Morgunblaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 22
HM 2021 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Það eru fáir sem þekkja svissneskan handbolta betur en Aðalsteinn Eyj- ólfsson, þjálfari meistaraliðs Kadet- ten í Sviss, en hann hefur stýrt liðinu frá því í febrúar 2020. Ísland mætir Sviss í fyrsta leik sínum í milliriðli 3 á heimsmeist- aramótinu í Egyptalandi í borginni 6. október í dag en Ísland er með 2 stig í riðlinum en Sviss er án stiga. Sviss hefur komið á óvart á mótinu en liðið fékk óvænt sæti á HM, degi fyrir fyrsta leik, eftir að Bandarík- in þurftu að draga sig úr keppni vegna fjölda kór- ónuveirusmita í herbúðum liðsins. „Þetta verður áhugaverð rimma,“ sagði Að- alsteinn í samtali við Morg- unblaðið. „Svissararnir eru með góða leik- menn og koma óvænt og algjörlega pressulausir inn í mótið. Þeir eru mjög vel undirbúnir og það eru fá landslið sem æfa jafn vel og sviss- neska landsliðið. Það er oft gert hlé á deildarkeppninni hérna í Sviss, og oftar en gengur og gerist annars staðar í Evrópu, til þess eins að landsliðið fái meiri tíma þess að vinna saman. Það hefur ákveðinn uppgangur átt sér stað í landinu og eins hafa margir leikmenn héðan verið að feta sig áfram í þýsku Bundesligunni. Þeir eru með mjög góða leikmenn eins og Andy Schmid sem er enn þá í fullu fjöri með Rhein-Neckar Löwen þrátt fyrir að vera orðinn 37 ára gamall. Alen Milosevic, sem leikur með Leipzig, er frábær sóknarlínumaður og Lenny Rubin, leikmaður Wetzlar, er einnig mjög öflugur. Roman Si- dorowicz er einnig mjög hættulegur gegnumbrotsmaður og þessir leik- menn vita út á hvað þetta gengur. Það er helst hægra megin þar sem þeir eru í vandræðum og þunnskip- aðir en heilt yfir eru þeir með hörku- leikmenn og þeirra styrkleiki er gott skipulag. Þeir spila mikið 7 gegn 6 þegar svo ber undir og þetta er kannski ekkert ósvipað lið og Portú- gal, þótt Sviss sé kannski ekki alveg með sömu breiddina og Portúgal- arnir,“ bætti Aðalsteinn við. Þurfa að loka á Schmid Sviss gaf Frakklandi hörkuleik í lokaleik sínum í riðlakeppninni og hefur Sviss sýnt lipra takta á mótinu til þessa. „Þeir spiluðu í gær [fyrradag] gegn Frökkum og töpuðu með einu marki á eigin klaufaskap og óðagoti. Þeir spiluðu frábæra vörn og fengu frábæra markvörslu í þeim leik. Heilt yfir er innri blokkin hjá þeim gríðarlega öflug og þeir hafa spilað þessa klassísku 6-0 vörn mjög vel til þessa á mótin. Þeirra leikur veltur aðallega á því hvort Andy Schmid og Alen Milosevic ná sér á strik og ef það gerist þá verður verkefnið gríð- arlega erfitt að leysa. Eins ef þeir ná sér upp varnarlega og markvarslan dettur inn þá geta þeir sótt hratt á okkur úr hraðaupphlaupum. Það er algjört lykilatriði fyrir okkur að loka vel á Schmid ef við ætlum okkur sig- ur gegn Sviss og eins að hlaupa vel til baka. Það helsta sem háir þeim, öfugt við okkur Íslendinga, er að þeir eru frekar lágstemmdir og draga frekar úr væntingunum en hitt. Þeir líta á sig sem litlu þjóðina í öllum leikjum, þótt þeir séu með þessa frábæru leikmenn innanborðs. Þeir gætu auð- veldlega sett sér hærri markmið en þeir vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og það er kannski hugarfarið sem háir þeim einna mest. Ef við værum enn þá með Ólaf Stefánsson innan- borðs, topp línumann og góða skyttu í Bundesligunni þá er ég nokkuð sannfærður um að við myndum setja okkur háleit markmið en það er akk- úrat öfugt í Sviss og það má alveg segja að þeir séu ekki nægilega stór- huga oft á tíðum.“ Mikil gleði í Sviss Guðmundur Þórður Guðmunds- son, landsliðsþjálfari Íslands, hefur verið duglegur að hreyfa við sínu liði á HM og gæti það ráðið úrslitum í dag. „Þetta er í fyrsta sinn síðan á HM 1995 á Íslandi sem Sviss er með á heimsmeistaramótinu og það ríkir mikil gleði með það í Sviss. Leik- menn eins og Andy Schmid eru mögulega að spila á sínu síðasta heimsmeistaramóti og þeir eru því ansi vel gíraðir. Eins voru þeir hrika- lega ánægðir með að klára fyrsta leikinn gegn Austurríki og tryggja sig þannig inn í milliriðil. Það var mikilvægt fyrir svissneskan hand- bolta því nú eru þeir eru komnir í hærri styrkleikaflokk sem eykur möguleika þeirra að komast inn á stórmót í framtíðinni. Þeir gætu hins vegar lent í því að það sé komin ákveðin þreyta í helstu leikmenn liðsins þar sem þeir spiluðu allan tímann á sínu sterkasta liði í öllum þremur leikjum sínum í riðla- keppninni. Þetta eru átta til níu leik- menn sem þeir hafa spilað á og þegar komið er inn í milliriðla gæti orkan og bensínið verið það sem telur. Þrátt fyrir að það vanti sterka leik- menn hjá okkur þá er breiddin orðin miklu meiri hjá okkur og við höfum skipt spiltímanum vel á milli leik- manna liðsins. Það gæti gefið okkur þessa aukaorku sem til þarf þegar komið er inn í milliriðilinn,“ bætti Aðalsteinn við í samtali við Morg- unblaðið í gær. Hugarfarið háir svissneska liðinu kannski einna mest Ljósmynd/úr einkasafni Vörn Bjarki Már Elísson, Elliði Snær Viðarsson og félagar þeirra í landsliðinu þurfa að halda vöku sinni gegn Sviss.  Íslenska landsliðið hefur leik í milliriðli gegn Sviss á HM í Egyptalandi í dag Aðalsteinn Eyjólfsson Íslenska landsliðið flutti sig um set í Egyptalandi í gær og er búið að koma sér fyrir á hóteli á nýjum stað. Þar verður liðið meðan á keppni í milliriðlinum stendur en Ísland mun mæta Sviss, Frakk- landi og Noregi í borginni 6. októ- ber í Egyptalandi. Þegar Morgunblaðið ræddi við fjölmiðlafulltrúa HSÍ, Kjartan Vídó Ólafsson, í gær var landsliðið á æf- ingu og dagskráin hafði verið þétt. Hópurinn færði sig á milli staða, leikmenn funduðu með þjálfurum og æfðu í æfingahöllinni. Allir leik- menn Íslands voru með á æfing- unni og því er ekki útlit fyrir að höfuðhöggin sem Elvar Örn Jóns- son og Gísli Þorgeir Kristjánsson fengu gegn Marokkó dragi dilk á eftir sér. Öll sex liðin í milliriðlinum eru á sama hóteli sem er staðsett um 500 metra frá píramídunum sem Egyptar eru frægir fyrir. Að sögn Kjartans er hópurinn nú skimaður fyrir kórónuveirunni á hverju kvöldi. Þar hafa mótshaldarar gef- ið í vegna þeirra smita sem komið hafa upp á mótinu. kris@mbl.is Allir með á æfingunni í gær LANDSLIÐIÐ FLUTTI SIG UM SET 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021 England West Ham – WBA.................................... 2:1 Leicester – Chelsea.................................. 2:0 Staðan: Leicester 19 12 2 5 35:21 38 Manch. Utd 18 11 4 3 34:24 37 Manch. City 17 10 5 2 29:13 35 Liverpool 18 9 7 2 37:21 34 Tottenham 18 9 6 3 33:17 33 Everton 17 10 2 5 28:21 32 West Ham 19 9 5 5 27:22 32 Chelsea 19 8 5 6 33:23 29 Southampton 18 8 5 5 26:21 29 Arsenal 19 8 3 8 23:19 27 Aston Villa 15 8 2 5 29:16 26 Leeds 18 7 2 9 30:34 23 Crystal Palace 19 6 5 8 22:33 23 Wolves 19 6 4 9 21:29 22 Newcastle 18 5 4 9 18:30 19 Brighton 19 3 8 8 22:29 17 Burnley 17 4 4 9 9:22 16 Fulham 17 2 6 9 14:25 12 WBA 19 2 5 12 15:43 11 Sheffield Utd 19 1 2 16 10:32 5 FA bikarinn, 3. umferð: Southampton – Shrewsbury.................... 2:0 Þýskaland Mönchengladbach – Werder Bremen .... 1:0 Leverkusen – Dortmund ......................... 2:1 Hertha Berlín – Hoffenheim................... 0:3 Mainz – Wolfsburg ................................... 0:2 Holland Bikarkeppni, 16-liða úrslit: Maastricht – Excelsior 6:7 eftir vítak. (2:2)  Elías Ómarsson lék allan leikinn og skor- aði í venjulegum leiktíma og í vítakeppninni fyrir Excelsior. Katar Umm Salal – Al-Arabi ............................. 0:0  Aron Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi og Heimir Hallgrímsson þjálfar.  Olísdeild kvenna KA/Þór – HK ........................................ 31:19 FH – Valur ............................................ 15:37 Staðan: Valur 5 4 0 1 146:106 8 KA/Þór 5 3 1 1 115:102 7 Fram 4 3 0 1 107:100 6 ÍBV 4 2 1 1 94:90 5 HK 5 2 0 3 122:125 4 Stjarnan 4 2 0 2 96:95 4 Haukar 4 1 0 3 92:109 2 FH 5 0 0 5 101:146 0 HM karla í Egyptalandi A-RIÐILL: Þýskaland – Ungverjaland................. 28:29  Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland. Úrúgvæ – Grænhöfðaeyjar ................... 10:0 Lokastaðan: Ungverjaland 3 3 0 0 107:73 6 Þýskaland 3 2 0 1 81:43 4 Úrúgvæ 3 1 0 2 42:87 2 Grænhöfðaeyjar 3 0 0 3 27:54 0 B-RIÐILL: Spánn – Túnis ....................................... 36:30 Brasilía – Pólland ................................. 23:33 Lokastaðan: Spánn 3 2 1 0 92:85 5 Pólland 3 2 0 1 89:78 4 Brasilía 3 0 2 1 84:94 2 Túnis 3 0 1 2 90:98 1 C-RIÐILL: Japan – Angóla .................................... 30:29  Dagur Sigurðsson þjálfar Japan. Króatía – Katar..................................... 26:24 Lokastaðan: Króatía 3 2 1 0 83:73 5 Katar 3 2 0 1 85:80 4 Japan 3 1 1 1 88:89 3 Angóla 3 0 0 3 74:88 0 D-RIÐILL: Barein – Kongó.................................... 34:27 Halldór J. Sigfússon þjálfar Barein. Danmörk – Argentína .......................... 31:20 Lokastaðan: Danmörk 3 3 0 0 104:59 6 Argentína 3 2 0 1 72:74 4 Barein 3 1 0 2 75:85 2 Kongó 3 0 0 3 68:101 0 Staðan í milliriðli 1: Ungverjaland 2 2 0 0 73:46 4 Spánn 2 1 1 0 56:55 3 Þýskaland 2 1 0 1 71:43 2 Pólland 2 1 0 1 59:50 2 Brasilía 2 0 1 1 52:62 1 Úrúgvæ 2 0 0 2 32:87 0 Staðan í milliriðli 2: Danmörk 2 2 0 0 65:40 4 Króatía 2 1 1 0 55:53 3 Katar 2 1 0 1 55:55 2 Argentína 2 1 0 1 44:52 2 Japan 2 0 1 1 58:60 1 Barein 2 0 0 2 41:58 0 Leikir í dag: 14.30 Sviss – ÍSLAND ............... Milliriðill 3 14.30 N-Makedónía – Slóvenía................... 4 17.00 Frakkland – Alsír .............................. 3 17.00 Rússland – Egyptaland..................... 4 19.30 Portúgal – Noregur ........................... 3 19.30 Svíþjóð – Hvíta-Rússland ................. 4 Svíþjóð Lugi – Sävehof ..................................... 28:27  Hafdís Renötudóttir var ekki í leik- mannahópi Lugi.   „Hann [Tomas Svensson] hringdi náttúrulega í mig um leið og baðst afsökunar. En ég auðvitað gekk á hann og spurði hann hvað honum gengi til. Í rauninni er það sem kemur út úr þessu að það var bara samskiptaleysi hjá þeim, þjálf- urunum og innan HSÍ,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, við RÚV vegna ummæla Svenssonar, markmannsþjálfara Ís- lands, í Aftonbladet þess efnis að læknar íslenska liðsins hefðu ekki skoðað Aron vegna meiðslanna sem halda honum frá keppni. Svensson bað Aron afsökunar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Meiddur Aron Pálmarsson var skoð- aður af Brynjólfi Jónssyni lækni. Excelsior tryggði sér í gær sæti í átta liða úrslitum hollenska bikars- ins í fótbolta eftir sigur á Maast- richt á útivelli. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Elías Már Ómarsson kom Ex- celsior yfir á 16. mínútu með marki úr vítaspyrnu en staðan eftir venju- legan leiktíma var 2:2 og réðust úr- slitin í vítaspyrnukeppni. Elías tók aðra spyrnu Excelsior í vítakeppn- inni og skoraði en Excelsior nýtti fimm af sex vítaspyrnum sínum en Maastricht fimm og komst Excelsi- or því áfram. johanningi@mbl.is Ljósmynd/KSÍ Vítaskytta Elías Már Ómarsson skoraði tvívegis af vítapunktinum. Elías Már í sviðsljósinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.