Morgunblaðið - 27.01.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 27.01.2021, Síða 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021 ✝ Helga SvalaSigurðardóttir fæddist á Seltjarn- arnesi 30. júlí 1932. Hún lést 13. janúar 2021. Hún var dóttir Sigurðar Jónssonar skólastjóra, f. 1893, d. 1959, og Þuríðar Helgadóttur kenn- ara, f. 1905, d. 1987. Svala ólst upp í Mýrarhúsaskóla ásamt systk- inum sínum, Jóni Grétari, f. 1929, d. 1982, Margréti Krist- rúnu, f. 1931, d. 2000, og Dóru, f. 1943. Svala giftist árið 1954 Þor- birni Karlssyni prófessor, f. 1927, d. 2012. Þau eignuðust þrjár dætur, Þuríði, f. 1954, Bergþóru Sólveigu, f. 1955, og Helgu, f. 1957. Þuríður er gift Hálfdani Ómari Hálfdanarsyni, f. 1949, og eiga þau saman Önnu Þyrí, f. 1990. Hálfdan Ómar á af Dóru Ófeigsdóttur. Þeirra börn eru Auður Anna, f. 2009, og Ófeigur Orri, f. 2017. Sambýlis- kona Grétars Dórs er Heiðrún Björk Gísladóttir og eiga þau tvær dætur, Hönnu Sólveigu, f. 2013, og Hörpu Margréti, f. 2017. Kári er giftur Eddu Hall- dórsdóttur og er sonur þeirra Hallur, f. 2017. Helga Svala er í sambúð með Sigurði Óla Árna- syni. Helga er gift James Eric Skjelbreia og eiga þau fjóra syni: Lars, f. 1983, Þór, f. 1986, Ara, f. 1989, og Kjartan, f. 1991. Sambýliskona Þórs er Ingrid Almli. Börn þeirra eru Svala, f. 2017, og Knut, f. 2020. Svala lauk verslunarskóla- prófi frá Verslunarskóla Íslands í Reykjavík árið 1950. Auk hús- móðurstarfa vann hún ýmis verslunar- og skrifstofustörf, lengst af sem skólaritari í Val- húsaskóla, Seltjarnarnesi. Svala bjó nær alla sína ævi á Seltjarn- arnesi, en í Kaliforníu á sjöunda áratug síðustu aldar. Svala verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju í dag, 27. janúar 2021, klukkan 13, að við- staddri fjölskyldu og nánustu vinum. fyrra hjónabandi Gauju, f. 1973, og Söru Hlín, f. 1976. Börn Þuríðar og fyrri manns henn- ar, Sigurðar Ind- riðasonar, eru Svala, f. 1978, og Indriði, f. 1981. Svala er gift Ró- berti Gunnarssyni. Þeirra börn eru Birta, f. 2006, Gunnar, f. 2008, og Katla, f. 2011. Dóttir Svölu og Ívars Bjarklind er Hulda Bjarklind, f. 1997. Indriði er giftur Jóhönnu Sigmundsdóttur og eiga þau dæturnar Hildi Þurí, f. 2007, Ás- dísi Ernu, f. 2009, og Sigríði Láru, f. 2015. Bergþóra Sólveig er gift Sig- urði Júlíusi Grétarssyni, f. 1955. Börn þeirra eru Þorbjörn, f. 1979, Grétar Dór, f. 1982, Kári, f. 1985, og Helga Svala, f. 1989. Þorbjörn er í sambúð með Önnu Svala tengdamóðir okkar verkaði dálítið feimin við fyrstu kynni. En það þurfti ekki mikla viðkynningu til að átta sig á að þarna fór óvenjulega sterk kona. Þegar áratugirnir liðu varð manni ljóst að hún var einn tryggasti og mikilvægasti vinur manns. Og við fyrstu kynni gat maður líka látið sér detta í hug að hún væri aðeins óviss í stefnu- málum. En aftur leiddu nánari kynni annað í ljós. Svala reyndist staðföst í besta lagi og þegar til lengdar lét reyndist hún einstak- lega kjarkmikil og þrautgóð manneskja. Á einu sviði var aldrei hætta á neinni byrjendamissýn. Það var augljóst strax við fyrstu kynni að fjölskylda Svölu var þungamiðja lífs hennar og það breyttist aldr- ei. Systkini hennar og stórfjöl- skylda voru henni auðvitað kær en Þorbjörn og afkomendur þeirra í þrjá ættliði – dætur, barnabörn og þeirra börn – voru alla tíð fyrstu þiggjendur sívirkr- ar umhyggju hennar. Hún fæddist í gamla Mýrar- húsaskólanum á Seltjarnarnesi og þar ólst hún upp hjá foreldr- um sínum, Sigurði Jónssyni, skólastjóra og sveitarhöfðingja, frá Stöpum á Vatnsnesi og Þuríði Helgadóttur kennara, frá Stóru- Reykjum í Flóa. Á stríðsárunum þegar breski herinn lagði undir sig hluta skólahússins um hálfs árs skeið bjó fjölskyldan áfram á efri hæð hússins með börnum sínum. Það segir sína sögu um mannkosti þeirra að hermennirn- ir dvöldu í fullri sátt í húsinu með fjölskyldunni á efri hæðinni og vinátta skapaðist á milli þessara ólíku heima. Svala átti því ekki langt að sækja höfðingsskapinn sem ein- kenndi alla tíð heimili þeirra Þor- björns. Þar gegndi Svala fjöl- mörgum hlutverkum sem lúta að stjórnun og rekstri slíks glæsi- heimilis – samkvæmt hefðbund- inni verkaskiptingu tíðarinnar – en samband þeirra hjóna var traust og kærleiksríkt. Þau voru samhent og samtaka í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur, jafnt heima sem á tíðum ferðum sínum um heiminn. Við þökkum áratugasamfylgd góðrar konu og biðjum Guð að blessa minningu hennar. Hálfdan Ómar Hálfdanarson, Sigurður J. Grétarsson, James Eric Skjelbreia. Elsku besta amma Svala mín er því miður fallin frá og er hjarta mitt fullt af sorg, ég er svo leið að hafa ekki náð að flytja til Íslands og sinna henni almenni- lega áður en hún lést, það nístir hjarta mitt, en auðvitað hefur amma örugglega miklu frekar viljað fara til elsku afa sem fyrst. Í hjarta mínu er sem betur fer meira en sorgin, en þar á ég einn- ig urmul af góðum minningum og hef ég leyft þeim að streyma til mín síðustu daga. Amma Svala mín var yndisleg kona, fögur og hlý, dugleg og skemmtileg, með einstakan hlátur sem ég gleymi aldrei. Ég var svo heppin að vera hennar fyrsta barnabarn, næst- um því alnafna, og var því alveg fordekruð. Þvílíkt lán að muna mikið eftir þessu dásemdar dekri og hlýju sem ég fékk frá elsku ömmu og mjög áhugavert hvað ég á margar mjög gamlar minn- ingar. Ætli ég hafi ekki verið í mesta lagi þriggja ára er ég man fyrst eftir mér hjá henni og mér finnst í raun eins og ég hafi átt annað heimili hjá ömmu og afa. Margar minningar eru um það að hafa fengið að gista uppi í hjá ömmu og afa, mér fannst ekkert betra en að fá að kúra hjá elsku ömmu. Ég elskaði ömmu sterkt, já það er líklega réttasta orðið, á tímabili grét ég í hvert skipti þegar við fórum heim eftir að hafa verið í sunnudagslæri hjá ömmu Svölu, svo mikil var ástin. Mér leið eins og það væri að rífa úr mér hjartað, grét mig í svefn því það var svo langt þangað til næsti sunnudagur kæmi, og óbærilegt að bíða þangað til. Ég man ég óskaði mér að ég mætti búa hjá henni alltaf. Sá draumur varð enn eftirsóknarverðari í desember, því það voru líka frá- bærir jólasveinar hjá henni á Barðaströndinni, það sem maður gat ekki fengið í skóinn þar! Á unglingsárunum vann amma sem ritari í Valhúsaskóla, en ég gekk þar í 8. til 10. bekk, og þrátt fyrir mikla gelgju, þá vildi ég samt fara með ömmu heim í hádeginu, þar dekraði hún við mig með nýju ostarúnnstykki úr bakaríinu og hunangsskinku, munaðarvöru sem var ekki algeng heima hjá mér, svo eftir matinn lögðum við afi okkur í sófanum. Amma Svala mín studdi mig sem námsmann, huggaði mig í ástarsorg, passaði Hulduna mína, og er ég óend- anlega þakklát fyrir það hve gott þeirra samband var líka, hún var frábær langamma sem öll mín börn elskuðu mikið. Elsku amma mín, ég er viss um að þú ert aftur komin í faðm elsku afa og að þið vakið yfir okk- ur öllum, saman á ný. Þakka þér fyrir allt það sem þú gafst mér og mínum, þín er og verður sárt saknað og ég gleymi þér aldrei. Svala Sigurðardóttir. Ég er þakklát fyrir að hafa átt ömmu sem var ekki bara hlý og góð kona sem gaf mér bollakökur heldur ein besta vinkona mín sem ég gat slúðrað við og spurt álits á helstu málum. Ég er þakk- lát fyrir að hún og afi hafi búið í minna en tvö hundruð metra fjarlægð, leið sem ég náði að stytta um tugi metra með því að fara í gegnum garða nágranna því tveggja mínútna ferðatími var óviðunandi. Ég sótti svo mik- ið í félagsskap ömmu að á ung- lingsárunum reyndi hún að borga mér fyrir að fara frekar í fé- lagsmiðstöðina, samningur sem náðist ekki. Amma var sönn ættmóðir sem færði alla fjölskylduna saman með föstum happy hour þar sem allir drukku gin og tónik, þeir hugrakkari færðu sig í campari. Eitt skiptið, þá 81 árs, fannst henni fólk ekki vera að standa sig nógu vel og fór og náði í nokkur skotglös og flöskur af ýmsum ókunnum spíra. Djammið klárað- ist þó alltaf fyrir kvöldmat og eft- ir pítsuát gátu gestir farið sáttir heim að horfa á föstudagsmynd- ina á RÚV, búnir með helgar- skammtinn. Seltjarnarnestaugin var sterk, amma bjó síðustu árin í sömu götu og hún fæddist, með öll börn og systkini sem bjuggu á landinu í hálfrar til þriggja mín- útna göngufjarlægð. Ekkert barnabarn hennar hefur hætt sér austur fyrir Suðurgötu, stað- reynd sem ég hélt fullum fetum fram þegar ég bjó í Stokkhólmi – augljóslega töluvert austar – en hefði þó aldrei hætt mér fjær ömmu bestu á Íslandi. Ég er þakklát fyrir hversu mikinn og góðan tíma ég fékk með ömmu. Hann skilar sér auð- vitað í söknuði, en fyrst og fremst í yl við sælar minningar. Ég hef alltaf verið innilega stolt af því að heita í höfuðið á glæsi- legustu konu bæjarins, sem vildi svo skemmtilega til að var líka besta amma í heimi. Helga Svala. Amma Svala var tignarleg kona og höfuð ættarinnar á Sel- tjarnarnesi. Hún var mikill Sel- tirningur enda fædd í Mýrar- húsaskóla, dóttir skóla- og hreppstjórahjóna Seltjarnarnes- hrepps hins forna og bjó þar mestan part ævinnar, umkringd ættingjum. Amma var sannur heimsborgari, víðsýn og hugrökk og allt fram á níræðisaldur ferð- aðist hún mikið og víða. Hún bjó í um áratug í Kaliforníu með afa okkar Þorbirni og brúneygðu dætrunum þremur og gætti áhrifa Kaliforníudvalarinnar ávallt í hefðum, siðum og innan- stokksmunum. Þannig var ýmis- legt sem þótti eðlilegur hlutur á Barðaströndinni hjá ömmu og afa sem ekki þekktist á flestum íslenskum heimilum þess tíma. Amerísku áhrifin þótti okkur til marks um nokkurn lúxus og dró ekki úr aðdáun okkar á ömmu og þeirri vissu að allt væri aðeins betra hjá henni en annars staðar. Jólatrén voru stærri en annars staðar, síminn hennar var úr gulli, sem hún svaraði ekki í með sveitalegu „halló“ heldur þokka- fullu já-i, og vöfflurnar hennar voru stökkar og brakandi en ekki linar og seigar. Meira að segja var hvergi kaldari mjólk eða kók að fá en úr ísskápnum hennar ömmu. Þegar vissum aldri barna- barnanna var náð bættust við happy hour hjá ömmu og afa á föstudögum þar sem okkur var innrættur góður smekkur fyrir gini og tonic. Það var góður skóli. Amma Svala tók öllum alltaf fagnandi, óháð stund eða tilefni. Hún var hlý og umhyggjusöm en ef henni þótti tilefni til var hún afar hreinskiptin og sagði hlutina alltaf beint út. Fram á síðasta dag var amma óaðfinnanleg til fara og það var engu líkara en að hún hafi tekið sólina með sér frá Kaliforníu til Íslands, enda aug- ljóslega sólríkara og skjólsælla í garðinum hjá henni og aldrei virtist sólbrúnkan dofna sem var svo einkennandi fyrir hana. Amma Svala var barngóð og sýndi barnabörnum sínum, og barnabarnabörnum þegar þau komu eitt af öðru í heiminn, mikla ástúð og bar hag þeirra alltaf fyrir brjósti. Við vorum öll „púsimúsi“ (kk.) og „púsamúsa“ (kvk.) hennar ömmu og þó að þau hugtök séu e.t.v. framandi þeim sem ekki þekktu ömmu þá þekkj- um við merkingu þeirra og skil- um til komandi kynslóða, ömmu Svölu til heiðurs. Þínir dætrasynir og fjölskyld- ur, Þorbjörn, Indriði, Grétar Dór og Kári. Svala systir mín var 11 ára þegar ég fæddist. Við vorum fjögur systkinin, öll fædd í Mýr- arhúsaskóla, þar sem faðir okk- ar, Sigurður Jónsson, var skóla- stjóri og móðir okkar, Þuríður Helgadóttir, kenndi handavinnu. Heimili okkar var í skólanum, en á efri hæð hans var íbúð skóla- stjórans og skrifstofa hans en jafnframt skólastjórastöðunni var hann um tíma oddviti, hreppsstjóri o.fl. Svala giftist Þorbirni Karls- syni árið 1954, þá var ég 11 ára. Þau giftu sig í Mýrarhúsaskóla, í kapellunni sem var á neðri hæð hússins, og veislan var uppi í skólastjóraíbúðinni. Þetta var 8. maí. Í minningunni var allt mjög spennandi, bjart og fallegt veður og umhverfi Seltjarnarness skartaði sínu fegursta. Mér fannst þau alveg stórglæsileg og var spennt fyrir að eignast mág, nánast nýjan bróður, hann var svo sætur og góður. Næstu árin eignuðust þau Þurí, Beggu og Helgu og var ég mjög upptekin af því að fá litlar frænkur til að passa, enda hafði ég nánast verið eins og einbirni, svo mikill var aldursmunur á mér og systkinum mínum. Fyrst bjuggu þau á Víðimel 60, en síðan á Melabraut 3 sem Þorbjörn byggði ásamt föður mínum. Svala og Þorbjörn fóru ásamt Þurí og Beggu til Los Angeles og Houston haustið 1956 og Magga systir með þeim sem au-pair. Var það mjög skemmtileg ferð hjá þeim, og þau komu aftur rétt áð- ur en ég var fermd vorið 1957. Árið 1961 var Þorbirni boðið starf í Los Angeles og fluttust þau þangað með dæturnar og var Þurí þá sex ára, Begga fimm ára og Helga fjögurra ára, og bjuggu þar í átta ár. Svala var heimavinnandi með- an þau voru í LA, enda nægt verkefni að annast dæturnar, skólagöngu þeirra o.s.frv. Móðir okkar, foreldrar Þor- bjarnar o.fl. heimsóttu þau í LA. Ég heimsótti þau líka, og fékk vinnu sem hjúkrunarfræðingur við sjúkrahús í LA í átta mánuði. Þá ákváðu Svala og Þorbjörn að fara í heimsókn til Íslands og ákvað ég að fara með þeim heim. Svala og stelpurnar voru heima sumarið 1966 og Þorbjörn kom og sótti þær um haustið. Þetta var yndislegt sumar, stelpurnar rifjuðu upp íslenskuna og eign- uðust vini á Seltjarnarnesi. Árið 1969 fluttust þau aftur til Íslands þegar Þorbjörn tók við stöðu prófessors í vélaverkfræði við Háskóla Íslands. Þau höfðu keypt hús á Barðaströnd 13 og fluttust í það fyrir jólin 1969. Stelpurnar fóru í Mýrarhúsa- skóla, sem þá var orðinn gagn- fræðaskóli, og þar tók Þurí landspróf og gekk vel. Svala fór að vinna hjá Mála- skólanum Mími og síðar sem skólaritari í Valhúsaskóla. Svala systir var glæsileg kona, smekkleg í klæðaburði og vel á sig komin. Hún var dugleg að sækja félagsstarf eldri borgara á vegum bæjar og kirkju, leikhús og tónleika og virk m.a. í starfi Sinawik. Það var áfall fyrir hana þegar Þorbjörn lést fyrir níu árum en hún mætti því af æðruleysi. Svala systir lést að kvöldi 18. janúar á hjúkrunarheimilinu Grund eftir ársdvöl þar. Ég og fjölskylda mín eigum eftir að sakna Svölu mjög því samgangur var mikill á milli okk- ar og hún hafði mikinn áhuga á börnunum okkar og velferð þeirra. Elsku systir, far þú í friði, blessun Guðs fylgi þér, haf þökk fyrir allt og allt. Dóra Sigurðardóttir. Minningar okkar um móður- systur okkar Svölu Sigurðardótt- ur eru ljúfar og fallegar. Svala var einkar barngóð og á yngri ár- um vorum við systkinin reglu- lega í pössun hjá henni og Þor- birni Karlssyni eiginmanni hennar. Við minnumst afmælis- veislna, jólaboða og sérlega glæsilegra áramótapartía á Barðaströndinni. Hún hafði einn- ig unun af því að umgangast börnin okkar þegar þau bættust í hópinn og fylgdist með uppvexti þeirra af athygli. Rausnarskapur og gjafmildi einkenndi Svölu og hún naut þess að halda fallegt heimili. Það var rólegur og góður andi sem ein- kenndi heimilishaldið en einnig nokkuð framandi svipur þar sem Svala og Þorbjörn höfðu búið í Bandaríkjunum. Okkur þótti því ætíð spennandi að koma til þeirra. Svala var alla tíð glæsileg og falleg bæði í fasi og klæðaburði og í eðli sínu frekar mikill töffari. Hún hafði búið í Los Angeles á sjöunda áratug síðustu aldar og mótast af þeirri dvöl. Þau hjónin óku meðal annars Bandaríkin þver og endilöng í samfloti á flutningabíl og fólksbíl með börn- in þegar þau fluttu aftur til Ís- lands. Svala var ritari í Valhúsaskóla öll árin sem við systkinin geng- um í gegnum gagnfræðanám. Við vorum stolt af því að okkar glæsi- lega frænka væri starfsmaður skólans og tengd okkur enda vel liðin af nemendum skólans. Nú þegar við systkinin eld- umst og fullorðnumst og höfum eignast okkar eigin börn sjáum við hve mikið ríkidæmi er fólgið í því að hafa fjölskyldu sína og ást- vini nálægt og geta notið ljúfra stunda. Að hafa móðursystur sín- ar og frændfólk í næsta nágrenni er dýrmætt og erum við einstak- lega þakklát fyrir þær ljúfu æskuminningar sem nálægð okk- ar og sambýli á Seltjarnarnesi veitti okkur. Það var fallegt að sjá sam- heldni og ástríki fjölskyldu Svölu. Lengi vel var sá siður við- hafður að börn hennar og barna- börn hittust á föstudögum heima hjá Svölu á Kirkjubrautinni í „happy hour“ undir lok vinnuvik- unnar. Oftar en ekki var okkur boðið með og minnumst við þeirra stunda með ánægju. Við kveðjum einstaklega góða og glæsilega frænku sem við munum sakna mikið. Við biðjum guð að styrkja dætur Svölu og fjölskyldur þeirra. Sigurður, Anna og Margrét. Ég kveð þig kæra Svala með söknuði og þakklæti. Allar góðu stundirnar saman í Gullfos- sklúbbnum og kvennahlaupinu í Garðabæ áratugum saman. Það var gefandi að eiga samleið með þér, vandaða og glæsilega vin- kona. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Minningin lifir. Gunnlaug. Helga Svala Sigurðardóttir Okkar elskaði, yndislegi og hjartahlýi sonur, bróðir, mágur og frændi, GUÐNI PÉTUR GUÐNASON, Sólheimum 7, Reykjavík, lést af slysförum föstudaginn 22. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Guðni Heiðar Guðnason Sigrún Drífa Annieardóttir Edgar Smári Gerður Steinarsdóttir Bjarki Enok frændfólk og vinir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ÁSLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, Hvassaleiti 58 í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík 22. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 4. febrúar klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu takmarkast fjöldi í kirkjunni við 100 manns og eru ættingjar og nánir vinir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Streymt verður frá athöfninni á slóð sem birtist í vefútgáfum og facebooksíðum aðstandenda. Áslaug Haraldsdóttir Stefán Haraldsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.