Morgunblaðið - 20.01.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ALLT UNDIR 250 ÞÚSUNDUM ER Í DAG
TALIÐ TIL SKRANSKARTGRIPA.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... raunveruleg þegar
svo margt er fals.
ÉG ER SVOLÍTIÐ
STRESSAÐUR ÉG SAGÐI „SVOLÍTIД
ÞAÐ ER SKILTI
INNI Á BAÐI
SEM SEGIR AÐ
„STARFSFÓLK
EIGI AÐ ÞVO
HENDUR”!
OG HVAÐ
MEÐ ÞAÐ? ÞAÐ ER NIÐURLÆGJANDI! ÉG GET FULLVEL ÞVEGIÐ HENDURNAR SJÁLFUR
ÞETTA VAR KAFFITÍMINN SEM ÞEIR
HÖFÐU BEÐIÐ SVO LENGI EFTIR.
við vorum að eignast á Grenimel í
Vesturbænum. Æskuslóðir mínar
eru jú þar og það yljar mér um
hjartarætur að vera að flytja aftur á
götuna sem ég ólst upp á. Minningar
um móður mína sem lést fyrir 17 ár-
um eru mér enn ljóslifandi á þeim
slóðum.
Í dag er ég hamingjusöm og ást-
fangin. Hver dagur er gjöf í lífinu og
ég er stolt af því að verða fertug í
dag. Lífið er gott.“
Fjölskylda
Maki Söru er Andri Thor Birgis-
son, f. 7.7. 1981, framleiðandi. For-
eldrar Andra Thors eru Maríanna
Friðjónsdóttir, 13.11. 1953, sjón-
varpsframleiðandi, býr í Danmörku,
og Birgir Þór Bragason, 7.2. 1957,
dagskrárgerðarmaður, býr í Dan-
mörku. Fyrri maki Söru er Sigurður
Einar Guðmundsson, f. 23.6. 1969,
flugstjóri. Þau skildu 2019.
Sonur Söru er Þórður Harry Kerr,
f. 2.10. 2000, og dætur Söru og Sig-
urðar eru Daníella Björk Sigurðar-
dóttir, f. 21.10. 2008; Dóra Elísabet
Ísabella Sigurðardóttir, f. 30.4. 2011
og Ísól Athena Sigurðardóttir, f.
24.7. 2013.
Systkini Söru eru 1) Eygló Ósk
Þórðardóttir, f. 22.6. 1976, læknir í
Bandaríkjunum, eiginmaður hennar
er Þorvarður Ragnar Hálfdanarson
læknir, og 2) Gylfi Jökull Þórðarson,
f. 29.12. 2008.
Foreldrar Söru: Þórður Óskars-
son, f. 31.8. 1953, læknir og sérfræð-
ingur í kvensjúkdómum og fæðing-
arhjálp, og Steinunn Helgadóttir, f.
13.2. 1953, d. 4.4. 2004, félagsráð-
gjafi. Þau bjuggu í Reykjavík og voru
gift í 27 ár, eða þar til Steinunn féll
frá. Þórður giftist Ingunni Gylfadótt-
ur árið 2016 og búa þau í Kópavogi.
Þau eiga einn son saman, Gylfa
Jökul.
Sara Elísa
Þórðardóttir
Jón Ófeigsson
bóndi í Vatnagarði í Landsveit, Rang.
Guðfinna Þórðardóttir
húsfreyja í Vatnagarði
Óskar Jónsson
kennari og smiður á Laugarvatni
Eygló Þórðardóttir
húsfreyja og fékkst við
hótelstörf á Laugarvatni
Þórður Óskarsson
læknir, býr í Kópavogi
Þórður Jónsson
bóndi í Vatnsnesi
Sigrún Guðjónsdóttir
húsfreyja í Vatnsnesi í Grímsnesi
Halldór Kristján Júlíusson
sýslumaður á Borðeyri og í Reykjavík
Lára Valgerður Helgadóttir
húsfreyja á Borðeyri og á
Melbæ í Reykjavík
Helgi Kr. Halldórsson
járnsmiður í Reykjavík,
stofnaði Stáliðjuna
Elísabet Gunnlaugsdóttir
húsfreyja og fv. bókhaldari í Reykjavík
Gunnlaugur Kristinsson
múrarameistari í Reykjavík
Steinunn Ólafsdóttir Thorlacius
húsfreyja í Reykjavík
Úr frændgarði Söru Elísu Þórðardóttur
Steinunn Helgadóttir
félagsráðgjafi í Reykjavík
Sigrún Haraldsdóttir yrkir á fés-bók og tekur fram, að hún ætli
ekki að endurnýja gleraugun!
Margar hef um brekkur brölt,
blóðgað leggi, il og góma,
stirð þótt áfram staulist hölt
stafar af mér æskuljóma.
Vitaskuld kallaði þessi snjalla
vísa á viðbrögð. Fyrst var Helga
Guðný Kristjánsdóttir:
Elsku vina eðalflott
ekkert stundar útlitsplott;
gleraugun mött
þú gengur um brött
geislandi broshýr og hott.
Hreinn Guðvarðarson:
Við gerumst flestöll göngumóð
þó göngulagið fyrrum kunni;
hafðu ráð mitt heillin góð
og haltu þig á jafnsléttunni.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
skrifar á Boðnarmjöð að það séu
svo margir svartsýnir á aldurinn
núna að hún ætla að senda heil-
ræðavísu – en muni ekki hvort hún
hafi sent hana áður.
Með aldrinum ljóminn af þér skín
ef að þú sinnir lukkunni,
borðar þitt konfekt og bergir vín
og bótoxið redda hrukkunni.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir:
Oft sé ég ungnaut og kálfa
dagana heilu og hálfa
á netinu naga
hinn nauðbitna haga
sem breytir þeim sumum í bjálfa.
Páll Ólafsson kvað:
Á einu ég sem öðru finn
að úti er lífsins glíma.
Ungur verð ég í annað sinn
aldrei nokkurn tíma.
Eiríkur Jónsson segir að þessi
limra sé aldeilis frábær þótt hún
hafi ekki lifað eins vel og hin sem
hann orti af sama tilefni. – „Pétur
vinur minn á Kópaskeri er snill-
ingur“:
Ármann Þorgrímsson hefur orð á
því að maður sé farinn að eldast:
Enn þó minna fari ferða
feta núna erfið stig
ansi þreyttur er að verða
allt að hljóðna kring um mig.
Maðurinn með hattinn yrkir:
Þeir sem kaupa og þamba öl,
þeirra magnast gortið.
Hrindir burtu hugarkvöl
hagyrðingasportið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Æskuljómi og
sígild heilræðavísa