Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021 O p i n n n e t f u n d u r m e ð B j a r n a B e n e d i k t s s y n i O p i n n n e t f u n d u r e f n a h a g s - o g v i ð s k i p t a n e f n d a r S j á l f s t æ ð i s f l o k k s i n s B j a r n a v e r ð u r í d a g , m á n u d a g i n n 1 . f e b r ú k l . 1 2 : 0 0 . F y r i r h u g u ð s a l a á h l r í k i s i n s í Í s l a n d s b a n k e f n i f u n d a r i n s . H l e k k á f u n d i n n m á n á l g a s t á x d . i s m e ð a r u t a e i g n a r a v e r ð u r Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjórðungssamband Vestfirðinga vinnur að jarðgangaáætlun fyrir Vestfirði. Listuð hafa verið upp helstu verkefni og nú er unnið að því að ná samkomulagi um forgangsröðun þeirra. Ákveðið var á fjórðungsþingi fyrir tveimur árum að móta sameiginlega samgönguáætlun fyrir Vestfirði. Haf- dís Gunnarsdóttir, formaður Fjórð- ungssambands Vestfirðinga, segir að sú vinna sé í gangi. Komið hafi í ljós að nauðsynlegt er að hafa sérstaka áætl- un um jarðgöng. Því hafi verið fengnir aðilar til að taka út þá möguleika sem hafa verið í umræðunni og koma með hugmynd að forgangsröðun. Hafdís segir að fundað sé með sveitarfélög- unum þar sem leitast sé við að fá fram hvernig eigi að raða jarðgöngum í for- gangsröð. Nefnir hún þætti eins og öryggi íbúa, tengingu atvinnusvæða og tengingar innan sveitarfélaga. Á fréttavef BB kemur fram að í drögum sem kynnt voru sveitar- stjórnum séu settar fram hugmyndir að jarðgöngum sem samtals er áætl- að að kosti 84 milljarða. Í tveimur til- vika séu raunar settir fram tveir kost- ir og ef þeir ódýrari verði fyrir valinu verði kostnaðurinn um 70 milljarðar króna. Sjö kostir metnir Kostirnir eru, samkvæmt upplýs- ingum bb.is, ekki í forgangsröð: Hálfdán, Miklidalur, Kleifaheiði og Klettsháls á sunnanverðum Vest- fjörðum. Súðavíkurgöng og breikkun Vestfjarðaganga á norðanverðum fjörðunum. Auk þess Dynjandisheiði. Hafdís segir mikilvægt að Vestfirð- ingar komi sér saman um hvaða verk- efni eigi að vera í forgangi. Hún við- urkennir að það sé áskorun, meðal annars vegna þess hversu vegir séu lélegir í fjórðungnum og jafnvel hættulegir á mörgum svæðum. Vest- firðingar verði að tala einum rómi í þessu efni, til þess að koma sínum sjónarmiðum að við endurskoðun samgöngu- og jarðgangaáætlunar landsins. „Við verðum að gera þetta og ég trúi því að við getum það,“ segir Hafdís Gunnarsdóttir. Sjö jarðgangakostir á Vestfjörðum Lengd (km) kostnaður (ma.kr.) Klettsháls 3,8 9,5 Miklidalur 3,0 7,5 Hálfdán 6,0 15,0 Súðavíkurgöng 6,8 17,0 Súðavíkurgöng: styttri úr Arnardal 2,7 8,0 Vestfjarðagöng, breikkun 4,1 6,15 Dynjandisheiði: Geirþjófsfjörður – Dynjandisvogur 5,2 13,0 Dynjandisheiði: Kollagötugöng 2,6 6,5 Kleifaheiði 6,0 15,0 Hyggjast forgangs- raða jarðgöngum  Jarðgangaáætlun Vestfjarða unnin Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Aðilar í ferðaþjónustu lýsa margir hverjir erfiðri stöðu á samkeppnis- markaði vegna ríkjandi stöðu Ice- landair og dótturfélaga Icelandair Group. Icelandair Group hyggst selja eitt dótturfélagið, ferðaskrif- stofuna Iceland Travel, til þess að einbeita sér betur að kjarnarekstri félagsins, flugrekstri. Hins vegar lít- ur ekkert út fyrir að Icelandair Group ætli að selja annað dóttur- félag, ferðaskrifstofuna VITA, og þykir mörgum það menga sam- keppnisumhverfi ferðaskrifstofu- reksturs. Sitja ekki við sama borð Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands, segir sam- keppnisumhverfi á markaði ferða- skrifstofa vera óeðlilegt. Hún segir erfitt að eiga viðskipti við eina ís- lenska flugfélagið, Icelandair, þegar það rekur jafnframt einn stærsta að- ilann í geiranum, ferðaskrifstofuna VITA. Stjórnendur Icelandair sitja sömuleiðis í stjórn VITA og því geti verið erfitt að ræða við stjórnendur Icelandair, samstarfsaðila, þegar þeir sitja í stjórn VITA, keppinauta, á sama tíma. „Við sitjum að sjálfsögðu ekki við sama borð og VITA, það er það sem við höfum verið að benda á,“ segir Þórunn í samtali við Morgunblaðið. Hún segir að margt jákvætt gæti hlotist af því að Icelandair drægi sig úr rekstri ferðaskrifstofa til þess að jafna stöðu á samkeppnismarkaði. „Ef Icelandair stæði ekki í þessum ferðaskrifstofurekstri sínum gætu þau virkjað ferðaskrifstofur í sam- starf við sig og stuðlað þannig að auknum viðskiptum fyrir sig og aðra,“ segir Þórunn. „Það er rosa- lega erfitt fyrir ferðaskrifstofur að skilja þetta. Icelandair segir að VITA sé ferðaskrifstofa og hún sé hluti af flugrekstri. Slíkur rekstur hefur hingað til aldrei verið talinn hluti af flugrekstri. Ég er farin að halda að stjórnendur Icelandair viti ekki hvað ferðaskrifstofa stendur fyrir.“ Trúnaður erfiður Eins og fyrr segir Þórunn skjóta skökku við að stjórnendur Icelanda- ir sitji í stjórn VITA. Þannig séu stjórnendur bæði í samstarfi við ferðaskrifstofur sem aðilar í flug- rekstri en taki svo beinan þátt í rekstri ferðaskrifstofu, keppinauta þeirra sem félagið á viðskipti við. „Það er tímaskekkja að stjórnend- ur Icelandair sitji í stjórn VITA. Ég man ekki til þess að slíkt hafi við- gengist hjá öðrum flugfélögum sem ég hef átt viðskipti við á mínum ferli. Maður hefur ekkert ráðrúm til þess að ræða eitthvað í trúnaði við sam- starfsaðilann Icelandair vegna þess að stjórnendur félagsins sitja í stjórn VITA, keppinautarins.“ Ekkert nýtt mál Gunnar Rafn Birgisson, stjórnar- formaður og eigandi Atlantik ferða- skrifstofu, er á sama máli. Hann segir að samfélagsleg ábyrgð Ice- landair Group sé mikil og það sé hlutverk stjórnvalda að tryggja heil- brigða og eðlilega samkeppni á markaði. „Þetta er ekkert nýtt mál,“ segir Gunnar við Morgunblaðið. „Sam- félagsleg ábyrgð Icelandair Group er mikil. Það hlýtur að þurfa að skoða samkeppnisstöðu þessara fyr- irtækja betur og setja samstæðunni mjög ströng skilyrði af stjórnvöldum og samkeppnisyfirvöldum. Það er mikilvægt fyrir okkur öll að fylgjast með því hvernig stjórnvöld hyggjast útfæra ábyrgð á lánalínum, ef það kemur til þess að þær verði nýttar í þágu flugfélagins Icelandair. Hlut- verk stjórnvalda, Samkeppniseftir- litsins og eigenda Icelandair Group hlýtur að miða að því að tryggja samhliða, heilbrigða og eðlilega samkeppni annarra dótturfélaga samstæðunnar á markaði.“ Gunnar bætir við að sér þætti ótrúlegt ef Icelandair ætlaði að reyna að fara á svig við skilyrði sem Alþingi setti þegar það samþykkti ríkisábyrgð á lánalínur Icelandair. Markmiðið hafi verið að styðja við flugrekstur á erfiðum tímum. Koma verði í veg fyrir að 15 milljarða króna ríkisábyrgð verði notuð í eitt- hvað annað en það sem upphaflega var fyrirhugað. „Það er með ólíkindum ef for- svarsmenn Icelandair ætla sér að skauta framhjá skilyrðunum um ábyrgð á lánalínum með þessum hætti, skilyrðum sem sett voru af Al- þingi. Tilgangur laganna og vilji Al- þingis er að halda uppi samgöngum flugfélagins Icelandair við útlönd en ekki að styðja við ferðaskrifstofur í samkeppnisrekstri þótt þær séu í eigu Icelandair Group.“ Stjórnarsetan eðlileg Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segist kannast við þessa umræðu. Hann er þó á öndverðum meiði og segir ekkert óeðlilegt við að samsteypa á borð við Icelandair Group sé rekin á þann hátt sem Þór- unn og Gunnar Rafn eru svo ósátt við. Icelandair hafi sýnt fram á til- hneigingu til þess að einbeita sér í auknum mæli að flugrekstri. „Það er ekkert óeðlilegt að sam- steypa sé rekin á þennan hátt,“ segir hann við Morgunblaðið. „Icelandair hefur náttúrlega sýnt þá tilhneig- ingu að einbeita sér í auknum mæli að flugrekstrinum, nú síðast með því að hyggjast selja Iceland Travel. Markaðurinn er mjög lítill og auðvit- að þarf að halda mjög vel utan um samkeppnisstöðu.“ Icelandair gerir samkeppni erfiða  Rekstraraðilar ferðaskrifstofa segja Icelandair leika tveimur skjöldum  Framkvæmdastjóri SAF á öndverðum meiði  Samkeppniseftirlitið vart við áhyggjur af aðkomu bankanna að ferðaþjónustunni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Icelandair er sagt skekkja samkeppnisstöðu ferðaskrifstofa hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.