Morgunblaðið - 01.02.2021, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
✝ Haukur Helga-son fæddist á
Ísafirði 24. júlí
1933. Hann lést 22.
janúar 2021.
Foreldrar
Hauks: Helgi
Hannesson, f. 18.4.
1907, d. 30.11.
1998, kennari á
Ísafirði og síðar
forseti ASÍ og bæj-
arstjóri Hafn-
arfjarðar, og Kristjana Guðrún
Margrét Þorleifsdóttir, f. 27.11.
1907, d. 9.8. 1981, húsfreyja á
Ísafirði og í Hafnarfirði.
Hann lauk gagnfræðaprófi á
Ísafirði 1949, prófi frá Sam-
vinnuskólanum í Reykjavík
1951, lokaprófi frá lýðháskól-
anum í Malung í Svíþjóð 1952,
kennaraprófi frá KÍ 1955 og
stundaði framhaldsnám í stærð-
fræði við KHÍ 1971-72. Þá sótti
hann fjölda starfstengdra nám-
skeiða hér á landi og erlendis.
Haukur var sjómaður á Ísa-
firði 1947-49, togarasjómaður
hjá BÚH 1949-50, sjómaður,
verkamaður og vökumaður
með námi og kennslu 1950-58,
forstöðumaður Vinnuskóla
Hafnarfjarðar í Krísuvík 1959-
64, kennari við Barnaskóla
Hafnarfjarðar 1955-61 og var
Hanna Ragnheiður, 22.1. 1961,
búsett í Danmörku.
Haukur var framkvæmda-
stjóri FAAS, sem nú heitir Alz-
heimersamtökin, á árunum
2000-2009. Á þeim árum komu
samtökin á fót þremur dag-
þjálfunarhúsum fyrir fólk með
heilabilun, Fríðuhúsi, Drafnar-
húsi og Maríuhúsi.
Haukur var formaður Félags
kennara á Reykjanesi 1961-71,
sat í samninganefnd kennara
og BSRB 1970-85, í stjórn
BSRB 1981-85, í flokksstjórn og
um árabil í miðstjórn Alþýðu-
flokksins frá 1966, í bankaráði
Búnaðarbanka Íslands frá 1980,
sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
1974-77, var formaður félags-
málaráðs Hafnarfjarðar 1970-
74 og um skeið frá 1985 og einn
af stofnendum Fjarðarfrétta og
í ritstjórn þeirra fyrstu árin.
Haukur varð snemma mikill
ljósmyndaáhugamaður. Það má
sjá af myndum hans sem hann
setti upp á vef sínum
www.myndverk.is og eru þar
enn. Haukur hélt víða ljós-
myndasýningar.
Haukur verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 1.
febrúar 2021 klukkan 13. Nán-
ustu aðstandendur verða við at-
höfnina og henni streymt:
https://youtu.be/S-m1UuSDCLg.
Hlekk á streymi má einnig
finna á Andlátsvef mbl.is:
https://www.mbl.is/andlat
skólastjóri Öldu-
túnsskóla frá stofn-
un 1961 og til
1998.
Fyrri kona
Hauks var Kristín
H. Tryggvadóttir,
f. 14.8. 1936, skóla-
stjóri.
Seinni kona
Hauks er Sigrún
Davíðsdóttir, f. 2.9.
1937, sjúkraliði.
Börn Hauks og Kristínar eru
Helgi Jóhann, f. 11.12. 1956,
kvæntur Heiðu Hafdísardóttur
og eiga þau fjögur börn og
fjögur barnabörn; Unnur Aðal-
björg, f. 10.7. 1958, sem á þrjár
dætur og sjö barnabörn; Alda
Margrét, f. 18.2. 1963, gift
Gretti Sigurjónssyni, símvirkja
og tölvustjóra hjá HÍ, og eiga
þau fjögur börn og fimm barna-
börn.
Börn Sigrúnar eru Anna Sig-
rún Hreinsdóttir, f. 5.12. 1958;
Steinunn Hreinsdóttir, f. 20.11.
1960, og Vilhjálmur Hreinsson,
f. 7.1. 1969.
Alsystir Hauks er Erla Mar-
grét Helgadóttir, f. 15.6. 1948,
hjúkrunarfræðingur í Hafn-
arfirði, en hálfsystkin börn
Helga eru Helgi Þór f. 4.1.
1956, kennari í Hafnarfirði, og
Elsku besti Haukur okkar.
Við vitum ekki alveg hvar við
eigum að byrja, við eigum svo
margar fallegar og góðar minn-
ingar um þig. Þú varst ein
hjartahlýjasta og besta mann-
eskja sem við höfum kynnst, eins
og sagt er gull af manni. Við
systkinin erum því ævinlega
þakklát fyrir að fá að kynnast
þér og vera meira og minna ná-
lægt þér í tæp 40 ár. Mömmu
okkar varst þú yndislegur og ást
ykkar var svo falleg og einlæg.
Þið mamma voruð ekki ein-
ungis foreldrar í okkar huga,
heldur voruð þið líka okkar
bestu vinir. Allar minningarnar
sem við eigum af bústaðarferð-
um, veiðiferðum og ferðum okk-
ar erlendis eru ómetanlegar. Það
var yndislegt að fylgjast með
hvernig þú sinntir öllum barna-
börnum á þinn einstaka hátt með
öllum sögustundunum, ævin-
týraleikjunum og fjársjóðsferð-
unum. Barnabörnin elskuðu að
kúra hjá þér í hálsakoti og eru til
margar myndir því til sönnunar.
Okkur þykir svo óendanlega
vænt um þig elsku Haukur. En
við vitum að þér líður betur
núna, síðustu vikur voru þér
mjög erfiðar. En við komum allt-
af til með að sakna þín, þú átt
sérstakan stað í hjarta okkar og
við erum full þakklætis fyrir að
fá að hafa þig í lífi okkar.
Við munum passa mömmu
fyrir þig og hugsa vel um hana,
því við vitum að þú hafðir miklar
áhyggjur af henni.
Elsku Haukur, stórt takk fyr-
ir allt!
Elskum þig,
Anna, Steinunn,
Vilhjálmur, makar
börn og barnabörn.
Haukur Helgason var einn af
bestu sonum Hafnarfjarðar.
Hann gerði umhverfi sitt og
samfélag betra. Kraftmikill og
ákveðinn og fylgdi fast eftir hug-
sjónum sínum, markmiðum og
áformum. Lét svo sannarlega til
sín taka og kom víða við á langri
ævi. Og lagði ávallt gott til.
Og nú er hann allur. Lést 87
ára gamall á Hrafnistu í Hafn-
arfirði.
Haukur Helgason var mynd-
armaður á velli, lá hátt rómur,
mælskur, brosmildur og hlýr.
Var vel til forystu fallinn, enda
kallaður til slíkra starfa oft og
einatt. Lífsstarf hans var að
vinna með ungu fólki og koma
því til manns og mennta; það
gerði hann sem skólastjóri Öldu-
túnsskóla í heil 37 ár, allt frá
stofnun skólans 1961. Var frum-
kvöðull í skólastarfi, frjór og
framsækinn um nýtt og endur-
bætt skólastarf á fjölmörgum
sviðum. Þúsundir nemenda
Hauks í gegnum áratugina
minnast nú læriföður, samherja
og vinar.
En Haukur Helgason var ekki
maður einhamur. Hann var
dugnaðarforkur, félagsmálatröll
og hafði einlægan áhuga á því að
gera þjóðfélagið réttlátara. Í
honum bærðist heitt hjarta þess
manns sem vildi leggja lið og
hjálpa, ekki síst þeim er höllum
fæti stóðu. Hann var og enda
gegnheill jafnaðarmaður, krati,
Hafnarfjarðarkrati. Hann þekkti
vel baráttu fólksins í Firðinum
fyrir brauðinu. Haukur vildi
jafnrétti í raun; að allir hefðu
jafnan rétt til menntunar, at-
vinnu við hæfi og annarra lífsins
gæða, burtséð frá stétt, kyni eða
litarhætti. Hann vildi sjá
bræðralagið blómstra; virka
samvinnu fólks og samhjálp í
lífsins erli. Og hann unni frels-
inu; að almenningur væri frjáls
til athafna og orða og gæti nýtt
hæfileika sína og tækifæri til
fullnustu.
Og á þessum vettvangi stjórn-
málanna lét hann heldur betur til
sín taka. Var bæjarfulltrúi um
skeið fyrir Alþýðuflokkinn í
Hafnarfirði, formaður fjöl-
margra nefnda og ráða, í forystu
Hafnarfjarðarkrata um áratuga
skeið og markaði þar stefnu og
verklag. Fáar mikilvægar
ákvarðanir voru teknar án þess
að leita ráða hjá Hauki Helga-
syni fyrst!
Sá sem þetta ritar var bæj-
arstjóri í Hafnarfirði 1986-1993
og þingmaður um árabil í kjöl-
farið. Þau voru ófá samtölin sem
við Haukur áttum á þessum ár-
um og hann jafnan ráðhollur,
heill og hreinskiptinn. Við urðum
fljótlega trúnaðarvinir og sú vin-
átta ávallt einlæg og heil. Fyrir
það skal þakkað að leiðarlokum.
Alþýðuflokkurinn á landsvísu
naut einnig hæfileika Hauks í
forystusveit flokksins. Það sama
átti við um verkalýðshreyf-
inguna.
Hann var ljósmyndari góður
og glæsilegt myndasafn hans er
fjársjóður þegar kemur að
mannlífi á Stór-Hafnarfjarðar-
svæðinu um áratugaskeið.
Við Hafnarfjarðarkratar, Al-
þýðuflokkurinn og jafnaðar-
menn víða um land þökkum
mannvininum Hauki Helgasyni
fyrir langa og farsæla samferð
og samvinnu, góðar og glaðar
stundir og hans merku verk til
hagsbóta fyrir land og þjóð.
Öllum ættingjum hans og vin-
um sendi ég hugheilar samúðar-
kveðjur og bið þeim Guðs bless-
unar.
Blessuð sé minning Hauks
Helgasonar.
Guðmundur Árni Stefánsson.
Haukur Helgason var mætur
maður. Skólamaður fram í fing-
urgóma. 28 ára varð hann skóla-
stjóri í Öldutúnsskóla í Hafnar-
firði, sem hóf starfsemi haustið
1961. Lækjarskóli var þá orðinn
yfirfullur og Öldutúnsskóli var
því skóli Hafnfirðinga númer
tvö. Um það leyti voru íbúar
bæjarins 5-6.000. Skólinn byrj-
aði með sjö og átta ára börn og
síðan bættist við nýr árgangur á
hverju ári, svo skólinn óx um ná-
lægt 100 börn í senn og þá þurfti
árlega fleiri kennara. Kennslu-
stofur voru tví- og þrísetnar yfir
daginn og kennt á laugardögum
líka.
Það var mitt lán að fá ráðn-
ingu sem ungur nýútskrifaður
kennari hjá Hauki 1964. Góður
hópur kennara var þar fyrir og
sífellt bættust ungir og ferskir
félagar í hópinn. Haukur hafði
vit á að velja gott fólk og stjórna
því. Hann hafði hlýja nærveru,
var ákveðinn og umhyggjusamur
bæði gagnvart nemendum og
kennurum. Honum var umhugað
um að öllum liði vel, að kennarar
gætu notið sín og átt frumkvæði,
samtímis því að ná árangri í
kennslunni. Þarna myndaðist
einstaklega gott vinasamfélag
þar sem vinnustundir voru ekki
taldar og unnið langt fram eftir
degi. Öldutúnsskóli varð frum-
kvöðull í ýmsum nýjungum í
skólastarfi. Allir fengu að leggja
sitt af mörkum undir stjórn
Hauks.
Skólastjórafrúin, Kristín H.
Tryggvadóttir, kenndi við skól-
ann og þau áttu sitt heimili í
næsta húsi, þar sem við urðum
mörg heimagangar og nutum
vináttu og leiðbeiningar bæði í
kennslu og mannlegum málefn-
um.
Þetta voru sannarlega dýr-
mæt ár, sem lögðu grunn að
starfsævi minni. Samband okkar
var ekki mikið eftir að ég hætti
kennslu 1976, en þegar við hitt-
umst eða töluðum saman í síma,
voru vinaböndin þau sömu.
Sterk og sönn vinátta. Ótal sinn-
um hef ég í huganum sent Hauki
þakklætisþanka þegar ég hef
nýtt mér ýmis ráð hans í starfi
mínu meðal fólks á öllum aldri.
Haukur fékk á seinni árum
heilablæðingar sem trufluðu
hreyfingar og tal svo hann sagði
ekki mörg orð og dvaldi að lok-
um á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Síðast hitti ég hann fyrir um ári,
þegar ég leit í heimsókn. Fyrst
kynnti ég mig fyrir Sigrúnu,
konu hans, sem spurði: „Á ég að
þekkja þig?“ „Nei,“ svaraði ég,
„en ég veit að Haukur þekkir
mig.“ Og þá heyrðist úr horni:
„Já, já, já, elskan mín.“
Nú við leiðarlok lífsins er mér
efst í huga að þakka.
Ég þakka fyrir dýrmæta vin-
áttu sem aldrei slitnaði.
Ég þakka fyrir hjálp til að
verða betri kennari og sam-
starfsmaður.
Ég þakka umhyggju, gleði og
vinnu Hauks Helgasonar.
Vertu Guði falinn um eilífð,
kæri vinur.
Verið Guði falin, kæru Helgi,
Unnur, Alda og fjölskyldur.
Guð styrki og blessi ykkur öll
– og allar góðu minningarnar.
Stína Gísladóttir.
Það er ekki sjálfgefið að kenn-
aramenntaður maður verði góð-
ur kennari. Það er heldur ekki
sjálfgefið að góður kennari verði
góður skólastjórnandi.
Í dag kveðjum við Hauk
Helgason skólastjóra en ég hef
átt því láni að fagna að þekkja
hann síðan á unglingsárum. Fjöl-
skylda Hauks og foreldrar mínir
áttu ásamt fleirum sumarbústað-
inn Bakkasel við Þingvallavatn
og þar vörðum við hvert sumar
mörgum gæðastundum við fisk-
veiðar og samræður. Haukur var
mjög vel heima á öllum mögu-
legum sviðum og okkur kom allt-
af mjög vel saman enda kunni
hann að tala við og umgangast
ungling eins og mig.
Liðu nú árin.
Eftir nám og dvöl erlendis
rakst ég á Hauk af tilviljun vorið
1981 og sagði honum að ég væri
að leita mér að kennarastöðu
fyrir sunnan. Hann réð mig um-
svifalaust til starfa við Öldutúns-
skóla og kenndi ég þar undir
hans stjórn alveg til vorsins 1997
þegar hann hætti störfum sem
skólastjóri. Og þar komst ég að
því að Haukur var afbragðssam-
starfsmaður. Hugmyndir okkar
kennaranna, sem stundum gátu
orðið svolítið villtar, voru alltaf
teknar til góðfúslegrar skoðunar
og ef nokkur flötur var á því að
framkvæma þær var það gert. Í
þeim minningabanka standa upp
úr verkefni á borð við umfangs-
mikið samstarf við aðra skóla
bæjarins um grunnskólahátíðir,
plötuútgáfa og sjónvarpsatriði,
bekkjarferð til Danmerkur, ferð-
ir heilu árganganna til Hollands
og Síberíuferð valins hóps.
Haukur var auk þess hrókur alls
fagnaðar í ótal skíðaferðum ung-
lingadeildar þar sem gist var í
tvær nætur hverju sinni og þá
gat nú oft verið glatt á hjalla.
Það er ekki alltaf tekið út með
sitjandi sældinni að sætta ólík
sjónarmið 50-60 kennara og 600-
800 nemenda á þeim aldri þegar
heimur unga fólksins er að opn-
ast í allar áttir og bæði líkami og
sál að þroskast með ógnarhraða
en það tókst Hauki alveg dæma-
laust vel. Honum hélst mjög vel
á kennurum og reyndist okkur
öllum sannkallaður haukur í
horni þegar eitthvað bjátaði á.
Það er ekki sjálfgefið að kenn-
aramenntaður maður verði góð-
ur kennari en það var Haukur.
Það er heldur ekki sjálfgefið að
góður kennari verði góður skóla-
stjórnandi en það var Haukur
líka.
Um leið og ég kveð vin minn,
velgjörðarmann og yfirmann til
áratuga sendum við Heidi öllum
börnum hans, afkomendum öðr-
um og öðrum ástvinum okkar
innilegustu kveðjur. Það er gott
að geta yljað sér við góðar minn-
ingar á erfiðum stundum.
Matthías Kristiansen.
Haukur Helgason er látinn.
Með örfáum orðum viljum við
kveðja kæran vin og vinnufélaga
til áratuga. Það varð hlutskipti
Hauks mestan hluta síns starfs-
dags að stjórna stórum og fjöl-
mennum vinnustað. Skólastjórn
er krefjandi og erilsamt starf, oft
gefandi en vandasamt og stund-
um vanþakklátt. Við erum sam-
mála um að Haukur var afar far-
sæll í starfi, framsækinn og
hvetjandi. Hann var ekki aðeins
þéttur á velli og þéttur í lund, í
brjósti hans bærðist stórt og
hlýtt hjarta, sem setti mildan
blæ á stjórnunarstíl hans. Hans
breiða bros og dillandi og smit-
andi hlátur skapaði jafnan létt
og notalegt andrúmsloft á kenn-
arastofunni. Hinn mannlegi
þáttur sat í öndvegi og hann var
bæði ráðhollur og raungóður.
Annan þátt í fari Hauks er vert
að nefna, en það er hversu laginn
hann var að laða fram bestu eig-
inleika bæði hjá kennurum og
nemendum. Hann beitti þeirri
snjöllu aðferð að stjórna ekki
alltof mikið. Yrði hann var við af
innsæi sínu einlægan vilja og
brennandi áhuga var hann tilbú-
inn að veita fólki visst frelsi og
gefa því dálítið lausan tauminn.
Þetta reyndist oft mjög vel. Þeg-
ar Kór Öldutúnsskóla var stofn-
aður studdi hann við bakið á okk-
ur með ráðum og dáð. Þar áttum
við ætíð „Hauk í horni“! Í fjöl-
mörgum utanferðum kórsins var
hann stundum fararstjóri, m.a. í
ógleymanlegri ferð til Kína 1982,
það var mikið ævintýri.
Við kveðjum Hauk með virð-
ingu og þakklæti fyrir samfylgd-
ina öll þessi ár og sendum að-
standendum dýpstu
samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Hauks Helgasonar.
Egill Friðleifsson,
Sigríður Björnsdóttir.
Kveðja frá skólasamfélagi
Öldutúnsskóla
Fyrsta starfsár Öldutúns-
skóla hófst í október 1961. Það
sama ár var Haukur Helgason
ráðinn skólastjóri.
Haukur var framsækinn
skólastjóri og vakti snemma at-
hygli fyrir nýstárlegar hug-
myndir. Sennilega hafa aldrei
orðið jafn miklar breytingar á
kennsluháttum og námsefni
grunnskólanna á Íslandi á jafn
skömmum tíma og átti sér stað á
árunum í kringum 1970. Nýjar
hugmyndir fengu mikinn hljóm-
grunn meðal kennara. Í Öldu-
túnsskóla tóku kennarar þátt í
að móta og semja nýtt námsefni
til kennslu og var það Haukur
sem leiddi þessa vinnu. Eitt af
því sem fljótlega var lögð mikil
áhersla á var að temja nemend-
um samvinnu og sjálfstæð
vinnubrögð. Nemendur söfnuðu
þá heimildum um viðfangsefnið
hverju sinni og unnu svo úr því í
fjögurra til sex manna hópum
sem fluttu svo niðurstöðurnar
fyrir aðra nemendur. Oft var um
að ræða leikræna uppfærslu og
unnin stór myndverk sem
skreyttu síðan kennslustofurn-
ar. Þessar kennsluaðferðir
vöktu athygli kennara í Háskól-
anum og víða um land enda
þóttu þær afar framsæknar á
þessum tíma.
Kór Öldutúnsskóla var stofn-
aður á upphafsárum skólans og
var það Haukur sem ruddi þá
braut ásamt kórstjóranum Agli
Friðleifssyni. Kór Öldutúns-
skóla er enn starfræktur í dag
og hefur starfað samfleytt í yfir
50 ár. Elsti starfandi barnakór
landsins.
Haukur lét af störfum haustið
1997 eftir 37 farsæl ár sem
skólastjóri.
Fyrir hönd skólasamfélags
Öldutúnsskóla sendi ég fjöl-
skyldu og vinum Hauks innileg-
ustu samúðarkveðjur með þakk-
læti fyrir allt sem hann gerði
fyrir skólann.
Blessuð sé minning Hauks
Helgasonar.
Valdimar Víðisson,
Skólastjóri
Öldutúnsskóla.
Haukur Helgason
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTJANA HEIÐBERG
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Fannborg 8, Kópavogi,
lést á Hrafnistu við Sléttuveg föstudaginn
29. janúar. Útför verður auglýst síðar.
Björgvin Gylfi Snorrason Guðfinna Alda Skagfjörð
Ásgeir Valur Snorrason Hildur Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn