Morgunblaðið - 27.01.2021, Side 2

Morgunblaðið - 27.01.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við sjáum mikil tækifæri í fjalla- skíðamennsku og vonum að yfirvöld verði tilbúin að liðka til svo hægt verði að taka á móti slíkum ferða- mönnum hingað í vetur,“ segir Arn- heiður Jóhannsdóttir, framkvæmda- stjóri Markaðsstofu Norðurlands. Arnheiður segir að hagsmuna- aðilar í ferðaþjónustu hafi síðan í vor átt í viðræðum við bæði hátt setta aðila í stjórnsýslunni sem og sótt- varnayfirvöld um tilslakanir á sótt- varnareglum. Beðið er svara. Vilji ferðaþjónustunnar stendur til þess að hægt verði að taka á móti litlum hópum af vel stæðum ferða- mönnum sem kæmu hingað á einka- þotum til Akureyrar. Við komuna myndu þessir gestir framvísa nýju Covid-prófi en yrðu jafnframt próf- aðir hér. Frá Akureyri yrði hópur- inn fluttur á dvalarstað og myndi stunda afþreyingu sína fjarri mannabyggð. Hópurinn væri því í einangrun á meðan beðið væri nið- urstöðu prófsins en gæti stundað fjallaskíði. „Við teljum þetta raunhæft og höfum kynnt ferlið fyrir yfirvöldum. Einn leiðsögumaður yrði með hverj- um hópi, sótthreinsanir alls staðar og starfsmenn sem kæmu nálægt hópnum færu í sóttkví eftir að hann fer. Þyrluskíðafyrirtækin eru með ofboðslega flottar aðstæður og þess- ir ferðamenn þurfa ekki að fara neitt lengra.“ Arnheiður segir að ef sóttvarna- yfirvöld gæfu grænt ljós á slíkt fyr- irkomulag væri þess ekki langt að bíða að hingað kæmu lúxusferða- menn. „Það eru ferðaskrifstofur til- búnar með viðskiptavini. Þetta myndi skila miklum tekjum. Við reiknum með að þetta myndi skila okkur 1,5 milljörðum bara hér fyrir norðan og þá eru Vestfirðir eftir.“ Gæti skilað 1,5 milljörðum í ár  Vilja fá hingað ferðamenn í fjalla- skíðamennsku Morgunblaðið/Hari Fjallaskíði Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir ferðaþjónustuna nyrðra. Loka átti á rafmagn til rækjuverk- smiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir að fyrirtækið hætti að greiða af skuld sinni við Orkubú Vestfjarða. Elías Jónatansson orkubússtjóri staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt heimildum blaðsins hljóp skuld Kampa á tugum milljóna króna. Aðspurður segist Elías ekki vilja tjá sig um upphæð skulda tiltekinna við- skiptavina. Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrr í vikunni fékk rækjuvinnslan greiðslustöðvun á dögunum eftir að í ljós kom að staða félagsins var allt önnur en fram hafði komið í ársreikn- ingi. Þannig var fjárhagsstaðan miklu verri, en samkvæmt heimildum blaðs- ins skeikaði stöðunni um hundruð milljóna króna. Hefur stjórnar- formaður Kampa, Jón Guðbjartsson, sagt að einum stjórnanda sé þar um að kenna. Elías segir að skuld Kampa gagn- vart Orkubúi Vestfjarða sé að hluta til gömul. Hún hafði lækkað á síðasta ári, eða þar til á seinni hluta ársins þegar síga fór á ógæfuhliðina. „Þá hætta að berast reglulegar greiðslur, en fram að því höfðu plön félagsins verið trúverðug. Þetta var komið þangað að við ætluðum að loka á raf- magnið til þeirra.“ Öðrum af tveimur verklegum stjórnendum Kampa var vísað úr stjórn félagsins í gær. Honum hafði verið sagt upp störfum fyrir jól, en hann er sakaður um að hafa gefið ranga mynd af fjárhagsstöðu fyrir- tækisins. Ætluðu að loka á rafmagnið  Stjórnandanum vísað úr stjórn Andrés Magnússon andres@mbl.is Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra harmar fregnir af því að Pfizer og AstraZeneca geti ekki af- hent jafnmikið bóluefni og til hafði staðið á næstu vikum, en ítrekar samt þá trú sína „að við munum ná að bólusetja þorra þjóðarinnar á fyrstu tveimur fjórðungum þessa árs.“ Heilbrigðisráðherra flutti Alþingi munnlega skýrslu um öflun og dreif- ingu bóluefnis í gær. Þar sagði hún m.a. að gera mætti ráð fyrir að 35.000 Íslendingar yrðu bólusettir við kórónuveirunni fyrir lok mars- mánaðar. Heilbrigðiskerfið væri vel búið undir þetta viðamikla verkefni, en væri háð því hversu ört bóluefni bærist að utan. Hún varaði þó við því að bólusetning myndi „eiga sér stað hægt og bítandi á fyrstu tveimur fjórðungum þessa árs“. Þingmenn misánægðir Ólafur Ísleifsson, þingmaður Mið- flokksins, óskaði eftir rökstuðningi á því áliti, en ráðherra vísaði aðeins til gerðra samninga og afhendingar- áætlunar, sem að vísu væri ekki ná- kvæm. Að fenginni reynslu vonaði hún að þó nú hefði slegið í bakseglin, þá gæti blásið byrlegar síðar. Sömu- leiðis kvaðst hún aðspurð ánægð með þátttöku Íslands í Evrópusam- starfi um bóluefnisöflun. Sigríður Á. Andersen, þing- maður Sjálfstæð- isflokks, gagn- rýndi líkt og Ólafur þá leynd, sem verið hefði um bóluefnismál- in, en spurði jafn- framt hvort það hefði ekki verið óvarlegt að hafa ekki þegar í upphafi tryggt skammta fyrir 90.000 manns, svo unnt væri að bólusetja a.m.k. skilgreinda for- gangshópa. Heilbrigðisráðherra sagði það misskilning að Ísland hefði nokkru ráðið um fjölda þeirra skammta sem til landsins bærust, þar fengi landið aðeins úthlutað úr heildarpotti Evrópusamstarfsins. Sara Elísa Þórðardóttir, þingmað- ur Pírata, vildi vita hvað átt væri við með „þorra þjóðarinnar“, hvort þar væri miðað við hjarðónæmi, svo efnahagslífið gæti tekið við sér á ný. Eins vildi hún vita hvort ekki væri tímabært að Íslendingar reyndu að afla sér bóluefnis óháð Evrópusam- bandinu, sem hefði ekki gengið jafn- vel að afla bóluefnis og að hefði verið stefnt. Ráðherra skýrði ekki nánar hvað átt væri við með þorranum, en taldi útilokað að Íslendingar næðu árangri utan Evrópusamstarfsins. Bóluefni hefði borist hingað í litlum mæli, en nú stæðu vonir til þess að sendingar yrðu reglulegri. Þorrinn bólusettur fyrir júlí  Svandís vongóð þrátt fyrir bóluefnisbakslag  Ánægð með Evrópusamstarfið Svandís Svavarsdóttir Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Arndís Þórarinsdóttir, Hulda Sigrún Bjarna- dóttir og Sumarliði R. Ísleifsson hlutu í gærkvöldi Íslensku bókmennta- verðlaunin 2020 er þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í 32. sinn úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands. Elísabet hlaut verðlaunin í flokki skáldverka fyrir skáldævisöguna Aprílsólarkuldi sem JPV útgáfa gefur út, Arndís og Hulda í flokki barna- og ungmennabóka fyrir skáldsöguna Blokkin á heimsenda sem Mál og menning gefur út og Sumarliði í flokki fræðibóka og rita almenns efnis fyrir bókina Í fjarska norðursins: Ísland og Grænland – viðhorfasaga í þús- und ár sem Sögufélag gefur út. Í þakkarræðu sinni tileinkaði Elísabet verðlaunin aðstandendum þeirra sem veikst hafa á geði. Arndís gerði starf rithöfundarins að umtalsefni og sagði sköpunina vera galdur. Sumarliði gerði fordóma að umtalsefni og minnti á að staðalmyndir hafa tilhneigingu til langlífis. Á menningarsíðum eru ítarleg viðtöl við verðlaunahafa. »24 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020 afhent Lyfjastofnun hefur nú fengið alls átta tilkynningar um andlát í kjöl- far bólusetningar við Covid-19. Engar vísbendingar hafa fundist um tengsl andlátanna og bólusetn- ingarinnar. Í öllum tilvikum er um að ræða aldraða einstaklinga sem bjuggu á heilbrigðisstofnunum. Nýjasta til- kynningin barst vegna einstaklings sem hafði fengið báðar sprauturnar af bóluefni Pfizer/BioNTech. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, bendir á að heilbrigðisstarfsmönnum beri skylda til að tilkynna andlát, leiki grunur á tengslum þess við bólu- setningu. Átta andlát í kjölfar bólusetningar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.