rússland – Rússland................. 32:32 Staðan: Slóvenía 1 1 0 0 51:29 2 Hvíta-Rússland 1 0 1 0 32:32 1 Rússland 1 0 1 0 32:32 1 Suður-Kórea 1 0 0 1 29:51 0 Leikir í dag: 14.30 Katar – Angóla.................................. C 17.00 Þýskaland – Úrúgvæ........................ A 17.00 Spánn – Brasilía ................................ B 17.00 Króatía – Japan................................. C 17.00 Argentína – Kongó ........................... D 19.30 Ungverjaland – Grænhöfðaeyjar .... A 19.30 Túnis – Pólland ................................. B 19.30 Danmörk – Barein............................ D   Dominos-deild karla Stjarnan – Höttur................................. 97:70 KR – Tindastóll................................. 101:104 Njarðvík – Haukar ............................... 85:87 ÍR – Valur.............................................. 90:96 Staðan: Stjarnan 2 2 0 188:156 4 Þór Þ. 1 1 0 105:97 2 Valur 2 1 1 182:181 2 ÍR 2 1 1 177:179 2 Haukar 2 1 1 184:190 2 Keflavík 1 1 0 94:74 2 Grindavík 1 1 0 101:94 2 Njarðvík 2 1 1 177:167 2 Tindastóll 2 1 1 187:188 2 KR 2 0 2 181:196 0 Þór Ak. 1 0 1 74:94 0 Höttur 2 0 2 164:198 0 NBA-deildin Charlotte – Dallas .............................. 93:104 Detroit – Milwaukee ........................ 101:110 New York – Brooklyn ...................... 109:116 Minnesota – Memphis...................... 107:118 Oklahoma City – LA Lakers ............. 99:128 LA Clippers – New Orleans ............ 111:106 Sacramento – Portland .................... 126:132   KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: HS Orkuhöllin: Grindavík – Þór Ak ... 18.15 Blue-höllin: Keflavík – Þór Þ............... 20.15 1. deild karla: Ísafjörður: Vestri – Selfoss ................. 19.15 Borgarnes: Skallagrímur – Hamar..... 19.15 Ice Lagoon-höll: Sindri – Hrunamenn 19.15 Smárinn: Breiðablik – Álftanes................ 20 1. deild kvenna: Kennaraháskóli: Ármann – Fjölnir b ...... 20 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Víkin: Víkingur – Selfoss U ................. 19.30 Hertz-höll: Kría – Haukar U ............... 20.30 Framhús: Fram U – Fjölnir ................ 20.30 Í KVÖLD! sterkari á lokamínútunum og inn- byrtu sinn fyrsta sigur á tímabilinu sem mun eflaust gefa þeim mikið sjálfstraust, farandi inn í næstu leiki, en Shawn Glover átti stórleik fyrir Tindastól og skoraði 30 stig. Íslandsmeistarar KR hafa hins vegar tapað báðum leikjum sínum til þessa í deildinni og bíða ennþá eftir sínum fyrsta sigri á tímabilinu. „Í fjórða leikhluta tók KR yfir fyrri hluta leikhlutans og jafnaði metin í 85:85. Eftir það var allt í járnum og skiptust liðin á að skora. Á ögurstundu, þegar 5 sekúndur voru eftir á klukkunni og staðan 102:101, rann Sabin í lokasókn KR- ingar, Viðar Ágústsson náði bolt- anum af honum og skoraði síðustu körfu leiksins fyrir Tindastól,“ skrif- aði Gunnar Egill Daníelsson meðal annars á mbl.is í umfjöllun sinni um leikinn. Haukar sterkari í Njarðvík Njarðvíkingar voru án tveggja lykilmanna þegar Haukar komu í heimsókn í Njarðtaksgryfjuna í Njarðvík. Maciej Baginski var að glíma við ökklameiðsli og Anthony Hester var fastur í sóttkví eftir kom- una til landsins. Njarðvíkingar voru lengi í gang og Haukar náðu snemma góðu forskoti í leiknum. Hafnfirðingar leiddu með átta stigum í hálfleik, 47:39. Haukar juku forskot sitt í þriðja leikhluta og virkuðu líklegir til þess að stinga af í stöðunni 57:43 en þá fékk Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga, nóg og tók leikhlé. Það hristi vel upp í hans liði og Njarðvíkingar náðu að jafna metin í 84:84 þegar mínúta var til leiksloka. Haukar skoruðu hins vegar þrjú síð- ustu stig leiksins og fögnuðu 87:85- sigri. Austin Magnus Bracey var stiga- hæstur Hauka með 17 stig en fyrir- liðinn Logi Gunnarsson átti sann- kallaðan stórleik fyrir Njarðvíkinga og skoraði 30 stig. „Lokamínútur leiksins voru æsi- spennandi þegar Njarðvíkingar hlóðu í enn eitt áhlaupið að Haukum enn gestirnir stóðust áhlaupið og fögnuðu 87:85-sigri,“ skrifaði Skúli B. Sigurðsson meðal annars í um- fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.  Í Hertz-hellinum í Breiðholti áttu erlendu leikmenn Vals, þeir Sin- isa Bilic og Miguel Cardosa, mjög góðan leik, en þeir skoruðu báðir 22 stig í fyrsta sigri Vals á tímabilinu. Valsmenn voru með yfirhöndina í leiknum framan af en ÍR-ingar leiddu með fjórum stigum fyrir fjórða leikhluta. Valsmenn nýttu alla sína reynslu í fjórða leikhluta og unnu 96:90-sigur, þrátt fyrir stórgóðan leik ÍR-ingsins Everage Richardsons sem skoraði 27 stig.  Þá er Stjarnan eina lið deild- arinnar sem er með fullt hús stiga eftir stórsigur gegn nýliðum Hattar í Mathús Garðabæjar-höllinni í Garðabæ, 97:70. Hattarmenn voru vel inni í leikn- um framan af og var staðan 42:39, Hetti í vil, í hálfleik. Það var fljótt að breytast í síðari hálfleik og Garðbæ- ingar stungu af í þriðja leikhluta. Ægir Þór Steinarsson var stiga- hæstur Garðbæinga með 15 stig en Matej Karlovic skoraði mest fyrir Hött eða 19 stig en Hattarmenn bíða ennþá eftir sínum fyrsta sigri í deild- inni. Körfuboltinn fór af stað með látum  Spennusigrar Tindastóls og Hauka í Vesturbænum og Njarðvík Morgunblaðið/Eggert Öflugur Pétur Rúnar Birgisson var drjúgur fyrir Tindastól gegn KR í gær- kvöld með 12 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst í Vesturbænum. KÖRFUBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildin, fór af stað með lát- um en önnur umferð deildarinnar hófst í gær, hundrað dögum eftir að Þór á Akureyri tók á móti Keflavík í lokaleik fyrstu umferðar deild- arinnar í Höllinni á Akureyri. Spennan var rafmögnuð í Vestur- bænum þar sem Íslandsmeistarar síðustu sex ára í KR tóku á móti meistaraefnunum í Tindastóli. Liðin hafa eldað grátt silfur saman undanfarin ár og háð harða baráttu um Íslandsmeistaratitilinn en liðin mættust í úrslitum Íslandsmótsins tímabilið 2014-15 og 2017-18. KR hafði betur í bæði skiptin, 3:1. Lið Vesturbæinga var talsvert breytt frá fyrstu umferðinni þar sem liðið tapaði á heimavelli fyrir Njarð- vík, 92:80, en Roberts Stumbris og Ante Gospic voru báðir horfnir á braut. Í stað þeirra var mættur Ty- ler Sabin frá sænska úrvalsdeild- arliðinu Wetterbygden Stats en hann átti sannkallaðan stórleik og skoraði 47 stig. Tindastóll mætti með óbreyttan leikmannahóp úr fyrstu umferðinni en Sauðkrækingar náðu yfirhöndinni snemma leiks og leiddu með sex stig- um í hálfleik, 61:55. Tindastóll jók forskot sitt um tvö stig í þriðja leikhluta en í fjórða leik- hluta komust KR-ingar yfir, 95:91, þegar tæplega þrjár mínútur voru til leiksloka. Stólarnir reyndust hins vegar Bandaríska körfuknattleiksfélagið Brooklyn Nets staðfesti í gær að það hefði fengið James Harden til liðs við sig frá Houston Rockets. Mikil félagaskiptaflækja fjögurra annarra leikmanna og fjögurra liða ásamt nýliðarétti í framtíðinni fylgir vistaskiptum hans. Harden hefur verið einn besti leikmaður NBA-deildarinnar um árabil og hann hefur verið stigahæsti leik- maður hennar síðustu þrjú ár. Brooklyn er fyrir með þá Kevin Durant og Kyrie Irving í sínum röð- um og því komið með öflugan hóp. Harden kominn til Brooklyn AFP Flytur James Harden er kominn til liðs við Brooklyn Nets. Arsenal fékk ekki á sig mark í fjórða leik sínum í röð þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Crys- tal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Emirates-leikvang- inum í London. Liðið hefur nú feng- ið tíu stig í síðustu fjórum leikjum í deildinni ásamt því að sigra New- castle í bikarkeppninni um síðustu helgi. Þetta hefur þó aðeins dugað til að fleyta Arsenal upp í ellefta sætið. Palace var nær sigri í gær- kvöld, James Tomkins átti skalla í þverslá og Bernd Leno varði mjög vel frá Christian Benteke. Arsenal heldur markinu hreinu AFP Einbeittir David Luiz og Christian Benteke í leiknum í gærkvöld. Handknattleiksdeild Fram kom handboltaunnendum á óvart í gær þegar birt var á heimasíðu félags- ins að Stella Sigurðardóttir, fyrr- verandi landsliðskona, væri orðin leikmaður Fram á ný eftir sjö ára hlé frá handknattleiksiðkun. „Langt er síðan ég hef kastað bolta og það tekur örugglega tíma að koma öxlinni í gang. Í janúar eru sjö ár síðan ég spilaði síðast og það er ansi langur tími. Ég kem ekki til með að vera eins leikmaður og ég var áður en ég fór utan þegar ég var 22 ára. Ég verð ekki nein stór- skytta og verð líklega frekar í ein- hvers konar varnarhlutverki,“ sagði Stella í samtali við Morg- unblaðið í gær en lengra viðtal við hana er á að finna á mbl.is/sport/ handbolti síðan í gær. Stella segist jafnframt byrja ró- lega og engin pressa sé sett á hana af hálfu Fram. Stella varð Íslands- meistari með Fram árið 2013 og bikarmeistari 2010 og 2011 en lék síðast með SönderjyskE í Dan- mörku. kris@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Reynd Stella hætti keppni snemma árs 2014 vegna höfuðáverka. Stella gæti komið við sögu hjá Fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.