Morgunblaðið - 15.01.2021, Side 37

Morgunblaðið - 15.01.2021, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THE HOLLYWOOD REPORTER CHICAGO SUN-TIMES LOS ANGELES TIMES INDIEWIRE ROGEREBERT.COM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Nýtt myndlistargallerí, MUTT, hef- ur formlega starfsemi að Laugavegi 48 klukkan 18 í kvöld með opnun sýningarinnar 2+2=5 með mál- verkum eftir Úlf Karlsson. Úlfur lauk námi við Kvikmyndaskóla Ís- lands árið 2008 og BA-námi við Listháskólann í Gautaborg árið 2012. Verk hans hafa verið á mörg- um einka- og samsýningum hér á landi og erlendis; meðal annars var sýning á verkum hans í D-sal Lista- safns Reykjavíkur árið 2017. Í tilkynningu frá galleríinu segir að dægurmenning og ádeila séu undirliggjandi stef í verkum Úlfs á sýningunni, þar sem hann dregur fram einkenni kynslóðar sem ólst upp við teiknimyndir á morgnana, óljósar fréttir um stríð langt í burtu og íþróttir. Persónurnar sem koma við sögu í verkunum séu þó aftengd- ar sakleysi barnæskunnar og eru staddar í nútímanum í kunnuglegum heimi á ókunnum stað. „Kýldi bara á það“ Júlía Marinósdóttir á og rekur MUTT og segir markmiðið með stofnun gallerísins vera að styrkja flóru myndlistar í Reykjavík með sýningum eftir fjölbreyttan hóp myndlistarmanna, auk þess að styðja við starfsemi listamannanna. Júlía hefur starfað hjá Listasafni Ís- lands, hún er með BA-gráðu í list- fræði frá Háskóla Íslands og lagði stund á framhaldsnám í markaðs- fræði og alþjóðaviðskiptum. Hún segist lengi hafa haft áhuga á að fara út í rekstur og þegar hún sá þetta fína rými við Laugaveginn standa tómt í kórónuveirufaraldrinum fannst henni það vera kjörið fyrir gallerírekstur. „Ég kýldi bara á það, fór að hafa samband við listamenn og athuga hvort þeim litist á sýningu og Úlfur var að vinna að nýjum verkum og tilbúinn með önnur svo við hófum undirbúning að sýningunni með verk sem eru flest ný,“ segir Júlía. Hún segir þetta vera drauma- staðsetningu fyrir galleríið, á góðum stað við Laugaveginn. „List á svo mikið erindi við almenning að mínu mati og því er plús að hún sé staðsett þar sem fólk hafi gott aðgengi að henni.“ Hyggst Júlía starfa með föstum hópi listamanna? „Ég fer út í þetta með opnum huga og það er mjög mikið af hæfi- leikaríkum listamönnum á Íslandi sem eiga erindi og mætti koma bet- ur á framfæri. Ég tel vera svigrúm fyrir fleiri gallerí í Reykjavík og vil bæta við íslenska listasenu með því að sýna nýtt og áhugavert efni og gefa listamönnum sem eru að gera spennandi hluti pláss. MUTT er í ákveðnu flæði og með tímanum tek- ur það á sig mynd. Mér finnst best að vera ekki að formfesta hlutina um of.“ Áhersla á fjölbreytta miðla Júlía bætir við að það hefur alltaf verið markmið að leggja áherslu á fjölbreytta miðla. „Ég vil eins og kostur er sýna list í sínu fjölbreytt- asta formi. Í desember settum við upp hér vídeóinnsetningu eftir Har- ald Karlsson en hún sást aðeins af götunni, nú erum við með málverk á fyrstu formlegu sýningunni og næst verður hér ljósmyndasýning.“ Júlía ítrekar að hún vilji með rekstri MUTT styrkja myndlistar- flóruna í borginni með fjölbreyttum sýningum. Hún segir að á sýningu Úlfs séu 13 málverk, málverk sem tala við samtímann á kröftugan og áhugaverðan hátt. „Í verkunum opnast nýir heimar þar sem persónur og atburðir koma saman úr ólíkum áttum. Nýtt óraun- verulegt samhengi verður til og minnir okkur á hversu óraunveru- legur sjálfur veruleikinn getur verið, nú á okkar tímum,“ segir hún. MUTT verður opið frá kl. 14 til 18 frá miðvikudegi til sunnudags. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í MUTT Myndlistarmaðurinn Úlfur Karlsson og galleristinn Júlía Marinósdóttir á sýningunni með verkum Úlfs. „Í verkunum opnast nýir heimar þar sem persónur og atburðir koma saman úr ólíkum áttum,“ segir Júlía. „List á svo mikið erindi“  Nýtt gallerí við Laugaveg, MUTT, verður opnað í kvöld með sýningu á verkum Úlfs Karlssonar  „Tel vera svigrúm fyrir fleiri gallerí í Reykjavík“ Hrólfur Sæ- mundsson barí- tón og Bjarni Frímann Bjarna- son, píanóleikari og tónlistarstjóri Íslensku óper- unnar, koma fram á söng- skemmtun í Norðurljósasal Hörpu í kvöld kl. 20. Á efnisskránni verða ýmsar þekktar aríur og sönglög í sérstöku uppáhaldi hjá listamönnunum og munu þeir kynna lögin á tónleik- unum sem verður jafnframt streymt þar sem takmarkaður fjöldi miða verður til sölu og sótt- varna gætt. Um Hrólf segir á vef Íslensku óp- erunnar að hann hafi sungið hlut- verk Germont í uppfærslu Íslensku óperunnar á La traviata í Eldborg árið 2019 og fengið frábærar við- tökur. Hrólfur hefur sungið í óper- um víða um lönd en þó aðallega starfað í Þýskalandi. Hann starfar nú við óperuna í Aachen. Hrólfur og Bjarni á söngskemmtun Hrólfur Sæmundsson Unnar Ari Bald- vinsson opnaði í gær sýningu á málverkum sín- um á kaffihúsinu Mokka. Sýningin ber titilinn Slyngir hringir og má á henni sjá 15 málverk í fjór- um stærðum þar sem hringformið ræður för. „Hann er slunginn og í fullkomnu ójafnvægi,“ skrifar Unn- ar Ari í tilkynningu og segir hug- myndina að verkunum hafa setið lengi í kollinum á honum og hann hafi verið svolítið smeykur við ein- faldleikann. „Hringirnir eru stað- settir þannig að þeir gefa verkun- um ójafnvægi en myndirnar jafna sig sjálfar með að samþykkja stöðu sína. Litirnir búa til kontrast og spila á móti formunum,“ skrifar Unnar Ari sem er fæddur árið 1989 og stundaði myndlistarnám á Ítalíu. Unnar Ari sýnir málverk á Mokka Unnar Ari Baldvinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.