Morgunblaðið - 01.02.2021, Page 13

Morgunblaðið - 01.02.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Lögreglan í Rússlandi handtók rúmlega 4.800 manns eftir fjölmenn mótmæli, sem haldin voru til stuðn- ings stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní í öllum helstu borgum Rússlands í gær. Kröfðust mótmæl- endur þess að hann yrði látinn laus úr haldi, en réttað verður í máli hans á morgun, þriðjudag. Lögreglan í Moskvu brást við mótmælunum þar með því að loka miðborg höfuðborgarinnar fyrir allri umferð og mátti sjá hundruð lögregluþjóna á götum úti. Mót- mælendur, sem hugðust mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar rússnesku leyniþjónustunnar FSB, urðu því að finna sér aðra mótmælastaði í snatri og dreifðust þeir um borgina. Bandaríkin og ESB andmæla Antony Blinken, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, fordæmdi í gær aðför lögreglunnar að mótmæl- endum og fréttamönnum, en þetta er önnur helgin í röð þar sem fjöldi fólks er færður í járn eftir mótmæli í Rússlandi. Svaraði utanríkisráðu- neyti Rússlands fyrir sig og sakaði Bandaríkjastjórn um „gróf afskipti“ af innanríkismálum sínum og að hafa ýtt undir mótmælin með sam- félagsmiðlum. Josep Borrell, utanríkismála- stjóri Evrópusambandsins, for- dæmdi einnig fjöldahandtökurnar, sem og það sem hann kallaði vald- beitingu langt umfram efni gagn- vart bæði mótmælendum og blaða- mönnum sem væru að fjalla um mótmælin. „Fólk þarf að mega nýta rétt sinn til mótmæla án ótta við að vera kúgað til hlýðni. Rússland þarf að standa við alþjóðlegar skuldbind- ingar sínar,“ sagði Borrell á twitter- síðu sinni. Hann hyggst ferðast til Moskvu á fimmtudaginn til þess að þrýsta á stjórnvöld um að láta Nav- alní lausan, en utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hafa hót- að því að gripið verði til refsi- aðgerða gegn Rússum ef svo verði ekki. Marc Garneau, utanríkisráðherra Kanada, hvatti Rússa í gærkvöldi til þess að láta þá sem handteknir voru í mótmælum helgarinnar lausa, og standa um leið vörð um prentfrelsi. Eiginkona Navalnís handtekin Helstu samstarfsmenn Navalnís sögðu að Júlía eiginkona hans hefði verið á meðal þeirra sem handtekn- ir voru. Hún hafði skömmu áður til- kynnt komu sína á mótmælin og hvatt aðra til þess að láta í sér heyra. „Ef við erum þögul áfram gæti hvert okkar sem er orðið fyrir þeim á morgun,“ sagði hún á insta- gram-síðu sinni. Þá hafa samverka- menn Navalnís hvatt stuðnings- menn hans til þess að fjölmenna fyrir utan dómshúsið þegar réttað verður yfir honum í vikunni. AFP Gráir fyrir járnum Fjöldi lögreglumanna tók þátt í aðgerðum vegna mótmælanna, þar á meðal þessir sem stóðu vörð um miðborg Sankti Pétursborgar. Þetta er önnur helgin í röð sem mótmæli verða vegna Navalní-málsins. Mótmælt aðra helgina í röð  Rúmlega 4.800 manns handteknir í mótmælum til stuðnings Navalní  Banda- ríkin, Evrópusambandið og Kanada gagnrýna „harkalegar“ aðfarir lögreglunnar Handtaka Rúmlega 4.800 voru handteknir vítt og breitt um Rússland. Sérfræðingar alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar WHO kynntu sér í gær aðstæður við Hunan-fiskmark- aðinn í miðborg Wuhan, sem sagður er hafa verið uppspretta fyrstu hóp- smitanna í kórónuveirufaraldrinum. Leituðu þeir þar vísbendinga um mögulegar orsakir faraldursins. Forsvarsmenn WHO hafa hins vegar þegar varað við of mikilli bjartsýni um að leiðangur sérfræð- inganna muni geta komist að ná- kvæmum upptökum veirunnar, en heimsókn þeirra er undir vandlegu eftirliti og yfirumsjón kínverskra stjórnvalda. Peter Daszak, einn af leiðangurs- mönnum WHO, sagði á twittersíðu sinni í gær, að þrátt fyrir að meira en ár væri liðið frá því að faraldurinn braust út á markaðnum hefði heim- sóknin verið „mjög mikilvæg“ og hópurinn hefði rætt við lykilstarfs- fólk og fengið upplýsingar sem gætu aðstoðað við að skýra út hvernig veiran breiddist út. Könnuðu aðstæður við fiskmarkaðinn  Sendinefnd WHO kannar upptökin AFP Vettvangsferð Sérfræðingar WHO heimsóttu Hunan-markaðinn í gær. Hinn hundrað ára gamli sir Tom Moore, fyrrverandi höfuðsmaður í breska hernum, var lagður inn á sjúkrahús í gær vegna kórónu- veirusmits. Moore, eða „Kafteinn Tom“ eins og hann er kallaður í Bretlandi, vakti heimsathygli síð- asta vor þegar hann gekk um garð sinn í söfnunarskyni fyrir breska heilbrigðiskerfið vegna kórónu- veirunnar. Náði hann að safna milljónum punda og aðlaði drottn- ingin hann fyrir afrek sitt. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sendi í gær kveðjur sín- ar og sagði hann alla bresku þjóð- ina standa þétt að baki Kaftein- inum. BRETLAND AFP Kafteinn Tom Moore var aðlaður fyrir söfnunarátak sitt síðasta vor. Kafteinn Tom með kórónuveiruna Lögfræðingar Donalds Trumps, þau Butch Bow- ers og Deborah Barbier, hafa hætt störfum fyr- ir Bandaríkja- forsetann fyrr- verandi. Þau munu því ekki taka þátt í máls- vörn hans fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings, þar sem hann hefur verið kærður fyrir embættisbrot. Í frétt breska ríkis- útvarpsins segir að þrír lögfræð- ingar Trumps til viðbótar, þeir Greg Harris, Josh Howard og Johnny Gasser, hafi einnig látið af störfum. Því þykir óljóst hverjir munu sinna málsvörn Trumps þeg- ar málsmeðferð í öldungadeildinni hefst 8. febrúar næstkomandi. BANDARÍKIN Trump yfirgefinn af lögmönnum sínum Donald Trump

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.