Morgunblaðið - 27.01.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021
England
Southampton – Arsenal .......................... 1:3
Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahóp Arsenal.
Crystal Palace – West Ham .................... 2:3
Newcastle – Leeds ................................... 1:2
WBA – Manchester City ......................... 0:5
Staðan:
Manch. City 19 12 5 2 36:13 41
Manch. Utd 19 12 4 3 36:25 40
Leicester 19 12 2 5 35:21 38
West Ham 20 10 5 5 30:24 35
Liverpool 19 9 7 3 37:22 34
Tottenham 18 9 6 3 33:17 33
Everton 17 10 2 5 28:21 32
Arsenal 20 9 3 8 26:20 30
Aston Villa 17 9 2 6 31:18 29
Chelsea 19 8 5 6 33:23 29
Southampton 19 8 5 6 27:24 29
Leeds 19 8 2 9 32:35 26
Crystal Palace 20 6 5 9 24:36 23
Wolves 19 6 4 9 21:29 22
Burnley 18 5 4 9 10:22 19
Newcastle 20 5 4 11 19:34 19
Brighton 19 3 8 8 22:29 17
Fulham 18 2 6 10 15:27 12
WBA 20 2 5 13 15:48 11
Sheffield Utd 19 1 2 16 10:32 5
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Bournemouth – Crawley ......................... 2:1
Bournemouth mætir Burnley.
B-deild:
Millwall – Watford................................... 0:0
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður á 72. mínútu hjá Millwall.
C-deild:
Wigan – Blackpool................................... 0:5
Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik-
mannahóp Blackpool.
D-deild:
Exeter – Morecambe............................... 0:2
Jökull Andrésson varði mark More-
cambe.
Ítalía
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Inter Mílanó – AC Milan ......................... 2:1
Reykjavíkurmót karla
A-riðill:
Víkingur R. – Leiknir R........................... 2:0
ÍR – Valur ................................................. 0:8
Valur 9, Víkingur R. 9, Leiknir R. 6, ÍR 0,
Þróttur R. 0.
B-riðill:
Fylkir – KR............................................... 4:0
Fram – Fjölnir.......................................... 1:6
Fylkir 6, Fjölnir 3, KR 3, Fram 0.
Olísdeild kvenna
Valur – KA/Þór..................................... 23:23
Staðan:
Valur 6 4 1 1 169:129 9
Fram 5 4 0 1 148:120 8
KA/Þór 6 3 2 1 138:125 8
Stjarnan 5 3 0 2 126:124 6
ÍBV 5 2 1 2 123:120 5
Haukar 5 2 0 3 119:130 4
HK 6 2 0 4 143:152 4
FH 6 0 0 6 121:187 0
Grill 66 deild kvenna
HK U – Grótta ...................................... 22:34
ÍR – Afturelding ................................... 24:26
Grill 66 deild karla
Vængir Júpíters – Fjölnir ................... 18:27
Kría – Selfoss U.................................... 30:24
Valur U – Haukar U............................. 27:22
HM karla í Egyptalandi
Leikir í 8-liða úrslitum í dag:
16.30 Danmörk – Egyptaland
19.30 Frakkland – Ungverjaland
19.30 Spánn – Noregur
19.30 Svíþjóð – Katar
NBA-deildin
Detroit – Philadelphia...................... 119:104
Indiana – Toronto............................. 129:114
Orlando – Charlotte ......................... 117:108
Brooklyn – Miami................................. 98:85
Cleveland – LA Lakers.................... 108:115
Dallas – Denver ................................ 113:117
Chicago – Boston.............................. 103:119
Golden State – Minnesota................ 130:108
Portland – Oklahoma City............... 122:125
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Fjölnir ....... 18.15
DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15
Borgarnes: Skallagrímur – Haukar ... 19.15
Origo-höllin: Valur – Breiðablik.......... 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – FH ........................ 18
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ísafjörður: Hörður – HK ..................... 18.30
Í KVÖLD!
Janus Daði Smárason, landsliðs-
maður í handknattleik, þarf að fara
í aðgerð til að fá bót meina sinna í
öxl. Frá þessu er greint á heimasíðu
Göppingen. Lítið varð úr HM hjá
Janusi vegna meiðslanna en hann
gat aðeins tekið lítillega þátt í
fyrsta leiknum gegn Portúgal.
Hann var hins vegar með í leikj-
unum tveimur gegn Portúgal í und-
ankeppni EM í aðdraganda HM. Ja-
nus hafði glímt við meiðsli í öxl í
nokkurn tíma og ólíklegt er að
hann verði meira með Göppingen á
keppnistímabilinu í Þýskalandi.
Janus á leið í
aðgerð á öxl
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öxlin Janus Daði Smárason leikur
líklega ekki meira í vetur.
Thomas Tuchel hefur verið ráðinn
knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Chelsea. Tuchel, sem
er 47 ára gamall Þjóðverji, tekur
við liðinu af Frank Lampard sem
var rekinn á mánudaginn var. Þjóð-
verjinn stýrði sinni fyrstu æfingu
hjá félaginu í gær en hann var rek-
inn frá Frakklandsmeisturum PSG
í dsesember á síðasta ári.Tuchel
hefur einnig stýrt Mainz og Bo-
russia Dortmund í Þýskalandi á
þjálfaraferli sínum en hann gerði
Dortmund að bikarmeisturum árið
2017.
Tuchel tekinn
við Chelsea
AFP
18 Thomas Tuchel skrifaði undir
átján mánaða samning í London.
ÞÝSKALAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Landsliðskonan Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir vonast til þess að leika
sinn fyrsta leik fyrir þýska stór-
veldið Bayern München í marsmán-
uði.
Miðjukonan, sem er einungis 19
ára gömul, skrifaði undir þriggja og
hálfs árs samning í Þýskalandi en
hún er að jafna sig á hnémeiðslum og
vonast til þess að hefja æfingar með
þýska liðinu í næstu viku.
Karólína varð Íslandsmeistari
með Breiðabliki síðasta haust en hún
gekk til liðs við Blika frá uppeldis-
félagi sínu FH eftir tímabilið 2017 og
á að baki 78 leiki í efstu deild þar
sem hún hefur skorað ellefu mörk.
Þrátt fyrir ungan aldur og að vera
að stíga upp úr meiðslum ætlar Kar-
ólína sér stóra hluti með þýska stór-
liðinu á komandi leiktíð en Bayern
hefur þrívegis orðið Þýskalands-
meistari; 1976, 2015 og 2016.
„Öll umgjörðin hérna í kringum
félagið er svakalega flott og fag-
mennskan er gríðarlega mikil,“
sagði Karólína í samtali við Morg-
unblaðið.
„Ég er í endurhæfingu þessa
stundina eftir að hafa gengist undir
aðgerð á hné í desember en samt
sem áður er ég að æfa tíu sinnum í
viku. Það er því æft af fullum krafti,
þótt ég sé í endurhæfingu, en áhersl-
an er mestmegnis á þolæfingar þótt
boltanum sé aðeins blandað með
líka.
Stelpurnar hérna eru mjög indæl-
ar og mér hefur verið tekið gríð-
arlega vel af bæði leikmönnum og
öllum sem starfa í kringum félagið.
Móttökurnar sem ég hef fengið hafa
í raun komið mér aðeins á óvart og
ég gæti ekki verið spenntari fyrir
komandi tímum með liðinu,“ bætti
Karólína við.
Ætlaði að spila á Íslandi
Karólína skrifaði undir þriggja
ára samning við Breiðablik í lok nóv-
ember og var planið að spila á Ís-
landi á komandi keppnistímabili.
„Það var einhver áhugi frá liðum í
Skandinavíu en planið var alltaf bara
að taka alla vega eitt ár í viðbót
heima á Íslandi. Svo kom Bayern
München allt í einu inn í þetta og ég
heyrði fyrst af áhuga þeirra þegar
umboðsmaðurinn minn hringdi í mig
í miðjum lokaprófum í Háskóla Ís-
lands. Í framhaldinu af því fór ég á
fund með forráðamönnum félagsins
og eftir það var þetta í raun aldrei
spurning.
Mér fannst þetta einfaldlega of
gott tækifæri til þess að hafna því
enda félagið eitt af þeim stærri í
Evrópuboltanum. Ég er fyrst og
fremst þakklát Breiðabliki fyrir það
hvernig þeir tóku á málinu og það
var mjög fagmannlega staðið að öllu
í kringum þessi félagaskipti til
Þýskalands.
Meirihluti leikmanna Bayern-
liðsins býr í sama hverfinu í Münc-
hen og ég hef þess vegna verið mjög
lítið ein síðan ég kom út. Andinn í
hópnum er virkilega góður og leik-
menn eru í miklum samskiptum. Það
er stundum erfitt að vera ekki með
alla þjónustuna frá mömmu og
pabba en ég plumma mig bara frek-
ar vel þótt ég segi sjálf frá. Heimþrá-
in hefur því minnt mun minna á sig
en ég átti von á.“
Bæjarar á miklu skriði
Bayern München er með 36 stig
eða fullt hús stiga í efsta sæti þýsku
1. deildarinnar. Þá hefur liðið skorað
40 mörk á tímabilinu og aðeins feng-
ið á sig eitt mark en keppni hefst að
nýju í Þýskalandi hinn 12. febrúar
eftir vetrarfrí.
„Það er undir sjálfri mér komið að
vinna mér inn sæti í byrjunarliðinu
en þeir sjá mikla hæfileika í mér og
eru spenntir að fá mig út á æf-
ingasvæðið. Það er mikil ákefð og
álag í deildinni þannig að ég mun fá
tækifæri til þess að sýna mig og
sanna og ég er virkilega spennt fyrir
því að hefja æfingar í næstu viku því
ég veit fyrir víst að þjálfararnir og
aðrir í kringum liðið hafa mikla trú á
mér. Eins og staðan er í dag sé ég
fram á að missa af kannski fyrstu
tveimur til þremur leikjunum eftir
vetrarfrí en ég vonast til þess að
vera komin af stað í marsmánuði. Ég
spilaði fyrir Steina [Þorstein Hall-
dórsson] hjá Breiðabliki og hann var
lítið fyrir það að breyta liðinu og
maður er því öllu vanur. Það er hins
vegar þétt leikjadagskrá í mars og
ég hef heyrt að Jens Scheuer, þjálf-
ari Bayern, sé duglegur að hreyfa
við liðinu, alla vega einni og einni
leiksstöðu, bæði þegar kemur að tak-
tík og eins til þess að hvíla og dreifa
álaginu. Ég vonast auðvitað til þess
að fá einhverjar mínútur þegar ég
verð orðin leikfær en það eina sem
ég get gert þangað til er að gefa allt
mitt í þetta á æfingum og svo bara
vera tilbúin þegar kallið kemur.“
Liðsfélagar Karólínu í Breiðabliki
frá síðustu leiktíð, þær Alexandra
Jóhannsdóttir og Sveindís Jane
Jónsdóttir, sömdu báðar við þýsk lið
á dögunum. Karólína er spennt að
mæta þeim á vellinum en Alexandra
gekk til liðs við Frankfurt á meðan
Sveindís samdi við Wolfsburg.
Sveindís mun leika á láni hjá Kristi-
anstad í Svíþjóð á næstu leiktíð.
Framtíðin björt hjá landsliðinu
„Það verður örugglega mjög skrít-
ið að mæta þeim á vellinum. Ég og
Alex [Alexandra Jóhannsdóttir] höf-
um verið eins og systur síðan ég
gekk til liðs við Breiðablik. Það verð-
ur mjög skrítið að mæta henni en á
sama tíma erum við líka nokkuð van-
ar því vera hvor í sínu liðinu enda
ólst hún upp í Haukum á meðan ég
ólst upp í FH. Það verður gaman að
kljást við hana og ég er að sjálfsögðu
spennt að vinna hana hérna úti líka.“
Karólína, sem á að baki fjóra A-
landsleiki, lék sína fyrstu mótsleiki
með liðinu síðasta haust í undan-
keppni EM en liðið er án þjálfara
eftir að Jón Þór Hauksson lét af
störfum í byrjun desember.
„Að taka þetta stóra skref til
Þýskalands var líka gert með lands-
liðið í huga. Að spila fyrir stórt félag
í Þýskalandi mun bara gera landslið-
inu gott held ég og vonandi eykur
þetta möguleika manns á því að spila
reglulega fyrir landsliðið. Framtíðin
hjá kvennalandsliðinu er mjög björt
og það eru spennandi tímar fram
undan.
Hvað varðar þjálfaramál lands-
liðsins þá hefur maður heyrt nokkr-
um nöfnum kastað fram í umræðuna
og mér líst mjög vel á þá sem hafa
verið orðaðir við starfið. Ég hugsa að
landsliðið hafa aldrei verið jafn
tæknilega gott, fótboltalega séð.
Vonandi fá yngri leikmenn áfram
tækifæri með liðinu hjá nýjum þjálf-
ara og auðvitað er markmiðið svo að
sýna sig og sanna á lokakeppni EM
2022 á Englandi,“ bætti Karólína við
í samtali við Morgunblaðið.
Heyrði af áhuganum hjá
Bayern í miðri prófatörn
Karólína skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við topplið Þýskalands
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
München Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er komin til efsta liðsins í einni sterkustu deild heims í kvennafótboltanum.