Morgunblaðið - 01.02.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
Mest selda
liðbætiefni
á Íslandi
LIÐEYMSLI, STIRÐLEIKI
EÐA BRAK Í LIÐUM?
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
„Nutrilenk Gold hefur gert mér
kleift að æfa og keppa í hjólreiðum
undanfarin 4 ár með óvæntum
árangri. Ég hef notað Nutrilenk í
mörg ár og mér finnst svo magnað
að efnið fjarlægir óþægindi í hnénu
ef ég tek það inn daglega. Hef prófað
koma einkennin aftur í ljós. Ég var búinn að afskrifa mig sem keppnismann í
átaksíþróttum fyrir 10 árum síðan.“
Jón Arnar Sigurjónsson (60 ára).
a
2-3ja
mánaða
skammtur í
hverju glasi
Björn Bjarnason segir á heima-síðu sinni frá fjölmennum fjar-
fundi sjálfstæðisfélaganna í Rangár-
vallasýslu á laugardag um hálendis-
þjóðgarð þar sem meðal annars kom
fram að næstum þrefalt fleiri sveit-
arfélög séu andvíg frumvarpi
umhverfisráðherra
en fylgjandi.
Björn rekur að áfundinum hafi
tveir fulltrúar í
nefnd ráðherra um
hálendisþjóðgarð sem skilaði þver-
pólitískri skýrslu, Vilhjálmur Árna-
son alþingismaður og Valtýr Valtýs-
son, tekið til máls og báðir sagt að í
frumvarpinu sem nú liggur fyrir al-
þingi væri gengið gegn tillögum í
skýrslunni.
Allt bendir því miður til þess aðumhverfis- og auðlinda-
ráðherra fari „of bratt“ í þetta mál
til að um það náist sú sátt sem um
svo stóra ákvörðun þarf að ríkja,“
skrifar Björn. „Varla getur það ver-
ið markmið ráðherrans að halda
þannig á málinu að skellt sé skolla-
eyrum við viðhorfunum sem birtast í
afstöðu ofangreindra sveitar-
stjórna? Að það sjónarmið ráði að
best sé að knýja málið í gegn til þess
að losna í eitt skipti fyrir öll við sjón-
armið þeirra sem kjörnir eru í sveit-
arstjórnir? Þrengja að lýðræðis-
legum vilja í þágu sjónarmiða og
valds sérfræðinga?
Á fundi sjálfstæðismanna hér íRangárþingi eystra kom fram
eindreginn vilji til að leggja sitt af
mörkum til að verja hálendið í þágu
náttúruverndar þótt enginn mælti
með þeirri leið sem umhverfis- og
auðlindaráðherra færi að markmið-
inu með frumvarpi sínu. Ráðherrann
ætti að taka enn eina almenna um-
ræðulotu um málið á grundvelli um-
sagnanna sem alþingi berast um
frumvarpið,“ skrifar Björn. Þetta er
hógvær krafa. Hér er mikilvægt mál
á ferð og brýnt að um það ríki sátt.
Björn Bjarnason
STAKSTEINAR
„Of bratt“ til að
sátt náist
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Páll Ragnarsson, tann-
læknir á Sauðárkróki og
fv. formaður Ung-
mennafélagsins Tinda-
stóls, lést á Landspít-
alanum 29. janúar sl.
eftir skammvinn veik-
indi, 74 ára að aldri.
Páll fæddist 20. maí
1946 á Sauðárkróki, son-
ur Ragnars Pálssonar,
útibússtjóra í Búnaðar-
bankanum, d. 1987, og
Önnu Pálu Guðmunds-
dóttur húsmóður, d. 2018. Páll ólst
upp á Sauðárkróki, varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1966 og
lauk prófi í tannlækningum frá Há-
skóla Íslands 1972.
Páll æfði ýmsar íþróttir með
Tindastóli á yngri árum, einkum
knattspyrnu, og lék síðan með meist-
araflokki Vals árin 1966 til 1974. Upp
úr stendur leikur Vals gegn portú-
galska liðinu Benfica í Evrópukeppni
meistaraliða á Laugardalsvelli 1968.
Áhorfendamet var sett á leiknum er
ríflega 18 þúsund manns troðfylltu
völlinn. Aðalstjarna Benfica var
Portúgalinn Eusébio, oft kallaður
Svarti pardusinn. Páll fékk það hlut-
verk í vörninni hjá Val að gæta Portú-
galans og tókst það vel til að hann
skoraði ekkert mark í markalausu
jafntefli og eftir leikinn fékk Páll við-
urnefnið Eusébio-baninn. Páll fékk
mikið hrós frá Eusébio, sem hafði
þetta að segja um
varnarjaxlinn íslenska:
„Hann lék drengilega
og sleppti mér aldrei
úr augsýn. Hann á
heiður skilið fyrir að
hafa gætt mín svo vel
með þessum hætti.“
Páll flutti aftur á
Sauðárkrók að loknu
tannlæknanámi og
knattspyrnuiðkun hjá
Val og spilaði í nokkur
ár með Tindastóli.
Hann varð formaður félagsins 1975
og gegndi því embætti allt til 2006.
Páll barðist fyrir uppgangi félagsins
og aðstöðu þess í mörgum íþróttum,
óþrjótandi allt fram á síðasta dag.
Hann fékk gullmerki ÍSÍ árið 1982, á
75 ára afmæli Tindastóls, og gull-
merki UMFÍ 2007, fyrir störf sín í
þágu Tindastóls. Sama ár varð hann
heiðursfélagi félagsins. Þá fékk hann
silfur- og gullmerki KSÍ. Páll starf-
rækti tannlæknastofu sína á Sauðár-
króki frá 1974 og allt til dauðadags.
Páll var virkur í starfi Sjálfstæðis-
flokksins á Sauðárkróki og átti m.a.
sæti á lista í bæjarstjórnarkosningum
og í ýmsum nefndum fyrir flokkinn.
Eftirlifandi eiginkona Páls er Mar-
grét Steingrímsdóttir hjúkrunar-
fræðingur. Börn þeirra eru Ragnar, f.
1972, Helga Margrét, f. 1975, og
Anna Rósa, f. 1977. Barnabörnin eru
sjö talsins.
Andlát
Páll Ragnarsson
Unnið er að því innan borgarkerf-
isins að bæta úr mistökum sem gerð
voru við uppsetningu hleðslustöðva
á Hrannarstíg í Vesturbæ Reykja-
víkur, aftan við Landakotsspítala.
Eins og greint var frá í síðustu viku
var hleðslustöðvunum komið fyrir á
miðri gangstétt að því er virðist svo
þær gætu nýst bílum beggja vegna
gangstéttarinnar.
Í tölvupósti skrifstofustjóra um-
hverfis- og samgöngusviðs borg-
arinnar til aðfangastjóra Landspít-
alans, sem Morgunblaðið fékk
sendan, er spítalinn beðinn afsök-
unar á að hafa ekki verið hafður með
í ráðum þegar framkvæmdin var
undirbúin. Þá er enn fremur bent á
að samkvæmt deiliskipulagi sé gert
ráð fyrir að minnsta kosti 1,5 metra
breiðum stíg á svæðinu, sem sé ekki
uppfyllt nú eftir komu hleðslustöðv-
anna. Það hafi einhvern veginn mis-
farist vegna fjölda ólíkra aðila sem
komu að verkefninu, en þar á meðal
er ráðgjafarfyrirtækið VSO ráðgjöf.
Samkvæmt póstinum eru tvær
lausnir í boði. Önnur er að færa
hleðslustöðvarnar út í hornið á
gangstéttinni, hin að stytta bíla-
stæðin austan megin gangstétt-
arinnar um hálfan metra og breikka
gangstéttina sem því nemur.
Hleðslustöðvarnar yrðu þá áfram á
miðri gangstétt, en breiddin hvorum
megin yrði næg til að uppfylla skil-
yrði deiliskipulags, 1,5 metrar. Síð-
ari kosturinn er sagður einfaldari.
alexander@mbl.is
Unnið að lagfæringu á hleðslustöðvum
Framkvæmd brýtur gegn deiliskipulagi Gangstétt ekki lengur nógu breið
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Hleðsla Hleðslustöðvar á gangstétt.