Morgunblaðið - 20.01.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 20.01.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  16. tölublað  109. árgangur  VEIRAN OG VAÐLAHEIÐAR- GÖNGIN STÓRBROTIN JARÐARFÖR VICTORS HUGO VEL UNDIRBÚNIR SVISSLENDINGAR MÆTA ÍSLANDI ÞÝÐING RUTAR 24 HM Í HANDBOLTA 26-27VIÐSKIPTAMOGGINN Stefnir í mjög þungt högg  Vonir dvína um öfluga viðspyrnu með komu erlendra ferðamanna í sumar  Hótel um landið búa sig undir „Íslendingasumar“ með fremur lágu verði Rangár. Hann segir að ef ekkert verður af komu erlendra ferðamanna muni það þýða gríðarlegt högg á ferðaþjónustuna. „Fyrirtækin höfðu flest hver ein- hverja sjóði til að ganga í, auk þess ótrúlega mikilvæga stuðnings sem stjórnvöld veittu. En allar aðgerðir hafa miðað að því að þreyja Þorrann fram á komandi sumar.“ Af samtölum við aðra hótelrekend- ur um landið að dæma eru þeir flestir farnir að búa sig undir að byggja að stórum hluta á innlendri eftirspurn á komandi sumri. Magnea Þ. Hjálmars- dóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, segir að tekið verði vel á móti Íslendingum á komandi sumri með spennandi tilboðum og að þá miði starfsemin einnig við að meira verði um barnafólk en alla jafna gildir þeg- ar erlendir ferðamenn eru annars vegar. Davíð Torfi Ólafsson fram- kvæmdastjóri tekur í svipaðan streng. Hann segist þó vona að eft- irspurnin muni dreifast meira yfir sumarið en hún gerði í fyrra. „Nú er fólk búið undir þessa stöðu og byggir ekki eins mikið á von um að úr rætist með ferðalög milli landa.“ Hann segir að Íslandshótel muni áfram bjóða upp á tilboð til Íslend- inga og unnið sé að útfærslu þeirra. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Með hverjum deginum dvína vonir um mikinn straum ferðamanna hing- að á komandi sumri. Við verðum þó að vona að það geti gerst á síðari hluta sumars, í júlí eða ágúst. Hins vegar fögnum við hverjum einasta íslenska gesti sem hingað kemur. Þeir skipta okkur öllu máli í þessari stöðu.“ Þetta segir Friðrik Pálsson, eigandi Hótels MViðskiptaMogginn Þó að dagarnir séu farnir að lengjast skiptir engu að síður máli að góð birta sé á götunum, enda ríkir enn myrkur stóran hluta sólarhringsins. Það þarf því sífellt að sinna mikilvægum viðhalds- verkefnum eins og að skipta um perur í ljósastaurum, enda eru viðhaldsverkefnin viðvarandi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljósaskipti í Lönguhlíðinni Viðhaldsverkefnin eru viðvarandi Leifur Björn Dagfinnsson, fram- kvæmdastjóri True North, segir innlenda verktaka og alþjóðlega fjárfesta hafa lýst yfir áhuga á að reisa kvikmyndaver á Íslandi. Leifur segir slíka uppbyggingu geta skilað sér margfalt til baka. Raunhæft sé að stórauka tekjur þjóðarinnar af kvikmyndagerð með því að geta fulltekið myndir hér. Síð- ustu ár hafi kvikmyndaverin valið að gera myndir í öðrum löndum, eftir að athugun benti til að ekki væri hægt að framleiða efnið hér. Náið samstarf við Tom Cruise Leifur lýsir í samtali við Við- skiptaMoggann uppgangi dóttur- félags True Norths í Noregi en það velti tveimur milljörðum í fyrra. Það er ekki síst að þakka sam- starfi við Tom Cruise um upptökur á Mission Impossible 7 í Noregi með 500 manna tökuliði. baldura@mbl.is Upptöku- ver eru í pípunum  Fjárfestar vilja reisa kvikmyndaver Ljósmynd/Þór Kjartansson Á Vatnajökli True North við upp- tökur á The Tomorrow War. Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T ev a 0 2 8 0 6 2  Bergdís Ell- ertsdóttir, sendiherra Ís- lands í Banda- ríkjunum, segir sérstakt and- rúmsloft ríkja í Washington- borg um þessar mundir, en Joe Biden tekur við forsetaembætt- inu í dag og hefst athöfnin um kl. 16:30 að íslenskum tíma. Mikil spenna ríkir eftir að stuðn- ingsmenn Donalds Trump, fráfar- andi Bandaríkjaforseta, gerðu áhlaup á bandaríska þinghúsið 6. janúar síðastliðinn, og sagði Berg- dís í samtali við mbl.is í gær að þeim hluta borgarinnar sem hýsir flestar helstu stofnanirnar, á borð við Hvíta húsið og þinghúsið, hafi verið nær algjörlega lokað í að- draganda embættistökunnar. Þar standi vörð fjöldi hermanna sem kallaðir hafi verið út á undan- förnum vikum. Bergdís segir það þó hafa verið ljóst fyrir árásina að athöfnin yrði með öðru sniði í ár vegna heims- faraldursins. »11 Sérstakt andrúms- loft í Washington Bergdís Ellertsdóttir  „Við viljum að öllum líði vel í Reykjavík og það eru gerðar kröfur til íþróttafélag- anna um að allir hafi jöfn tækifæri til að stunda íþróttir, óháð því hvaða hópi þeir tilheyra. Félögin fá enda peninga frá borginni í gegnum ÍBR,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýð- ræðisráðs Reykjavíkurborgar. Á fundi ráðsins í síðustu viku var samþykkt að í ár verði gerð jafnrétt- isúttekt á þremur íþróttafélögum í borginni, ÍR, Fram og Víkingi. Meðal þess sem kannað er við jafnréttis- úttektir er hvort íþróttafélög séu með virkar jafnréttisáætlanir og siðareglur, kynjahlutfall iðkenda og hvernig fjármagni sé skipt á milli kynja. „Það er algjörlega ljóst af þessum úttektum að íþróttafélögin gera margt mjög vel en það er líka hægt að gera betur,“ segir Dóra Björt. »4 Kanna jafnréttismál hjá íþróttafélögum Dóra Björt Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.