Morgunblaðið - 27.01.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.01.2021, Blaðsíða 28
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn SKOÐIÐ ÚRVALIÐ Á listverslun.is Verkfærasett 108 stk. Mikið úrval af verkfæratö Va lugtir, y yklabox í miklu úrvali sal ós o fir 30 gerð L Límbyssur ViAir 12V loftdælur í miklu úrvali Startk Hleðslutæki 12V 6A Hjólatjakkur 2T m/tösku Burstasett Dekk og hjól í miklu úrvali AirBrush loftdæla GAGNLEGT Bílrúðu- sköfur Verð frá kr. 395 Rúðuvökvi 995 19.995 frá 995 4.995 5.995 frá 1.495 1.985 frá 795 Snjósköfur Verð frá kr. 1.495 Mikið úrval af myndlista- vörum alltaf Söngkonan Bríet kemur fram á fyrstu tónleikum ársins í Stapa í Hljóma- höllinni í Reykjanesbæ sem haldnir verða á morgun, fimmtudag, klukkan 20. Vegna fjöldatakmarkana verða hundrað miðar seldir fyr- ir fullorðna og hundrað fyrir börn fædd árið 2005 eða síðar og þurfa gestir að bera grímu og sitja í númeruðum sæt- um. Bríet hefur notið mikilla vinsælda hér á landi allt frá því fyrsta breiðskífa hennar, Kveðja, Bríet, kom út í fyrra. Bríet mun á tónleikunum koma fram með gítar- og munnhörpuleikara og er athygli vakin á því að framvísa þarf skilríkjum við inngang til að sýna fram á að miðategund stangist ekki á við aldur gests. Miðasala fer fram á vefnum tix.is. Bríet heldur tónleika í Hljómahöll MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 27. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valur og KA/Þór skildu jöfn þegar liðin mættust í topp- slag sjöttu umferðar úrvalsdeildar kvenna í handknatt- leik, Olísdeildarinnar, í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með 23:23-jafntefli en leikurinn var í járnum allan tímann og skiptust liðin á að skora. Lovísa Thompson var atkvæðamest fyrir Val með 8 mörk en Valskonur eru í efsta sæti deildarinnar með 9 stig. KA/Þór er hins vegar í þriðja sætinu með 8 stig. »23 Valur og KA/Þór skiptust á að skora í toppslagnum á Hlíðarenda ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Grunnskólakennarinn María Smáradóttir Jóhönnudóttir er mikill göngugarpur, tekur góðar náttúru- lífsmyndir á ferð úti á víðavangi og hefur birt úrval þeirra á Facebook tvisvar til þrisvar í viku undanfarin ár. „Náttúran er í svo mörgum myndum og ég birti myndirnar mín- ar til þess að leyfa öðrum að njóta þess sem ég upp- lifi,“ segir hún. María kennir í Fellaskóla í Breiðholti og fer gjarnan í göngu- ferðir að loknum vinnudegi. Hún segir að náttúran og litadýrðin heilli sig og hún leggi mikið upp úr því að festa það sem fyrir augu ber á mynd til þess að geta rifjað upp minning- arnar. „Ég er bara áhugaljósmynd- ari og hef gaman af myndum,“ segir hún. Bætir við að hún hafi ekki lært ljósmyndun heldur þreifað sig áfram. „Ég fór að vísu á kvöld- námskeið fyrir um tveimur árum, fyrst og fremst til þess að læra á nýju myndavélina mína.“ Margbreytileg mynd Myndirnar hafa nýst í kennsl- unni. Í því sambandi nefnir hún að hún hafi til dæmis verið á ferð við Jökulsárlón í sumar og þá tekið þar mynd af sel, sem hún hafi síðan sýnt krökkunum í náttúrufræði- tíma. „Mér finnst gaman að mynda fugla og hrafninn er í uppáhaldi hjá mér, en annars er það náttúran í sinni margbreytilegu mynd sem togar mest í mig. Þess vegna get ég verið lengi að ganga stuttan spotta.“ María tekur myndir bæði á myndavél og síma. Hún vinnur í myndunum og flokkar þær og legg- ur áherslu á að hún sé ekki atvinnu- ljósmyndari. Listamenn á ýmsum sviðum séu í stórfjölskyldunni en hvorki þeir né aðrir hafi haft áhrif á sig heldur sé áhuginn sjálfsprottinn. Þegar hún hafi dundað við að skrifa hafi hún til dæmis ekki leitað í smiðju Lofts Guðmundssonar, afa- bróður síns, sem skrifaði ævintýra- söguna Síðasta bæinn í bænum. Annars vilji hún ekki fara nánar út í þá sálma, því hún hafi ekki sýnt ljóð sín og önnur skrif nokkrum manni. „Ég hef gaman af því að skrifa en tala ekki um það. Ljósmyndirnar eru bara frá mér og ég held að ég sé ekki listhneigðari en aðrir.“ Elliðaárdalurinn er eitt helsta göngusvæði Maríu enda stutt frá vinnustaðnum. „Því miður er búið að eyðileggja hann svolítið eftir að hleypt var úr stíflunni, svæðið er bara ljótt núna og ég óttast um fuglalífið,“ segir hún. Tekur samt fram að hún sé ekki sérfræðingur á þessu sviði. „Mér finnst líka mjög gaman að ganga í Laugardalnum, í nágrenni Gróttu á Seltjarnarnesi og við Víf- ilsstaðavatn,“ segir María. Á þess- um stöðum sé enda nægt myndefni og náttúran síbreytileg. „Þessi ástríða fyrir myndum gefur mér líka tækifæri til þess að vera úti og anda að mér fersku lofti, kærkomið eftir inniveru allan daginn.“ Fangar náttúruna Ljósmyndir/María Smáradóttir Jóhönnudóttir Í Laugardalnum Göngustígurinn milli grasagarðsins og skautahallarinnar.  María nýtur útiveru og myndar það sem fyrir augu ber Að sumarlagi Vestrahorn á Stakkanesi í kyrrð og ró. María Smáradóttir Jóhönnudóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.