Morgunblaðið - 27.01.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.01.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  22. tölublað  109. árgangur  ELÍSABET Á MEÐAL VERÐ- LAUNAHAFA FINNA FYRIR ÁHUGA FERÐAMANNA KARÓLÍNA UND- IRRITAÐI SAMN- ING VIÐ TOPPLIÐ VIÐSKIPTAMOGGINN LANDSLIÐSKONA 22VERÐLAUN AFHENT 24-25 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nokkur fyrirtæki vinna nú að hönn- un og fjármögnun nýrra baðlóna hér á landi sem ætlunin er að taka í notkun á næstu árum. Kostnaður við fyrirhuguð verkefni nemur á annan tug milljarða króna, gangi áætlanir eftir. Þá stefna aðstand- endur nýs baðlóns á Kársnesi í Kópavogi að því að opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi á vormán- uðum og nemur framkvæmdakostn- aður við verkefnið ríflega 4 millj- örðum króna að sögn Dagnýjar Pétursdóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem heldur utan um uppbygginguna. Lónið á Kársnesi og þau sem eru á teikniborðinu í Þjórsárdal, á Efri- Reykjum í Biskupstungum og í austanverðum Eyjafirði munu ef allt gengur að óskum bætast við fjöl- breytta flóru einkarekinna baðstaða sem byggðir hafa verið upp hringinn um landið síðustu þrjá áratugi. Eitt og sama fyrirtækið, Bláa lónið, tengist uppbyggingu fimm annarra baðlóna, m.a. þess sem ætlunin er að gera í Þjórsárdal. Kostnaður við það verkefni, sem einnig mun fela í sér hótelstarfsemi, nemur á fimmta milljarð króna. Samkvæmt upplýs- ingum sem ViðskiptaMogginn aflaði gera áætlanir um uppbyggingu á Efri-Reykjum enn ráð fyrir baðlóni og hótelstarfsemi og að heildar- kostnaður við uppbygginguna nemi hátt í 8 milljörðum króna. Vinna við fjármögnun þess verkefnis er nú hafin í kjölfar þess að breytingar á deiliskipulagi á svæðinu voru sam- þykktar rétt fyrir jól. Fjárfesting í farvatninu  Einkareknum baðlónum fjölgar enn  Engin svartsýni þrátt fyrir faraldur MViðskiptaMogginn Tölvuteikning/Zeppelin Arkitektar Næstu skref Um nokkurra ára skeið hefur þróunarfélag unnið að undir- búningi uppbyggingar baðlóns og hótels á Efri-Reykjum í Biskupstungum. Löng saga » Bláa lónið hóf formlega starfsemi árið 1992. » Síðan þá hefur fyrirtækið komið að uppbyggingu á Laug- arvatni, Mývatni, Héraði og nú síðast að verkefni í Þjórsárdal. » Með óbeinum hætti tengist Bláa lónið einnig uppbyggingu sjóbaða á Húsavík. Vetrarfærð var í flestum landshlutum í gær þó greiðfært væri með suður- ströndinni. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók myndina hér að ofan á Húsa- vík en þar var snjóþungt. Í gærkvöldi lokaði Vegagerðin svo þjóðvegi eitt á milli Mývatns og Egilsstaða vegna krapastíflu sem flæddi yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra líktist krapahaugurinn snjóflóði. Hann var um þriggja metra djúpur og náði yfir 200 metra af veginum. Talið er að krapaflóðið hafi hrannast upp um miðjan dag í gær, upp úr klukkan þrjú. »8 Vetrarfærð víða um land og krapaflóð á Austurlandi Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson  Styrmir Þór Bragason, for- stjóri Arctic Ad- ventures, segir endurskipulagn- ingu félagsins langt komna. Fé- lagið hafi selt þrjár rekstrar- einingar og sala á þeirri fjórðu sé í undirbúningi. „Það er fleira í farvatninu. Við erum að ganga frá kaupum á fyrir- tækjum sem eru tengd því sem við viljum styrkja enn frekar,“ segir Styrmir Þór í samtali við Viðskipta- Moggann um uppstokkunina. Félagið sérhæfir sig í ævintýra- ferðum. Þegar mest var störfuðu um 300 manns hjá félaginu en nú eru starfsmennirnir um 20 talsins. Arctic Adventures leitar kauptækifæra Styrmir Þór Bragason  Vilji ferðaþjónustunnar stendur til þess að mögulegt verði að taka á móti litlum hópum af vel stæðum ferðamönnum sem kæmu til Akur- eyrar á einkaþotum. Við komuna myndu þeir framvísa Covid-prófi og vera prófaðir hér. Þá yrðu þeir fluttir á dvalarstað og myndu stunda afþreyingu sína fjarri mannabyggð. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafa síðan í vor átt í viðræðum við sóttvarnayfirvöld um tilslakanir á sóttvarnareglum. Markaðsstofur landshlutanna taka ríkan þátt í því að undirbúa ferðaþjónustuaðila fyrir sumarið. Viðbúið er að aftur verði um ferða- sumar Íslendinga að ræða og horfa nú margir til þess að bjóða upp á spennandi tilboð í gistingu, mat og afþreyingu. »2, 10 Morgunblaðið/Eggert Strokkur Markvisst er unnið að íslensku ferðamannasumri eins og síðasta sumri. Vilja vel stæða ferða- menn til landsins Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að með vorinu verði ráðist í markaðskönnun á rekstri nýs þjóðarleikvangs í Laugardal. Með því verði fylgt eftir valkostagrein- ingu AFL arkitekta sem unnin var fyrir félagið Þjóðarleikvang ehf. Hluthafar eru ríki, borg og KSÍ, en ekki hefur verið rætt formlega um hvernig kostnaðurinn við leik- vanginn muni skiptast milli þeirra. Fjallað er ítarlega um áformin í ViðskiptaMogganum í dag. Að sögn Guðna er m.a. horft til þess að með nýjum leikvangi megi halda nokkra stórtónleika á ári með skærustu stjörnum tónlistarinnar. Kostar frá 8,6 milljörðum Að mati AFL kemur helst til álita að byggja 15.000 eða 17.500 manna völl, en yfirbyggt þak auki notkunar- möguleika. Kynntar eru ólíkar út- færslur sem kosta 8,6-15,8 milljarða. Þjóðarleikvangur aftur á dagskrá  KSÍ lætur meta viðskiptaforsendur Teikning/Zaha Hadid arkitektar Setið hringinn Drög að leikvangi eftir arkitektastofu Zaha Hadid, hins heimskunna arkitekts sem lést 2016. Stofan sýndi verkinu mikinn áhuga, að sögn Guðna, en samstarfið kom til í gegnum EON arkitekta á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.