Morgunblaðið - 01.02.2021, Side 1
M Á N U D A G U R 1. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 26. tölublað 109. árgangur
FJÖLBREYTTUR
HÓPUR Í
LÖGREGLUNNI ÁHRIFAMIKIL EN BROTAKENND
DANIR HEIMS-
MEISTARAR Í
HANDBOLTA
SPIKE LEE Í VÍETNAM 29 ÍÞRÓTTIR 27FJÖLNIR FORMAÐUR 10
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2
Togast á um forgang
Borist hafa 63 umsagnir um frumvarp um hálendisþjóðgarð, margar neikvæðar
Ekki ákveðið hvort þjóðgarður eða rammaáætlun verði afgreitt fyrr úr nefnd
Bergþór Ólason, formaður nefnd-
arinnar, telur að rétt kunni að vera
að ljúka umfjöllun um rammaáætlun
áður en tekið verði til við hálend-
isþjóðgarð. Málin tengist vegna tak-
markana á orkunýtingu í hálendis-
frumvarpinu. Kolbeinn Óttarsson
Proppé, framsögumaður nefndar-
innar í málinu, bendir á að venjan sé
að fjalla um mál í þeirri röð sem þau
berast úr þingsal og þar er þjóð-
garðurinn á undan.
Frestur til að skila umsögnum um
frumvarp um hálendisþjóðgarð
rennur út í kvöld. Í gær höfðu 63 um-
sagnir borist og eru þær fremur nei-
kvæðar, á heildina litið, þótt ekki sé
það einhliða.
Nefndin mun á næstunni kalla til
gesti og hefja raunverulega umfjöll-
un um málið. Til skoðunar er að fara
á vettvang.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki hefur verið ákveðið í umhverf-
is- og samgöngunefnd Alþingis hvort
fjallað verður um frumvarp um há-
lendisþjóðgarð á undan þingsálykt-
unartillögu um staðfestingu ramma-
áætlunar. Hugsanlegt er að togast
verði á um forgangsröðun verkefna
en vitað er að skoðanir eru eitthvað
skiptar um hana.
40% alls landsins
» Svæði sem þegar hafa verið
friðlýst ná til 26% landsins.
» Verði ákveðið að stofna há-
lendisþjóðgarð samkvæmt nú-
verandi áætlunum mun hann
ná til 40% flatarmáls Íslands.
MUmfjöllun um þjóðgarð … »4
Þessar gönguskíðakonur hituðu vel upp fyrir
ferðina sína í Hlíðarfjalli á Akureyri í gær.
Góð aðsókn var að skíðasvæðinu þar í gær,
enda þótti skíðafærið gott, heiðskírt, logn og sól.
Uppselt var á svæðið, en sex hundruð miðar fást
til sölu á netinu á tveimur mismunandi tímum.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Mikil aðsókn
að Hlíðarfjalli
Samkeppniseftirlitið hefur í vaxandi
mæli orðið vart við áhyggjur af sam-
keppnisaðstæðum í ferðaþjónustu.
Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri SKE, í svari við skriflegri
fyrirspurn Morgunblaðsins.
Umrædd fyrirspurn var send
vegna samtals Morgunblaðsins við
aðila í ferðaskrifstofurekstri sem
telja Icelandair Group skekkja sam-
keppnisaðstæður. Páll segir að SKE
hafi ekki borist formlegar kvartanir
um slíkt. Hann bendir þó á að SKE
hafi lagt áherslu á, í umsögn sinni
um ríkisaðstoð við Icelandair, að
lánalínan yrði ekki notuð í annað en
flugrekstur, ef af henni yrði. Ice-
landair Group stæði í margvíslegum
öðrum rekstri, meðal annars ferða-
þjónusturekstri, og því gætu keppi-
nautar Icelandair á þeim markaði,
sem ekki njóta sömu fyrirgreiðslu,
beðið skaða.
Páll segir jafnframt að SKE hafi
orðið vart við áhyggjur af aukinni
þátttöku banka í rekstri ferðaþjón-
ustufyrirtækja, sem leiðir af versn-
andi rekstri. Þá sé einnig ljóst að
vaxandi samþjöppunar gæti. SKE
fylgist með slíkum ábendingum og
metur þörf á aðgerðum. »6
Áhyggjur
af umsvif-
um banka
SKE fylgist með
ferðaþjónustunni
Morgunblaðið/Ómar
Ferðaþjónusta Samkeppniseftir-
litið hefur orðið vart við áhyggjur.
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Tilslakanir á aðgerðum tengdum
Covid-19 eru enn ekki á borðinu en
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra og Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir munu funda um
næstu skref í afléttingum í dag og á
næstu dögum. Þetta staðfestir
Svandís í samtali við Morgunblaðið.
Svandís segir að einnig verði farið
yfir tilslakanir með tilliti til litakóð-
unarkerfis Almannavarna.
Hún segir að samkvæmt upplýs-
ingum sínum af fundi með forsvars-
mönnum AstraZeneca verði af-
hendingin í þrennu í lagi í febrúar.
Von er á fyrsta skammtinum 7.
febrúar, öðrum 17. febrúar og síð-
asti verði í lok febrúar. Alls hafa
þessar þrjár sendingar að geyma
13.800 skammta af bóluefni. Bólu-
efni AstraZeneca þarf að gefa
tvisvar. „Þetta er í raun fyrsta af-
hendingaráætlunin sem Ísland hef-
ur fengið frá AstraZeneca,“ segir
Svandís. Í gær tilkynnti Ursula von
der Leyen að samist hefði um níu
milljónir skammta af bóluefni í við-
bót frá Astra Zeneca. Svandísi
reiknast til að það gæti þýtt allt að
30 þúsund í viðbót fyrir Ísland á
fyrsta ársfjórðungi.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Bóluefni Gert er ráð fyrir 13.800 skömmtum bóluefnis AstraZeneca í
febrúar. Þá eru ótaldir viðbótarskammtar sem um samdist í gærkvöldi.
Tilslakanir ekki enn verið ræddar
Svandís og Þórólfur funda í dag um
næstu skref og um litakóðunarkerfið