Morgunblaðið - 27.01.2021, Síða 28
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
SKOÐIÐ ÚRVALIÐ Á
listverslun.is
Verkfærasett 108 stk.
Mikið úrval af
verkfæratö
Va lugtir,
y
yklabox í
miklu úrvali
sal ós o
fir 30 gerð
L
Límbyssur
ViAir 12V loftdælur
í miklu úrvali
Startk
Hleðslutæki 12V 6A
Hjólatjakkur 2T m/tösku
Burstasett
Dekk og hjól
í miklu úrvali
AirBrush loftdæla
GAGNLEGT
Bílrúðu-
sköfur
Verð frá
kr. 395
Rúðuvökvi
995
19.995
frá 995
4.995
5.995
frá 1.495
1.985
frá 795
Snjósköfur
Verð frá
kr. 1.495
Mikið
úrval af
myndlista-
vörum
alltaf
Söngkonan Bríet kemur
fram á fyrstu tónleikum
ársins í Stapa í Hljóma-
höllinni í Reykjanesbæ
sem haldnir verða á
morgun, fimmtudag,
klukkan 20. Vegna
fjöldatakmarkana verða
hundrað miðar seldir fyr-
ir fullorðna og hundrað
fyrir börn fædd árið
2005 eða síðar og þurfa
gestir að bera grímu og
sitja í númeruðum sæt-
um. Bríet hefur notið
mikilla vinsælda hér á
landi allt frá því fyrsta breiðskífa hennar, Kveðja, Bríet,
kom út í fyrra. Bríet mun á tónleikunum koma fram
með gítar- og munnhörpuleikara og er athygli vakin á
því að framvísa þarf skilríkjum við inngang til að sýna
fram á að miðategund stangist ekki á við aldur gests.
Miðasala fer fram á vefnum tix.is.
Bríet heldur tónleika í Hljómahöll
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 27. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Valur og KA/Þór skildu jöfn þegar liðin mættust í topp-
slag sjöttu umferðar úrvalsdeildar kvenna í handknatt-
leik, Olísdeildarinnar, í Origo-höllinni á Hlíðarenda í
gær. Leiknum lauk með 23:23-jafntefli en leikurinn var í
járnum allan tímann og skiptust liðin á að skora. Lovísa
Thompson var atkvæðamest fyrir Val með 8 mörk en
Valskonur eru í efsta sæti deildarinnar með 9 stig.
KA/Þór er hins vegar í þriðja sætinu með 8 stig. »23
Valur og KA/Þór skiptust á að
skora í toppslagnum á Hlíðarenda
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Grunnskólakennarinn María
Smáradóttir Jóhönnudóttir er mikill
göngugarpur, tekur góðar náttúru-
lífsmyndir á ferð úti á víðavangi og
hefur birt úrval þeirra á Facebook
tvisvar til þrisvar í viku undanfarin
ár. „Náttúran er í svo mörgum
myndum og ég birti myndirnar mín-
ar til þess að leyfa öðrum að njóta
þess sem ég upp-
lifi,“ segir hún.
María kennir í
Fellaskóla í
Breiðholti og fer
gjarnan í göngu-
ferðir að loknum
vinnudegi. Hún
segir að náttúran
og litadýrðin
heilli sig og hún
leggi mikið upp
úr því að festa
það sem fyrir augu ber á mynd til
þess að geta rifjað upp minning-
arnar. „Ég er bara áhugaljósmynd-
ari og hef gaman af myndum,“ segir
hún. Bætir við að hún hafi ekki lært
ljósmyndun heldur þreifað sig
áfram. „Ég fór að vísu á kvöld-
námskeið fyrir um tveimur árum,
fyrst og fremst til þess að læra á
nýju myndavélina mína.“
Margbreytileg mynd
Myndirnar hafa nýst í kennsl-
unni. Í því sambandi nefnir hún að
hún hafi til dæmis verið á ferð við
Jökulsárlón í sumar og þá tekið þar
mynd af sel, sem hún hafi síðan
sýnt krökkunum í náttúrufræði-
tíma. „Mér finnst gaman að mynda
fugla og hrafninn er í uppáhaldi hjá
mér, en annars er það náttúran í
sinni margbreytilegu mynd sem
togar mest í mig. Þess vegna get ég
verið lengi að ganga stuttan
spotta.“
María tekur myndir bæði á
myndavél og síma. Hún vinnur í
myndunum og flokkar þær og legg-
ur áherslu á að hún sé ekki atvinnu-
ljósmyndari. Listamenn á ýmsum
sviðum séu í stórfjölskyldunni en
hvorki þeir né aðrir hafi haft áhrif á
sig heldur sé áhuginn sjálfsprottinn.
Þegar hún hafi dundað við að skrifa
hafi hún til dæmis ekki leitað í
smiðju Lofts Guðmundssonar, afa-
bróður síns, sem skrifaði ævintýra-
söguna Síðasta bæinn í bænum.
Annars vilji hún ekki fara nánar út í
þá sálma, því hún hafi ekki sýnt ljóð
sín og önnur skrif nokkrum manni.
„Ég hef gaman af því að skrifa en
tala ekki um það. Ljósmyndirnar
eru bara frá mér og ég held að ég
sé ekki listhneigðari en aðrir.“
Elliðaárdalurinn er eitt helsta
göngusvæði Maríu enda stutt frá
vinnustaðnum. „Því miður er búið
að eyðileggja hann svolítið eftir að
hleypt var úr stíflunni, svæðið er
bara ljótt núna og ég óttast um
fuglalífið,“ segir hún. Tekur samt
fram að hún sé ekki sérfræðingur á
þessu sviði.
„Mér finnst líka mjög gaman að
ganga í Laugardalnum, í nágrenni
Gróttu á Seltjarnarnesi og við Víf-
ilsstaðavatn,“ segir María. Á þess-
um stöðum sé enda nægt myndefni
og náttúran síbreytileg. „Þessi
ástríða fyrir myndum gefur mér
líka tækifæri til þess að vera úti og
anda að mér fersku lofti, kærkomið
eftir inniveru allan daginn.“
Fangar náttúruna
Ljósmyndir/María Smáradóttir Jóhönnudóttir
Í Laugardalnum Göngustígurinn milli grasagarðsins og skautahallarinnar.
María nýtur útiveru og myndar það sem fyrir augu ber
Að sumarlagi Vestrahorn á Stakkanesi í kyrrð og ró.
María Smáradóttir
Jóhönnudóttir