Morgunblaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
STÓRMERKT RIT
eftir Hildi Hákonardóttur
BÁÐAR SAMAN
7.990,
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Notkun gagnakorta, SIM-korta fyrir
gagnaflutninga en ekki símtöl, hefur
aukist. Guðmundur Jóhannsson,
samskiptastjóri Símans, taldi að
gagnakort séu fyrst og fremst sett í
spjaldtölvur og 4G netbeina.
Morgunblaðið frétti af ungu fólki
sem notar gagnakort í farsíma í stað
hefðbundinna símakorta. Það hring-
ir aldrei í símanúmer heldur notar
forrit eins og t.d. Facetime eða
Messenger ef það vill tala við aðra.
Skilyrði er að viðmælandinn sé með
sama forrit. Sú spurning vaknaði
hvort slíkir notendur fái t.d. neyð-
arskilaboð (SMS) sem yfirvöld senda
í öll snjalltæki á tilteknu svæði ef
hætta steðjar að.
„Það er símanúmer á gagnakort-
inu þótt það sé lokað fyrir talrásina
og þú getir hvorki hringt né svarað
venjulegum símtölum. Þú kemst
hins vegar á netið. SMS-skilaboð
eins og neyðarskilaboð myndu kom-
ast til skila og rafræn skilríki virka.
Eins er hægt að hringja í neyðarsím-
ann 112. Það er bara almenna símtal-
ið sem dettur út,“ sagði Guðmundur.
Hann gat sér þess til að það sé eink-
um yngra fólk sem notar gagnakort í
síma. Sá hópur er nýjungagjarn og
fljótur að tileinka sér möguleika
tækninnar.
„Við höfum horft upp á hnignun
talsímans og heimasímans. Unga
fólkið notar nýjar leiðir til að eiga í
samskiptum,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að fyrir nokkrum árum
hefði allt farið að snúast um gagna-
magn hjá fjarskiptafyrirtækjunum.
Þar sé þungi notkunarinnar í dag.
„Samkeppnin snýst um gagna-
magn, hvað er mikið innifalið í
áskrift og hvort þjónusta er tak-
mörkuð á einhvern hátt. Einnig um
hversu öflugt og útbreitt dreifikerfið
er. Fyrir kannski tíu árum snerist
samkeppnin um mínútur símtala eða
fjölda smáskilaboða sem fylgdu
áskrift. Nú er það endalaust og alltaf
í flestum áskriftum,“ sagði Guð-
mundur. Hann sagði að staðan sé
svipuð hér og í nágrannalöndunum.
Innleiðing 5G-tækninnar
Síminn vinnur að því að innleiða
5G og hefur sett upp þrjá prufu-
senda á Múlasvæðinu. Þeir eru að-
eins aðgengilegir tæknimönnum
Símans vegna prófana. Stefnt er að
því að opna fyrir þjónustuna á fyrri
hluta ársins. Ekki verður um sér-
staka 5G-áskrift en tæknin verður
aðgengileg tækjum sem styðja 5G.
„Sumir framleiðendur þurfa að
virkja tækin sín megin frá til að 5G
virki í tilteknu landi. Það á til dæmis
við um síma frá Samsung og Apple.
Þeir vilja gera prófanir og virkja svo
tækin með hugbúnaðaruppfærslu.
Það var eins þegar 4G kom á sínum
tíma,“ sagði Guðmundur.
Tala í síma en hringja
ekki í símanúmer fólks
Sumir láta sér nægja að setja gagnakort í snjallsímann
Unsplash/Raj Rana
Myndspjall Þeim fjölgar sem
hringja ekki í símanúmer fólks.
Ríkið mun veita Landsbjörgu allt að
450 milljóna króna framlag til kaupa
á þremur björgunarskipum á ár-
unum 2021-2023. Skrifað var undir
samkomulag þess efnis í gær en þar
að auki var undirrituð viljayfirlýsing
um kaup á sjö skipum til viðbótar á
næstu tíu árum.
Samkomulagið og viljayfirlýsingin
byggjast á tillögum starfshóps um
eflingu björgunarskipa Lands-
bjargar sem forsætisráðherra skip-
aði í desember 2019. Starfshópurinn
var skipaður í kjölfar þess að Alþingi
vísaði þingsályktunartillögu um efl-
ingu björgunarskipaflota Lands-
bjargar til ríkisstjórnarinnar í maí
2019. Var forsætisráðherra falið að
taka málið til skoðunar og tryggja
verkefninu framgang og fjármagn.
Þetta kemur fram á vef Stjórnar-
ráðsins.
Kaupin eru liður í því að endur-
nýja skipakost Landsbjargar sem er
kominn til ára sinna. Markmiðið er
að leggja grunn að enn öflugra starfi
Landsbjargar á komandi árum, efla
útkallsgetu björgunarsveita og
tryggja öryggi skipa og áhafna
þeirra, segir enn fremur.
Í samkomulagi um kaup á þremur
björgunarskipum fyrir Landsbjörg
felst að ríkið greiði helming kostn-
aðar fyrir hvert skip. Hámarks-
kostnaður við hvert skip verði ekki
meiri en 300 milljónir, þannig að
hlutur ríkisins gæti orðið 150 millj-
ónir. Í fjármálaáætlun fyrir árin
2021-2025 er gert ráð fyrir 450 millj-
óna króna framlagi vegna þessa.
Morgunblaðið/Eggert
Undirritun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra undirrita
samkomulagið fyrir hönd ríkisins. Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson fylgjast með.
Kaupa þrjú
björgunarskip
Ríkið veitir allt að 450 milljónum kr.
Heilbrigðisráðuneytið kynnti í gær í
samráðsgátt stjórnvalda áform um
að leggja fram á Alþingi lagafrum-
varp sem heimili einstaklingum að
hafa í sinni vörslu takmarkað magn
ávana- og fíkniefna.
Þannig verði bæði varsla og með-
ferð efna, sem teljast vera til eigin
nota í takmörkuðu magni, gert refsi-
laust.
Ráðuneytið vísar til þess, að á síð-
asta löggjafarþingi voru samþykkt
lög um neyslurými en með gildistöku
þeirra var veitt undanþága frá því
ákvæði laga um ávana- og fíkniefni
að varsla og meðferð ávana- og fíkni-
efna sé óheimil á íslensku forráða-
svæði. Með undanþágunni hafi verið
lögfest heimild einstaklinga til að
hafa í vörslum sínum ávana- og fíkni-
efni sem neyta má í æð í neyslurými.
Tilvonandi frumvarpi sé m.a. ætlað
að styðja við þessa löggjöf enda talið
að hún nái ekki markmiði sínu án af-
glæpavæðingar neysluskammta.
Fram kemur í umfjöllun ráðuneyt-
isins, að í vinnu við frumvarpið hafi
verið höfð hliðsjón af efni þing-
mannafrumvarps, sem lagt var fram
um þetta efni á síðasta þingi og þeim
athugasemdum sem bárust vegna
þess við þinglega meðferð. Frum-
varp ráðuneytisins byggi á hug-
myndafræði skaðaminnkunar en
hugmyndafræðin vísi til stefna,
verkefna og verklags sem miði fyrst
og fremst að því að draga úr heilsu-
farslegum, félagslegum og efnahags-
legum afleiðingum, notkunar lög-
legra og ólöglegra vímuefna, án þess
að meginmarkmiðið sé að draga úr
vímuefnanotkun.
„Skaðaminnkun gagnast fólki sem
notar vímuefni, fjölskyldum þess,
nærsamfélagi notandans og sam-
félaginu í heild. Með því að afnema
mögulega refsingu vegna vörslu
skammta ólöglegra vímuefna ætl-
aðra til einkanota væri stigið stórt
skref í átt að viðhorfsbreytingu í ís-
lensku samfélagi gagnvart fólki sem
notar vímuefni, lögleg sem ólögleg.
Vísindarannsóknir hafa ítrekað sýnt
fram á að refsingar hafa lítil sem
engin áhrif til breytingar á hegðun
einstaklinga heldur eru margir aðrir
samverkandi persónubundnir þættir
sem hafa áhrif á áhugahvöt einstak-
lings til breytinga,“ segir m.a. í um-
fjöllun ráðuneytisins.
Megi hafa fíkniefni til eigin nota
Heilbrigðisráðuneytið kynnir áform um lagabreytingar Varsla og meðferð
efna í takmörkuðu magni verði refsilaust Styðji við löggjöf um neyslurými
Morgunblaðið/Júlíus
Kannabisræktun Verði frumvarpið að lögum verður varsla og meðferð
vímuefna í takmörkuðu magni til eigin nota gert refsilaust.
Ungur drengur sem var í bifreið-
inni sem hafnaði í sjónum í Skötu-
firði í Ísafjarðardjúpi á laugardag
lést á Landspítalanum í gær.
Hann hét Mikolaj Majewski.
Þrennt var í bílnum en móðir
Mikolaj, Kamila Majewska, lést á
laugardagskvöld.
Fjölskyldan var búsett á Flat-
eyri og var að koma frá Póllandi
skömmu áður en slysið varð. Bíll-
inn fór út af veginum í mikilli
hálku og hafnaði úti í sjó.
Hálka og krapi töfðu fyrir
björgunarliði á leiðinni á vettvang
og þá þurftu vegfarendur sem
komu að slysinu að aka annað til
að ná símasambandi þannig að
hægt væri að hringja í Neyðarlín-
una.
Tvær þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar voru kallaðar til og fluttu
þær fjölskylduna á spítala í
Reykjavík.
Drengur-
inn látinn