Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 35

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 dæmi þá tók maður eftir því að Portúgalar ruku af og til út úr vörninni og klipptu þá út skyttuna öðruhvorumegin. Gerðu þetta til dæmis þegar Íslendingar ætluðu að fara af stað með leikkerfi. Ýmislegt þess háttar virkaði ágætlega hjá Portúgal. Gísli var áræðinn Í grein í blaðinu á þriðjudag sagðist ég vilja sjá hina snöggu, og frekar lágvöxnu leikmenn íslenska liðsins keyra á varnir andstæðing- anna á HM. Reyna að sækja eins hratt og mögulegt væri í þeirri von að fá hreyfingu á varnir andstæð- inganna. Margir leikmenn í ís- lenska liðinu eru góðir í þessu og við þetta geta skapast glufur sem bjóða upp á gegnumbrot eða horna- spil. Í gær fannst mér einungis einn af útispilurunum gera þetta og það var Gísli Þorgeir Kristjánsson. Með sína góðu fótavinnu og áræði kom hann varnarmönnum Portúgals ítrekað í vandræði og var mjög drjúgur þegar hann fékk tækifæri. Sóknirnar voru að mér fannst of hægar og stundum var hægt á þeg- ar menn voru byrjaðir að keyra upp hraðann. Elvar Örn Jónsson þarf til dæmis að ógna af meiri krafti og þá er hann stórhættu- legur. En of oft virtist hann ætla að taka sér of mikinn tíma í aðgerðir. Svipað má segja um Janus Daða Smárason sem tapaði boltanum þrí- vegis snemma í leiknum. Ágúst Elí tók við sér Alexander Petersson, Ómar Ingi Magnússon og Viggó Kristjánsson fengu allir að spreyta sig hægra megin en enginn þeirra átti sér- staklega góðan dag í sókninni. Óm- ar og Viggó opnuðu þó stundum skemmtilega fyrir Sigvalda Björn Guðjónsson í hægra horninu í síðari hálfleik. Sigvaldi spilaði í síðari hálfleik og var ferskur. Þess vegna var sárt fyrir hann að brenna af hraðaupphlaupi þegar tækifæri gafst til að minnka muninn í 25:23 á 57. mínútu því Sigvaldi hafði leikið vel. Þar kom kafli þar sem Ágúst Elí Björgvinsson hafði tekið hressi- lega við sér í markinu og sú von vaknaði að Ísland gæti kannski náð stigi út úr leiknum. Portúgal er óvenjulegt lið í nú- tíma handbolta hvað það varðar að liðið er ekkert að flýta sér í sókn- inni. Þær voru oft langar en leik- menn liðsins eru snjallir að búa til færi þótt höndin sé komin upp hjá dómurum til merkis um leiktöf. AFP Áræðinn Gísla Þorgeiri Kristjánssyni tókst oft að komast framhjá sínum manni og draga í sig þann næsta í leiknum gegn Portúgölum í gærkvöld. Portúgalar voru klókari  Tap í fyrsta leiknum á HM í Egyptalandi  Íslenska liðið tapaði boltanum fimmtán sinnum  Lið Portúgals tekur sér mikinn tíma í sóknirnar Nýja höfuðborgin, HM karla, F-riðill, fimmtudag 14. janúar 2021. Gangur leiksins: 0:2, 2:4, 5:6, 6:7, 9:7, 9:9, 11:10, 15:11, 18:13, 18:16, 20:16, 20:18, 22:18, 24:29, 25:20, 25:23. Mörk Portúgals: Miguel Martins 6, Pedro Portela 5, André Gomes 4, Leonel Fernandes 2, Victor Iturriza 2, Rui Silva 2, Diogo Branquinho 2, Ant- ónio Areia 1, Fábio Magalhaes 1. Varin skot: Alfredo Quintana 10/1. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Íslands: Bjarki Már Elísson 6/4, Sigvaldi Björn Guðjónsson 4, Elvar Örn Jónsson 3, Alexander Pet- ersson 2, Ólafur Guðmundsson 2, Ómar Ingi Magnússon 2/1, Gísli Þor- geir Kristjánsson 2, Arnar Freyr Arn- arsson 1, Ýmir Örn Gíslason 1. Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 10, Viktor Gísli Hallgrímsson 3/1. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Rozhodcí Horácek og Jirí Novotný, Tékklandi. Áhorfendur: Engir. PORTÚGAL – ÍSLAND 25:23 Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, var skiljanlega svekktur þegar hann ræddi við RÚV eftir 23:25-tap gegn Portúgal í fyrsta leik Íslands á HM karla í Egyptalandi í gær. „Við gerðum allt of mörg tæknimistök í sókninni eða fimmtán stykki og það gengur ekki upp á meðan þeir gera sjö. Við færðum þeim boltann of oft á silfurfati og í svona jöfnum leik þá gengur það ekki upp. Við fórum svo líka illa með dauðafæri og þar á meðal hraðaupphlaup. Við vorum sjálfum okkar verstir,“ sagði Guðmundur. Hann var óánægður með mistækan sóknarleik ís- lenska liðsins. „Við vissum að þetta yrði 50/50-leikur og til að vinna svona leik á HM þá þarf margt að ganga upp. Mér fannst ákveð- ið hik í mönnum þrátt fyrir að við byrjuðum vel en svo förum við að kasta boltanum frá okkur,“ sagði Guðmundur meðal annars. sport @mbl.is Sjálfum okkur verstir Guðmundur Þ. Guðmundsson. „Ég er hundfúll með niðurstöðuna,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, landsliðsmaður í handbolta, í samtali við Morgunblaðið eftir 23:25-tap fyrir Portúgal í fyrsta leik Íslands á HM í Egyptalandi í gærkvöld. „Varnarleikurinn var allt í lagi. Þeir skoruðu 25 mörk sem er allt í lagi, en samt var stundum of langt á milli manna. Þeir komu með tvöfaldar innleysingar sem við áttum erfitt með. Við vorum svo með allt of marga tap- aða bolta í sókninni og við koðnuðum niður í sókninni eftir að við misstum þá fram úr okkur í seinni hálfleik. Mér fannst fyrri hálfleikurinn vera mun jafnari, hann var stál í stál. Í seinni hálfleik vorum við að elta og þegar við gátum minnkað muninn í tvö mörk þá fóru færi forgörðum,“ sagði El- liði eftir sinn fyrsta leik á stórmóti með íslenska landsliðinu en lengra við- tal er við hann á mbl.is. johanningi@mbl.is Koðnuðum niður í sókninni Elliði Snær Viðarsson  Frakkar lögðu Norðmenn að velli í sannkölluðum stórleik, 28:24, í fyrstu umferð riðlakeppni heimsmeistara- móts karla í handbolta í Egyptalandi í gærkvöld. Frakkar fengu brons og Norðmenn silfur á síðasta móti fyrir tveimur árum. Staðan var 13:13 í hálf- leik. Kentin Mahe skoraði níu mörk fyrir Frakka en Sander Sagosen tíu fyrir Norðmenn.  Sviss sigraði Austurríki í sama riðli, 28:25, og þar með stefnir allt í að Svisslendingar, sem mættu til leiks á HM í gærmorgun í stað Bandaríkjanna, komist áfram í milliriðil þar sem þeir geta mætt Íslendingum.  Hampus Wanne fór á kostum og skoraði ellefu mörk þegar Svíar gjör- sigruðu Norður-Makedóníumenn, 32:20, á HM í Egyptalandi í gærkvöld. Svíar eru með mjög laskað lið á mótinu en fengu sannkallaða óska- byrjun. Norður-Makedónía kom í stað Tékka með þriggja daga fyrirvara og þar með er Kiril Lazarov mættur á enn eitt stórmótið en hann lék á því fyrsta árið 1999. Lazarov, sem er fertugur, varð markahæstur sinna manna með fimm mörk.  Alsírbúar eru næstu mótherjar Ís- lendinga annað kvöld en þeir mörðu sigur á grönnum sínum frá Marokkó, 24:23, í gær eftir að hafa lent sjö mörkum undir. Alsírbúar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins í tómt mark Marokkóbúa og Daoud Hichem gerði sigurmarkið. Þá hafði Alsír ekki verið yfir síðan liðið komst í 1:0 í byrjun. Ís- land mætir Marokkó í síðasta leik rið- ilsins á mánudagskvöldið.  Þrír íslenskir þjálfarar stýra liðum sínum í fyrsta leik á HM í dag og í kvöld. Alfreð Gíslason og hans menn í þýska landsliðinu mæta Úrúgvæ, Dag- ur Sigurðsson stýrir Japönum gegn hinu öfluga liði Króata og Halldór Jó- hann Sigfússon, þjálfari Barein, glímir við sjálfa heimsmeistarana, Dani.  Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin til liðs við upp- eldisfélag sitt Breiðablik og skrifar hún undir tveggja ára samning við fé- lagið. Þórdís kemur til Blika frá KR þar sem hún lék á síðustu leiktíð. Þórdís, sem er 27 ára gömul, á að baki 115 leiki í efstu deild með Breiðabliki, Stjörnunni, Þór/KA og KR þar sem hún hefur skorað 23 mörk. Þá á hún að baki tvo A-landsleiki og 29 leiki fyr- ir yngri landslið Íslands en hún hefur einnig leikið með sænsku liðunum Kristianstad og Älta.  Varnarmaðurinn reyndi Pétur Við- arsson ætlar að leika áfram með FH- ingum á komandi tímabili en hann hefur skrifað undir eins árs samning við knattspyrnudeild félags- ins. Pétur ákvað að hætta eftir tímabilið 2019 en tók fram skóna á ný síðasta sumar og lék tólf leiki með FH- ingum í úrvalsdeild- inni. Hann hefur alls leikið 188 leiki með FH í deildinni og er þar fimmti leikjahæsti leik- maður félagsins frá upphafi. Eitt ogannað HM 2021 Kristján Jónsson kris@mbl.is Ekki hófst þátttaka Íslands á HM í handknattleik í Egyptalandi eins og maður hefði viljað heldur tapaði Ísland fyrir Portúgal 25:23 í fyrsta leiknum í gær sem fram fór í nýju höfuðborginni sem ekki hefur verið gefið nafn. Því miður var Portúgal betra liðið að þessu sinni og sig- urinn var því sanngjarn. Einfaldasta skýringin, og sú sem blasir við, er að íslenska liðið tapaði boltanum fimmtán sinnum í leikn- um. Er það einfaldlega of mikið gegn liði sem hafnaði í 6. sæti á síð- asta stórmóti. Að loknum fyrri hálf- leik var staðan 11:10 fyrir Portúgal. Fannst manni það vera ágætlega sloppið því þá höfðu íslensku mark- verðirnir aðeins varið tvö skot og manni þótti íslenska liðið eiga nokkuð inni. Ísland náði hins vegar aldrei neinum kafla í leiknum þar sem menn komust í virkilegt stuð. Leik- urinn var alltaf erfiður. Ekki síst vegna þess hve klókir leikmenn Portúgals voru. Öll þessi skipti sem Íslendingar tapa boltanum skrifast ekki bara á taugaspennu eða skort á einbeitingu. Þar hefur vörn Portúgals eitthvað að segja. Sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.